Alþýðublaðið - 05.06.1968, Blaðsíða 15
HðnGURlÓll
Framhaldssaga eftir
ÍNG8BJÖRGU JONSBGTTU'R
Teikningar eftir
RAONAR LAR.
eflir miðanum.... þessum'
litla miða, sem hafði legið und '■
ir dúknum, sem ekki var horn
réttur á borði hennar Magda-
lenu og ég velti því fyrir mér,
hvort ég hefði geymt það ein-
hvers staðar í undirmeðvitund
inni, sem staðið hafði á mið-
anum.
Eða réttara sagt, sem senni
lega hafði verið rifið af hon.
um.
Klukkan rúmlega sex var
dyrabjöllunni hringt.
Það var Ófeigur.
Ég var í stofunni að lesa
glæpareyfarann minn, þegar
hann hringdi og hann sá það
strax og hann kom inn.
Hann tók bókina upp af borð
inu og sagði:
— Svo það er frk. Maple og
smáþorpsleyndardómurinn.
Hefur þér tekizt að upplýsa
CRCO
BELTIog
BELTAHLUTIR
áBELTAVÉLAR
BERCO
Keðjur Spyrnur Framhjól
Botnrúllur Topprúllur
Drifhjól Boltar og Rær
jafnan fyrirliggjandt
BERCO
er úrvals gæðavara
á hagstæðu verði
EINKAUMBOÐ
VERZLUNARFÉLAGIÐ"
SKIPHOLT 15 -SlMI 10199
morðið með þessari lesningu?
Ég hristi höfuðið.
— Nei, en Magga litla, dótt-
ir Friðrikku og Bjössa faldi
sig í íbúð Magdalenu. Þú hef-
ur kannski frétt af því, að
börnin eru fundin?
— Nei, það er enn lýst eftir
þeim í útvarpinu.
— Hún sá morðingjann,
sagði ég. — Hún sagði mér það,
þegar ég fann þau uppi í íbúð
inni í dag.
—Jæja, sagði Öfeigur og
teygði sig eftir kaffikönnunni.
Ég hafði tekið til bolla fyr-
ir hann. Ég bjóst jú alltaf við
því að hann kæmi fyrir klukk
an sjö. Einhvern veginn varð
hann að ljúka verkinu, sem
hann hafði hafið.
— Sagði hún þér, hver morð
inginn væri?
— Nei, en hún sagði mér,
hver hefði verið að flækjast
um í íbúðinni að nóttu til og
Ieita þar, svaraði ég og hellti
í bollann minn.
— Og hver var það?
— Þú, Ófeigur, sagði ég.
Hann hrökk við. Einmitt
begar ég spurði hann að þessu
hafði hann horft beint á mig.
Ég sá, hvað hann varð undr-
andi og ég vissi á sömu stundu,
að hann var morðinginn. Ég sá
augnaráð hans og svipinn á
andliti hans og ég vissi, að
þessi maður léti ekkert standa
í vegi sínum.
Sennilega hefði ég látið
þetta eins og vind um eyrun
þióta, ef hann hefði snúið baki
við mér og ég hefði aðeins séð
baksvip hans.
Þá liefði ég neyðzt til að líta
á þetta allt eins og drauma.
rugl Mösgu litlu, en nú vissi
ég. að hún hafði sagt satt.
Ófeigur hafði myrt Magda-
lenu og verið fús til að láta
dæma Biössa í fangelsi fyrir
glæo, sem hann hafði drýgt
Hann var morðinginn og hann
mvndi myrða mig, ef ég drægi
ekkí t-'mann á langinn.
Gvendur kæmi heim í síð-
asta lagi klukkan átta, en það
vissi Ófeigur ekki.
Hann hélt, að hann kæmi :
ekki heim fyrr en klukkan i
- tíu. '
Hann hefúr víst séð það á
svipbrigðum mínum, að ég
vissi, hvað hann var. Hann
andvarpaði og sagði rólega:
— Og ég sem var að vona,
að ég þyrfti ekki að myrða
fleiri. Sittu kyrr, vinan.
Hann gekk til dyranna ög
aðgætti, hvort þær væru vel
læstar, svo kom hann aftur.
Hann vissi, hvort eð er, að
ég hafði ekki aðra undankomu
leið en út um dyrnar.
Ég liefði varla farið að henda
mér út af svölunum til að
losna við hann.
Ég gerði það heldur ekki.
Mér kom það ekki til hugar.
Ég var mállaus af undrun. Ég
bjóst nefnilega aldrei við öðru,
en þetta væri draumaþrugl
Möggu og það þrátt fyrir mið
ann, sem hafði staðið út und-
an dúknum með harðangurs-
og — klausturssaumnum á
borðinu.
— Ég þarf að tala við þig,
sagði Ófeigur, þegar hann kom
aftur. — Sittu kyrr, vinan.
Drekktu úr bollanum.
Ég sat kyrr, en ég drakk
ekki úr bollanuro. Mér var al.
veg sama um bollann. Ef ég
drekk eitthvað rétt áður en ég
dey, verður það ekki hálf volgt
rjómakaffi.
Loksins fékk ég málið aft-
ur.
— Þú getur ekki drepið mig,
sagði ég. — Gvendur kemur
fljótlega heim.
— Ekki fyrr en klukkan tíu,
sagði Ófeigur og leit á klukk
una á barskápnum. — Og þá
verður þú löngu dauð.
Ég sat kyrr og Ófeigur sett-
ist handan við borðið. Ég
horfði á hendurnar á honum,
ég hafði ekki tekið eftir því
fyrr, hvað þær voru sterk-
legar.
Ég gat ekki barizt við hann
og sigrað. Ég gat aðeins von-
að, að Gvendur kæmi nægi.
lega snemma.
— Veit einhver annar um
þetta? spurði Ófeisur.
Ég hristi höfuðið. — Það
held ég ekki. Nema Magga
litla og svo kannski amma
hennar.
Hann brosti.
— Hver heldurðu að trúi
barni, sagði hann. — Nei, ég
er öruggur. Ég er að vinna í
matartímanum. Ég drep þig
og fer aftur niður eftir og á
stimpilklukkunni sést. að ég
hef verið að vinna í kvöld. Ég
fór ekki fyrr en bau hin voru
farin í mat. Ég verð þar. þ»g-
ar þau koma aftur. És hef unn
ið allan matartímann. Það
grunar engan mig.
— En Gvendur.... sagði ég.
— Hann kemur ekki í bráð,
sagði Ófeigur. — Hefurðu sagt
fleirum betta? Manninum þín
um kannski?
Ég kinnkaði kollí, en ég sá‘
það á svin hans. pð hann vissi,
að ég hafði ekkí minnzt á
þetta við Gvend.
— Já, ég sagði honum það,
sagði ég, en Ófeigur hristi bara
höfuð'ð.
— Þú sagði honum það
aldrei. Þú hringdir í mig í
kvöld og sagðir mér, að hann
yrði að vinna til tíu. Ég
hringdi sjálfur um leið og þú
lagðir símann á og reyndi að
ná í hann, en til einskis.
— En bréfmiðinn hjá henni
iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiia
21
ifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin ii ■■iiiiiiimiiuiiiii 1111111111111111111
Magdalenu.... stamaði ég.
Því miður skildi ég það löngu
seinna, að ég hefði átt að
segja, að ég hefði náð í Gvend,
af því að ég var konan hans.
Það er auðveldara fyrir eig-
inkonur að ná í önnum kafna
menn en aðra, það er að segja,
ef eiginmennirnir vilja tala
við konurnar.
— Hvaða bréfmiði? spurði
Ófeigur fyrirlitlega. — Ég
sá það að vísu, þegar ég var
að brenna bréfið á salerninu,
að fjórðung þess vantaði. En
ég veit, að ég hef glatað því
annars staðar en í. íbúðinni.
Eins og rannsóknarlögreglan
hefði ekki fundið það fyrir
löngu ef það hefði verið þar.
Ég leitaði um allt. Bæði kvöld
ið, sem ég dran hana — já,
ég get játað það núna, þvíþað
kemst aldrei upp. — Og svo
þeear Magga lilla sá mig. Ég
vissi, að lögreglan hefði sótt
mig, ef þeir hefðu fundið
skjalið.
— Hvaða skjal? spurði ég.
— Nema, hann hikaði ögn.
Þú varst í íbúðinni rétt eftir
að Magdalena fannst. Kannski
þú hafir fundið hornið af mið
anum. Já, það væri hugsanlegt,
jafnvel þó að ég hafi ekki fund
ið það og þó rótaði ég öllu
um. Ef það er rétt. • • • Stattu
upp.
Ég reis á fætur. Það fór
hrollur um mig meðan hann
virti mig fyrir sér.
Eftir langa mæðu, sagði
hann:
— Hvar er miðinn?
— Hvaða miði? spurði ég.
— Láttu ekki eins og þú vit-
ir ekki, hvað ég er að tala um.
Hvar hefurðu falið hann?
— Ég hef ekki falið eitt eða
neitt, sagði ég og settist aftur
niður. — Ég veit, að þú myrt
ir hana, Ófeigur. Ég geri ráð
KAUPUM HREINAR
LÉREFTSTUSKUR
PRENTSMIÐJA ALÞÝÐUBLAÐSINS
SPORTVEIÐAR FÆ RI
Veiðistengur, 10 gerðir.
Veiðihjól, 7 gerðir.
Laxaflugur og silungaflugur, margar stærðir og gerðir.
Línur, gildleiki 0,15 til 0,55.
Spónar og maðkabox.
LÁRUS INGÍMARSSON, HEILDV. Vitastíg 8 A. Sími 16205.
—4
5. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ