Alþýðublaðið - 23.04.1968, Síða 6
■ •111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,
Ævar, Benedikt og Knstbjorg.
Fengu styrk úr
menníngarsjóði
Sl. Iaugardag þann 20. apríl
voru liðin 18 ár frá því ÞjóS-
leikhúsið var vígt. Þetta um-
rætlda kvöld var frumsýning
á leikriti Guðmundar Kamb-
ans, Vér morðingíar- Að lok-
inni sýningu kvaddi, þjóðleik
hússtjóri, Guðlaugur Rósin-
kranz, sér hljóðs og veitti
þremur af leikurum Þjóðleik-
hússins styrk úr, Menningar-
sjóði leikhússins. Sjóður þessi
Var stofnaður fyrir réttum 18
árum, á vígsludcgi Þjóðleik-
hússins.
Þeir, sem hlutu styrk úr
„Menningarsjóðnum“, að þessu
sinni voru þessir leikarar:
Kristhjörg Kjeld, en hún hef-
ur nú starfað hjá Þióðleikhús
inu í 10 ár og stundaði leiklist
arnám í Leiklistarskóla Þjóð-
leikhússins. Hún hefur farið
með þrjú aðalhlutverk á þessu
leikári. Steinunni í Galdra-
Lofti, Víólu í Þrettándakvöldi
og nú síðast Normu í Vér morð
ingiar.
Þá hlaut Ævar Kvaran einn
ig styrkinn, en hann hefur ver
ið fastráðinn hjá Þióðleikhús-
inu frá byrjun og mun hafa
leikið þar fleiri hlutverk en
nokkur annar eða alls nær því
100 þlutverk.
Þriðji leikarinn, sem hlaut
styrk úr Menningarsjóðnum,
að þessu sinni var Benedikt
Árnason. Nú eru Hðin 10 ár
frá því hann stjórnaði fyrsta
Sigurjón,
ekki Birgir I
Nýlega kom í blöðum og ;
sjónvarpi frétt um hvarf á j
sýnishorni 10 króna penings, j
sem sleginn hefur verið, en j
ekki ennþá settur í umferð. j
Hefur nú komið í ljós, að j
umrætt sýnishorn glataðizt j
úr vörzlu Sigurjóns Guð- j
mundssonar bankaráðs j
manns,, en ekki Birgis Thor j
lacius, ráðuneytisstjóra.
leikritinu hjá Þjóðleikhúsinu,
en alls hefur hann stjórnað þar
21 leikriti auk þess hefur hann
leikið þar mörg hlutverk.
Áður hafa 10 leikarar hlot
ið styrk úr Menningarsjóði
Þjóðleikhússinu- Styrkurinn er
veittur í þeim tilgangi að leik
arar geti aflað sér frekari
menntunar í listgrein sinni.
Myndin er af þeim er hlutu
styrkinn að þessu sinni.
Fyrirlestur
Prófessor Seve Ljungman frá
Stokkhólmsháskóla flytur tvo
fyrirlestra í boði lagadeildar
Háskólans þriðjudag 23. apríl
og föstudag 26. april kl- 8,30
kl. 5,30 báða dagana í I-
kennslustofu.
Fyrri fyrirlesturinn fjállar
um raunhæf úrlausnaratriði á
sviði höfundarréttar, en hinn
síðarnefndi um nokkur atriði
á sviði einkaleyfislaga og lög
gjafar um óíögmæta verzlunar
háttu.
Fyrirlestrarnir verða fluttir
á sænsku, og re öllum heim-
ill aðgangur.
Leiðrétting
í viðtali við Axel Kristjáns-
son forstjóra, sem birtist í Al-
þýðublaðinu sl. sunnudag var
leiðréttingarlínu stungið niður
á röngum stað, þannig að úr
varð vitleysa, og var þetta því
bagalegra, að þarna var verið
að skýra frá tölum í sambandi
við tollboðsupphæð. Þessi villa
var efst í fjórða dálki á bls-
3, en réttur á sá kafli að vera
á þessa leið:
„Sambærilegar þiljur og nú
hafa verið teknar hefðu kost-
að hjá Rafha 305 þúsund krón-
ur og hefði tilboði ð þá num-
ið alls 3.035 þúsund krónum.
Söluskattur af þessu -• verki
hefði orðið um 200 þúsund krón
ur og heildarverð því orðið
3.235 þús. krónur.
0 23. apríl 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Nýtt happdrættisár
oá hefjast hjá DAS
ióalvinningurinn í Happdrætti DAS, einbýl'ishús eða minni íbúð_
ir eftir vali fyrr 2 milljónir króna, afhentur 3. apríl s.I.
Nýtt happdrættisár er að
hefjast hjá Happdrætti DAS
með sama sniði og nú er, þ. e.
verð óbreytt, kr. 7500 á mán-
uði, og 3000 stórir vinningar
frá kr. 5.000 upp í kr. 2.000.000.
00. Veitir happdrættið jafn
marga möguleika til stór-
happs óg bæði hin flokkahapp
drættin til samans, og er þó
ódýrast-
Verkefpi þau sem happdrætt
ið vinnur að, að búa í haginn
fyri aldrað fólk, fara ekki
minnkandi þrátt fyrir bygg-
ingar undanfarinna ára, held
ur vaxandi og kalla eftir frek
ari og örari framkvæmdum.
Um s.l. áramót var hópur
hinna 67 ára og eldri um
15.000 manns og sýnt er að
um 10% þessa fólks þarf á elli
heimilisvist að halda. Nú eru
á öllu landinu 1050 ellivistar
pláss og vantar því í dag um
500 ellivistarpláss og að 5 ár-
um liðnum um 300 til viðbót-
ar. Bara í Hrafnistu einni eru
nú yfir 300 manns á biðlista
Þessi hópur fólks, 65 ára og
eldri, fer procentvís einna
mest vaxandi með þjóðinni.
Þetta sýnir glögglega þörf-
ina fyrir örari framkvæmdum
í byggingafnálum aldraðra um
allt land á næstu árum, en ný
lega var lögum Byggingasjóðs
Aldraðs Fólks breytt á þann
veg, að byggingar elliheimils
og éllideilda út um land ættu
aðgang að lánum úr þeim
sjóði. En einu tekjur þess
sjóðs eru 40% hagnaður Happ
drættis DAS-
Næstu verkefni Hrafnistu,
þegar létt hefur verið á mest
um skuldum og lóð lagfærð,
eru byggingar lítilla sjálf-
stæðra íbúða fyrir gömul
hjón, sem geta hugsað um sig
sjálf og sótt sinn mat í eld-
hús Hrafnistu. Er einnig mjög
mikið spurt um þessar ibúðir
og beðið eftir framkvæmdum.
Við skorum á þjóðina að
gefa málum þessum gaum.
Hver viðskiptamaður í
Happdrælti D A S leggur sinn
skerf til aðstoðar í málum
aldraðra og öðlast um leið
marga möguleika til stór-
happs.
(Frétt frá Happdrætti DAS).
Oddvitanámskeið
Framhald af 1- síðu
kvæmd sveitarstjómarmálefna
í dreifbýli. Að loknum hádegis-
verði, sem þátttakendur snæddu
í boði sambandsins, var enn
gengið til dagskrár. Unnar Stef
ánsson, ritstjóri fjallaði um
samstarf sveitarfélaga og horf
ur á samginingu. Sigurbjöm
Þorbjömssdn, ríkisskattsstjóri,
um hugmyndir um staðgreiðslu
kerfi opinberra gjalda, Aðal-
steinn Eiríksson, námsstjóri,
um skólakostnaðarlög og fram- •
kvæmd þeirra og loks ræddi
Sigurður Þorkelsson, fulltrúi,
um skólahverfi og fræðsluhér.
uð. Erindi Gísla Kristjánssonar,
ritstjóra, um forðagæzlu varð
að fresta, vegna veikinda Gísla,
en vonir standa til að hann geti
flutt erindi sitt síðasta dag
námskeiðsins, á morgun.
í dag hefst námskeiðið kl.
9 f. h. og verður eftirfarandi
á dagskrá: Guðjón Hansen,
tryggirigafræðingur talar um al
mannatryggingar, einkum
sjúkrasamlög og héraðssamlög;
Dr. Sigurður Sigurðsson, land-
Iæknir, talar um læknaþjónustu
í dreifbýli; Magnús E. Guð-
jónsson, framkvæmdastjór; tal-
ar um Lánasjóð sveitarfélaga
og Bjargráðasjóð íslands og
Valdimar Óskarsson, skrifstofu
stjóri yfirfasteignamatsnefndar
talar um nýja fasteignamatið.
Að loknum hádegisverði talar
Klemenz TryggVason, hagstofu
s+ióri um samskipti sveitar-
stjórna Við Hagstofu íslands;
Ingimar Jónasson, deildarstjóri
um Þjóðskrána og sveitarfélög*
in og Hrólfur Ásvaldsson, við-
skintafræðingur, um bókhald
sveitarfélagá.
Á morgun, síðasta dag nám
skeiðsins, talar Ásgeir Ólafsson,
forstjóri Brunabótafélags ís- ■
lands, um brunavarnir 1 sveit_
um; Þorsteinn Einarsson, í-
þrótt.afulltrúi, um félagsheim-
jli; Birgir Kjaran, formaður
ná+túruverndarráðs, um náttúru
vernd óg sveitarstjórnir,
Stefán Júlíusson, forstöðumað-
ur fræðslumyndasafns ríkisins.
um kvikmyndasýningar í sveit
um; Guðmundur G. Hagalín,
bókafulltrúi ríkisins, um sveitar
bókasöfn og héraðsbókasöfn og
Vigfús Jónsson, oddviti, talar
um framkvæmd sveitarstjórnar
málefna í kauptúnahreppum.
Þá verður umræðufundur
hátttakenda um efni og árang-
ur námsskeiðsins, og verða
tvnir framsögumenn úr hópi
þáttt.akenda. Loks slítur formað
^mboniis íslenzkra sveitar-
félaga, Páll Líndal námskeið-
ivni
Stjórn sambandsins skipa nú:
Páll Líndal, formaður, Ólafur
G. Einarsson, sveitarstjóri
Garðahrepps, Hjálmar Ólafsson,
bæjarstjóri í Kópavogi, Vigfús
Jónsson, oddviti Eyrarbakka og
Ölvir Karlsson, oddviti Hálsa.
hrepps, Rangárvallarsýslu.
Gsinabreyt!ngar
Framhald af 1. síðu.
viðhaldi malargatna og þvotti á
gangstéttum. Komið hefur ver
ið fyrir umferðarljósum við
Grensásveg og Álfheima og
víða verið komið fyrir undir-
stöðustólpum vegna væntan-
legra breytinga í hægri akstur.
Sú nýjung hefur verið tekin
varðandi merkingu akgreina
vegna breýtinganna 26. maí að
keyptar hafa verið akgreina-
merkingavélar frá Danmörku,
sem fræsir raufar í malbikið,
en fyllir síðar upp í þær með
því að fylla þær hvítum asfalt
massa og voru væntanlegir sér
fræðingar frá Danmörku í gær
kvöldi, sem munu kenna ^tarfs
mönnum gatnagerðarinnar á
vélarnar. Alls munu nú um 180
manns vinna við þessar fram_
kvæmdir.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMt 32-101.