Alþýðublaðið - 07.06.1968, Síða 10
ÚIVEGSBANKIÍSLANDS
TILKYNNIR:
í dag, föstudaginn 7. júní opnar bankinn nýtt útibú á
ÁLFHÓLSVEGI 7, KÓPAVOGI , 1
Samtímis opnar bankinn stækkað og endurbætt útibú sitt að Laugavegi
105.
Afgreiðslutími beggja útibúanna verður fyrst um sinn kl. 9.30—12 f.h.
og kl. 1—3.30 og 5—6.30 e.h. alla virka daga nema laug&rdaga.
Afgreiðslutíminn frá kl. 5—6.30 er aðeins fyri'r mnlánsviðskypti.
Útvegshanki íslands.
200 umslög
Framhald af 3. síðu.
ihafi var ákveðiS, að það, sem
eftir yrði óselt af þessum um-
slögum hinn 6. júní, þ. e. a. s.
í gær, yrði eyðilagt. Höfðu í
gær selzt 5.301 umslag og ráð
stafað til eigin þarfa sambands
ins 713 stykkjum. Voru þá eft
ir 2.086 umslög og var þeim
fargað eins og áður segir. Geng
isverð umslaganna, sem eyði-
lögð voru, var 50 krónur hvert
umslag.
McCharty.
Framhald af 3. síðu.
bert heitinn Kennedy hefur
verið jarðsettur.
Frambjóðendurnir, sem nú
hafa allir fengið lífvörð um
sig frá sambandshernum,
gerðu hlé á allri sljórnmála-
starfsemi strax og þeim var
kunnugt um árásina á Kenne
dy. Þetta hlé verður á óþægi
legasta tíma fyrir þá, aðeins
átta vikum fyrir flokksþing
Republikanaflokksins og ell-
efu vikum fyrir flokksþing
Demókrataflokksins, en á
flokksþingunum verður ákveð
ið, hverja flokkarnir útnefna
sem forsetaefni.
Nokkrir stjórnmálasérfræð-
ingar halda því fram, að dauði
Roberts Kennedys muni hafa
1 í för með sér aukinn stuðning
við Humphrey varaforseta,
" sem í mörgum málaflokkum
1 hefur verið sammála Kennedy
svo sem varðandi réttindi
blökkumanna.
Uppfinningar
Framhald af 3. síðu.
Stærsti kostur þessarar vélar
er, að hún skilur hnakkfiskinn
leftir, en þversker ekki. Vinn-
ur hún því eiúna líkast þvi, og
þegar hausað er upp á gamla
mátann. Vél þessi er nú þegar
komin í notkun á nokkrum stöð
um hérlendis. Hugvitsmaður: Ó1
afur Þórðarson, fr.kv.stj. Fram
leiðandi: Stálverk sf.
Næst má nefna vél, sem er
ætluð til notkunar bæði um
borð í bátum, svo og í landi.
Þetta er eiginlega samstæða, því
að hún gerir allt í senn, haus
ar og slógdregur síldina og
skilar henni síðan saltborinni í
tunnur. Hugvitsmaður: Steinar
Steinason. Framleiðandi: Normi
sf. Þá hefur Steinar einnig
fundið upp síldarflokkunarvél,
sem getur afkastað allt að 300
tunnum á klukkustund. Og tii
að fullkomna verkið hefur
Steinar smíðað sjálfvirka vél,
sem hausar síldina og raðar
henni siðan í tunnurnar, begar
hún kemur úr flokkunarvélínni.
Þarna gefur einnig að líta
aðra hausingarvél, sem hausar
bolfisk, bæði stóra fiska og
smáa. Afkastar hún frá 25 fisk
um upp í 68 fiska á mínútu
eftir stærð fiskanna. Hugvits-
maður Oddgeir Pétursson.
Kolaklippingarvél.
Vél þessi er algjörlega sjálf-
virk. Klippir hún uggana af
kola, sem ætlaður er til heil-
frystingar. Afköst þessarar vél-
ar eru 30 kolar á mínútu. Vél-
ar þessar hafa verið notaðar
við Breiðafjörð, og segja eig-
endur þeirra, að *ein vél jafnist
ó við 30 stúlkur. Hugvitsmaður
og framleiðandi: Sigurður Krist
insson, Hólmavík.
Handfærarúllur.
Tvær slíkar eru á sýningunni.
Önnur er algjörlega sjálfvirk,
skekur sjálf, og þegar sá guli
bítur á dregur hún hann misk
unnarlaust inn. Margar stilling
ar eru á rúllunni, sem ráða
þvi hvenær hún dregur inn,
einnig er hún þannig gerð, að
verði átaksþunginn of mikill
gefur hún eftir. Uppfinningar-
maður: Jón Þórðarson, Reykja
lundi. Hin handfæravindan er
nefnd Elektra, og eins og nafn
ið bendir til er hún rafknúin.
Hún er einkum notuð í minni
báta og <er ekki sjálfvirk. Hug-
vitsmaður: Elliði Nordal Guð-
jónsson.
SIMFISK.
Þetta nafn bera allar þær
FISK-vinnsluvéiar, sem Sigmund
ur Jóhannsson, uppfinningamað
ur í Vestmannaeyjum hefur
fundið upp. Á sýningunni eru
m. a. garnaúrtöku- og flokk-
unarvél fyrir humar, sem reynzt
hefur mjög vel, og eru slíkar
vélar nú þegar í notkun í 4
löndum utan íslands. Framleið-
andi er Vélsmiðjan Þór, Vest-
mannaeyjum, og annar hún ekki
eftirspurninni. Þá 'er einnig sýnd
steinbítsflökunarvél, sem - Sig-
mundur hefur fundið upp, mjög
vönduð vél, sem hausar 4-5 t.
af steinbít á klukkustund. Þarf
aðeins einn mann við vélina til
að raða steinbítnum í hana.
Allar þessar vélar og tæki
virðast haglega gerðar, og sýna
ótvírætt, að á þessu sviði standa
íslendingar fyllilega jafnfætis
öðrum þjóðum, og eru reyndar
brautryðjendur í gerð margra
tækja til nokunar við vinnslu
isjávarafurða. Fólk er því hvatt
til að fjölmenna á sýninguna í
dag, og sýna þannig, að það
metur að verðleikum framlag
þessara hagleiksmanna í bágu
aðalatvinnuvegs þjóðarinnar.
Harmur
Frh. af I síðu.
an Robert Kennedy, er hann
var skotinn úr launsátri í
Memphis.
Johnson forseti verður að ö’.l
um líkindum viðstaddur jarð
arför Kennedys, en auk þess er
búizt við öðrum bandarískum
iramámönnum.
Lögreglan í New York hefur
gert umfangsmestu varúðar-
ráðstafanir, sem hingað til
hafa verið við hafðar í sögu
borgarinnar.
Kistunni með líki Kennedys
verður stillt upp á viðhafnar-
börum í Dómkirkju heilags
• Patreks í New York frá kl. 8.00
f. h. til 11 e. h. og verður
flutt með lest til Arlington
kirkjugarðsins til greftrunar
á laugardag.
Johnson hefur fyrirskipað að
fánar á opinberum byggingum
skuli dregnir í hálfa stöng unz
Kennedy hefur verið jarðaður
á laugardag, en á sunnudaginn
hefur verið fyrirskipuð þjóðar
sorg. Allir væntanlegir for-
setaframbjóðendur hafa lagt
niður alla kosningastarfsemi
' um óákveðinn tíma.
Sagði Johnson Bandaríkja-
menn bera á þessari myrku
stundu skyldu að taka hönd-
um saman til þess að barátta
Kennedys fyrir framförum og
réttlæti beri árangur.
Johnson sagði ennfremur,
að Robert Kennedy hefði ver-
ið göfugur leiðtogi og sannur
þjónn bandarísku þjóðarinn-
ar og hyllti hann ákaft, enda
þótt þeir hafi verið svarnir
stjórnmálaféndur. Sagði John
son bandarísk stjórnmál hafa
beðið óbætanlegt tjón við frá
fall Kennedys.
Lögreglan í Los Angeles hef
’ ur lýsf því yfir að Sihran Sih-
ran, Jórdaníumaðurinn, sem
myrti Robert Kennedy verði
ákærður fyrir morð að yfir-
lögðu ráði. Verður hann ákærð
ur fyrir morðið á Kennedy og
morðtiraun á 5 manneskjum,
sem urðu fyrir hinum átta
skotum, úr skambyssu morð-
ingjans.
Sihran gerðist bandarískur
innflytjandi árið 1956, 3 mán-
uðum eftir styrjöld ísrael ig
Araba, en hann bjó í þáver-
andi jórdanska hluta Jerúsa-
lem.
Er föðúr Sihrans barst
fregnin um ódæðisverk sonar
síns, en hann býr í Jerúsplem
varð honum að orði, að hann
væri harmi sleginn vegna
gjörða sonar síns.
í gær streymdu samúðar-
kveðjur frá þjóðarleiðtogum
og framámönnum úr öllum
heiminum til Ethel Kennedy
og Johnson forseta vegna hins
hörmulega morðs á Robert
Kennedy.. De Gaulle hefur
sent Ethel Kennedy, og Kenne
dy fjölskyldunni samúðar-
kveðjur sínar auk þess, sem
hann hefur sent Johnson sam
úðarkveðjur fyrir hönd
frönsku þjóðarinnar og segir í
skeytinu, að hann og franska
þjóðin beri sorgina vegna
dauða Kennedys með banda-
rísku þjóðinni og Kennedy
fjölskyldunni.
Sömuleiðis hefur Wilson, for
sætisráðherra Breta og Elísa
bet, Englandsdrottning látið í
ljós hluttekningu sína.
Tass fréttastofan rússneska
hefur birt fréttina um dauða
Kennedys án þess að gera at-
hugasemdir, en hefur lagt því
meiri áherzlu á sjálft morðið.
Hefur fréttastofan notfært sér
atburðin til þess að ala á hug-
sjónaágreiningi þjóðanna.
Pravda segir bandaríska
þjóðfélagið að verða þjóðfélag
ofbeldis og ógna. Segir frétta
stofan Kennedy hafa verið
fórnardýr öfgaafla, en getur
aðeins lítillega um að morð
inginn hafi verið Arabi, ann
ars staðar í blaðinnu.
Ennfremur segir í blaðinu
að öfgamenn hafi byrjað að
leggja hatur á Kennedy, er
hann hefði hafið raunhæfa
stjórnmálabaráttu og byrjað
að gangrýna hina ábyrgða-
lausu og bandarísku utanríkis
stefnu og sé morðið á Kenne
dy sönnun þess að Bandaríkin
væru lýðræðislegt glæpaþjóð
félag.
Tékkneska útvarpið hefur far
ið mörgum orðum um dauða
Kennedys og segir erfitt, að
leyna óttanum fyrir þeim af-
leiðingum, sem dauði hans hafi
í för með sér, sem geti haft al
varlegar afleiðingar fyrir banda-
rískt lýðræði og friðinn í heim
inum.
Talsmaður Sameinuðuþjóð-
anna neitaði öllum sögusögnum
um að S.Þ. og lögreglan í New
York hafi gert sérstakar ráðstaf
anir til þess að vernda fulltrúa
Araba hjá S.Þ., en margir þeirra
hafa fengið nafnlausar morð
hótanir í síma. Fulltrúi Jórdana
hjá S.Þ.Muhammediel Farra, fór
í gær miklum viðurkenningarorð
um um Kennedy og fordæmdu
Jórdanir harðlega ódæðisverk
hins Jórdanska morðingja Sihr-
an.
Lét hann í ljós dýpstu hlut
tekningu Jórdönsku þjóðarinnar
ríkisstjórnarinnar, og sínar eigin
gagnvart Kennedy fjölskyldunni
og bandarísku þjóðarinnar.
Fyrirhuguðum fundarhöldum
í Sameinuðuþjóðunum var þegar
aflýst, er fréttin barst um
dauða Kennedys.
ísraelskar fréfctastofnanir hafa
ákaft ráðizt á Arabalöndin og
segja að með hatursfullum árás
um sínum á ísrael hafi þau átt
sökina á morðinu á Robert Kenn
edy.
10 7- júríí 1968 - ALÞÝÐUBLADIÐ