Alþýðublaðið - 30.07.1968, Blaðsíða 6
Forsjá flokks-
stjórnarinnar
var hafnað
Þe'ir, sem vildu fá fyrir framkvæmdastjóra mann úr verka-
lýðshreyfingunn'i en ekki mann úr ríkisstjórninni, trúan Wilson,
unnu mikinn sigrur á landsstjórnarfundi brezka Verkamannaflokks- j
íns s.I. miðvikudag. Hinn nýi framkvæmdastjóri flokksins heitir '
Harry Nichls ogr hafði ekki einu sinni verið nefndur á nafn
fyrirfram sem hugrsanlegur maður í stöðuna. Hann hefur til þessa
verið framkvæmdastjóri stærsta verkalýðsfélags Bi'etlands,
Flutninga- og almenna verkamannasambands'ins.
Þegar landsstjórnarmenn
komu saman til fundar á mið.
vikudag, reiknuðu flestir með,
að það væri aðeins til að setja
stimpil á þá ákvörðun forust-
unnar að gera Anthony Green-
wocd, húsnæðismálaráðherra, að
framkvæmdastjóra eftir Len
Williams.
í London er kjör Nichols
skoðað sem pólitískt bragð, sem
fulltrúar vierfcalýðsjireyfingar-
innar hafi leikið með aðstoð
tveggja fyrrverandi ráðherra,
þeirra George Brown og Ray
Gu.nther, og James Gallaghafis,
innanríkisráðherra. Greenwood,
sem beið lægri hlut, hefur not-
ið stuðnings Wilsons, meirihluta
ríkisstjórnarinnar og vinstri-
arms þingflokksins. Samþykkt
landsstjórnarinnar á miðviku-
dag er klár ósigur fyrir Wilson.
Hins vegar hefur deilan frem-
ur staðið um það hvernig flokks
forustan kom sér niður á Green-
wtod sem rétta manninn í emb-
*----------------:-----------4
21 erlendur
vísinda-
leiðangur til
íslands í ár
Rarmsóknarráð ríkisins hefur
veitt leyfi fyrir 21 vísinda
leiðangri til íslands á þessu
ári, og eru þá ekki taldir með
ýmsir lejðangrar frá erlendum
skólum, sem fremur verði að.
telja námsferðir en vísinda-
leiðangra, segir um þetta í
i frétt frá Rannsóknarráði.
Umsóknir um leyfi til vís-
indastarfa hér hafa aukizt ár
frá ári, en Rannsóknarráð rík
isins veitir þessi leyfi í um-
boði menntamálaráðherra, sam
kvæmt reglugerð um þe'ssi
mál. Flestir þeirra erlendu
Ieiðangra sem taldir eru upp
í frétt Rannsóknarráðs eru
bandarískir, eða 9 talsins, 2
eru frá Englandi, 1 frá Skot-
landi, 2 frá Þýzkalandi, 3 frá
Svííþjóð, 1 frá Banmörku, 1
frá Póllandi, 1 frá Kanada og
1 frá Sviss.
ættið, heldur en um Green-
wood sjálfan.
Staða framkvæmdastjóra var
■auglýst á venjulegan hátt og
bárust alls 26 umsóknir. Dóm-
nefnd undir forsæti Jennie Lee
komst hins vegar að þeirri nið-
urstöðu, að enginn umsækjenda
uppfyllti allar kröfur. Vildi
nefndin leita utan hóps um-
sækjenda að kandídötum, sem
ibeldust hæfir. Þetta olli nokkr-
um óróleika í flokknum. Deil-
urnar brutust út, er í ljós kom,
'að aðeins hafði verið haft sam-
band við einn þeirra þriggja,
sem nefndin taldi hæfa — Green
wood, Brown og Gunther —
uiefniiega •' Greenwood. Þeir
Brown og Gunther lýstu yfir, að
þeir hefðu ekki áhuga á starfinu
en báðir lótu orð falla, sem
bentu til að ’beir væru reiðir
yfir þeim aðferðum, sem beitt
hefði verið. Þegar Greenwood
var svo orðinn einn sem um-
sækjandi, blossaði upp að nýju
deilan milli- Wilson-armsins og
þess, sem kalla má verkalýðs
brevfingar-armsins í flokknum.
Ýmsír voru sömu skoðunar og
Gunther, sem sagt, að um væri
að ræða tiiraun forsætisráðherr
ans til að koma einum af sínum
fryggu mönnum, Greenwood, í
þina veigamiklu framkvæmda
stjórastöðu, sem nú á að aukast
að völdum. Það er hins vegar
Ijóst nú, að Wilson tók aðeins
óvirkan bátt í tilrauninni til að
gera Greenwood að fram-
kvæmdastjór'a, og dregur þetta
að sjálfsögðu talsvert úr ósigr-
ínum.
Sé hins vegar litið á fram-
kvæmdast.iórastöðujna sem
keppni milli hægri og vinstri
arms flokksins, þá er raunar
mjög óvíst hvort „sigrað“ hefur.
Harry Niohöls. er 64 éra gam-
all, og úr kredduföstu, sósíalist-
ísku verfcalvðsfélagi, sem í mörg
ár hefur fvlgt formanni sínum,
Frank Cousins, gegnum þykkt
og þunnt. Hins vegar er Niehols
iíka verkalýðsmaður í þeim
skilningi, að hann óttast, á sama
hátt og Ray Gunther, að harðir
„teóríumenn" úr liópi vinstri-
krata nái of sterkum tökum á
flokknum. Eftir útnefninguna
á miðvikudag lýgti Harry Nich-
ols því yfir, að hann liti á það
sem sitt veigamesta verkefni að
halda sambandinu við alla
verkalýðshreyfingupa, en ekki
©kki bara við þingflokkinn.
g 30t júlí »1960 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MARGAR BRÝR á íslenzkum þjóðvegum eru alveg sérstök fyrir-
bæri, sumar beinlínis eins og leifar frá annarri öld þótt ekki
séu þær nerna nokkurra áratuga gamlar.
í fyrri daga voru bílvegir lít-
ið annað en breikkaðar kerru-
slóðir, og keruslóðirnar. lágu
jafnan þar sem auðveldast var
að fara með kerru, melar þrædd
ir og bakkar. Eitt höfuðeinkenni
þessara vega var það, að þeir
voru óskaplega hlykkjóttir. Tím-
inn silaðist áfram á þá daga,
menn flýttu sér með því að fara
hægt. En svo er að sjá að alls
ekki hafi þótt kostur að gera
vegi beina fyrst eftir að bílar
komu til sögunnar. Ein skýr-
asta sönnunin fyrir því er sú
að það mátti heita regla að
kröpp beygja var á veginum inn
á hverja einustu brú. I Að vísu
blasti brúin betur við sjónum
vegfarenda á þennan hátt svo
þeir hcifðu betri skilyrði en
ella mundi til að dást að snilli
verkfræðinga og framtaki stjórn-
málamanna í ungu og fram-
gjörnu ríki, en aldrei voru þess-
ar beygjur við brýrnar til að
greiða neinum leið og í .sumum
tilfpllum gersamlega óskiljan-
legar.
Síðan breikkuðu vegimir eftir
því sem umferðin jókst og farar
tækin stækkuðu. En gömlu
brýrnar heldu áfram að vera
eins og þær höfðu alla tíð verið
og minntu á þá tíma er Gamli-
Ford og hans jafnaldrar skröngl
uðust hlykkjóttar slóðir með
slíkum dunum og dynkjum að
hross fældust um allar nær-
sveitir.
Er hér var komið sögu gerðist
það einhverju sinni að langferða
bílstjóri ók út á land á splúnku
nýjum bil og lenti í einhverjum
vandkvæðum með brýrnar á leið-
inni.Aðspurður um hversu gengði
hefði komst hann svo að orði
að það hefði að vísu mátt koma
pappír á milli bíls og handriðs
á sumum brúnum, en alls ekki
sandpappír.
En lítil þjóð í stóru landi .sem
verður að viðhalda miklu vega-
kerfi getur ekki staðið í því
á tíu ára fresti að reisa nýjar
brvr eða breikka þær gömlu, og
fvrir því var víst gripjð til þess
ráðs að t.aka gömlu handriðin
af og setia önnur lág og úthall-
andi í staðinn.
En líka þau verða fvrir barð-
inn 4 síva''andi umferð og sífellt
ptrorrí ökutækjum. Þau eru nú
nrSSn riitin og brotin. skæld
ocr ''iknrftnt.t
"^rni pfegt fleira er athugavert
við brýrnar. Þær eru sumar
farnar að sýna geigvænleg elli-
mörk, og getur jafnvel farið
svo að þær hætti að verða brýr
sumar hverjar áður en varir
nema að nafninu til.
Þær eru orðnar götóttar og af
þeim farinn allur glans.
Sigtryggur Guðmundsson bíl-
stjóri sýndi mér dæmi um það
á norðurleiðinni á dögunum.
Það er t.d. komin löng rifa niS-
oir í gegnum brúardekkið út við
'handrið öðru megin á brúnni
yfir Giljá í Þingi. Og þrjár brýr
kvað hann vera að fara niður í
Langadal.
Þá hafði komið gat á Laxár-
brú á Ásum í vor, og var járn-
plata látin yfir. Nokkru seinna
var gert við gatið og járnplatan
flutt upp í Langadal, því þar
var líka þörf fyrir járnplötu.
En þá gerðist það að annað gat
fór á Laxárbrú óg járnplatan var
flutt þangað aftur.
Verður ekki betur séð en það
þurfi a.m.k. að fjölga járnplöt-
um á norðurleiðinni!
- S.H.
Bifreiðaeigendur athugið
Ljósastillingar og allar almennar bifreiða-
viögerðir.
BIFREIÐAVERKSTÆÐI N. K. SVANE
Skeifan 5. — Sími 34362.