Alþýðublaðið - 02.04.1968, Page 6

Alþýðublaðið - 02.04.1968, Page 6
Washington, 1. apríl (NTB-Reuter). — Eg mun elcki sækjast eftir ijé taka við útnefn- ingu sem forsetaefni demókrata í forsetakosningun- um í haust‘í, sagði Johnson Bandaríkjaforseti í lok sjónvarpsræðu sem hann flutti um styrjöldina í Viet nám í nótt. Akvörðun forsetans kemur öllum á ó- vart, en hún staðfestir endanlega hinn sívaxandi á- greining innan Bandaríkjanna sjálfra vegna styrjald arinnar í Vietnam og þverrandi vinsældir forsetans. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun sem birt hefur verið eru aðeins 36% þjóðarinnar ánægð með frammistöðu forsetans. Yfirlýsing Johnson í nótt rifj- ar. upp sams konar ákvörðun Tru- var Adlai Stevenson valinn fram- bjóSandi demókrata en beið mik- inn ósigur fyrir Eisenhower hers höfðingja í forsetakosningunum. Johnson forseti er nú 59 ára gam- all. Hann tók við forsetaembætti 22. nóvember 1963, þegar John F. Kenncdy var myrtur, og var endurkjörinn forseti 1964 með miklum yfirburðum. Kona og dætur Vcysstu forsetann í ræðu sinni hvatti Johnson bandarísku þjóðina til samheldni og eindrægni með orðum Kenn- edy forseta: „Okkar kynslóð Yíirlýsing Kennedys Robert Kennedy, sem nú er talinn líklegasH frambjóðandi Demókrataflokksins, hélt í gær blaðamannafund og kom ust færri að en vildu. Á fund inum voru einnig stödd kona Kennedys, Ethel og helzti ráð gjafi Kennedys, Sörensen, en hann var einnig náinn sam- starfsmaður John heitins Kennedys. Sagði Kennedy, að hann hefði fundið til einlægr ar óskar meðal bandarísku þjóðarinnar um frið í Vietnam styrjöldinni. Sagði Kennedy, að úrslit forsetakosninganna nú í haust myndu hafa úrslita áhrif fyrir þróun mála á átt- unda Hig aldarinnar og næstu kynslóð. Vegna hagsmuna Bandaríkjanna yrði að gera allt sem unnt væri til að stemma stigu við ofbeldi og lögbrotum sem nú tröllriði bandarísku þjóðfélagi. Banda- ríkin yrðu að endurskoða af- stöðu sína til þróunarlandanna og til útbreiðslu kjarnorku- vopna. Sagðist hann taka John son forseta á orðinu, er hann segðist ekki gefa kost á sér til endurkjörs og hrósaði John- son ákaft fyrir það viðsýni, sem fælist í ákvörðun hans. Kennedy lét í liós óskir um að hitta Johnson að máli og sagðist hann hafa sent John- son skeyti, þar sem hann stakk unp á að beir hittúst til þess að kanna, hvort þeir gætu sameiginlega fundið lausn á þeim vandamálum, sem nú steðjuðu að innantands og til þess að friður næðist í Viet- nam. Ennfremur sagði Kenne- dy að hann vonaðist til að á- 6 2. apríl 1968 — kvörðunin um að takmarka loftárásir á Norður Vietnam væri spor í rétta átt til að frið ur kæmist á. Er Kennedy var að því spurðu,r hvort ákvörð un Johnsons hefði breytt áætl unum hans um kosningabar- áttuna, sagði hann; „Ég hef hafið þáHtöku í kosningabar- áttunni og ætla að halda henni áfram“. Bandaríkjamanna er reiðubúin til að greiða hvaða verð sem það kostar að taka á sig hverja þá byrði, mæta hverjum örðug- leikum, styðja hvem vin sinn en verjast hverjum óvini — til að tryggja að frelsið fái staðizt og sigrað.” Forsetinn var með tárin í augunum þegar kom að lokum ræðu hans, en kona hans, sem var viðstödd, hlýddi á hana með mans forseta fyrir 16 árum. Þá bros á vör. Að ræðunni lokinni reis hún á fætur og faðmaði mann sinn að sér, en dætur þeirra tvær kysstu föður sinn. „Ég er frjáls maður.. Eftir ummæli Kennedys um sigur frelsisins hélt Johnson for- seti máli sínu áfram: „Einu megum við aldrei gleyma. Hvaða þolraunir sem við eigum framundan, eiga Banda- ríkin og málstaður þeirra ekki mest undir vopnum né valdi né óþrotlegum auðlindum landsins, heldur samheldni þjóðarinnar. Um þetta er ég fullviss. Á öllum ferli mínum sem stjórnmálamað- ur hef ég fylgt fram þeirri sann- færing minni að ég sé frjáls maður, Bandarikjamaður, þjón- ustumaður almennings og flokks maður — í þessarj og ævinlega þessari röð. í starfi mínu sem þingmaður, öldungadeildarmað- ur, varaforseti og forseti Banda- ríkjanna í 37 ár hef ég ævinlega haft samheldni þjóðarinnar að æðsta marki, og sett það mark ofar öllum flokkadráttum. Enn sem fyrr er það sannleikur að hús sem sé sjálfu sér sundur- þykkt, vegna flokkastreiíu, trú- arbragða eða kynþátta, fær ekki staðizt. Bandaríkin eru sjálfu sér sundurþykk, við erum það öll nú í kvöld. Og sem forseta landsins, allrar þjóðarinnar, fær mér ekki dulizt sú hætta sem vofir yfir bandarísku þjóðinni, og yfir von- um og horfum á friði meðal allra þjóða. Því bið ég alla Banda- ríkjamenn, hvað sem líður einka- skoðunum þeirra eða áhyggj- um, að varast sundurþykkjuna og allan þann skaða sem af henni getur leitt.” Þsð sem vannst má ekki glatast Johnson hélt áfram: „Það kom í minn hlut á harm- sögulegri stund fyrir 52 mánuð- um og 10 dögum síðan að rækja skyldur þessa embættis. Ég bað þá um hjálp guðs og þjóðarinn- ar til að við mættum halda á- fram á braut Bandaríkjanna, búa um og græða sár okkar, halda fram á veg í einni fylkingu, koma nýjum stefnumálum fram og standa við skyldu okkar við alla bandarísku þjóðina. Sameigin- lega höfum við rækt þessar skyld ur og aukið við þær. Og ég trúi því að Bandaríkin verði um alla framtíð öflugri, þjóðfélagið rétt- látara, tækifærin fleiri og meiri í landinu, vegna þess sem við höfum öll komið sameiginlega í verk á þessum árum. Laun okk- ar eru fólgin í lífi við frið og frelsi og voninni um að börn Framhald á bls. 14. ÞRIGGJA ÁRA Bandaríkjamenn vörpuðu í fyrsta skipti sprengjum á Norður-Vietnam í ágúst 1964, en þá réðust bandarískar flug vélar á norðurvíetnamskar herstöðvar til að endurgjalda árásir Norður-Vietnama á bandarísk skip á Tonkinflóa. Reglulegar loftárásir á Norð- ur-Vietnam hófust síðan 7. febrúar 1965, en þá var ráð- izt á samgönguæðar og aðra mikilvæga staði. í fyrstu sprengjuárásinni vörpuðu 49 flugvélar, sem höfðu aðsetur á flugvélamóðurskipi úr 7. flota Bandaríkjamanna á norður-víehiamskar herstöðv- ar rétt fyrir norðan hlutlausa beltið á landamærum víet- nömsku ríkjanna tveggja. Þessar flugvélar gerðu einnig árásir á brýr, járnbrautir, lestir og ferjur í suðurhluta Noður-Vietnams. Fáeinum dögum síðar var tilkynnt op inberlega að árásirnar væru gerðar vegna flutninga her- manna og vopna frá Norður- Vietnam suður yfir landamær in- Smám saman jukust sprengjuárásirnar og tóku til æ stærri hlula landsins, og farið var að varpa sprengjum á iðjuver og rafstöðvar. 29. júní 1966 komust sprengju- árásirnar á nýtt stig, en þá varpaði bandarísk flugvél í fyrsta skipti sprengjum nærri borgunum Hanoi og Haiphong. 19. maí 1967 var sprengjum varpað á raforkuver aðeins hálfan annan kílómetra frá miðborginni í Hanoi, og síð- an má heita að allt Norður- Vietnam hafi verið undirlagt sprengjuárásum. Hlé hafa verið gerð á loft árásunum annað veifið, í fyrsta skipti í maí 1965, en lengsta hléið stóð í 37 daga um áramótin 1965/’66. Og í þessum hléum hafa ævinlega verið gerðar tilraunir til að koma á friði í Iandinu. Þær tilraunir hafa þó ekki borið neinn árangur, en Norður- Vietnamar hafa ætíð sett það sem skilyrði fyrir friðarvið- ræðum að Bandaríkjamenn hættu loftárásum að fullu. Til þess hafa þeir hins vegar ekki verið reiðubúnir hingað til, en alls staðar á Vestur- löndum og þar á meðal í Bandaríkjunum sjálfum hafa þær raddir stöðugt orðið há- værari, sem hafa fordæmt loftárásarstefnu Bandaríkja- stjórnar í Vietnam, en ekk- ert lát hefur virzt vera á Bandaríkjastjórn þar til nú, að Johnson forseti tilkynnir í Iok embættisferils síns, að hann hafi fyrir skipað að hætía loftárásum á mest.allan hluta landsins. ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.