Alþýðublaðið - 07.06.1968, Page 11
ritstj. ÖRN ÍK p^TTI D
BÐSSON 1P| K'w' 1 1IK
jögur met í sundi
gþaöS.
Guðmundur Gíslason Á' heið
raöur af SRR og SSÍ i fyrrakv.
Fjögur íslandsmet voru sett í
sundi og það fimmta jafnað á'
Reykjavíkurmótinu í fyrrakvöld,
en móíið var háð í Laugardal.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Á
setti fyrsta met kvöldsins í 100
m .fjórsundi, hún synti mjög
rösklega og næstum „karlmann
lega„“ enda bætti Hrafnhildur
eigið met um 2,1 sek. Hrafnhild
ur er næstum jafnvíg á skrið
sund og flugsund og líkleg til
enn meiri afreka í framtíðinni.
Ellen Ingyadóttir, Á, er ekki síð
ur efnileg og í stöðugri framför.
Hún bætti met Hrafrihildar Guð
mundsdóttur, ÍR um 1,7 sek. í
200 m. bringusundi, en það met
setti Hrafnhildur á Norðurlanda
móti fyrir fimm árum og varð þá
4. Ellen synti á 3:01,6 mín.
Það er orðinn fastur liður á
sundmótum, að Ármannssvf ítir
setji íslandsmet á sundmótum
og svo fór einnig nú, enda haf'a
alimargir beztu sundmenn noklc
urra félaga safnazt í Ármann
Sveit Ármanns bætti íslands-
metið í 4x100 m. skriðsundi
verulegá, synti á 4:12,9 mín., en
gamla metið var 4:41,1 mín. Það
átti Ármann einnig. í sveitinni
eru Guðmundur Gíslason, Gunn-
ar Kristjánsson, Kári Geirlaugs
son og Gísli Þorsteinsson.
í 4x100 m. skriðsundi kvenna
bæíti sveit Ármanns met Selfyss
inga frá í fyrra um 1 sek. synti
á 4:48,0 mín. í metsveit Ár-
manns eru Matthildur Guð-
mundsdót'fcr, Ellen Ingvndóttir,
Sigrún Siggeirsdóttir og Ilrafn
hildur Kristjánsdóttir.
Fimmta fslandsmetið var jafn
&ð á mótinu, það gerði Guð
mundur Gíslason, Á, í 100 m.
flugsundi, synti á 1:03,6 mín.
Eins og kunnugt er þefur Guð
mnndur Gíslason nett HH ís-
landsmet á sundferli sínum, sem
er einstakt afrek. í því tilefni
var hann heiðraður á mótinu í
fyrrakvöld. Sundsambandið og
Sundráð Reykjavíkur afhentu hon
um fagran bikar í þessu tilefni.
Var hinn frábæri afreksmaður,
sem einnig er fyrirmynd íþrótta-
æskunnar á allan hátt, hylltur
mjög, þegar Pétur Kristjánsson
afhenti honum bikarinn.
Mót þetta er stigakeppni og
lauk með yfirburðasigri Ármanns,
Ægir var í öðru sæti, ÍR í þriðja
og KR rak lestina.
Áhorfendur voru fleiri en á
sundmótuni í vetur, en því miður
gekk mótið seint, sundfólkið var
ekki ávallt tilbúið til verðlauna
afhendinga og við það mynduðust
of oft dauðir punktar.
Úrslit:
Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR, 1:06,0
Matthildur Guðm.d. Á, 1:13,6
Ellén Ingvadóttir, Á 1:14,7
Vilborg Júlíusdóttir, Æ 1:19,5
Sigríður Sigurðard. KR 1:22,4
Gestur:
Guðmunda Guðm.d. UMFS
1:07,7
200 m. skriðsund karla:
Guðm. Gíslason, Á, 2:14,0
Gunnar Kristjánss., Á 2:20,9
Kári Geirlaugss., Á 2:28,1
Gísli Þorsteinss., Á 2:28,2
Halldór Ástvaldsson, Á 2:29,7
Ólafur Þ. Gunlaugsson, KR
2:33,6
Gestir:
Sigmundur Stefáns^., UMFS
2:27,8
Magnús Jakobsson, UMFS 2:33,5
100 m. flugsund kvenna:
Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Á
1:17,6 Met,
Sigrún Siggeirsd., Á 1:22,8
Framhald á síðu 14.
3. deild í kvöld
íslandsmóttð í 3. deild heldur
afram í kvöld föstudagskv.
á Njarðvíkurvelli kl. 20.30.
þá keppa U.M.F. Njarðvíkur
og H.S.H.
Ellen Ingvadóttir, A, í stöðugri
framför.
mm
inga
Nýliðarnir í 1. deild frá Vest
mannaeyjum léku í fyrra
kvöld sinn fyrsta leik gegn
sterku erlendu liði og við
skulum vona að það verði
ekki í síðasta skipti, sem við
fáum að sjá hið skemmtilega
lið frá Eyjum leika gegn er-
lendum atvinnumönnum. Þessi
frumraun Eyjamanna var
gegn hinu sterka þýzka liði,
Schwartz — Weiss sem hér er
í boði í. B. K. og fór leikur
inn fram í Keflavík í hvössu
og köldu veðri. Þó svo að
mar’natalan hafi orðið óhag
stæð fyrir í. B. V. þá sýndi
lið þeirra sem fyrr að í því
er kraftur og góðir einstakl-
ingar. Fyrri hálfleikur endaði
3-0 hinum þýzku í hag. í. B.
V. sótti ekki síður en gest
irnir, en tókst ekki að skapa
sér verulegt tækifæri við
markið og þessi þrjú mörk sem
þeir fengu á sig voru öll held
ur klaufaleg. Þannig kom það
fyrsta á 19. mín. er Páll mark
vörður í. B. V. hafði varið
tvö hörkuskot en missti knött
inn frá sér og skoraði mið-
framherji Þjóðverjanna en
hann fylgdi mjög vel eftir 1-0-
Á 35. mín. er sókn á mark
I. B. V. og er varnarmaður í.
B. V. komírn með boltann og
ætlar að lireinsa en bregzt illi
lega bogalistin og hreinlega
leggur boltann fyrir h. út-
herja gestanna, sem nýtir sér
vel mistökin og skorar óverj-
andi fyrir Pál 2-0. Á 37 mín.
skeður næstum hið sama er
varnarmaður „kiksar” illilega
Vestmanney
og h. framvörðurinn skorar af
löngu færi og nú hefði Páll átt
að geta varið, en var seinn í
svifum og knötturinn liggur
í netinu 3-0. Tækifæri í. B. V.
voru ekki mörg í hálfleiknum,
þó náði Haraldur Júlíusson v.
útherji að skalla yfir mark-
vörðurinn en varnarmenn þýzk
Úrval KSI
SW i kvöld
Landsliðsnefnd hefur valið
eftirtalda menn til að leika
gegn S.W. Essen föstudaginn
7. júní á laugardalsvelli lcl.
20.30.
Markvörður: Samúel
Jóhannsson, Akureyri
Bakverðir: Guðni Kjartans
son Keflavík
Þorsteinn Fr.iðþjófsson Val
Ársæll Kjartansson K.R.
Framverðir: Viktor Helga-
son Vestmannaeyjum Hall-
dór Björnsson K.R.
Framherjar: Reynir Jóns-
son Val Eyleifur Hafsteins-
son K.R. Ilermann Gunnars-
sonVal Skúli Ágústsson Akur
eyrj Kári Árnason Akureyri
Varamenn: Sigurður Dags
son Val Jóhannes Atlason
Fram Matthías Hallgrímsson
Kefiavík Helgi Númason
Fram Matthías Hallgrímsson
Akranesi
4aM
ir náðu að hreinsa. Þá átti Sig
mar Pálmason h. útherji fast
skot að markinu en það var
varið. Undarlegt atvik átti sér
stað í upphafi leiks, en þá
skoraði Sigmar mark, en var
greinilega rangstæður, en ekki
var flautað né veifað fyrr en
löngu eftir að mark var skor-
að, einfaldlega vegna þess að
línuverðirnir voru báðir á
sama vallarhelmingi, en eng
inn á þeim vallarhelmingi,
sem í. B. V. sótti á, en ein-
hvern veginn dæmdi Ilannes
. Sigurðsson dómari leiksins
markið ógilt. Seinni hálfleik-
ur var allur lélegri en sá fyrri
og orðið mjög kalt í veðri,
áttu nú í. B. V. menn nokkur
góð tækifæri og bezta tæki-
færi hálfleiksins er Sigmar
gaf vel fyrir og Haraldur átti
gott skot naumlega framhjá.
Undir lok leiksins skora svo
Þjóðverjar 4-0 eftir þvögu fyr
ir framan mark í. B. V. Sem
sagt öll mörkin hálf leiðinleg
og má þar um kenna slaðri
vörn í. B. V.
Beztu menn liðsins voru
Viktor Helgason hinn trausti
leikmaður, sem oft er síðasti
hlekkurinn í varnarkeðju í. B.
V. og svo Valur Andersen, sem
er mjög leikinn og yfirvegað
ur leikmaður. Þá eru Sævar og
Sigmar duglegir en uppskáru
ekki eins og til var ætlazt
Páll í markinu varði það
mesta af því sem hægt var.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og fannst mörgum hann o£
gestrisinn. I.V.
7- júní . 1968 - ALÞÝÐUBLAÐID H