Alþýðublaðið - 30.07.1968, Blaðsíða 1
Þriðiudagur 30. júlí 1968 — 49- árg. 144. tbl.
LYKURI
Ekkert birt af honum fyrr
en í fyrsta lagi í dag
Prag, 29. júlí. Hinir frjálslyndu kommúnistaleiðtog
ar Tékkóslóvakíu hófu í dag hinn mikla fund sinn
með stjórnmálanefnd sovézka kommúnistaflokksins
í litlu þorpi skammt frá landamærum Ukrainu, án
þess að aðilar sýndu þess nokkur merki að vera
reiðubúnir til að slaka til í afstöðu sinni, sem skekið
hefur allan hinn kommúnistíska heim og valdið
miklli hættu á sovézkri hernaðaríhlutun til að hinda
enda á sóknina í frjálsræðisátt í Tékkóslóvakíu.
að fundinum lyki í nótt eða
morgun og yrði ekki birt
nein tilkynning um hann, fyrr
,en að lionum lóknum.
Víðtækar varúðarráðstafan-
ir voru gerðar á því svæði,
þar sem fundurinn fer friam
og blaðamönnum va,r haldið í
mörg hundruð metra fjarlægð
frá járnbrautarstöðirmi eftir
komu sovézku nefndarinnar.
Sumir halda Því fram, að fund
(unrinn sé haldinn í jámbraut
ariest, sem flutt hafi sovét-
menn til Cierne, en aðrir telja
lað hann sé haldinn í kvik-
myndahúsi í þorpinu, sem tel
,ur 2500 íbúa og er aðeins
nokkra ikílómetra frá landa-
mærum Sovétríkjanna og Ung
Framhald á bls. 12.
Tékkneskir skriðdrekar viðbúnir við landamærin.
Páfi tekur loks afstööu til getnaöarvarna:
BANNAÐAR
Róm, 29. júlí. Eftir árs yfirvegun og rannsóknir
bannaði Páll páfi í dag allar getnaðarvarnir meðal
kaþólskra hjóna. Var ákvörðun páfa tilkynnt í hirðis
bréfi, er nefnist „Humanae vitae” eða Um mannlífið.
í ritinu eru viðurkenndir þeir erfiðleikar, sem marg
ir af 550 milljónum kaþólskra í heiminum geta átt
með að fella sig við þessa ákvörðun, en samt segir,
að takmörkun barneigna skuli aðeins fara fram í
samræmi við þær reglur, sem guð hafi sett.
Aðalkrafa Sovétríkjanna við
viðræðurnar e,r sennilega um
leyfi til að hafa sovézkan her
á landamæraisvæðum Tékka
gegnt Vestur-Þýzkalandi og að
ritskoðum verði tekin mPP að
nýju, en góðar heimildir héldu
því fram í Prag, að Alexander
Dubcek og saimstarfsmenn
hans hefðu ekki í hyggju að
láta undan í hvorugu þessu at
riði.
í kvöld lágu ekki fyrir nein
ar ákveðnar upplýsingar um
fundinn fyrir utan tilkynn-
inguna um, að nefndirnar
hefðu haldið fund í þorpinu
'Cierna-Nad Tisou í Slóvakíu í
' morgiun, en síðar var tilkynnt
Tító f er
fiBPrag
Belgrad, 29. júlí. Tlto,
Júgóslavíuforseti fer til
Prag til vicVræðna við Dubc
ek, flokksleiðtoga, á þriðju
dag eða miðvikudag, að því
er gróðar heim'ildir herma í
kvöld.
Heimsóknin er í boði
Tékka og hefur verið und-
irbúin um skeið. Hún fylg-
ir fast á eftir sovézk-tékk-
nesku vSðraeðunum, sem hóf
ust í morgun.
Þá segir AFP þá frétt
frá Prag, að Ceausescu,
rúmenski kommúnistalcið-
toginn, sé væntanlegur í
heimsókn einhvern næstu
daga. T'ito og Ceausescu
hafa báðir lýst yfir stuðn-
ingi við umbóta- og frelsis-
aðgerðirnar I Tékkóslóvak-
íu.
Páfi ítrekaði hina gömlu afstöðu
kaþólsku kirkjunnar, að eina
leyfilega aðferðin, sem kaþólsk
hjón geti beitt til að hafa hemil
á fjölskyldustærð sinni, sé að
takmarka samfarir við liin svo-
kölluðu öruggu tímabil.
Endurtók Páll páfi á'skorun
fyrirrennara síns, Píusar 12., til
kaþólskra lækna að reyna að
finna ráð til að gera aðferð
þessa örugga.
Engan bilbug var að finna á
páfa, hann fordæmdi vönun fóst
ureyðingu og pilluna, er hann
lýsti því yfir, að tilbúnar getn-
aðarvarnir leiddu til frátnhjá-
halds, siðleysis, virðingarleysis
fyrir konunní og skapaði jafnvel
pólitískar hættur.
MEÐ
í veigamesta kafla bréfsins,
þar sem hann bannar notkun pill
unnar sagði páfinn, að hver sú
aðgerð í hjónabandi, sem miðaði
að því að hindra eðlilega af-
leiðingu samlífs væri óleyfileg.
Talsmaður páfa, sem skýrði
frá hirðisbréfinu á fullsetnum
blaðamannafundi í Vatíkaninu,
sagði, að loku væri ekki skotið
fyrir tilslakanir í framtíðinni,
en ætlazt væri til þess, að allir
kaþólskir menn lifðu eftir
ákvörðun páfa.
Hins vegar sagði franskur guð-
fræðingur, kaþólskur, að þegar
allt kæmi til alls ættu kaþolikk-
ar alltaf valið á milli sjónarmiðs
kirkjuþingsins, sem leyfir sam-
vizku-frelsi í þessu máli, og hins,
sem sé aðeins persónulegt sjón-
armið páfa.
Páll páfi, sem nú er um það
ÖLLU
bil að leggja upp í ferðalag til
Rómönsku Ameríku, þar sem
vandamál fátæktar og stórra
fjölskyldna er aðkallandi, veik
algjörlega til hliðar niðurstöð-
um sérstakrar páfalegrar nefndar
sérfræðinga, sem hafði gert til-
lögur um meiri tilslakanir á af-
stöðu Vaííkansins árið 1966.
Páfi kvað sér vera ljóst hin
alvarlegu fólksfjölgunarvanda-
mál í þróunarlöndunum, en þætti
við, að engin lausn á þessum
vandamálum væri viðunandi,
sem bryti í bág við grundvallar
virðuleik mannsins og byggði á
algjörlega efnislegum skilningí
á sjálfum manninum og lífi hans.
Viðbrögð manna í Frakklandi
voru yfirleitt vonbrigði eða upp-
reisn bæði hjá lærðum og leik-
um. Sóknarprestur í París
Framhald á bls. 12.