Alþýðublaðið - 02.04.1968, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 02.04.1968, Qupperneq 7
Benedikt Gröndal Kanadastjórn bauð nýlega tveim alþingis- mönnum, þeim Sigurði Bjarnasyni og Benedikt Gröndal, í heimsókn, og hafa þeir nýlokið því ferðalagi. í Ottawa heimsóttu þeir kanadiska þingið og voru kynntir á fundi Neðrideildarinn- ar. Fprseti hennar, Lucien Lamoureux, minntist við það tilefni Alþingis, elzta löggjafarþings heims, með hlýjum orðum og tók þingheim- ur undir það með því að herja hressilega í borð sín, en á þann hátt láta menn í ljós ánægju sína þar á hæ. Einnig heimsóttu þeir félagar Ontario í Toronto, borgarstjóra þar og í Mon- treal og ýmsa fleiri aðila. Næstkomandi fimmtudag, föstudag og laugardag mun mikill hluti kanadiksu þjóðar innar sitja við sjónvarpsiæki og fylgjast af eftirvæntingu með þingi Frjálslynda flokks- ins, sem fram fer í Oltawa. Verk efni þingsins er að velja nýj- an flokksformann, sem jafn- framt tekur við embætti for- sætisráðherra landsins eftir Lester Pearson, sem nú dregur sig í hlé. Atkvæðagreiðsla fer fram á laugardag og um síð- ustu helgi var enn talið, að úrslit væru algerlega óviss. Kanadamenn hafa einu sinni láður fylgzt með slíku flokks- þingi í sjónvarpi. Þá kusu íhaldsmenn (eða Framsóknar- íhaldsflokkurinn eins og hann heitir réttu nafni) Robert Stan- field foringja sinn, og er hann nú leiðtogi stjórnarandstöð- unnar. Vakti það sjónvarp mikla athygli og sýndi alþýðu manna inn í heim stjórnmála- manna á nýjan hált- Oft hafa leiðtogar Kanada tekið hver við af öðrum án á- taka. Svo var, er Pearson tók við af St. Laurent og St. Laur- ent af MacKenzie. En þeir hafa líka háð flokksþing með tví- sýnum átökum um foringja stöðuna, eins og nú. Fimmtán menn hafa boðið sig fram til forustu í Frjáls- lynda flokknum, en níu þeirra eru kallaðir ,,alvarlegir“ fram bjóðendur. Þeirra á meðal eru margir núverandi ráðherrar og í þeim hópi eru þeir, sem mestar líkur eru taldar á að komi til greina, er hl atkvæða verður gengið á laugardag. Undanfarnar vikur hafa frambjóðendur ferðazt um Kan ada þvert og endilangt til að afla sér fylgis meðal þeirra 2.475 fulltrúa, sem flokksfélög frjálslyndra hafa kosið til þingsins. Ráðherrarnir þjóta um þetta víðlenda ríki, frá Vancouver á Kyrrahafsströnd til Nýfundnalands við Atlants haf. Þeir fljúga í lánuðum smá þotum, halda fundi með þing- fulltrúum, bjóða þeim í mat- boð, kaffiboð eða síðdegis- drykkjur,- svara spurningum þeirra, ræða við blaðamenn, embætið Þeir koma helzt til greina í W’inters Martin Trudeau koma fram í hljóðvarpl og sjónvarpi. Frambjóðendur eru vandlega skoðaðir háU og lágt, spurðir spjörunum úr og jafn vel eiginkonur þeirra vegnar og metnar. Ýmsir þrautreyndir ráðherr- ar koma mjög til greina sem eftirmenn Pearsons, og þá fyrst og fremst Paul Martin ut- anríkisráðherra. En framar öllu öðru hefur framboð dóms málaráðherrans vakið athygli og gert átökin spennandi. Hann heitir Pierre Elliott Trudeau, er ungur, glæsilegur, stórgáf- aður og að öllu leyti maður hins nýja tíma. Hann hefur vakið áhuga, sérst-aklega meðal unga fólksins 1 Kanada, á svip aðan hátt og John F. Kennedy gerði í Bandaríkjunum í fram boði og forsetatíð (og bróðir hans er nú að reyna að endur- vekja). Paul Martin er heimskunnur maður fyrir störf sín sem ut- anríkisráðherra Kanada und- anfarin fimm ár. Hann var á sínum tíma helzti keppinautur Pearsons um forsætisráðuneyl ið, en hlaut utanríkismálm sem sárabætur. Var hann raun ar vel að því embætti kominn, þar sem hann er hámenntaður lögfræðingur og hefur hvaö eít ir annað verið fulltrúi Kanada á alþjóðlegum vettvangi. Heimafyrij- er hann hinn „reyndi stjórnmálamaður11 með gömul sambönd í tiokki sínum um allt landið og hefur marg - an greiða gert, sem hann -nú fær endurgoldinn með stuðn- ingi. En vandi hans er aldur- inn. Hann er 64 ára, og það þykir Kanadamönnum nú of hár aldur, ekki sízt af bví að yngri menn eru í boði. Pierre Elliott Trudeau er skæðásti keppinautur Martins og hefur raunar undanfarna daga verið talinn haía meira fylgi. Hann er 46 ára, en hef- ur aðeins selið á alríkisþinginu í Ottawa í þrjú ár, svo að segja má, að honum hafi skohð upp eins eldflaug í pólitíkinni. Hann hefur þó tekið mikinn þátt í opinberum málum í heimafylki sínu, Quebeck hinu franska, um langt árabil. Trudeau er fæddur í Montre- al og var faðir hans írönsku- mælandi, en móðir ensku. Tungumálin voru notuð jöfn- J Þinghúsið í Ottawa um höndum á heimilinu, og ólst hann þannig upp bæði við frönsku og ensku og talar mál in jöfnum höndum, eins og raunar flestir kanadiskir jptjórn málamenn verða að gera. Tru- deau er af auðugum ættum og hlaut ágæta menntun í frönsk um háskólum í Quebec, en síð- an í Harvard og London. Hann lauk fyrst lagaprófi, en lagði síðan fyrir sig hagfræði og stjórnvísindi. Ferðaðist liann víða um heim, kynntist veröld inni og rataði í ýms ævintýr. Ógiftur er hann til þessa dags. Þegar heim kom, sat að ríkj um í Quebec hinn annálaði Maurice Duplessis, sem bafði verið umbótamaður í æsku, komið Union Nationale flokkn um (sem er hægriflokkur fylk js’ns) til valda 1936, en síðan snúið við blaði og slýrt ein- hverri spilltustu fylkisstjórn í sögu. Kanada. Trudeau og marg iv nr>cr:r menntamenn tóku upp baráHu gegn honum og tókst úm síðjr að koma honum frá völdum. Trudeau er þó ekki í flökki þjóðernissinna, sem vilia að- skilnað Kanada og frjálst Quebec, eins og það, er de Gaulle ákallaði, sem frægt er orðið. Trudeau er nú orðinn helzti forustumaður „sam- bandstefnunnar“ svonefndu, sem byggist á því, að Quebec eigi að treysta framtíð sína innan kanadiska sambandsrík- isins, en ekki með aðskilnaði. Hann vill tryggja sérstöðu hinna frönskumælandi Kan- adamanna, auka ré't bejrra og efla tungu þeirra og menningu. En hann telur allt tal um skiln að ábyrgðarlausa fásinnu. Vegna þessarar stefnu er Trudeau umdeildur í heima- ríki sínu, Quebec, er nýtur því meira trausts í hinum ensku- mælandi héruðum, Má bó bú- ast við, að hann hljóti allmik- Framhald á 10. síðu.; 2. apríl 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.