Alþýðublaðið - 18.10.1968, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.10.1968, Blaðsíða 3
18. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Meðlimir Tengla ásamt stuSningsmönnum sínum að framkvæmd mannafundinum í gær. Geðheilbrigðisvikunnar á blaða- Samtökin Tenglar gangast fyrir 8 daga geðheil- brigðisviku dagana 26. október til 2. nóvember n.k. Verkefni vikunnar skiptast í þrjá meginþætti: Al- menna fræðslu, starfsfræðslu og listsýningu á verk- um geðsjúkra og vangefinna. Tenglar njóta stuðn- ings Geðverndarfélags íslands og Styrktarfélags vangefinna um framkvæmd vikunnar. Á fundi, er Tenglar héldu með fréttamönnum í gær, skýrði Sve_nn R. Hauksson, framkvæmdastjóri geðheil- brigðisvikunnar frá helztu lið um hennar. Gefið verður út rit fyrir al- menning þar senf leitast er við að svara helztu spurning- um, er le.ta á hugi fólks varð andi geðveiklun, vangefni og ýmis félagsleg vandamál. Verð ur ritlð selt í bókabúðum, en einnig mun skólafólk selja það í hús. Opnjr fyrirlestrar um ýmjs mikilvæg atrið; geðheilbrigðis mála verða' flest kvöld vik- unnar í Háskóla íslands og hefjast þeir allir kl. 8.30, Röð þeirra er sem hér segir; Mánudagskvöldjð 28. októ- ber talar Alfreð Gíslason geð- læknir, fyrrverandi alþingis- maður um geðheilbr gðisþjón- ustu á íslandi í nútíð og fram tíð. Þriðjudagskvöldið 29. októ ber talar Karl Strand yfir- læknjr um ný viðhorf í geð- lækningum. Ejnnig verður þá sýnd kvikmynd sem fjallar um sögu nokkurra geðsjúk- linga og meðhöndlun þeirra. Miðv kudagskvöldið 30. októ ber fjallar Steinar Guðmunds soni, forvígismaður AA sam- takanna um mál drykkjusjúk linga á íslandi og Jónatan Þór mundsson, fulltrúi hjá ríkis- saksóknara talar um afbrota- og fangelsismál. Fjmmtudagskvöldið 31. októ ber talar Björn Gestsson, for- stöðumaður Kópavogshælisins, ium ástand og horfur í málum vangefinna og sýnd verður verðlaunakvikmynd um nýja þjálfunarstöð fyr'r vangefna. Föstudagskvöldið 2. nóvem- ber talar dr. Matthías Jónas- son, uppeldisfræðingur, um skólana og geðheilbrigði nem- enda og Margrét Margeirs- dóttir, félagsráðgjafi talar um aðlögunarvandkvæði barna- og unglinga. Fyrirlestrarnir verða öllum opnir. Starfsfræðsla fer fram í flest um framhaldsskólum lands'ns. í skólana munu koma sérfræð íngar og áhugamenn um geð- heilbrigðismál og ræða ástand ið almennt og vöntun í ein- stakar starfsgreinar. Sýndar verða kvikmyndir þar sem að staða leyf;r. Einnig verða fyr- ir hendi bækl ngar með frek- ari upplýsingum um hvert istari, nauðsynlega undirbún- ingsmenntun, starfsmöguleika o.s.frv. Forstöðumenn vikunnar hyggja á dagskrá á Akureyri og Laugarvatni og hafa staðið yfir viðræður vjð skólastjóra menntaskólanna þar um þessa fyr.rhuguðu dagskrá. Sýning á verkum geðsjúkra og vangefinna verður opnuð í Unuliúsi laugardaginn 26. októ ber og verður opin frá kl. 2 — 10 e.h. til 2. nóvember og hefst hefst vikan því raunverulega og lýkur með sýningunn.i Á sýningunni verða tejkningar, málverk og ýmis konar handa v nna sjúklinga. í sumarbyrjun var ákveðið að hefjast handa við undjrbún ing kynningarherferðar í þágu geðheilbrigðismála. Fyrir vel- vþja Flugfélags íslands tókst að senda erindreka til að fylgj með Geðheilbrigðisviku Breta, 1968. í sumar hafa svo verið haldnir 10 umræðu- og úr- vinnuslufundir, en þar hafa ýmsir lagt til málnana, s.s. læknir, sáfræðingur og hjúkr unarkona. Niðurstöðurnar af þessum umræðum gerðu ekki annað en að staðfesta orð forvígis- manna á þessum sviðum um, að ástand ð sé hörmulegt. Brýn þörf er á a.m.k. 400 sjúkrarúmum fyrir geðsjúka og 2f|0 rúm vantar fyrir van- gefna. Þá vantar okkur fjölda geðlækna, sálfræðinga, geð- hjúkrunarfólks, félagsráð- Framhald á 4. síðu. Nefndarskipun um landhelgismál mófmælt Stjórn Farmaima- ogr fiskimannasambands íslands fer fram á það, að nefnd sem nýlegra var skipuð til að fjalla um nýtingrui landhelgriimar, verði endurskipulögrð, ogr jafnframt mótmælir stjórn- in því að í nefndina skyldu hafa verið skipaðir fulltrúar stjórn^ málaflokkanna, en ekki samtaka sjávarútvegrsins. Þá telur stjóriiin að strangrt eftirlit þurfi að hafa með bæði botnvörpuveiði, nótat veiði og netaveiði innan landhelginnar. „Stjórn FFSÍ sendi í gær frá sér fréttatilkynningu um afstöðu sína til þessara mála, og fer sú fréttatilkynning hér á eftir: „Stjórn FFSÍ hefur ætíð ver- ið því fylgjandi og gert um það margvíslegar samþykktir á und- anförnum árum að gerðar verði alvarlegar ráðstafanir til að skipu leggja fiskveiðar landsmanna innan íslenzkrar landhelgi, með það fyrir augum sérstaklega, að takmarka og útiloka spillandi og gjöreyðandi veiðarfæri er leiða til rányrkju, Um leið og stjórn FFSÍ fagn- ar því að hafist hefur verið handa með skipun nefndar til að gera tillögur um fiskveiðar í land- helgi getur stjórnin ekki annað en mótmælt hinni flokkspólitísku útnefningu nefndarmanna. Stjórn FFSÍ leyfir sér að mót- mæla því að gengið skuli vera fram hjá FFSÍ, og öðrum þeim aðilum, sem í einlægni og með alþjóðar hagsmuni fyrir augum hafa barizt gegn hvers konar rányrkju og veiðimisnotkun inn an landhelginnar. Til að öllum megi vera ljós- ar óskir og sjónarmið FFSÍ, — skorar stjórn sambandsins á Al- þingi og ríkisstjórn að tryggja það að í engu verði slakað á eftirfarandi lágmarkskröfum: 1. Að engin botnsköfuveiðar- færi eða nótaveiðitæki verði leyfð í fjörðum eða fló- um og ekki innan fjögurra mílna landhelgi nema undir ströngu, almennu og vísinda- legu eftirliti. 2. Að öll netaveiði innan þess- ara takmarka verði háð ströngu eftirliti með tilliti til þess að netaveiðin útiloki ekki línuveiðarnar á ýmsum tímum. 3. Að bönnuð verði veiði á hrygnandi fiski á ákveðnum lirygningasvæðum yfir hrygn- ingatímann. 4. Að bönnuð verði veiði á fisk ungviði innan allrar landhelg- innar nema til manrieldis samkvæmt ákveðum reglum og undir vísindalegu eftirliti, samkvæmt þjóðfélagslegum þörfum. Væntir stjórn FFSÍ að fullt tillit' verði tekið til þessara á- skorana og nefndin endurskipu- lögð. Stjórn FFSÍ skorar á skóla- stjóra hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar og á skóla- stjórn Sjómannaskólans, þ. e. Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélstjóraskóla íslands að efna til árlegrar opinberrar nemenda- skráningar og skrúðgöngu á hin- um viðurkennda Leifsdegi þ. 9. okt. ár hvert. Verði það gert að fastri reglu að gefa skólafrí þennan dag og fylkja nemendum, hverjum í sinni deild, við Leifs- styttuna í Reykjavík um miðbik dagsins. Þar verði síðan flutt ávörp og lúðrasveit látin leika þjóð- lög. Það er álit stjórnar FFSÍ að íslendingum beri á virðulegan hátt' að minnast þessa merkis- dags og hefur hún leitað urn- sagnar skólastjóranna um fram- gang þessarar tillögu. Þá voru læknunum lir. pró- fessor Snorra Hallgrímssyni og hr. dr. Hannesi Finnbogasyni, færðar alúðar þakkir fyrir að taka að sér læknaþjónustu á hafi úti sl. sumar vegna síldveið- Framhald á 4. síðu. Dregið um ribla ALÞÝÐUBLAÐINU hefur bor- izt fréttaskeyti frá Ólympíu- skákmótinu í Lugano í Sviss, þar sem segir að ísland hafi lent -í rjðli með Tyrklandj, Búlgaríu, Andorru, Túnis, Kúbu, Singapore og Tékkósló vakíu. Röðin er þessi: 1. Tyrk land; 2. ísland; Búlgaría; 4. Andorra; 5. Túnis; 6. Kúba; 7. Sjigapore og 8. Tékkósló- slóvakía. Bætur verði óskertar í gær var lagt fram í neðri Breytmgarnar eru efnislega lagi, að einstæð móðir er deild Alþingis frumvarp er tvær. í fyrsta lagi, að atvinnu verður öryrki missj eklii rétt Bragi Sjgurjónsson (A) flyt- leysisbætur skerði í engu til mæðralauna, en í gildandi ur um bre’ytingu á lögum um bótarétt manna varðandi al- lögum mun slíkt ákvæði hafa almannatryggingar. mannatryggingar, og í öðru komizt vegna vangæzlu. r

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.