Alþýðublaðið - 07.04.1968, Qupperneq 9
Mont Blanc
- eðo /ívoð?
„Mont Blanc-turninn” er þessi
bygging nefnd og virðulegt er nafn
ið, það vantar ekki. „Mont Blanc-
turninn” er í Olympíuleikjaborg-
inni Grenoble í Frakklandi og í
húsinu eru íbúðir, sem leigðar eru
út. Er engin vafi á að ef „Mont
Blanc-turninn” væri kominn inn í
Laugarás væri slegizt um íbúðirnar
en þær eru sagðar mjög skemmti-
legar og útsýni gott úr þeim.
HEITT OG KALT FOLK
Eins og allir vita bregzt fólk misjafnlega við áhrifum hita og kulda og liggja
til þess ýmsar ástæður. Finnski dósentinn Artturi Simalá hefur gert rannsókn-
ir á þessu fyrirbæri og sú niðurstaða hans, sem hvað merkilegust mun þykja
er sú að hjónahand „kuldamanneskju og „hitamanneskju“ eins og hann kemst
að orði hefur heldur litla möguleika á að blessast.
Kuldamanneskjan á' heimil-
inu galopnar glugga og
dyr til að fá ferskt íoft inn, en
hitamanneskjan mótmælir því
harðlega, klaeðir sig í ullar-
föt og skríður undir teppi.
Hitamanneskjan vill helzt
iiggja og slappa af í sólarhita
og sækir því suður á bóginn
við hvert tækifæri, en kulda
manneskjan vill halda til
fjalla, þar sem loftið er hreint
og kalt.
Hvernig á slíkt að blessast?
Bezta vörnin gegn kulda er
aftur á móti að:
— borða vel, svo að líkam-
inn hafi nóg „eldsneyti“,
— vera vel klæddur, í einni
flík utan yfir annarri því að
loftið á milli einangrar vel,
— vera á hreyfingu,
— vernda húðina gegn
köldu lofti.
Þet4a er ósköp einfalt —
nokkuð sem allir vita. En það
vill gleymast og því fipnst Sim
ala full ástæða til að minna á
þessi atriði, þar sem hann álít-
ur að þau geti hjálpað „kulda
fólkinu" í sambúðinni við
,,hitafólkið.“
Til þess að draga úr „árekstr
ahættunni" biður Simala
menn að hafa í huga að bezta
vörn í miklum hita er að:
— sneiða hjá erfiðri líkam-
legri vinnu,
— vernda sig gegn sólar-
geislunum, einkum höfuðið,
— vera léttklæddur og þann
ig klæddur að uppgufunin frá
líkamanum komist gegnum,
fötin,
— ganga hægt og rólega og
ef að verið er við vinnu að
hvíla sig oft.
KAUPIÐ EKKI
FERMINGARGJAFIR
— án þess að líta á hinar nytsömu og kærkomnu ferming-
argjafir frá okkur:
Canadiskar veiðistengur, veiðihjól, hollenzkir svefnpokar,
finnsk tjöld. — Allt kærkomnar fermingargjafir.
Óðinsgötu 7.
FERMINGAR
FATNAÐUR
YZT
SEM
INNST
Klæðskerar við
afgreiðslu
tryggja góða
þjónustu
Velklæddir
eru vand-
látir
HERRATIZKAN
Laugavegi 27
Sími: 12303.
Vinsæler fermingargjafir
Skíðaútbúnaður
Skautar frá kr. 770.—■
Útivistartöskur
Svefnpokar
Tjöld
Ferðagastæki
Veiðistangasett
Instamatic ljósm. vélar
Sjónaukar o.fl.
VERZLIÐ ÞAR SEM URVALÐ ER.
VERZLH) ÞAR SEM HAGKVÆMAST ER.
Laugavegi 13.
1. apríl 1968
ALÞYÐUBLAÐTÐ 9