Alþýðublaðið - 13.11.1968, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 13.11.1968, Blaðsíða 9
13. nóuember 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÖ 9 minnir að við lentum síðast í húsi í miðbænum, nánar get ég ekki skilgreint það hús. í- búðin hafði þann undrunar- verða eiginleika Alheimsins að gera ýmist að þenjast út eða skreppa saman, skreppi hún saman meira en orðið er, er viðbúið að hún fari í þann harða kökk sem Alheimur var í áður en hann tók að þenjast út og mundi þá slá á hana aft ur geislastaf þenslulögmálsins. Þar fyrir álít ég hús þetta vera eitt hið allramerkileg- asta hús. Nú á ég heima í allgóðri í- búð. Öll veður koma þar í g'egnum gluggarúðurnar, ým ist með fögru skini eða döpru. Þess vegna er sjónvarpinu of aukið hérna, að síbreytileiki veðurfarsins blasir svona vel við. Það var mikið unt atvinnu leysi á þessum tíma og tímun um, sem { hönd fóru, og hús- næðisleysi og eymd, en við fengum samt einhverja rottu- holu, ahsstaðar voru rottur. Boðskapur til Alþjóðar. — Hvenær fór maðurinn þinn að vinna á pósthúsinu? — í maí 1928. — Viltu flytja Alþjóð boðskap frá mér? — Já, ekkert er sjálfsagðara. — Ef þú heldur, Alþjóð mín, að það sé aumkunarvert hlutskipti að verða blindur, af gamall, atvinnulaus (ævilangt hlutskipti mitt), útrekinn úr átta stöðum eða fleiri, að haf ast við innan um Rottur o. fl. o. f 1., þá skjátlast þér. .Því þegar svona er komið fyrir manni, þá er við búið, að hann fari að verða allur logagylltur að innanverðu, og það svo, að glýju geti dregið á sálaraugun, sem þó eiga að geta þolað að horfast í augu við Guðsdýrð. Æviferill minn kemur mér lítið sem ekkert við. Ég ætlaði mér aldrei mikið. — Þú hefur fengizt við að yrkja er það ekki? Hvenær byrjaðir þú á því? Nú leit Fríða útundan sér og hló stutt. Síðan.sagði hún: — Mér er sagt, að ég hafi ort fyrstu vísuna tveggja ára. Hún er svona: Farðu nú að fylgjast með fjöldanum út í kvíar. Hún varð víst aldrei lengri. — Hvernig Ijóð hefur þú mest ort? — Ég ætlaði mér aldrei mik ið. Mér fannst mér hæfa bezt sálmar og rímur. Ég ætlaði að yrkja rímur út af Hinum ótta lega leyndardómi, eða Brúð- kaupskvöldinu, sem enginn skildi, því þá bók hélt ég starda lægst. En ég kom engu saman enda datt víst engum í hug, að ég kæmi neinu sam an. Ég get lofað þér að heyra eina rímuna. Hún er um konu nokkra, mjkið kvennaval elns og sést á rímunni. Ein var kvinnan öllum vænni er sér spinna réð gull úr sinni sínu, kænni sæmdarinning með. Þessi hin góða gullhlaðstróða geymdi Ijóðin með gildum sjóði í safalskjóðu, — sú hafði fróðast geð. Fyrr en hún kemur þá er fremur þröngt um líf og sál, er hún er komin allar vonir upp sig tendra í bál. Af henni ljómar. Ijúfur rómur lætur í eyrum vel, saknaðarómur enginn hljóm- ar, — allt má fara vel. Af sálmum mínum (sem ein hverntíma verða gefnir út og Þykja þá góðir) læt ég hér fokka tvö vers; Um afdrif Satans: Satan er fallinn frá. Herran réð honum farga heimjnum til að bjarga, Afmáðúr óvin sá. Um afdrif Óguðlegra að loknum Efsta dómi: Nægist þeim stríð til nauða, Nástrandarhyskj því kveikir hann öllu í. Kvikir kanna þeir dauða. (Þú ættir að halda þér við sálmakveðskap, sagði maður við mig. — Það er ekki hvítt að velkja). — Hefurðu aldrei gefið út ljóð? — Nei, ég hef aldrei reynt það, ég hef aldrei haldið að ég ætti, að gera Það. Fra-nhald á 14. síðu. í 3svar sinnum 6 sögur, og fyrsta sagan heitir „Leitin að Harry.” Á sunnudagskvöldum verður í stað Maupassants sagnanna „The Idiot”, N;ða „Afglapinn”, eftir Dostojevsky. — Hvað segir þú mér um vini okkar, Templar og Drake? Er von á’ þeim aftur í bráð? — Já, þeir koma aftur. Allir vinir fara einhverntímann í ferða lag, en þegar þeir koma aftur, verða miklir fagnaðarfundir. — Hafið þið eitthvað af ís- lenzku efni í undirbúningi? — Já, það er mikið rætt og bollalagt um íslenzkt efni. Við erum nú að safna í sarpinn fyrir jólin, sumt er tilbúið á mynd- segulböndum, annað er verið að vinna og enn annað er i undir- búningi. Rætt við Jón Þórarinsson um nýja framhaldsþætti í sjónvarpinu Eruð þið með leiknar myndir byrjaður í þessu starfi, hvernig í bígerð? líkar þér það? — Nei, við ætlum ekki að — Vel„. þetta er skemmtilegt fara út í það að svo stöddu. En starf, en ég er varla kominn við munum auka íslenzká efnið nógu vel inn í það, þaðí er ekki hægt og hægt. nema' mánuður síðan ég byrjaði. — Að lokum, Jón, þú ert ný- Þorri. gur og Harðjaxl aftur i£ því, að nýrra framhalds nvarpinu á næstunni. Við tnann lista- og skemmti- og báðum hann að segja guðu þáttum. Dömur og herrar Hef opnað snyrtistofu að Grenimel 48. Býð upp á fótaaðgerðir, andlitsböð og snyrt- ingu, handsnyrtingu og rafmagns nudd. — Komið og reynið viðskiptin. — Snyrtistofa BÁRU ANGANTÝSDÓTTUR, sími 13156. Matráðskona Staða mátráðskonu við Elli- og hjúkrunar- heimilið Sólvang er laus til umsóknar. Stað- an veitist frá 1. marz. — Nánari upplýsingar um starfilð veitir forstjóri-Sólvangs. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 1. des. n.k. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Nemendahefti R.K.Í. I fyrir fræðsluþætti Sjónvarpsi'ns í skyndihjálp fæst í bókaverzlunum og á skrifstofu Rauða (kross íslands. Öldugötu 4 — Síml 14658. LJOS& sORKA SPARIÐ SPARID Verzlið áður en verðið hækkar - Fjölbreyttasta lampaval landsins LJÓS & ORKA SuðurlandsbrauJ 12 Sími 84488. t

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.