Alþýðublaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 07.04.1968, Blaðsíða 7
I DR. JON E. VESTDAL SEXTUGUR í DAG Á TÆKNIÖLD er hverju þjóðfé- lagi nauðsyn að eignast góða tæknimenn. Þeir tileinka sér þá þekkingu vísindanna og auka við hana. Síðan finna þeir leiðir til að beita vísindunum í þá'gu framleiðslunnar og bæta þannig lífskjör þjóðanna. Er nú miklu fórnað til að mennta sllka menn og þjóðirnar keppast um að fá þá í þjónustu sína. íslendingar hafa á undanförn- um áratugum eignazt allmargt ágætra vísindamanna á' ýmsum sviðum. Sumir þeirra hafa af ýmsum ástæðum ráðizt í þjón- ustu arinarra þjóða og setzt að er lendis, en aðrír hafa glímt við verkefni sín hér heima, oft við liin frumstæðustu skilyrði í fyrstu. í síðari hópnum er dr. Jón E. Vestdal, forstjóri Sem entsverksmiðju ríkisins á Akranesi, en hann verður sext- ugur í dag. Þegar Vestdal hafði lokið stúd entsþrófi 1928, hélt hann til Dresden í Þýzkaiandi og lagði þar fyrir sig efnaverkfræði. Til þess liefur án efa þurft nokkuð hugrekki, þvi fátt var um góð- ar stöður á íslandi í þeim vís- indum fyrir kreppuna. Þó lauk hann prófum efnaverkfræðings 1932 og hélt síðan áfram rann- sóknum, lauk við prófritgerð og hlaut doktorsnafnbót árið eft- ir. Að loknum þessum námsferli hélt dr. Vestdal heim með þýzka brúði sína Marianne Werner sem var prófessorsdóttir í Dres- den. Hlaut hann starf við mat- vælarannsóknir á vegum heil- brigðisstjórnarinnar og tók þátt í samningu margvíslegrar lög- gjafar á því sviði. Loks varð hann forstöðumaður matvælaeft irlitsins 1934-36. Var þar unnið brautryðjendastarf á sviðum hreinlætis og heilbrigðrar með- ferðar matvæla. Stendur margt af þeirri löggjöf enn, sem þá várð til. Á árabilinu 1936-55 var dr. Vestdal sérfræðingur við iðnað ardeild Atvinnudeildar Háskól- ans. Var þar mjög hugsað um framtíðarmöguleika íslendinga á sviði iðnaðar og mikið undir- búningsstarf unnið. Beindist at- hygli dr. Vestdals í æ ríkari mæli að sementsframleiðslu og var honum falið hvert trúnaðar- starfið á fætur öðru við undir- búning þeirrar iðngreinar hér á' landi. Árið 1949 var hann skip- aður formaður nefndar til að Ijúka rannsóknum og undirbún- ingi sementsverksmiðju og sama ár formaður nefndar til að gera tfllögur um staðsetningu verk- smiðjunnar. Forustuhlut/erk dr. Vestdals í sementsverksmiðjumálinu var loks .staðfcst með skipun hans. sem formanns í stjórn Sements- verksmiðju ríkisins, en hann gegndj þeirri formennsku í ell- efu ár. Þegar verksmiðjan reis, varð hann forstjóri hennar 1955 en lét þá nokkru síðar af stjórn arformennsku. Sementsverksmiðjan á Akra- nesi er eitt myndarlegasta og blómlegasta iðnaðarfyrirtæki í landinu. Það hefur ekki aðeins meginþýðingu íyrir Akranes hvað atvinnu og afkomu ein- staklinga og bæjarfélags snert- ir, heriiur stórfellda þjóðhags- lega þýðingu. Aldrei hefur verið byggt eins mikið í land- inu og á síðustu áratugum og þeirri þróun mun lialda áíram. Sementið er hentugasta bygging arefnið við íslenzkar aðstæður, og er því ómetanlcgt að eiga Frainhald á 10. síðu. * Steingrímur skáld. Thorsteins son ólst upp á Arnarsíapa á Snæ fellsnesi. Þeir sem einhvem tíma hafa komið þar í stórviðri og hafátt, þegar útsynningsaldan skellur á klettótíri ströndinni, undra sig ekki á, þó.tt brimhljóðs verði vart í kvæðum skáldsins. Við hafið ég sat fram á sæv- ar-bergs stall og sá út í drungann, þar brimaldan stríða við ströndina svall og stundi svo þungan. Ströndin á Stapa ber þess líka greinileg merki, að þar hef ur ekki alltaf verið logn og lá- deyða, enda er hún hreinasta náttúruundur. Sléttar, grasivaxn ar túngrundirnar liggja fram á sjávarhamrana, en þar koma í ljós hinir sérkennilegustu stap- ar og stuðlabergsklettar. Mesta athygli vekja þó fagurlega gerð ir hellar og gjár, sem sjór fellur inn í, en gínandj op eru á hell- unum nokkuð ofan við bjarg- brúnina, og sér niður í græn- golandi hyldýisið. í stórviðrum, þegar vindur stendur af hafi, geysist sjórinn upp um opin af þvílíkum heljarkrafti, að hvít- ar brimsúlurnar ber liátt við loft og. stórgrýtinu skolar upp á gjárbrúnirnar eins og sauðaryöl- um. Gjárnar lieita, talið aust- an frá, HUNDAGJÁ, MIÐGJÁ og MÚSAGJÁ, Talið var ólend- andi á Stapa, þegar Músagjá tók að gjósa, en hún gýs seinast. af gjánum. Mikið af ritu verpir. á bérg- syllunum í gjánum, og gæti það . virzt áhættusamt fyrirtæki, en ritan er bjartsýnn fugl og íreyst ir á veðurgæzkuna á vorin, enda bjargast allt furðu vel. Á þéim árstíma er haattan kannski ekki miklu meiri en hjá bændum, sem búa við rætur Heklu. Nokkru utar er hinn nafntog aði Gatklettur og Garðsendayík. Það fara víst fáir ljósm. ,svo um Snæfellsnes, að þeir ekki festi á filmuna mynd af Gat- klettinum á Stapa með þang- gróinni stuðlabergshleininni í baksýn. Að því rekur sjálfsagt einhverntímann að þessi forkunn arfallegi ldettur verður að láta í minni pokann fyrir sjó og veðr um, en varla þarf að óttast að myndir verði ekki til af náttúru fyrirbærinu. Skammt austan við gjárnay er lítill klettavogur, sem heitir Pumpa. Þar var áður lending og uppsátur fyrir 3-4 báta. Þessi vogur sýnist æði þröngur, enda varla árafrítt, eins og það var kallað á máli gömlu ræðaranna þar sem svona hagaði til. Nú leitar enginn lendingar í Pumpu lengur, enda hefur verið steypt dálítil bátabryggja litlu norðar, þar sem sjávargatan liggur úr íjörunni heim að bæjunum. Útræði og verzlun var lengi á Arnarstapa og fjölmenni mikið. Um 1707 voru þar auk aðalábú- andans 28 hjáleigur eða búðir, sumar með grasnyt aðrar ekki. Um líkt leyti eða órið 1703 voru 147 lieimilisfastir menn á Arn- arstapa. Nú er þar ekki svo marg býlt sem áður, en eigi að síður slendur staðurinn vel fyrir sínu. •7. apríl 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.