Alþýðublaðið - 23.04.1968, Page 5

Alþýðublaðið - 23.04.1968, Page 5
Þjóðleikhúsið: VÉR MORÐINGJAR Sjónleikur í þremur þáttum eftir Guðmund Kamban Leikstjóri: Benedikt Árnason Leikmyndir og búningateikn- ingar: Gunnar Bjarnason Vafalaust er Vér morðingjar fremsta leiksviðsverk Guðmund- ar Kambans, það af hinum fýrri leikritum hans sem sízt, eða alls ekki, hefur tapaö gildi sínu fram á þennan dag. Það er því hyggi- lega ráðið í Þjóðleikhúsinu að taka einmitt þennan leik til sýningar í minningarskýni við höfundinn vegna áttræðisafmæl- is hans í vor. Og alveg vafalaust er það rétt ráðið af leikstjóra, úr því þessi leikur er sýndur, að fylgja í einu og öllu eigin gerð höfundarins, hrófla hvorki við málfari leiksins né reyna til við neins konar staðfærslu hans. Hið fyrrtalda er raunar sjálf- sagt. Guðmundur Ivamban mun hafa samið mörg verk sín jöfn- um höndum á íslenzku og dönsku, og frásögn Kristjáns Al- bertssonar í leikskránni sýnir að Oss morðingja hefur hann frumsamið að öllu leyti á ís- Ienzku; Kamban skrifaði sjálf- stæðan og persónulegan stíl á íslenzku sem aðrir mundu ekki bæta um, þó sumt í málfari þessa leiks orki ankannalega á' skóla- menn og skólasefjaðan mál- smekk. Og það er ekki trúleg saga að ný þýðing leiksins, þó hún kynni að verða meðfærilegri leikendum við minní áreynslu og láta að því skapi eðlilegar í eyrum áhorfenda, hefði þar fyrir orðið snjallari né áhrifameiri leiktexti. Síðartalda atriðið er ekki eins einsætt. Vér morðingjar gerist að sönnu í New York árið 1920, en efni leiksins er alls ekki bundið stað né tíma; og í sýn- ingu Gunnars Hansen, 1952, var leikurinn staðfærður með góðum árangri; slíkt sýningarlag þætti kannski gera leikinn nærtækari og áhrifameiri. Eftir sýningu Þjóðleikhússins virðist engin á- stæða til að samsinna þeirri hug- mynd. Þar tókst mætavel að gæða leikinn náttúrlegum staðar- blæ, sem vel hæfði sérkenni- legu málfari leiksins, búninga- teikningar Gunnars Bjarnasonar líklega enn betra verk en sjálf leikmyndin; og varð það síður en svo til að fjarlægja leikinn og vandamál hans áhorfcndum; þvert á móti naut sín hið sam- tímalega og sammannlega í leiknum sínum hið bezta við þennan búnað, óþreifanlega fót- festu tiltekins tíma. Vér morðingjar er alvarlegt leikrit, sálfræðilegur harmlejk- ur, neikvæð og gagnrýnin sam- félagslýsing. En alveg varð það ljóst við þennan leikmáta hve skammt er milli alvöru og kát- ínu, harmleiks og farsa; hin meinfýsna og hlálega lýsing þeirra Dale-mæðgna í upphafi leiks, öll viðureignin við og út af Mr. Edward Rattigan í öðrum þætti, jaðrar við hreinar og' beinar skopöfgar, ótvíræðan farsa, og varð þessi efnisþáttur leiksins mjög svo spaugilegur í sýningu Þjóðleikliússins með Sigríði Þorvaldsdóttur, Guð- björgu Þorbjarnardóttur, Erlingi Gíslasyni í hlutverkunum. Það er eitt með öðru til marks um smekklega og vandaða leikstjórn Benedikts Árnasonar að stílrof urðu hvérgi að þessu, skopið gekk hvergi of langt-né hnekkti alvöru leiksins þegar sögu vék að baráttu þeirra Mclntyre- hjóna innbyrðis. En sannkallað- an jafnvægisgang á mörkum ó- sjálfróðs skops og einlægrar al- vöru fór Gísli Alfreðsson í hinu vanþakkláta hlútverki vinarins í húsinu, jafn nauðsynlegur mað- ur í svona lcikjum og hlutverk hans er vonlaust að leika það; en Gísla tókst reyndar að gæða Mr. McLean því mannsmóti sem til varð ætlazt. Guðmundur Kamban komst til manns sem rithöf. í Ameríku dvöl sinni, 1915—17, og eru þrjú með helztu verkum hans afrakstur þeirrar farar. Meðan enn er ekki til skipuleg ævisaga Kambans er torvelt að gera sér grein fyrir því hvern þátt hans eigin persónulegu vonsvik og ó- sigrar í Ameríku eigi í beiskju og bölsýni þessara verka, en auðsær er skyldleiki hins sjólf- umglaða, sjálfgóða uppfinnara Ernest Mclntyres í Oss morð- ingjum, réttlætishetjunnar Ro- berts Belfords í Marmara, og hins gæfusnauða góða drengs, Ragnars Finnssonar í sam- nefndri sögu. Það þarf ekki til- takanlegan ímyndunarkraft til að gera sér í hugarlund að í þess- um þremur persónum komi fyrir drög vitaðrar/óvitaðrar sjálfs- lýsingar, þar séu teknir upp og ræddir nokkrir helztu þættir í mangildishugsjón Kambans sjálfs, og að gagnrýni hans á amerískum lífs og samfélagshátt um stafi að einhverju leyti af lians eigin vonsvikum þar vest ra. Mér virðist m. ö. o. ekki á- stæða til að mikla fyrir sér þjóð félagsgagnrýni Kambans í þess- um verkum, og hún lýtur í þeim öllum tilgangi sálfræðilegrar lýsingar. Vér morðingjar er á- hugaverðast þeirra allra vegna þess að þar kemst Kamban næst því að líta þessa mannshugsjón sína af hlutlægni, jafnvel gagn- rýni; þar er ádeila hans ein- göngu sálfræðilegs eðlis, og sál fræði hans raunsæjust. En það er raunar ekki Mr.McInt yre sjálfur sem mestan áhuga vekur í leiknum; til þess er vel- ,Vér morðSngjar1 Atrioi úr leikritinu þóknun höfundar á þessari per sónu sinni eindregin um of. Em est Mclntyre er vammlaus hal- ur, það fer aldrei milli mála, gáf aður, hjartahreinn, réttlátur, flestum dyggðum prýddur í fæst um orðum sagt. Hann sér það og LEIKHÚS skilur betur nokkrum öðrum hvers vegna ást þeirra Normu, konu hans fær ekki staðizt, dæmd til að farast; sálskýring hans á Normu er án efa ætlunin að tekin sé í fyllstu alvöru, trú- anleg lit í æsar. Hann kýs að afsala sér ást sinni frekar en vanvirða hana, saurga helgidóm hennar svo notað sé hans eigið orðalag. Ást hans á konu sinni er hjartans helgidómur, — en hvað um ást Normu á honum? Enginn orðar hana við neinskon ar helgi. Krafa hans til kopu sinnar er öll um of, felur það í sér að hún sé jafn góð og mikil honum sjálfum, sem er eng- um mannlegum mætti ætlanþi. Og leikurinn leiðir það að vísu í ljós að Ernest hlýtur að vera í meira lagi erfiður eiginmað- ur, kröfufrekur harðstjóri, sem jafnan kann að færa háleit og göfugmannleg rök fyrir smá- smygli sinni. Hvers vegna festir annar eins maður og Ernest Mc Intyre ást á jafn lítilsigldri konu og Norma er, eintómur hégóma skapur, munaðarsjúk, köld, kann engan greinarmun að gera á sannleika og lygi? Og hvers vegna gefur Norma honum ekki góðfúslega eftir skilnaðinn, þeg ar fjárhagur og framtíð hennar eru tryggð, hvers vegna elskar hún Ernest af þeim ofsa að henni er fullkominn ógerningur að láta hann af hendi, afsala sér ást hans, vera án hans nokkra stund? Þessa þverstæðu ástalífs- ins í leiknum orðfærir Guðmund ur Kamban, setur hana fram — en það velíur til muna á með- förum Normu hvort tekst” að gæða hana lífi og lit, gera hana trúanlega og trúverðuga í sýn- ingu leiksins. Mr. Mclntrye er hinsvegar alskapaður í sinni sjálf umnægu fullkomnun í texta hans. Guðmundur Kamban var eng inn íslenzkur Sírindberg, því miður, og hjúskaparlýsing hans í Oss morðingjum hefur ekki til að bera snefil af demónískum ofsa meistarans. Norma Mc Int- yre er lítilsigldur ■ kvenmaður því verður ekki breytt, það er ekkert jafnræði í „hinni eilífu baráttu kynjanna" í leiknum. En markmið sýningar er ekki að dæma þessa konu, og raunar ekkj réttlæta hana heldur, ein- ungis sýna fram á hana eins og liún er. Fyrirfram virðist Norma engan veginn sjálískrifuð handa Kristbjörgu Kjeld, en Krist- bjjjrg er leikkona í örum fram förum um þessar mundir, og henni auðnuðust mjög farsæl tök á' þessu vandmeðfarna hlut- verki. Það mætti ef til vill hugsa sér leikkonu sem væri ýmislegt ósjálfrátt betur gefið í hlutverk- ið en henni; nokkuð skorti á að kynþokki, náttúrlegir ósjálfráðir persónutöfrar Normu, sem hljóta að vera fyrsta skýríngin á áhrifavaldi hennar yfir Ern- est og öllu umhverfi sínu, væru eins ljósir og vert væri. Fyrstu atriði leiksins, þar sem Norma dekurbarn, stofuskart er leitt fyrir sjónir, tókust líklega lak- ast til í leiknum, en þar sem al- vara leiks og lífs þokar nær lán uðust Kristbjörgu Kjeld full komnari tök á hlutverki sínu, vaxandi til loka með því, og prýðisvel tókst lienni að lýsa geð brigðum og sinnaskiptum loka- þáttarins; enginn þurfti að ef- ast um að ást hennar væru að sínu leyti jafn einlæg og hún er ósjálfráð, órökrétt. Kristbjörg hefur margt vel gert undanfar- ið, en Norma Melntyre mun þó vera hennar mesta og bezta verk um langt skeið. Og Gunnar Eyjólfsson er vita skuld réttkjörinn maður á móti henni í hlutverki Ernest Mc- Intyre, tókst í senn að vekja samúð með honum í hans mein legu örlögum, sem nauðsynleg er, og sýna fram á suma veik- leika og vankanta mannsins. Það er ekkj neitt verulegt last um Gunnar þó manni detti stundum í hug að ekki muni hann alltépd skilja mikið eða leggja óþarflega upp úr öllu sem honum er fai- ið að segja í hlutverkum si - um; honum er allra maniv.i sýnst um glæsibrag framsetningar og framgöngu á sviðinu. Ernest Mc Intyre er einmitt þessháttar Framhald á 14. sjðu- II 23. apríl 1968 - ALÞÝÐUBLAÐI9 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.