Alþýðublaðið - 05.06.1968, Page 3
a
Dagur Akureyrar
á sjávarsýningunni
í dag- ei* dagur Akureyrar á sýningunni íslendingar og hafið,
í sýningarhöllinni í Laugardal. í tilefni dags'ins efna Akureyringar
til skemmtunar í höllinni í kvöld og hefst hún kl. 8.30. 15 manna
hópur kemur í dag frá Akureyri til að skemmta gestum sýningar.
innar. Þessir skemmtikraftar koma fram: Eiríkur Stefánsson syng.
ur einsöng og dóttir hans, Þorgerður, 14 ára leikur undir á píanó.
S’igrún Harðardóttir syngur nokkur lög. Hljómsveit Ingimars
Eydal, ásamt Þorvaid'i Ilalldórssyni og Helenu Eyjólfsdóttur.
Hvítasunnuhelgin fór mjög vel fram um allt land og urðu mjög
fá óhöpp í umferðinni. Menn virtu hraðaákvæðin og óku gætiiega.
Vegir voru fremur slæm'ir, en umferð hins vegar mikil, einkum í
grennd við þéttbýli.
Sýningardeild sína byggja
Akureyringar upp að mestu
út frá höíninni. Allmargir að.
iljar sýna þar framleiðslu sína.
Má þar nefna Slippstöðina h.f.,
sem stofnsett var árið 1952 og
er orðin stærsta atvinnufyrir-
tæki á Akureyri, ef KEA eitt
er undanskilið. Slippstöðin
hefur frá upphafi smíðað 29
báta og skip allt að 550 lest-
um. í þeim tilgangi hefur hún
rekið tvær dráttarbrautir,
aðra fyrir báta allt að 150
tonnum auk hliðarfærslu. Sú
stærri er komin talsvert tíl ára
sinna og hefur verið rifin, en
í hennar stað stendur nú yfir
smíði nýrrar drátlarbrautar
fyrir allt að 2000 lesla skip og
verður hún tekin í notkun um
mánaðamótin júlí ágúst.
Kristján Jónsson og Co. sýn
ir fiskafurðir, bæði til innan-
landsneyzlu og til útfiutnings.
Fyrirtækið hefur starfað frá
árinu 1947. Verksmiðjan hef-
ur framleitt gaffalbita úr allt
að 500 tunnum af síld á ári,
sem skilar útflutt 25.5 milljóij
um króna.
Kaupfélag Eyfirðinga sýnir
frá skipasmíðastöð, útgerðar.
Framhald a* 11. síðu.
Teflir skák og
skrifar um íþróttir
SKÖMMU fyrir helgina hitti
fréttamaður Predrag Ostojic
skákmann frá Júgóslavíu, og
varð hann góðfúslega við
þeirri ósk að rabba nokkur orð
um sjálfan sig og skákmótið,
sem hann tekur þátt í hér á'
landi um þessar mundir.
Hafið þér tekið þátt í mörg
um mótum erlendis áður?
Já, ég hef íeflt á nokkrum
mótum utan heimalands míns.
Til dæmis hef ég tekið þátt í
tveimur Hastings-mótum, fjór-
um sinnum^ief ég teflt á mót
um í Ilollandi og tvisvar i
Monte Carlo.
En þér hafið tekið virkan
þátt í skáklífinu í heimalandi
yðar, og sigruðuð á skákþingi
Júgóslavíu síðast, er það var
haldið?
Jú, það er rétt, að ég hef
teflt talsvert heima. Hins veg-
ar var ég ekki einn um hituna
að sigra á síðasta Skákþingi
Júgóslavíu, þar sem við vorum
tveir, sem skiptum með okkur
fyrsta og öðru sætinu á mót-
inu. Skákþing Júgóslavíu fór
síðast fram í Slóvaníu, sem er
eitt af sex lýðveldum Júgóslav
íu.
Hvaða atvinnu stundið þér i
heimalandi yðar?
Ég er íþróttafréttaritari og
sé um allt það, sem varðar
skák í blaði mínu, Politica.
Þess vegna verð ég að nota
þær'fáu frístundir, sem gefast
á meðan mótið stendur yfir, til
að skrifa um mótið og senda
heim. Mér sýnist, að mér gefist
þrisvar sinnum tóm til að
vinna að þessu á meðan mótið
stendur.
Þér eruð ekki eini blaðamað
urinn, sem eruð þekktur fyrir
skák, því að ef ég man rétt, þá
er Gligoric einnig blaðamaður?
Nei, það er ekki alveg rétt.
Reyndar er Gligoric ekki leng
ur blaðamaður. Hann starfar nú
við útvarp og sjónvarp, en
hann starfaði áður við biaða-
mennsku.
Hafið þér hitt og teflt við
Friðrik Ólafsson, áður?
Ég hef einu sinni séð Frið-
rik, en það var, þegar hann tók
þátt í svæðamótinu í Belgrad
árið 1958. Hins vegar hefur
mér aldrei gefizt tækifæri til
að tefla við hann.
Hvað viljið þér segja um
mótið, sem þér takið nú þátt í
hér í Reykjavík.
Ég tel þetta mót muni verða
mjög strangt, enda taka sex
stórmeistarar þátt í því. Ég hef
aldrei áður mætt þeim stór-
meisturum, sem hér tefla, þó
að ég hafi teflt við ýmsa aðra
' stórmeistara, svo sem Stein,
Predrag Ostjoic
Suetin, Cholmov, Gligoric,
Matanovich, Matulovich og Par
ma.
Þér eruð alþjóðlegur meist
ari, en teljið þér, að vður tak
ist að vinna yður hálfan stór-
meistaratitil ó þessu móti?
Það er engan veginn auðvelt
að svara þessari spurningu.
Þetta mót verður strangt og
erfitt að segja nokkuð fyrir-
fram um hugsanlegan ál'angur.
Ég tel Addison hafa meiri
möguleika á því en mig.
r
Skákmótiö hafið
Skákmótið til minningar um Daniel Willard Fiske hófst í Tjarn-
arbúð á hvítasunnudag með hátíðlegri athöfn. Fluttu ávörp við
setn’ingu mótsins Hólmsteinn Steingrímsson, formaður Taflfélags
Reykjavíkur, Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra og Carl
Rölvaag, sendiherra Bandaríkjanna, en Geir Hallgrímsson borgar-
sjóri lék fyrsta líiknum fyrir Laszló Szabo í skák hans Mð
Evgeníj Vasjúkov.
Urslit í fyrstu umferð urðu
þau, að Bragi vann Inga R. Jó-
hannsson, Mark Tajmanov vann
Andrés Fjeldsted, W illiam Addi
Nauþgungrtilrgun / Keflayík
Klukkan 7.20 að morgni
hvítasunnudags var lögregl-
unni í Keflavík tilkynnt um
það, að ung stúlka hefði þá
litlu fyrr orðið fyrir árás
manns þar í bænum. Maður
þessi var handtekinn um það
bil hálfri klukkustund síðar
og fluttur í fangageymslu Iög-
reglunnar.
Við yfirheyrslur kom í ljós, að
maðurinn hafði farið inn í um-
rætt hús um nóitina án leyfis
húsráðanda. Húsið var mann-
laust, er maðurinn fór þangað
inn.
Maðurinn bauð nokkrum gest
um til samkvæmis í húsinu og
var þar svallað fram eftir nóttu.
Síðla nætur voru ekki eftir í
húsinu nema ,,gestgjafinn“, ann
ar karlmaður til og tvær ungar
stúlkur. Önnur stúlkan fór út úr
húsinu til að sækja leigubíl, er
þarna var komið sögu. Er stúlk
an var farin, kastaði „géstgjaf-
inn“ hinum karlmanninum á dyr,
en réðist síðan á stúlkuna, sem
ein var eftir í húsinu með hon
um.
Samkvæmt frásögn stúlkunn-
ar sóíti maðurinn allfast að
beldi. Stúlkunni tókst þó að verj
henni og beitti hana jafnvel of-
ast atlotum hans að mestu. Tel
ur hún, að liðið hafi a. m. k. ein
klukkustund frá því maðurinn
hóf ásóknina þangað til henni
tókst að komast út úr húsinu.
Stúlkan, sem var með nokkra
áverka eftir viðureignina, hefur
nú kært manninn fyrir tilraun
til nauðgunar. Einnig hefur hús
ráðandi kært hann fyrir óheim-
ila för inn í húsið og misnotkun
á því.
Maðurinn, sem hér á hlut að
máli, hefur áður komið við sögu
lögreglunnar í Keflavík. Hefur
líkamsárás.
hann m. a. verið kærður fyrir
son vann Jón Kristinsson og Ro
bert Byrne vann Jóhann Örn Sig
urjónsson, en Szabo og Vosjúkov
gerðu jafntefli, og skák Wolf-
gans Uhlmanns og Predrags Ost
ojics fór í bið. Skákum Frey-
steins Þorbergssonar og Guð-
mundar Sigurjónssonar og Frið-
riks Ólafssonar og Benónýs<$>
Benediktssonar var frestað.
Önnur úmferð var tefld annan
hvítasunnudag, og urðu úrslit
þessi: Vasjúkov vann Benóný,
Tajmanov vann Braga, Byrne
vann Guðmund og Ostjic vann
Freystein, en Ingi R. og Szabo
og Addison og Uhlmann gerðu
jafntefli, og skák Jóhanns og
Andrésar fór í bið. Skák Jóns
og Friðriks var ekki tefld
vegna fjarveru Friðriks.
Friðrik var löglega forfallaður
og hefur verið ákveðið, að hann
tefli skákina við Jón síðar. Verð
ur hún að líkindum téfld næst-
komandi laugardag og sömuleið
is mun Friðrik tefla við Benóný
sama dag, en skák þeirra var
frestað á sunnudag.
í þriðju umferð í gærkvöldi
tefldu saman: Uhlmann og Jón,
Freysteinn og Addison, Byrne og
Ostojic, Andrés og Guðmundur
Bragi og Jóhann, Szabo og Tei-
manov, Benóný og Ingi R. og
Friðrik og Vasjúkov.
í fjórðu umferð í kvöld tefla
saman: Jón og Vasjúkov, Ingi R.
og Friðrik, Taimanov og Benóný,
Jóhann og Szabo, Guðmundur og
Bragi, Ostojic og Andrés, Addi-
son og Uhlmann og Freysteinn.
Ok lögregluh
bíl af sér
Um klukkan hálf ellefu á
sunnudag'skvöldið urðu tveir
lögreglumenn, sem voru á
eftirlitsferð um Keflavík í
Volkswagenbifreið, varir við
grunsamlegan akstur leigubif-
reiðar nokkurrar.
- Veittu lögreglumennirnir leigu
bifreiðinni eftirför, en ökumað-
ur hennar jók þá mjög hraðann
Framhald a" 11. síðu.
5. júní 1968 - AIÞÝÐUBLA0IÐ 3