Alþýðublaðið - 09.07.1968, Side 8
Fíllinn þarf
12 lítra af
mjólk á dag
Það er heilmikil vinna að gefa
þessum 6 mánaða fílsunga mat
inn sinn. Hann drekkur hvorki
meira né minna en 12 lítra af
Innlendar og erlendar
frétta- og sumarmyndir
mjólk á dag. Fru Pat Deller,
sem rekur verzlun með lifandi
dýr í Lemsford Englandi,
Borgfirzk æska
tilstuðlan Ungmennasambands Borgarfjarðar, sem
vill með þessu láta sitt af mörkum til að beina
æskufólki inn á réttar brautir. Námskeiðinu lauk með
keypti fílsungann frá dýragarð
inum í Bedford fyrir skömmu.
Hún he'fur nú komizt að raun
um að unginn þarf fæði fyrir
tæpar 1400 krónur íslenzkar á
hverri viku. Fílsunginn er fá-
skiptinn við önnur dýr á heim
ilinu nema hvað hann heldur
upp á páfagaukinn, sem situr á
mjólkurkassanum.
Á myndinni hér að ofan eru hátt á annað hundrað
borgfirsk ungmenni, sem stundað hafa nám við hinn
glæsilega Leirárskóla í Borgarfirði. Þegar skólanum
lauk í vor, efndi skólastjórinn, Sigurður Guðmunds-
son frá Hvanneyri, til námskeiðs, félagslegs og
íþróttalegs eðlis og voru þátttakendur 167 talsins á
aldrinum 16 ára og yngri. Námskeiðið var haldið að
miklu íþróttamóti helgina 8.—9. júní, þar sem keppt
var í mörgum aldursflokkum og sá Höskuldur Goði
Karlsson um framkvæmd mótsins. Ennfremur voru
kvöldvökur, varðeldar og dansleikir fyrir æsku
fóikið.
Myndina af þátttakendum í þessu námskeiði tók
Sigurður Guðmundsson.
Frægur
gíraHi
Og hér höfum við mynd af
einasta gíraffanum í heimi
sem notaður er til reiðar að
því er sagnir herma. Gíraff-
inn heitir Lucky og er níu ára.
Hann var þriggja ára þegar
hann var fyrst notaður til reið
ar. Nú er hann fimm metra
á hæð og aðalnúmerið í sirk-
usnum Busch-Roland, sem nú
er á ferð í Vestur-Þýzkalandi.
8 júlí 1968 - ALÞYÐUBLAÐIÐ