Alþýðublaðið - 02.04.1968, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 02.04.1968, Qupperneq 11
2. apríl 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ UngEingamir hlutu bæöi í drengja og ÍSLENZKU unglingaflokkarn- ir, sem þátt tóku í Norðurlanda- mótum drengja og stúlkna í Nor- egi og Danmörku um helgina stóðu sig ágætlega. Drengirnir kepptu í Tönsberg í Noregi, en stúlkurnar í Lögstör í Dan- mörku og báðir flokkarnir hlutu þriðju verðiaun. íslenzka hand- knattleiksforystan er á réttri leið með því að taka þátt í þess- um mótum. Drengirnir sigruðu Norðmenn í fyrsta leik mótsins, eins og skýrt hefur verið frá í blaðinu. Á laugardag lék flokkurinn við Svía og leiknum lauk með naum- um sigri Svíanna, 14 mörkum gegn 13. Framfarir íslenzku pilt- anna frá síðasta móti eru aug- ljósar, þá unnu Svíar með 16 mörkum gegn 6. Á sunnudag var fyrst leikið við Finna og nú unnu íslending- ar naumlega eða með einu marki — 12 gegn 11. Leikurinn við Dani síðdegis sama dag var hinn skemmtileg- þriöja sæti stúlkna flokkum asti. í leikhléi var staðan 5 gegn 4 fyrir ísland. Danir jafna fljóí- lega eftir hlé og ná þriggja marka forskoti, 8 gegn 5. En ís- ienzka liðið sótti sig og komst í 10 gegn 11. Á næstu mínútum voru íslendingar óheppnir, mis- notuðu vítakast og skutu í stöng. En heppnin var með Dönum, senj fengu boltann óvænt og skoruðu síðasta mark leiksins. Svíar urðu þar með Norður- landameistarar, hlutu 7 stig, en Danir komu næstir með sömu stigatölu, en markahlutfall þeirra var verra. ísland hlaut 4 stig og þriðju verðlaun, Norðmenn fengu 2 stig og Finnar ekkert. Stúlkurnar sigruðu norsku stúlkurnar í sínum fyrsta leik með 11 mörkum gegn 10. Síðan töpuðu þær fyrir dönsku stúlk- unum með 4:8 í hörðum leik og loks fyrir þeim sænsku með 8:- 12. Finnland sendi ekki flokk í stúlknakeppnina. Knútur Rönning, ÍR Reykjavíkurmeistari í stórsvigi. Armann vann ÍBA 29:22 [ Á LAUGARDAG léku Ár- I mann í annarri deild íslands- | mtósins í handknattleik á Ak- 7 ureyri. Ármenningar sigruðu ! með nokkrum yfirburðum eða I 29 mörkum gegn 22. í leikhléi \ var staðan 14 mörk gegn 8 Ár- | menningum í vil. Nú eiga að- | eins tvö félög möguleika á sigri = í annarri deild. ÍR og Ármann. I Næsti leikur fer fram annað | kvöld, þá leika Keflavík og Ár- I mann í Laugardalshöllinni. iiiaiimiiiiMiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiMiuiiiiuii ísiendingar ávallt í ioið sæti íslendingar hafa ávallt hlotið þriðja sæti í Norðurlandamót- inu í körfuknattleik síðan það hófst í Stokkhólmi 1962. Finn- ar sigrað í öll skiptin og Svíar hlotið annað sæti. Keppnin hef ur ávallt verið hörð milli íslend inga og Dana um bronzverðlaun in og búast má við því að svo verði einnig nú. Hér eru úrslit í mótinu frá upp hafi: 1962 í STOKKHÓLMI. Svíþjóð - ísland 63-38 (32-21) Danmörk — Finnl. 62-94 (30-41) Finnl. — ísland 100-47 (47-27) Svíþjóð - Danmörk 75-43 (34-17) Svíþjóð — Finnl. 49-74 (24-23) Danmörk — ísland 41-60 (24-24) STAÐAN: 1. Finnland 268-158 6 stig 2. Svíþjóð 187-155 4 stig 3. ísland 145-204 2 stig 4. Danmörk 146-229 0 stig 1964 í HELfiLNKI. Finnl. — Darimörk 105-40 (65-15) Svíþjóð - ísland 65-59 (25-23) Finnland Svíþjóð 81-54 (34-26) ísland — Danmörk 56-55 (2Ö-26) Svíþjóð Danmörk 85-41 (38-19) Finnland — ísland 81-48 (40-19) STAÐAN: 1. Finnland 267-142 6 stig. 2. Svíþjóð 204-181 4 stig. 3. ísland 163-201 2 stig. 4. Danmörk 136-246 0 stig. 1966 í KAUPMANNAHÖFN. ísland — Noregur 74-39 (32-19) Danmörk — FÍnnl. 50-103 (47-19) Svíþjóð ísland 85-62 (43-29) Finnl. — Noregur 109-39 (62-18) Noregur — Svíþjóð 37-91 (20-40) Danmörk - Svíþjóð 54-88 (22-49) Finnland — ísland 92-47 (38-22) Noregur Danmörk 50-73 (29-30) Svíþjóð - Finnl. 62-84 (16-41) ísland — Danmörk 68-67 (32-32) STAÐAN: 1. Finnland 414-198 8 stig. 2. Svíþjóð 326-227 6 stig 3. ísland 251-283 4 stig 4. Danmörk 244-309 2 stig 5. Noregur 165-347 0 stig. Stjórn KKÍ hefur fengið þær upplýsingar frá hir.um Norður- löndunum, að finnska landsliðið verður einungis skipað leik- mönnum frá meistaraliðinu H o n k a . Svíar hafa ekki enn valið end- anlega sitt landslið, en Norð- menn og Danir munu senda úr- val úr sínum félagsliðum. íslenzku dómararnir, sem til- nefndir liafa verið, eru þeir j Ingi Gunnarsson og Marinó ■ Sveinsson. Dagskrá mótsins hefur verið ákveðin og verður hún sem hér segir: Laugardagur 13. apríl: kl. 10,00 Ráðstefna dómara kl. 14,00 Setning. Gylfi Þ. Gíslason ráðherra. kl. 14,20 Danmörk - Noregur kl. 16,00 ísland - Svíþjóð kl. 20,00 Danmörk - Finn- land kl. 21,30 Noregur - Svíþjóð Sunnudagur 14. apríl: kl. 14,00 Ráðstefna körfu- knattleikssamb. Norðurlanda kl. 20,00 ísland - Danmörk kl. 21,30 Finnland - Noregur Framhald á bls. 14. Knútur og Marta Bíbí sigruöu Skíðamóti Reykjavíkur var fram haldið í Jósepsdal á sunnu- daginn og keppt í stórsvigi, A.-fl. karla og kvenna og B-fl. karla. Keppnin fór fram í Suðurgili og sá Skíðadeild Ármanns um frairi- kvæmd keppninnar. Kuldi var mikill og frost. Árni Kjartans- son lagði brautina, sem var mjög skemmtileg. Mótstjóri var for- maður Skíðadeildar Ármanns, Halldór Sigfússon. r Ú r s 1 i t : 'A-flokkur: Reykj avíkurmeistari: Knútur Rönning, ÍR 50,2 Jóhann Vilbergss. KR 50,8 Bjarni Einarsson, Á. 50,0 Arnór Guðbjartsson, Á. 51,5 Björn Ólafsson, Vík. 54,1- Hinrik Herm. KR 54,6 Lengd brautarinnar var 1300 m., hlið 34 og hæðarmismunur 160 metrar. > i B-flokkur: Örn Kærnested, Á. 47,4 Sig. Guðmundsson, Á. 50,0 Bragi Jónsson, Á. 51,7 Jóhann Reynisson, KR 51,8 Sigm. Ríkharðsson, Á. 52,3 1 A-flokkur kvenna: Reykjavíkurmeistari: Marta Guðm., KR 53,6 Jóna Bjarnadóttir, Á. 57,6 Guðrún Björnsd. Á. 60,0 Víððvangshlaup ÍR háð 25.apr. n.k. Það kann að virðast dálítið einkennilegt að tala um sumar- daginn fyrsta í þessu vetrarríki, en hjá því verður ekki komizt. Víðavangshlaup ÍR, það 53. í röð inni verður háð á Sumardaginn fyrsta, 25. apríl næstk. Auk venjulegra verðlaunapeninga verður keppt í þriggja, fimm og tíu manna sveitum í hlaupinu. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Frjálsíþróttadeild ÍR i síðasta lagi viku fyrir hlaupið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.