Alþýðublaðið - 28.04.1968, Qupperneq 16
á
Þess gjalda menn
lengi
SÍOAfi
Þess gjalda menn lengi og gjalda menn oft,
hvað gott er að lúra hjá konum,
og áður en varir er komið á kreik
heilt kvígildi af dætrum og sonum.
Kviknar sorg, kviknar hryggð af kvennafari.
Vor pyttla er tóm og pyngjan eins,
í peningamálunum kreppa,
en meðlagsstjórinn er léttur á löpp
og lætur oss ekki sleppa.
Kviknar sorg, kviknar hryggð af kvennafari.
Vér göngum með brosi til léttúðugs leiks
af iítilli fyrirhyggju.
En réttvísin skilar oss hróðug heim
í hlaðið á Kvíabryggju.
Kviknar sorg, kviknar hryggð af kvennafari.
Denni dæmalausi og anna'ð góð
meti, sem sýnt hefur verið síð
deg'is á miðvikudögum, mun
birtast á þriðjudagskvöldum.
sem verður án éfa betra fyrir
íþróttaunnendur yfir sumar-
ið. . .
ALÞÝÐUBLAÐIÐ.
Eg sé ekki hvers ve'gna menn
eru að kvarta yfir hörðu vori.
Þeir flytja skepnufóðrið inn og
fara suður í sólskinið á Mall-
orca hvort sem er.
goKING
EDWARD
Ametica ’s Largest Selling Cigar
Tíu tilbrigði
í KVÖLD sýnir leikflokkur
Litla sviðsins í næstsíðasta sinn
leikþátt Odds Björnssonar, Tíu
tilbrigði. Sýningin liefur vakið
mikla athygli og hlotið góða
dóma. Síðasta sýning. verður nk.
fimmtudagskvöld og lýkur þar
með fyrsía leikári leikflokksins.
Þess skal getið að í tilefni sýn-
ingarinnar hefur verið gefin út
bók með ieikritinu bæði á ís-
lenzku og ensku, tölusett og árit-
uð af höfundi, og verður hún
seld á sýningunni. Guðrún Tóm-
asdóttir. hefur þýít leikritið á
ensku. — Myndin er af Auði
Guðmundsdóttur, Sigurði Skúla-
syni og Margréti Helgu Jóhanns
dóttur í hlutverkum sínum.
vor
daglegi SIMlístur
Að snúa öllu við
STUNDUM gerist það á voru landi, að það kemur sumar-
veður um hávetur, en hins vegar vetrartíð að sumrinu. Þetta
á að vísu ekki við nú að öllu leyti því í þetta sinn er vetrar-
veðráttan bæði sumar og vetur.
Þessi tilbreytni náttúrunnar í starfsháttum sínum leiðir
huga minn að því að stundum er alveg bráðnauðsynlegt að hafa
endaskipti á lilutunum; Náttúran er áreiðanlega vitrari heldur
en menn, jafnvel vitrari en vitrir menn (og er þá langt til
jafnað), og þess vegna er alls ekki úr vegi að talca sér hana
til fyrirmyndar.
Væri því ekki skynsamlegt að hafa stundum endaskipti
á hlutunum í mannlífinu, svona til prufu?
Ef einhver er í vafa um hvað átt er við, þá er sjálfsagt
að koma með nokkur dæmi.
Stundum er efnt til umferðarviku eða einhverrar annarrar
„viku.” Og réttast væri að hefja áróður fyrir og stofna félög
og landssamband um að efna til sérstakrar „viðsnúningsviku”
og skyldu þá endaskipti höfð á öllum hlutum.
Sem dæmi mætti nefna:
Ökufantar tækju að sér að stjórna umferð lögregluþjóna
um göíurnar.
Gestir á veitingahúsum væru fengnir til að uppvarta Þjóna
og brúka við þá lélega kurteisi og kokkum boðið í mat upp á
pakkasúpu og soðna ýsu með beinunum.
Landsprófsnemendur yrðu látnir prófa kennara sína í
landsprófsgreinum og strangt eftirlit með því haft að enginn
gæti svindlað.
Landkrabbar skyldu á sjó reknir án þess að fá að hafa
sjóveikipillur með sér.
Útvarpsráð skyldað til að hlusta á útvarpið.
Bankastjórar skyldaðir til að koma og biðja víxilíöku-
menn um peningalán, og ættu hinir síðarnefndu að vera
með mínu.
Sálfræðingar skyldu verða sálgreindir.
Settur yrði á stofn réttur sem eingöngu tæki fyrir mál
sem höfðuð eru gegn lögfræðingum.
Verkalýðurinn væri skyldaður til að biðja um lægra kaup,
en atvinnurekendur grátbiðji um að fá að borga hærra kaup,
ella leggi þeir niður allan atvinnurekstur og borgi ríkinu háa
styrki.
Bílstjórar séu látnir ganga nokkra kílómetra á' dag.
íþróttamenn haldi mót þar sem til dæmis eru veitt verð-
laun fyrir hver geti verið lengst á leiðinni í hundrað metra
hlaupi án þess þó að nema staðar til fulls nokkurn tímann.
Abstrakt málarar séu skyldaðir til að hæla hinum málur-
unum og öfugt.
Abstrakt skáld: dittð.
Úthlutunarnefnd listamannalauna fái listamannalaun.
Þetta eru bara dæmi um hvað gera má, og er ekki vafi á
að margir lærðu ýmislegt gagnlegt. Það er viðurkennt að menn
verða betur færir um alla skapað hluti, ef öllu er snúið við.
Reynslan er líka sú, að það að snúa umferðinni við í Svíþjóð
varð íil þess að bæta umferöina, og væntum við þess að okkar
snúningur til hægri geri slíkt hið sama. Er því ekki úr vegi
að notfæra sér þennan kost nokkru betur með því að snúa
umferðinni við enu sinni á ári í þeirri von, að að því komi
einhvern tíma fyrir r.æstu aldamót að fólk verði búið að læra
umferðarreglurnar.
Götu-Gvendur.