Alþýðublaðið - 03.05.1968, Qupperneq 3
Norðangarður og
¥
frost um landið
Uggvænlegt hvað meöalhiti er lágur
Nú gengur yfir landið norðan-
átt og í gær var frost víðast
hvar á landinu, nema hér sunn
anlands. Hér í Reykjavík var í
gær 3 stiga hiti, en 7 stiga
frost var á Horni, 3 á Rauíar-
höfn og í Borgarfirði var 2
næstu dægur. Ekki er gert ráð
fyrir meira en 2 stiga nætur-
frosti í Reykjavík og nágrenni.
Að sögn talsmanrfs Veðurstof
unnar er ekkert óeðlilegt við
hret á þessum árstíma og á und
anförnum árum hafa þau ver-
ið algeng. Jafnvel er vitað um
slík hret í júnimánuði. Hins
vegar er uggvænlegt hvað með
alhiti það sem af er árinu er
lágur og er árið orðið eitt hið
kaldasta að meðaltali, nú í lang
an líma.
stiga frost. há var éljagangur
víðast um land nema hér sunn
anlands.
■ é
Hvassast var hér í Reykja-
vík í gær 6 vindstig, annars
staðar var vindhraðinn svipað-
ur, eða eitthvað lægri.
Ekki er enn séð fyrir end-
ann á norðangarðinum og er
spáð óbreyttu veðri í dag og
Mun meiri
úrkoma í
Breiðholti
íbúar Breiðholtshverfis
munu njóta fallegs útsýnis,
sérstaklega þó þeir- sem
koma til með að búa á efra
svæðinu, sem nú er hafizt
handa um að ekipuleggja.
Neðra svæðið, sem nú er að
byggjast, liggur um 70 m.
yfir sjávarmáli og má búast
við að allmiklu kaldara yeðri
á þessu svæði en t. d. í mið
borginni. Þá hafa mælingar
sýnt að þar er úrkoma tals-
vert meiri en í miðborginni.
Síldarleitin hefst
í næstu viku
Síldarleitarskipin Ámi Frið-
riksson og Hafþór halda í síldar
leit austur í naf í næstu viku.
Að sögn Jakobs Jakobssonar,
fiskifræðings, er erfitt að gera
sér grein fyrir því, hvernig síld
in kemui; til með að haga sér
í sumar, fyrr en eftir að skip
in eru byrjuð leitina.
Fremur er þó gert ráð fyrir
að síldin haldi sig á djúpmið-
um, þótt ógerningur sé að svo
stöddu að segja fyrir um
hvort hún verður við Sval
barða, eins Qg á s.l, sumri.
—■ Loftið er svona lævi
blandið þar til maður fær vitn
eskju um allar aðstæður, í vor,
þegar skipin eru farin að leita,
— sagði Jakob að lokum.
GOÐUR AFLI í EYJUM
SEINNI HLUTA APRÍL
Afli Vestmannaeyjabáta seinni
hluta aprílmánaðar var miu.
betri en á sama tíma í fyrra.
Fyrri hluta mánaðarins var afli
muni m’inni en á sama tíma í
fri, ra, en lum miðjan mánuð
brá til betri vegar og fiskast
enn sæmilega.
Afli bátanna er nú allt frá
300 kg. upp í 34-35 tonn.
Að Sögn Júlíusar Sigurðsson
ar, vigtarmanns á vigt Vinnslu
stöðvarinnar, voru vigtuð hjá
honum seinni hluta apríl mán
aðar um 3.000 tonn af fiski,
sem er um það bil helmingi
meira en vigtað var þar á sama
tíma í fyrra.
£„ mai
li.o fegursta veður var í Reykjavík og víða um land
er 1. maí hátíðahöldin fóru fram. Mikill fjöldi
fólks tók þátt í kröfugöngunum og sést hér hluti mannf jöldans sem
var samankominn á Lækjartorgi og í Bankastræti að kröfugöng-f
unni lokinni. Myndin er tekin ofan af þaki Útvegsbankans. (Ljósm.
Bjarnleifur). *
FLOKKSST ARFID
Hafnfirðingar.
Félag ungra jafnaSarmanna í Hafnarfirði, heldur almennan félagsfund kl.
8,30 í AlþýSuhúsinu Hafnarfirði í kuöld.
Emil Jónsson, utanríkisráðherra ræðir um stjórnmálaviðhorfið.
Félagsmenn hvattir til að fjölmenna. — FUJ, Hafnarfirði.
Tertuföt — Þakkir
Tilkynning frá 1. maí kaffinefnd fulltrúaráðs Alþýðuflokksins. Þær konur
sem eiga ósótt tertuföt, eru beðnar að sækja þau á skrifstofu Alþýðu-
flokksins Alþýðuhúsinu.
JaWramt vill nefndin þakka öllum þeim sem studdu hana, bæði með
gjöfum og vinnu.
Mikill áhugi á ein-
býlishúsateikningum
Alþýðublaðið hafði í gær
samband við Helga Hjálmars-
son, arkitekt, einn þremenn-
inganna er unnu 1. verðlaun í
samkeppninni um einbýlishús
til fjöldaframleiðslu. Aðspurð-
ur kvaðst Helgi hafa orðið var
við mikinn áhuga hjá bygg-
ingariðnaðarmönnum og al-
menningi, sem hefur í hyggju
að byggja á næstunni. Aftur á
móti kvaðst Helgi ekki geta
veitt nein skýr svör við fyrir-
spurnum þessa fólks, þar sem
það er á valdi Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunarinn-
ar að hafa forgöngu um fram-
hald þessarar samkeppni. Vel
mæíti hugsa sér að komið yrði
á stofn sérstakri verksmiðju
sem hefði það hlutverk að fram-
leiða húshluta, byggða á beztu
tillögunum er þarna koma fram,
og bjóða síðan út ákveðin verk
efni til undirverktaka.
— Það virðist hafa komið al-
menningi mjög á óvart hve ó-
dýr þessi hús gætu orðið í
fjöldaframleiðslu og það er á-
stæða til að taka fram að við
gætum framleitt breytileg hús
á sarna grundvelli, sýnt t. d.
fram á 5 — 10 mismunandj leið-
ir í byggingu þessara Jiúsa. Við
höfum rætt um okkar á milli
að gera nokkur líkön, þar sem
sýnt verði fram á mismunandi
aðferðir.
— Þessi hús eru að efniviði
mætti hugsa sér að komið yrði
eins innlend og nokkur hús
geta verið, sagði Helgi enn-
fremur, Það hefði vissulega
verið þörf á slíkri samkeppni
fyrr, en nú ætti að vera góður
jarðvegur fyrir meiri skipu-
lagningu í byggingu einbýlis-
húsa en verið hefur.
★
Ólafur Jensson, fulltrúi hjá
Byggingarþjónustunni, sagði
að aðsókn að sýningunni hefði
verið rnjög góð. Sýningin verð-
ur opin út þessa viku, opin frá
4 — 10 daglega og 2—6 á laug-
ar- og sunnudag. Sýningin er
að Laugavegi 18 A, IIII. hæð
Um aðra helgi verða þær til-
lögur er hlutu verðlaun og
lofsverð ummæli, sendar til
Akureyrar til sýningar þar.
3. maí 1968 —
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3