Alþýðublaðið - 05.06.1968, Side 16
AÐ gefnu tilefni vil ég undirrit-
aður taka fram, að þau ljóð,
sem birzt hafa í Þjóðviljanum að
undnförnu, eru ekki eftir mig,
heldur nafna'minn.
Guðmundur Hallvarðsson.
MOGGI.
Ef það er satt að eins dauði
sé annars brauð, þá hlýtur
eins brauð að verá annars
dauði. Það er aldeilis ekkert
smávegis sem bakararnir hafa
á samvizkunni.
LOF'fÞETTAR L'MBLOIB-
VINSÆLASTA PÍPUTÓBAK
í AMERÍKU. ,
REYKTÓBAK.
Kórar í helmsókn
Karlakór ísafjarðar og Sunnu
kórinn á ísafirði koma í heim-
sókn til Reykjavíkur í byrjun
júní.
Á þessu vori eru liðin 20 ár
frá því að Ragnar H. Ragnar
varð söngstjóri kóranna, en
hann flutti til ísafjarðar árið
1948 og hefur verið tónlistar-
skólastjóri, söngkennari og söng-
stjóri þar síðan og unnið að því
með fádæma krafti og dugnaði.
í tilefni þessa afmælis ferðast
kórarnir til Reykjavíkur, þar
sem Ríkisútvarpið mun hljóðrita
söng þeirra, en í leiðinni verða
haldnar tvær söngskemmtanir, í
Keflavík fimmtudaginn 6. júní
og Gamla Bíói í Reykjavík 7.
júní ki. 9.
Á söngskemwtuninni koma
fr mundir stjórn Ragnars karla
kór, kvennakór og 65 manna
blandaður kór og auk þess syng
ur frú Herdís Jónsdóttir nokk-
ur lög einsöng við undirleik
söngstjórans, en auk hennar eru
4 einsöngvarar með kórunum.
Undirleikari með kórunum er
Hjálmar Helgi Ragnarsson.
Á söngskránni eru 20 lög eftir
erlenda og innlenda höfunda. Af
lögum Karlakórsins má nefna
Sverri konung eftir Sv. Svein-
björnsson í raddsetningu söng-
stjórans. Einnig er flutt kvenna
kórs útsetning a£ Ave Maria eft
ir Schubert með einsöng frú Mar
grétar Finnbjörnsdóttur, en
blandaði kórinn syngur m. a.
Dónárvalsa eftir Joh. Strauss og
lokalagið úr Strengleikum Jónas
ar Tómassonar.
Kórarnir hafa í vor, og eins
um tíma í fyrravetur notið
kennslu Sig, Demetz Franzsonar,
söngkennara, en hann hefur
starfað á ísafirði á vegum Tón
listarskóla ísafjarðar.
Söngskemmtunin í Reykjavík
er, eins og áður segir, í Gamla
Bíói föstudaginn 7. júní kl. 21.
daglegi IIAKstur
Lexía í H-speki
Kæru börn! Ég hef nú verið beðinn að koma hingað til
ykkar og segja ykkur ofurlítið, eða eins og ég hefði nú
eiginlega heldur viljað orða það, veita ykkur ofurlitlar leið-
beiningar varðandi hægri umferð og þess vegna er ég nú
kominn hingað. Eins og þið vitið vafalaust ÖU, að minnsta
kosti öll ykkar sem fylgizt með, já þá hefur hægri umflerð
verið hér á landinu okkar allar götur síðan í maí þamn 26.
Eins og vitri maðurinn sagði einu sinni að það væri of
seint að byrgja brunninn þegar barnið væri búið að detta
ofaní hann, álít ég persónulega að betra sé fyrir ykkur,
börnin góð, að læra umferðarreglurnar í h umferð áður en
þið hafið farið ykkur að voða í henni.
Ég ætla að byrja að sýna ykkur mynd, sem tekin var af
frænda minum af bíl og eins og við sjáum er hann á hvolfi.
Það sem gerzt hefur er að bílnum hefur velt, þannig, að
hann er ekki lengur á hjólunum heldur snúa þau upp í loftið
og liggur bíllinn því á toppnum, eins og kallað er. Þessi
maður er ekki ánægður núna, jafnvel þó hann hafi fengið
bílinn í happdrætti, því bíllinn hans er ónýtur og hann á
ekki aura til þess að ráðast í það að kaupa sér nýjan bíl,
jafnvel þótt sum umboð láni í bílunum einhverja upphæð.
Svo við byrjum nú, þá er það sem alltaf ber að hafa í
huga, að hættan er til hægri, en ekki til vinstri. Þið megið
ekki halda, kæru börn, að ég ætli að fara að spóla í ykkur
i sambandi við pólitík, ég er nú bara að tala um umferðina.
Já, hættan ler nú til hægri, en ekki til vinstri eins og í
gamla daga. Þið verðið alltaf að varast hættuna frá hægri
og þess vegna held ég persónulega að þið verðið að byrja
að læra að þekkja á ykkur hægri höndina. Það er nú höndin
sem þið skrifið með, nema að þið séuð örfhent eða þá að
þið kunnið ekki að skrifa. Þá er gott ráð að þekkja á sér
hægri höndina á því að með henni brúkar maður hnífinn
þegar maður sker kjötið á diskinum hjá sér, mema maður
noti til þess vinstri höndina. Þið skuluð nú, strax og þið
komið heim til pabba ykkar og mömmu spyrja þau hvort
þið séuð örfhent og allt það og efa ég ekki að foreldrar
ykkar leysa úr þessu litla vandamáli ykkar.
Nú, ef það gengur illa að þekkja sundur á sér hendurnar
getið þið beðið pabba og mömmu að hnýta rauðan klút við
aðra hverja höndina á ykkur. Látið þau samt ekki binda
hann of fast, því það gæti auðveldlega stöðvað blóðrásiaa.
Þetta mætti hæglega vera silkiklútur eða þá bara léreft off
ekki væri gas verra. T.d. utan af kjötskrokk.
Nú verðið þið að muna, að ef pabbi og mamma hengja
klútinn á vinstri höndina, þá er hin höndin, sem klúturlmt
er ekki á, hægri höndin, og hættan er til haegri. Ef hhte
vegar pabbi og mamma hengja klútinn á hægri höndína, me
höndin sem enginn klútur er á, vinstri höndin og þar af
leiðir að hin er sú hægri, nema auðvitað að þið séuð mmS
þrjár hendur eða fleiri.
Ef þið nú skylduð ruglast í þessu, þá skuluð þið b?ra
hlaupa inn til pabba og mömmu og biðja þau að leysa úr
þessu litla vandamáli ykkar. í þessu sambandi vil ég benda
ykkur á að taka, ég endurtek, taka með sér strætisvagnamið*.
til að vera fljótari heim til að spyrja pabba og mömntn,
ef þið skilduð lenda í vandræðum langt í burtu að heiman,
Strætisvagnamiðar eru nefnilega ódýrari en beinharðir p#».
ingar, eins og sagt er.
Þar sem ég held að þið séuð öll skynsöm börn, nema þeasi
burstaklippti í öftustu röð, sem braut peruna í útidyra-
ljósinu mínu í fyrravetur, held ég að ykkur sé þetta alveg
ljóst. Hættan er til hægri börnin góð. HÁKARL.