Alþýðublaðið - 06.10.1968, Qupperneq 13
6. október 1968 ALÞÝÐUBLASIÐ 13
Guðmundur G.
GUðmundur H.
Valbjörn
Þátttakendur Islands í 19.
Olympíuleikjunum í Mexíkó
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum taka 8 ís
lcndi.ngar þátt í 19. Olympíuleikjunum í Mexikó, sem
hcfjast á laugardaginn. Við skuluni nú kynna 'þetta
fremsta íþróttafólk okkar nánar.
ELLEN INGVADÖTTIR:
Hún er yngst af þátttakendum, fædd 13. janúar
1953 og þvl aðeins 15 ára gömul. Hún er landsprófs
nemi og sagt er að EUen hafi kennslubækumar með
sér í olympíuþorpið. Ellen er mjög efnileg sundkona
og framfarir hennar hafa verið stórstígar undanfama
mánuði. Hún hefur sett 11 íslandsmet, en keppir í
100 og 200 m. bringusundi og 200 m. fjórsundi á
Ölympíuleikjunum. Met hennar í 100 m. bringusundi
ier 1:22,0 og 2:56,0 mín. í 200 m. bringusundi.
HRAFNHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR:
Hrafnhildur hefur verið bezta sundkona íslands und
anfarin ár og aldrei betri en á Iþessu ári, þó að flestir
héldu að hún værLhætt keppni í fyrra. Hrafnhildur
hefur alls sett 76 íslandsmet í sundi og beztu met
hennar tru 1:05,2 mín. í 100 m. skriðsundi, 2:26,4 mín í
200 m. skriðsundi og 2:28,3 mín. í 200 m. fjórsundi,
en hún keppir í þessum greinum á Olympíuleikjunum.
Hnafnihildur tók einnig iþátt í Olympíuleikjunum í Tokyo
1964.
GUÐMUNDUR GÍSLASON:
Guðmundur er metakóngur Íslands, ef svo má segja,
því að alls 'hefur hann sett 109 íslandsmet! Fjölhæfni
Guðmundar er mikil, því að þessi met hefur hann sett á
öllum sundaðferðum. Þetta eru þriðju Olympíuleikarn
ir, sem Guðmundur tekur þátt í. Hann var með í
Róm 1960, Tokyo 1964 og nú í Mexíkó. Guðmund-
ur keppir í fjórum greinum í Mexikó, 200 m. og 400
im. fjórsundi, en met hans á þeim vegalengdum eru
2:22,0 og 5:08,3 mín. Þá tekur 'hann þátt í 100 m. flug
'sundi, metið er 1:02,7 min og í 100 m. skriðsundi. met-
ið 58,0 sek.
LEIKNIR JÓNSSON:
Leiknir er hálfgerður „spútnik“ í íþróttum, því að
hann hóf ekki æfingar í sundi fyrr en um tvítugt, en
þá eru flestir afreksmenn búnir að ná toppnum. En
framfarir Leiknis hafa verið örar og nú á hann íslands
met bæði í 100 m. og 200 m. bringusundi, en þau
voru frábær. Met hans í þessum greinum eru 1:12,4
mín. í 100 m. og 2:41,3 mín. í 200 m. Þess skal getið í
samibandi við mettíma í sundi, sem hér er skýrt frá, að
iþau eru sett í 50 m. laug Leiknir keppir bæði í 100
og 200 m. bringusundi í Mexikó.
GIJÐMUNDUR HERMANNSSON:
Guðmundur er aldursforseti íslenzka flokksins, hann
er 43 ára, fæddur 28. júlí 1925 og hefur aldrei keppt
á Olympíuleikum fyrr en nú. Guðmundur hefur verið
'bezti kúluvarpari ofckar í mörg undanfarin ár, en
þrálát meiðsli í baki komu í veg fyrir, að hann gæti
æft af fulium krafti og beitt sér til fulls. Á síðustu
tveimur árum hefur hann sýnt stórkostlegar fnamfar
ir og bætt árangur sinn um rúma 2 metra og núvenandi
íslandsmet hams er 18,45. Hann keppir í kúluvarpi á
OL.
JÓN Þ. ÓLAFSSON:
Jón hefur verið bezti hástökkvari íslands í 7 ár og
met hans, sett 1965 er 2,10 m. Jón er mjög fjölhæfur
íþróttamaður og 'hefur náð ágætum árangri í fleiri
greinum. Innanhússmet Jóns í hástökki er 2,11 m. og
í hástökki án atrennu hefur hann stokki, 1,75 m. Jón
tók þátt í Olympíuleikj unum í Tokyo 1964 og hann
var með í Evrópumótunum 1962 í Belgrad og 1966 í
Búdapest. Hann keppir í hástökki.
VALBJÖRN ÞORLÁKSSON:
Valbjöm er fjölhæfasti frjálsíþróttamaður íslands
og hóf keppni í frjálsum íþróttum 1952. Þetta eru
þriðju Olympíuleikarnir, sem Valbjörn tekur þátt í, en
hann var 12. í tugþraut í Tokyo 1964. í Róm 1960
tók ihann þátt í stangarstökki. Valbjörn varð Norður
landameistari í tugþraut 1965 og varð annar 1967.
íslamdsmet Valbjamar eru 7165 stig, en hann hefur
'hlotið bezt 7384 stig, en þá var meðvindur aðeins of
mikill til þess að metið hlyti staðfestingu. Valbjögp
tekur iþátt í tugþraut.
ÓSKAR SIGURPÁLSSON:
Óskar er fyrsti ísfendingurinn, sem tekur þátt í
lyftingum á Olympíuleikjum, en hanm hefur sýnt miklar
framfartr í þessari tiltölulega nýju keppnisíþrótt hér-
lendis. Bezti árangur hans er í þríþraut, en þá er lyft
með þremur mismunandi aðferðum og lagt saman, er
437,5 kíló. Óskar er í milliþungavigt. Hann varð þriðji
í þessum flokki á Norðurlandamóti í Noregi í fyrra.
ÞEGAR íþróttahöllin í Laugar-
dal var opnuð til æfinga og
keppni fyrir íþróttahreyfinguna
var mikið rætt og skrifað um
það hve afnot af henni væru
dýr, sérstaklega var fastagjald-
ið, sem greiða varð fyrir leiki
og mót, kr. 5000, gagnrýnt harð-
lega. Stjórnendur hússins vildu
samt' engu breyta og þeirra var
valdið.
Á þessu hausti er hafin alls-
lierjarflótti íþróttafólks úr þess-
ari glæstu og dýru höll. Háloga-
landsbragginn, hinn hrörlega er
aftur að verða aðalathvarf íþrótta
æskunnar. Hin fátæku félög og
ráð áhugamannasamtaka íþrótta-
fólks hafa ekki efni á að þreyta
kappleiki sína í „Höllinni".
Hér er mikið vandamál á ferð
inni, körfuknattleiksmenn flytja
alveg úr Höllinni í vetur og hand
knattleiksmenn hafa ákveðið að
flytja alla leiki yngri flokkanna
í Hálogalandsbraggann. Þeir
sem stjórna Höllinni verða að
athuga sinn gang, þetta er alvar-
legt mál bæði fyrir íþróttahreyf
inguna og íþróttahöllina sjálfa
ekki síður.
□ GULL, SILFUR,
BRONZ og BLÓÐ ...
Nú er aðeins tæp vika þar til
Olympíuleikarnir hefjast í Mexí-
kóborg, en ástandið í Olym-
píuborginni er allt annað er
olympískt, þar er hálfgert upp-
reisnarástand, blóð rennur og
hugir fólksins eru fylltir hatri í
stað vináttu og friðar. En hug-*
sjón Olympíuleikanna er fyrst
og fremst friður og vinátta. —
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvað gert verður, en vonandi
lagast ástandið, þannig að leik-
arnir fari fram eins og áætlað
hefur verið. — öe.
ntstJ- ÖRN I BÐSSON 1 Þl 1 n R
Kúba á sterka frjálsíþróttamenn
og konur. Á móti í Mexíkó í
fyrrakvöld jafnaði kvennasveit
Kúbu heimsmetið í 4x100 m. boð-
hlaupi kvenna, hljóp á 43,6 sek.
Karlasveit Kúbu sigraði í 4x100
m. boðhlaupi karla og tíminn
var frábær, 38,8 sek., sem er
aðeins 2/10 úr sek. lakari en
heimsmetið, sem Bandaríkja-
menn eiga.
Ungverjar og Nígeríumenn
gerðu jafntefli í knattspyrnu u
æfingaleik í Mexíkó í gær, Ijl.
Þá sigruðu Búlgarir Ghana með
9 mörkum gegn engu.