Alþýðublaðið - 13.11.1968, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13. nóvember 1968
Örn og Örlygur gefa út fjórar bækur:
Landið okkar II.
og (slenzkir af-
reksmenn
Reykjavík — SJ
Bókaútffáfan Örn og Örlyg
ur sendir frá sér fjórar bækur
á jólamarkaðinn: Landið þitt.
annað bindi, eftir Steindór
, Steindórsson, skólameistara,
íslenzkir afreksmenn eftir
Gunnar M, Magnúss og- tvær
þýddar barnabækur. — Dagfinn.
ur dýralæknir í langferðum
og Pípuhattur galdrakarlsins
eftir Tove Jansen.
Á fundi með fréttamönnum
gerði Örlygur Hálf dánarson
■gi'ein fyrir bókunum og kynnti
höfundana Steindór Steindórs
son og Gunnar M. Magnúss.
Steindór ræddi um bókina
Landið þitt og sagði, að hann
hefði hafizt handa um samn
ingu hennar fyrir tveimur ár
í um, en bókin fjallar um sögu
ir og, sérkenni nær 700 svæða og
staða í óbyggðum íslands og
ér prýdd 26 myndum. Steindór
, sa'gði, að munurinn á bók hans
, • og Þorsteins heitins Jósepsson
. • ar væri einkum fólginn í því,
Tónleikar í
Mosfellssveit
Fyrstu tónleikar Tónlistarfé
lags Mosfellssvt'itar á þessu
starfsári verða í Hlégarði mið
vikudaginn 13. nóvember kl.
21.00.
Flytjendur verða Sinfóníu-
hljómsveit íslands undir stjórn
Sverre Bruland. Á efnis-
skránni verða verk eftir Joh.
Halvorsen, Jos Haydn, Rossini.
J. Strauss og G. Bizet.
Tónlistarfélagið var stofnað
fyrir tveimur árum og er hugs
að sem máttarstoð að rekstri
Tónlistarskóla Mosfellssveitar.
Annast stjórn félagslns rekst
ur skólans ásamt skólastjóran
Frh. á bls. 14.
að hjá sér væri minna um sögu
legan fróðleik, meira um nátt-
úrúfræðilegan, enda gæfi
efnið meira tilefni til þess
Steindór mun í framtíðinni rit
stýra endurskoðun á báðum
bindum, en það er von útgef
anda að Landið þitt komi út í
endurskoðaðri útgáfu 1974.
Þá benti Steindór á að nauð
synlegt væri að skrá sögu land
grunnsins, telja upp helztu
mið á sama hátt og taldir væru
upp staðir á landi.
Einar Guðjohnsen, og Sigur
jón Rist, sem báðir eru gamlir
nemendur Steindórs lásu yfir
handrit af bókinnj og sagði
Einar að hann teldi bókina
mjög góða og sama álit hefði.
Sigurjón Rist á henni.
Aftast í bókinni er skrá yfir
öll mannanöfn, staða og at
burðaskrá, skrá um bækur og
rit sem vísað er í eða fengnar
heimildir úr, þjóð og goðsagna
nöfn og atburðaskrá. — Þessi
skrá gildir fyrir báðar bækum
ar.
Ef gripið er niður í bókinni
af handahófi, þá kemur nafnið
Hlíðarhagi, og segir svo:
HLÍÐARHAGI (S—ÞING) eyði
býli á Mývatnsöræfum, austan
undir Hágöngum. Grösugt er
í kring og ilman úr grasi, og
glrrvmrrvf or .í’.iKfcirGLnum on
þar er nokkur veiði. Langt var
þáðan til næstu bæja, Reykja
hlíðar við Mývatn og Svína
dals í Kelduhverfi, sem nú er
í eyði. Föst byggð hófst á H.
ium 1860 en áður var þar sel
staða, Vatnasel. Byggðin hélzt
óslitin að mestu til 1878. Síðan
hefur verið þar leitarmanna
skýli.”
ÍSLENZKIR AFREKSMENN
er nær 200 síðna bók um marg
háttuð afrek íslendinga allt
frá söguöld íram til ársins 1911,
og segir Gunnar M. Magnúss
m.a. í formála: „Margs er að
minnast um afrek í hlaupum
stökkum, sundii, glímum og
fleiri íþróttum. Við aðrar að
stæður en x leik hafa einnig
verið unnin hliðstæð afrek,
sem vei-st er að minnast. Má þar
til nefna ýmisskonar aflraunir
og átök, þrekraunir á fjöllum
og í sjávarhömrum, afrek við
atvinnu og almenn störf á sjó
og landi. Eftir nokkra íhugun
var ákveðið að í riti' þessu
skyldi greint frá ýmsum sér
stæðum afrekum, þótt ekki
teldust til íþrótta eða væru
unnin á leikvangi.
Hringur Jóhannesson hefur
myndskreytt bókina. í síðara
bindi, sem fjallar um afreks
menn eftir 1911, mun fylgja
nafnaskrá.
DAGFINNUR Dýralæknir í
langferöum. Framhald ævin-
týrisina um Ihinn makalausa
dýralækni. Bókin er 205 blaðsíð-
Frh á cíffii
Ungkommar með spjöldin við Alþingishúsið (Ljósm. G.H.).
Spjöld og fánar
við Alþingishús
ÆSKULYÐSFYLKINGIN efndi
í gær til mótmælastöðu við Al.
þingishúsið um svipað leyti og
þingfundum lauk þar. Stóðu
ungkommar þar undir spjöldum,
sem á voru rituð ókvæðisorð, og
rauðum fánum. Nokkur mann-4
söfnuður, aðallega kiakkar og
unglingar, safnaðist saman við
Alþingishúsið, þegar ungkomm-
ar höfðu komið sér þar fyrir.
Kom ekki til neinna átaka, en
nokkur ærslagangur mun hafa
verið í unglingunum, íþví að
nokkrum eggjum og öðru góð-
gæti var kastað í veggi Alþingis^
hússins, og voru þrjár rúður
brotnar. Auk þess hrópaði skar-
inn ókvæðisorð að þingmönn-
um og ráðherrum, er þeir gengu
út úr húsinu.
SERVÍETTU-I
PRENTUN
SÍMI'32-10L
Talið frá vinstrí: Orlygur Háldanarson, Steindór Steindórsson, Gun nar M. Magnúss. og Einar Guðjohnsen.
Höfum enn um'tíma úrval af Bing og Grcndal postulínsv'örum, einnigmik-
ið úrval af segulbandstækjum og f n ðaútvarpstækjum.
— ALLT Á GAM LA VERÐINU. —
VÉLA- OG RAFTÆKJAVERZLUNIN H.F
BorgartúniJ 33 — Lækjargötu 2.
Sími 24440.
No'kkrar Miele þvottavélar og píanó enn ti'I á
gamla verðinu.
— Hagkvæmir greiðsluskilmálar. —
Véla- og raftækjöverzlunin h.f.
Borgartúni 33 —■ Lækjargötu 2. Sími 24440.
Sími 24440.