Alþýðublaðið - 18.10.1968, Blaðsíða 9
V.
VÍSUBOTNASAMKEPPNIN
ÚRSLITIN
Fjórðu umferðinnj í vísu
bo'tnakeppni Alþýðublaðsins
er nú lokið og var þátttaka
góð enn sem fyrr. Margir nýir
bættust í hópinn víðs vegar
að af landinu, en sumir hafa
verið með frá upphafi eða í
einstökum umferðum, enda
getur hver haft þann háttinn
á sem hann helzt kýs, því að
hver umferð er sjálfstæð og
út af fyrir sjg.
Að þessu sinni var fyrripart-
urinn kveðinn á' tæpitungulausu
alþýðumáli, enda hafa íslend-
ingar jafnan tekið hressilegt
tungutak fram yfir teprulegt
orðaval og reynt að tala og yrkja
þannig, að það skildist. Mér
sýnist líka á vísubotnunum, að
flestir séu enn sama sinnis, hvað
þetta snertir, botnarnir eru mjög
í líkum anda og fyrripartur vís-
unnar og jafnvel hnykkt á í lok-
in, eins og til var ætlaz't. Þetta
átti hvort. sem er ekki að vera
neitt sálmavers eða annar kveð-
skapur af slíku tagi. Og þó er
yfirleitt hófsamlega í þetta farið.
Það hefur verið nokkuð út-
breidd skoðun, að lausavísan sé
á undanhaldi meðal þjóðarinn-
ar, minna sé um góða hagyrð-
inga en áður, færri kasti nú fram
stöku en fyrr. Sjálfsagt er eitt-
hvað til í þessu, en margir hafa
þó gaman af þessari íþrótt enn-
þá og fást við hana, það sann-
ar meðal annars vísubotna-
keppnin okkar.
Sumir eru svo vinsamlegir að
senda okkur vísur með til bragð
bætis og uppörvunar, hvað við
kunnum vel að meta. Núna
fengum við t. d. eftirfarandi
kveðju frá S. E. Lundberg:
l
Ekki sýna ykkur þjóstinn
íslands gömlu skvísurnar,
aðeins til að auðga póstinn
við ykkur sendum vísurnar.
t
Þá fylgdi og laus miði með
eftirfarandi vísu einu bréfinu,
en varð viðskiia við það og lentí
í ruglingi, ef til vill skrifar höf-
undurinn okkur seinna og getur
þá vísunnar í leiðinni, en hún
er svona :
Gegnum æviára klið,
annanið og sköllin,
róar hug að rjála við
rím og stuðlaföllin.
Að þessu sinni var dómnefnd-
in sammála um, að bezti vísu-
botninn væri eftír Jakob Ó. Pét-
ursson, Fjólugötu 1, Akureyri,
og hlýtur hann því verðlaun Al-
þýðublaðsins í fjórðu umferð
keppninnar. En vísan er á þessa
leið eftir að hann hefur botnað
hana : ) ■ -1 -- i £[
Húsfreyjan ier kjaftakind,
IFJÖRÐU
kallinn drekkur eins og svín,
bæði fögur fyrirmynd
fyrir litlu börnin sín.
Jakob er líka með þennan
botn, sem einnig hefur nokkuð
til síns ágætis :
Þetta er mörgum lífsins iind: v
lygasögur og brennivín.
Ég mun nú að venju birta
nokkur sýnishorn til að gefa les-
endum dálitla hugmynd um
vísubotuana.
Einar Baldvinsson, Kópavogi:
UMFERÐ
Víst mun átt við vatn úr lind,
því varla drekka svínin vín!
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Reykjavík:
Er það furðu algeng synd,
þó ættu bæði að skammast
sín.
Theodór Einarsson, Akranesi:
Ég álít þetta enga synd
og ætla að bjóða þeim til mín.
Haraldur Zophoníasson, Dal-
vik:
Á allar dyggðir eru blind,
aldrei læra að skammast sín.
Ekki er frúin fyrirmynd,
af fausknum enginn ljómi
? !;’ i skín.
Jónas Jósteinsson, Reykjavík:
Er þetta kannski íslenzk mynd
eða bara vísnagrín?
R. Gröndal, Reykjavík:
Ekki lífga ljóta mynd
lausmælgi og brennivín.
Sigurgeir Þorvaldsson, Kefla-
vík:
Fjölskyldan er fyrirmynd
fær og vel að njóta sín.
Sigurður Magnússon, Hafnar-
firði:
Frímann Einarsson, Reykja-
vík :
Ríkið er karlsins Ljómalind,
lastmál tunga hefnir sín.
Nanna Þórarinsdóttir, Reykja-
vík : !,•,,[
Á uppeldinu er engin mynd,
allur krakkaskarinn hrín.
Hér verðum við að láta staðar
numið, þótt af nógu sé að taka.
Við þökkum enn sem fyrr þátt-
tökuna og vonumst til að sem
flestir spreytí sig á næsta vísu-
botni og verði með í fimmtu
umferðinni. — GG.
5. UMFERÐIN
Jakob Ó Pétursson, ritstjóri á Akureyri, varð hlutskarp-
astur í 4. umferð vísubotnakeppninnar og er gert grein
fyrir úrslitunum á öðrum stað í Opnunni. Þá hefjum við 5.
umferð og nú hefur Gestur Guðfinnsson kosið að láta ykkur
glíma við öfugmælavísu,
Fyrripartur: ' "V
Séð hef ég skötuna skaka strokk,
skógarþröstinn elda graut
Seinnipartur: 1 rrr' '1
• ••••••••••••••••••••«••••••
Nafn ........................................
Heimili........................................:oxí
Símanúmer ...................................
Frestur til að skila seinniparti er til mánudagsins 28. októ-
ber. Mcrkið umslagið með „Seinnipartur“ — Alþýðublaðið,
pósthólf 320.
OPNAN
18. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
LJOS&
ORKA
Fjölhreyttasta lampa-
úrvaí á laiídirw
UÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488.
SPEGLAR
FERMINGARGJAFIR
MikiS úrval af fallegum og nytsöm- SPEGLABÚÐIN
um fermingargjöfum — Skoðið sýn- Laugavegi 15,
ingargluggann — sími 1-9635*
Enskir frúarskór
Skóbær
LAUGAVEGI 20
SÍMI 18515.
NÝ SENDING
SVARTÍR - BRÚNIR
- LJÓSDRAPP
VERÐ KR. 780.—
SÍÐASTA SENDING
FYRIR JÓL.
PÓSTSENDUM.
MILLIVEGGJAPLÖTUR
RORSTEYPAN H.F
KÓPAVOGI — SÍMI 40930.
ÉÉmtm