Alþýðublaðið - 13.11.1968, Side 2
2 ALÞYÐUBLAÐIÐ 13. nóvcmber 1968
mmm
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og Bepedikt Gröndal. Símar-
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson. — Aug-
lýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu 8 —10,
Evik. ___ Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjald
kr. 130,00. í lausasölu kr. 8.00 eintakið. — Útg;: Nýja útgáfufélagið h.f.
HVER ERU ÚRRÆÐI
STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR ?
Það 'var ömurlegt að hlýða á
ræður íleiðtoga stjórnarandstöð-
unnar um efnahagsmálin á Al-
’þingi í gær. Þeir höfðu engin úr
ræði fram að færa til lausnar hin
lum miklu efnahagsvandamálum.
Hlutskipti þeirria var það eitt að
berjast á móti úrræðum ríkis-
stjómarinnar. Þetta er því ömur
legra, þegar haft er í huga, að
nú standa stjómarandstæðihgar
jafn vel að vígi og ríkisstjómin
til þess 'að meta vandann og
leggja fram til’lögur. í viðræðu
nefnldl stjómmálaflokkanna fékk
stjórnarandstaðan öll hin sömu
gögn og stjórnarflokkarnir. Stjórn
arandstaðan getur því ókki notað
hina sömu afstöðu nú og áður, að
hún hafi ekki fengið nægil’egar
upplýsingar um vanda efnáhags
málanna.
Þess hefði mátt vænta, að leið
togar stjómarandstöðunnar
mundu við umiræður á Alþingi
um efnahágsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar tjá sig um það, hvaða leið
þeir vildu fara til lausnar vand-
anum. Eins og fram hefur kom-
ið, hefur einkum verið rætt um
þrjár leiðir: Gengisbreytingu,
uppbótaleið eða nilðurfærs’luleið.
Hljóðvarp og sjónvarp skýrðu í
gær ítarlega frá ræðum stjórnar
andstæðinga um efnahagsmálin.
En almenningur var að því loknu
engu nær um það, hverja af þess
um þremur feiðum stjórnarand-
staðan hefði hölzt viljað fara.
Framsófcnarmenn og kommúnist
ar Jýstu sig að vísu andvíga
gengislækkuninni, en þeir gættu
þess vel að maela hvorki með upp
bótakerfi né niðurfærslu. Hið
eina, sem lesa máttil út úr ræð-
um stjórnarandstæðinga, var
það, áð fcommúnistar vilja taka
upp víðtæk innflutninlgshöft og
Eysteinn talaði um sterka gjald-
eyrisstjórn, sem sennilega hefur
átt að þýða það sama. En stjórn
arandstöðunni hlýtur að vera það
ljóst, áð tekjuvandamál sjávarút-
vegsins og ríkissj óðs hefði ekki
verið leyst með höftum einum.
Það þarf að færa tekjur til í þjóð
félagitnu, — yfir til sjávarútvegs
ins — og þjóðin á heimtingu á
því að fá að vita, hvernig stjórn
arantílstaðan vildi, að sú tekjutil
færsla ætti sér stað.
Hiviergi erlendis, þar sem lýð-
ræðihefur þróazt, mundiþað geta
gerzt, .að istjórnarandstaðan legði
ekki sínar tillögur á borðilð, þeg
ar um jafnmikinn vanda er að
tefla og hér. En það hefur enn
einu sinni sýnt sig, að stjómar-
andstaðan hér er óábyrg. Hún er
ó móti því, sem ríkisstjórnin ger
ir. En hefur sjálf engin úrræði,
sem beita megi til lausnar vanda
málunum. Þjóðin getur ekki
treyst slíkri stjórnarandstöðu.
SJÓSÓKN OG AFLI
Á VESTFJÖRÐUM
Útgerð og sjósókn á Vest-
fjörðum í októbermánuði ein-
kenndjst mjög af fjárhagserf
iðleikum útgerðarinnar og
fiskvinnslustjöðvannaj. 1 sex
verstöðvum af tólf á þessu
svaeði kom enginn bolfiskafli
á land í mánuðinum, en í 4
þessara verstöðva var nokkur
rækjuvinnsla. Heildaraflinn í
mánuðinum var 1190 lestir,
sem er sama aflamagn og
barst á land í október í fyrra.
Af heildaraflamagninu komu
röskir % hlutar til vinnslu í
Bolungarvík og á ísafirði, rösk
ar 400 lestir á hvorum stað.
í lok mánaðarins voru 17
bátar byrjaðir róðra með línu,
en línuaflinn var sáratregur
allan mánuðinn, 3-4 lestir í
róðri, þrátt fyrir góðar gseftir.
4 bátar frá Patreksfirði stund
uðu ennþá dragnótaveiðar, og
fengu þeiy sæmilegan afla,
þegar þeir gátu verið að veið
um. Sama er að segja um tog-
bátana, en 4 bátar stunduðu
togveiðar. Sigldu tveir þeirra
með afla á erl. markað. Vél-
báturinn Vestri frá Patreks-
firði stundaði netaveiðar við
Kolbeinsey á Patreksfirði í
mánuðinum.
Aflinn í einstökum verstöðv
um:
PATREKSFJÖRÐUR:
Brimnes dr. 45,5 lestir í 9 róðr
um.
Jón Þórðarson tr. 44,2 lestir í
3 róðrum.
Svanur dr. 31,7 lestir í 10 róðr
um.
Skúli Hjartarson dr. 18,1 lest:
Vestri n. 40,1 lest saltfiskur.
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Enginn afli.
BÍLDUDALUR:
Enginn afli.
ÞINGEYRI:
Framnes 13 lestir í 3 róðrum.
FLATEYRI;
Ásgeir Torfason 39,2 lestir í 13
róðrum.
Bragi 37,3 lestir í 14 róðrum.
SUÐUREYRI:
Enginn afli.
BOLUNGARVÍK:
Hugrún 76,0 lestir í 20 róðrum.
Einar Hálfdáns 71,6 lestir í 20
róðrum.
Sólrún 70,40 lest-ir í 18 róðrum.
Guðmundur Péturs 48,6 lestir
í 12 róðrum.
Húni 39,5 lestir í 15 róðrum.
Ólafur Friðbertsson 64,2 lestir
í 18 róðr.um.
Vþborg 15,6 lestir í 5 róðrum.
HNÍFSDALUR:
Enginn afli.
ÍSAFJÖRÐUR;
Vfkingur III 70,8 lestir í 20
róðrum.
Guðný 55,1 lest í 18 róðrurn.
Straumnes 54,4 lestir í 18 róðr
um.
Víkingur II 53,8 lestir í 17
Víkingur 11170,8 lestir í 20 róðr
Gunnhildur 49,2 lestir í 16
róðrum.
Hrönn tr. 45,6 lestir í 7 róðr-
um,
'Guðrún Jónsdóttir 43,0 lestir í
11 róðrum.
Sæfari BA tr. 46,2 lestir í 7
róðrum.
SÚÐAVÍK:
Hilmir 61,0 lestir í 17 róðrum,
Svanur tr. 32,0 lestir í 5 róðr
HOLMAVIK:
Enginn afli.
DRANGSNES:
Enginn afli.
Rækjuveiðarnar.
8 bátar frá Bíldudal stund-
uðu rækjuveiðar í Arnarfirði í
mánuðinum, og varð heildar-
afli þejrra í mánuðinum 90,7
lestir í 182 róðr.um. Er hejldar-
aflinn frá vertíðarbyrjun þá
orðinn 121,3 lestir. Aflahæstu
bátamir voru: Jörundur Bjarna
son með 14,3 lestir, Pétur Guð
mundsson 13,7 lestir, Freyja
13,1 lest og Vísir 13,0 lestir.
25 bátar stunduðu rækju-
veiðar í ísafjarðardjúpi, og
varð heildarafli þeirra 293,9
lestir. Voru flestir bátarnir
með 12-14 lestir í mánuðinum,
en aflahæstir voru: Örn með
14,5 lestir, Ásdís 14,8 lestir, Þór
Frh. á 14. síðu.
Erlendar
tréttir i
stuttu máli
LYONS, Frakklandi. 12.11.
(ntb.-reuter): Ekkj aðeíns
hjartaflutningur 'heldur og
nýrnaflutningur úr sama
manni fór á mánudag fram
á tveimur sjúkrahúsum í
borginnf Lyons í Frakk-
landi. Ekki er kunnugt, hver
veitandinn var, en 34 ára
gamall maður, Noel Mois.
sonnier, ‘hlaut hjartað; var
það þriðja hjartaígræðslan
í Frakklandi og hin sjötug-
asta og fjórða í heiminum.
Nafn þess, er nýrun hlaut,
hefur enn ekki verið upp
gefið.
BEIRUT 12. 11. (ntb-
reuter): Líbanski forsætis
ráðhea-rann Abdullah Al-
yafi afhenti í da£ forseta
landsins, Charles Helou,
lausnarbeiðni sína og ráðu
neytis síns. AI-yafi mynd
aði fjögurra manna stjórn
hinn 20. október í haust,
en leggur nú til að annað
hvort verði mönnum bætt
í hana eða mynduð ný
stjórn.
BRUESSEL, 12. 11. (ntb-
dpa): Hin 29 ára gamla frá
Beate Klarsfeld, sem í síð-
ustu viku var dæmd til eins
árs fangelsisvistar í Vestur-
Berlín, fyrir að reka for-
sætisráðherra landsins, dr.
Kurt Kiesinger, löðrung á
almannafæri, hyggst láta
hart mæta hörðu og hefja á-
róðursherferð gagnvart naz-
istískri for.tíð kanzlarans. Dr.'
Kiesinger á að halda fyrir-
lestur í Brússel siðdegis á
morgun, en á undan fyrir.
lestrinum ætlar frú Klars.
feld, sem er franskur ríkis
borgari af gyðingaættum, að
fræða stúdenta lítið eitt um
fortíð fyrirlesarans. Ýmsir
eru uggandi um að upplýs.
ingar frúarinnar kunni að
valda óeirðum undir tölu
ráðherrans.