Alþýðublaðið - 06.10.1968, Qupperneq 16

Alþýðublaðið - 06.10.1968, Qupperneq 16
OMÍDCO) SIOfíH GRIMM ÖRLÖG Margur hlaut örlög grimm sem í gjörningum stendur: Gunnar var höggvinn, Skarphéðinn inni brenndur, í Rifi barðist Björn við útlenda gikki, sem brytjuðu hirðstjóra íslands niður í stykki, Holabiskup beygður höfuðið missti, á Brimarhólmi ófár að síðustu gisti, , Eyjamenn voru af hundtyrkjum hraktir og teknir, hópum saman í útlegð flæmdir og reknir. Og vinur minn, Jón, sem gekk frjáls um sitt föðurland, er fangaður maður — genginn í hjónaband. Barátta fyrir Nú hefur verið frá því skýrt að íslendingar séu einhverjum kílóum þyngri en nágrannar þeirra og þetta þykir mörgum ákaflega slæmt. Það virðist' vera orðið ákaflega úthreitt trúar- •atriði, ekki aðeins hér á landi, heldur um allan hinn siðmennt- aða heim, að mönnum megi helzt ekki vera sæmilega í skinn -n 70 00 70 Gluggasmiðian Siðumúla 12 Sími 38220 — Reykjavík Hand- og listiðnaðar- sýningin Síðasti sýn- ingardagur Norræna húsiö komið, mönnum sé það hollast að vera horrenglur. Þessi trú er oft sett fram í nafni læknavísindanna og af því að hún er kennd við vísindi, þá trúa henni auðvitað allir, því að vísindin hafa ámóta sess í augum nútímamanna og guð almáttugur og heilög ritn- ing höfðu fyrr á tímum. Annað veifið eru birtar ráð- leggingar til fólks um það, hvern ig það eigi að fara að því að losna við kíló hér og kíló þar, og nauðsyn þess að losna við þessi kíló er einaft rökstudd með því, að það sé hættulégt að vera holdugur, og sérstaklega sé ístrubelgjum hætt við hjartabil- un. Þetta kann vel að vera rétt, en er Þó engan veginn einhlítt. Það eru að minnsta kosti mörg dæmi þess að horaðir menn og smávaxnir hafi bilazt fyrir hjarta. Og nær alltaf gleymist að geta um þær hættur, sem stöðugur áróður gegn offitu kann að hafa í för með sér. — Hvað skyldu þeir t.d. vera marg- ir sem hafa fengið magasár eða bilazt á taugum af ótta við að vera farnir að þyngjast eitthvað örlítið meira en hæfilegt þykir? Svo illa er nú komið fyrir þessari þjóð að karlmennirnir eru fleiri en konurnar. Það er sagt að atvinnuleysi sé versta vandamálið, og alltaf eru menn að reyna að leysa vandamálin, en ég er hrædd- ur um að það yrði mikið at- vinnuleysi ef einhvern tíma tækist að leysa Þau, svo marg ir fá hátt kaup fyrir að sýsla við þá iðju. offitu Gæti ekki verið að það sé betra, þegar allt kemur til alls, að lifa áhyggjulaust, kýla vömbina og láta slag standa. Og því má heldur ekki gleyma, að því fylgja margir kostir að vera feitur. Það er viðurkennd staðreynd iað feitir menn eru yfirleitt glaðlyndari og friðsam- ari en horrenglurnar, þótt það kunni sumpart að stafa af því að þeir geta hvorki slegizt né bjargað sér á flótta. Og megin- atriði í málinu er önnur stað- reynd, sem nú skal stuttlega drepið á'. Með því að auka líkamsfitu manna er nefnilega hægt að tryggja frið í heiminum. Það mun nær algilt að ístrubelgir þykja ekki hæfir til að gegna herþjónustu, og þess' 'vegna gætu ekki verið til neinir herir, ef allir væru nógu feitir, og leiðin til að koma í veg fyrir ófrið gæti þá verið fólgin í því að fita menn nógu mikið. Er þessu hér með komið á framfæri við 'Sameinuðu þjóðirnar og aðrar friðarstofnanir. JÁRNGRÍMUR. I ORÐSENDING frá I Alþýðuflokksfélagi Roykjavíkur ; Kosnfng fulltrúa á 32. flokksþing AlþýHuflokksins !; !; verður laugardaginn 5. okt. kl. 13—18 og sunnudaginn \ !; 6. okt. kl. 10-18. i ; KosiS verður á skrifstofu flokksins. !; ,! Reykjavík 2. okt. 1968. J j! Kjörstjórn. \ Maðurinn er svoleiðis ge'rð Ur að allt sem er einhvers virði kann hann ekki að meta fyrr en hann er búinn að missa það.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.