Alþýðublaðið - 10.10.1968, Síða 9

Alþýðublaðið - 10.10.1968, Síða 9
10. október 1968 ALÞYÐUBLAOIÐ 9 — Davíð, hvernig stendur á þessu nafni? — Þetta er eiginlega ættar- nafn. Afi minn átt'. eldgamlan herjeppa, sem hann kallaði Trítil. Svo keypti pabbi hann af honura og kallaði hann áfram Trítil. Þegar ég keypti þennan, fannst mér ég verða að halda nafninu, þetta var 3. ættliðurinn. — Ég sé, að þú ert með merki jeppaklúbbsins á bíln- um. Hvernjg er sá klúbbur starfræktur? — Við höldum fundi á vet- urna og gerum þá áætlanir um ferðalög. í vetur ætlum vj5 í ferðalag í snjónum. Þá hjálp- um við fólki, sem hefur fest íb'ílana sína. Svo hefur líka verið talað um að fara í ferða- lag og búa í snjóhúsi. Það er skítt að vera íslendingur og hafa aldrei búið í snjóhúsi. Salan fór upp - og stefnir áfram upp TRÍTILL er ættarnafn Fólk er mjög ánægt með Forsythe — sjónvarps- þáttinn og hyggur gott til að fylgjast með þessu snilldarverki næstu 25 mánudagskvöld í vetur! Rétt áður en sjónvarpið hóf sýningar á þessíunx sjónvarpsþætti, hyrjaði vikan með framhalds- greinaflokk um sama efni. Við hringdum í Sigurð Hreið- ar, ritstjóra Vikunnar, og spurð um hvort salan hefði ekki auk- izt? — Salan fór upp og stefnir áfram upp, svaraði Sigurður hress 1 bragði. — Munuð þið fylgja sjónvarp- inu eftir í birtingu sögunnar? — .Nei, Iþað getum við ekki. Sagan skiptist í 15 kafla hjá okkur, en í 25 í sjónvarpinu. Þegar við vorum búnir að sjá fyrsta þátt þá kom í ljós að þeir atburðir voru lallólíkir at- burðarásinni í 1. kafla ihjá okk ur — 1. kafli sjónvarpsins hef- ur verið einskonar kynning á sögupersónum. Ég býst samt við að söguformið hjá okkur sé byggt líkt upp og sjónvarps- þættirnir. Fólk má bara ekki gleyma því að við flyíjum ekki listaverkið ,í heiid, heldur að- eins vefinn úr iþví. — Hvaðan fenguð þið rétt- inn til að flytja söguna? — Eiginlega bæði frá Bret- iandi og Norðurlöndum og við styðjumst við enska, danska og Sunnan í Öskjuhlíðinni veltt- um við athygli jeppa, sem ekið var þar fram og aftur í þýf- inu inn á milli steinanna. Við náryari athugun kom í ljós, að liann bar nafnið Trítill. Eig adinn reyndist svo vera Davíð Jóhannesson. sænska útgáfu við þýðinguna. — Var rétturinn dýr? — Alíir svona samningar eru dýrir, jafnvel þótt tillií sé tek- ið til sérstöðu okkar hér úti á hjaranum. Samt er alltaf betra að semja við Evrópulöndin en Bandaríkin. Þeir í Evrópu eiga betra með að gera sér í hugar- lund að slíkt smáríki sé yfir leitt til. — Og fleiri fréttir af þínum vígstöðvum? — Ja, við verðum þrítugir í haust og gefum út myndarlegt afmælisblað af því tilefni, og svo kemur jólablaðið, vandað og síórt að venju. — Svo þið eruð bjartsýnir á tilveruna? — Já, því skyldum við ekki vera Iþað? SJ. Aukafundur i SÖLUSAMBANDS ÍSL. FÍSKFRAMLEIÐENDA verður haldinn í Sigtúni fimmtudaginn 24. okt. n.k. 'kl. 10 f.h. Fundarefni: Ástand og horfur í sölu- og verðlagsmál- um saltfisks. Stjorn -.i’■:? Sölusambands ísl. f iskf ramleiöenda NJARÐVÍKINGAR Skrifstofa Njarðvíkurhrepps er flutt í eigið húsnæði að Fitjum, þar sem áður var Vél- smiðja Njarðvíkur h.f. Sveitarstjórlnn í Njarðvíkurhreppi Ný sending Vefrarkápur með og án loðkraga. — Terylenekápur með kuldafóðri. — Pelsar með loðkraga. Kápu og dömubúðin Laugavegi 46. SÝNINGARSALUR Til leigu í miðborginni nýr sýningarsalur, mjög vistlegur og skemmtilegur, um 270 ferm. Heppilegur til sýninga á alls konar listaverk- um, bókamörkuðum, bösurum, tízkusýning- um og fleira leigifst fyrir einn eða fleiri í einu, létt músik getur fylgt, ásamt veitingum ef óskað er. — Næg bíl'astæði. — Símar 21360 og 81690. Dagur Leifs Eiríkssonar Árshátíð íslenzka-ameríska félagsins verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal föstudaginn 11. október 1968 kl. 19.30. Borðpantanir í síma 20221 fimmtudag milli kl. 5—7, og föstu- dag eftir kl. 4 e.h. — Dökk föt eða smoking. Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.