Dagur - 10.01.1946, Blaðsíða 6

Dagur - 10.01.1946, Blaðsíða 6
6 D AGU R Fimmtudaginn 10. janúar 1946 DAGUB Hitstjóri: Haukur Snorrason. Algreiðslu og innheimtu comast: Marinó H. Pétursson. Skriístofa í Hafnarstræti 87. — Síini 166. Bia6i6 kemur út á hverjum íimmtudegi. Árganqrurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Bjömssonar. MÖNNLEG AFKEK OG ÖNNUR. C*TJ ÖRNMÁLAFLOKKARNIR hafa nú lagt fram kjörlista sína fyrir bæjar- og sveitar- stjórnarkosningar þær, sem fram eiga að fara undir lok þessa mánaðar, kosningaundirbúning- urinn er þegar hafinn af fullum krafti og loforða- og lýðskrumskvörn þeirra flokka, sem helzt treysta á slíkar aðferðir sér til framdráttar, þegar líður að kosningum hverju sinni, er þegar tekin að snúast af tvíefldum ákafa. Gamlar og gatslitn- ar stefnuskrár, marggefin og margsvikin kosn- ingaloforð, eru grafin upp úr glatkistunni, dust- að af þeim mesta rykið og dubbað upp á þáu með nýjum tylliboðum og skrumskreytingum, eftir því sem ímyndunarafl og kímnigáfa leiðtoganna framast hrekkur til. Blöð Alþýðufiokksins og kommúnista hér á Akureyri eru þegar búin að birta hina venjulegu fjögra-ára-áætlun flokka sinna í furðulega svipuðu formi eins og hún birt- ist í ,,Alþýðumanninum“ og „Verkamanninum" fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1942, 1938, 1934, o. s. frv., svo langt sem menn muna aftur í tím- ann, eftir að þessi blöð komu hér fyrst við sögu. Enn er lofað stórútgerð, niðursuðuverksmiðju, síldarbræðslu, elliheimili, barnaheimili, nýtízku sjúkrahúsi, bókhlöðu, fjörugu athafnalífi o. s. frv. o. s. frv., plús nýjum stefnuskráratriðum, sem báðir flokkarrtir berajst nú um og vilja eigna sér: almenningssalerni á hentugum stað í bænum og yfirbyggðri kennslu sundlaug. Þegar hér er kom- ið sögu hefir lmgsjónagáfa foringjanna sprengt sín ítrustu takmörk — og er þó hvorug þessi hug- mynd ný eða sérlega frumleg, enda frá öðrum ættuð — og þeir liyggjast hvílast mjúklega á lár- berjum þessara munnlegu afreka frarn yfir kosn- ingarnar — unz tími gefst aftur til að gleyma, af- saka og svíkja. jrJÓSENDUR BÆJARINS hafa veitt því eftir- tekt, að Framsóknarflokkurinn hefir ekki — nú fremur en endtanær — gefið nein loforð um gull og græna skóga hverjum þeim, sem fylgdi honum við kjörborðið, né heldur birt nein kosn- ingaávörp, upphrópanir eða áskoranir til kjós- enda, eins og allir hiinr flokkarnir hafa gert. Skýringin er einföld: Framsóknarflokkurinn þarf slíks ekki með. Störf flokksins og umbætur samvinnumanna í bænum og landinu á undan- förnum árum tala svo ljósu máli um stefnu þeirra og getu til framkvæmda, að þau rök munu þyngri á metunum en feitletraðgeip hinna flokk- anna um ágæti þeirra og umbótavilja. Flokkur- inn hefir sýnt það frá upphafi, að ádráttur hans er betri en loforð annarra flokka, enda treystir hann fyrst og fremst á kjörfylgi vitiborinna manna með óbrjálaða dómgreind, sem vilja leggja það á sig að hugsa sjálfir, en láta ekki „foringjana" eina hugsa fyrir sig. gLÍKIR KJÓSENDUR munu enn sem fyrr treysta bezt fulltrúum þess flokks, sem fór með stjórn í landinu á þeim árum, er breyttu ís- lenzku þjóðinni úr kyrrstæðum frumbýling í menntaða og framsækna menningarþjóð, — ár- um, sem skilið hafa eftir meira af varanlegum verkum frá einum eða tveimur áratugum en þjóðin hafði áður áorkað á mörgum öldum. Framsóknarflokkurinn hélt hér uppi hviklausu umbótastarfi og stórstígum framförum í aðsteðj- andi og alþjóðlegri fjárhagskreppu og árferði, sem áður hefði valdið fullu hallæri og jafnvel hungursneyð í landinu. Flokkurinn hefir þannig sýnt það ljóslega í verki, að forsjál þróun og sam- vinna er betri en byltingar og bræðravíg. Ennþá Raímagnsþörfin. Kristján S. Sigurðsson trésmiöur, skrifar blaðinu eftirfarandi bréf: T>AÐ ERU dimm og drungaleg kvöldin nú um áramótin, þrátt fyrir veðurblíðu og heiðskíran him- inn — og öll rafljósin. Nú aetti þó að öllu sjálfráðu að vera bjart é götum úti, og inni í húsum, þar sem nýlega hefir rafstöðin við Laxá verið stækk- uð að miklum mun. En enn eru ljósin gular glætur, sem lýsa ekki meir en það, að tæplega er lesljóst við þau. Það er sagt að innanbæjar ljósataug- ar séu of grannar til að flytja nóg raf- magn inn í hvert hús. Það sýnir fyrir- hyggju þeirra, sem staðið hafa fyrir framkvæmdum. Þó mun álagið á raf- stöðinni vera orðið' það mikið, að mjög lítið er afgangs af orku vélanna, þrétt fyrir nýafstaðna stækkun. Þó er í undirbúningi að leiða rafmagn frá þessari stöð til Húsavxkur, Sval- barðseyrar, Dagverðareyrar, Hjalteyr- ar, Dalvíkur. Og það á að taka það af þessari sömu orku, sem nú er of lítil fyrir Akureyrarbæ. Það er því fyrir- sjáanlegt, að rafstöðin við Laxárfossa er allt of lítil. En þó að strax yrði haf- izt handa um stækkun á henni, yrði það ekki komið að notum fyrr en eft- ir 2 ár. Er því full ástæða til að ætla, að við verðum að sitja í hálfmyrkri um nokkurt skeið enn. Og vinna við vélar, sem ekki geta afkastað fullu verki. þAÐ ER því ekki ástæðulaust þó að þetta ástand veki hjá manni ýmsar hugleiðingar. Gert er ráð fyrir að enn megi stækka rafstöðina við Laxárfossa. En þá þarf að byggja annað hús, eða stækka það sem þar er nú. Og það þarf að byggja aðra vatnspípu. Eða með öðrum orðum: Það þarf að byggja alveg nýja aflstöð. Þó mun að líkindum stíflunin, sem nú er, duga, þó að annað vatnsrör bætist við, og er það nokkur spamaður. Þó að með þessu móti mætti bæta við nokkrum hundmðum hestafla, yrði það ekki nóg til framtíðar, því að þörfin fyrir rafmagn vex árlega, eftir því sem mönnum vex þekking á að nota það. Enda em hér ráðagerðir um stóraukinn iðnrekstur, sem útheimtir mikla raforku. Spursmélið er þvi, hvort ekki væri rétt að taka raforku- málið allt öðrum tökum nú þegar, en gert hefir verið að þessu. Er því sjálf- sagt að athuga fleiri leiðir. þVÍ HEFIR verið haldið fram, að hægt mundi vera að fá tugi þús- unda hestafla úr Mývatni, með því að stifla ósa Laxár við Mývatn ,og með þvi að hækka yfirborð vatnsins um 1 —2 metra. Veita því síðan í Sandvatn, sem er vestan við Belgjarfjall. Taka það svo þar í pipum vestur yfir heiði, og niður í Laxárdal, og byggja þar rafstöð. Sjálfsagt er þetta ekki ókleift, en erfitt mundi það verða, og mun lýðsknnnsflokkunum, — sem þegar virðast vel á vegi komnir að breyta stórfengleg- asta fjárgróðatímabili, sem um getur í sögu þjóðarinnar, í fjár- hagsöngþveiti og hallæri á und- árlega skömmum tíma — veitast erfitt að benda á eitt einásta þjóðnýtt og þýðingarmikið verk eða félagslega framkvæmd í landinu á seinni árum, sem Framsóknarmenn hafi ekki ým- ist átt éinir frumkvæðið að, eða stutt. einhuga með ráðum og dáðum. Á þessa sögulegu og óhrekjanlegu staðreynd munu Framsóknarmenn enn sem fyrr treysta fremur en lýðskrum og tylliboð. þegar að kjörborðinu kemur. mundi draga á eftir sér óútreiknanleg- an aukakostnað. Enda þó að eg geri varla ráð fyrir að þetta sé annað en loftkastali, vil eg fara nokkrum orðum um afleiðing- ar af þessu, ef til framkvæmda yrði hafizt. ■p»F MÝVATN yrði hækkað um tvo Ajl metra, væri það sama sem að eyðileggja eina blómlegustu og beztu sveit landsins. Margir bæirnir mundu leggjast í auðn. Má þar nefni: Vind- belg^ Ytri- og Syðri-Neslönd, Gríms- staðf ,Voga og Kélfaströnd. Mikið af túnum þessara bæja liggja svo lágt, að þau mundu leggjast undir vatn. Að vísu standa íbúðar- og útihús hærra, svo að ekki mundi þau saka. En þegar mikið af túnunum er farið, og ekki hægt að komast í fjárhús nema á bát, fer að vandast málið. Þá eru það hólmarnir og eyjarnar í vatninu, með allt andavarpið. Fjöldi af þeim mundi hverfa undir vatn. I hólmum og eyjum er líka mikill og góður heyskapur. En það er aðallega á láglendi, sem mundi hverfa. Nes- landatangi mundi að mestu hverfa, upp úr stæðu að'eins nokkrir hólar. Og Slútnes. — Hugsið ykkur þann fagra blómareit kæfðan undir vatni. Þá eru það Skútustaðaengjar, sem er aðalengi flestra Mývetninga. Meg- inið af því mundi leggjast undir vatn, þar á' meðal mikið af engi vestan megin Krákár. Mundi þá sennilega nokkuð af vatninu lenda í farvegi Krákár, og lenda aftur í Laxé, langt neðan við stíflu. Þá mundi líka nokk- uð af veginum sunnan við Mývatn lenda undir vatni. T. d. fitin hjá Álfta- gerði. Nokkuð af veginum á milli Skútustaða og Garðs, og Garðsfitin. En þetta er vegurinn, sem þarf að fara til að komast é væntanlegan f jall- veg, austur yfir Jökulsá. Ætli að það séu ekki litlar líkur til að ríkissjóður verði þess nokkurn tíma megnugur að kaupa upp alla Mývatnssveit, og sjá fólkinu fyrir jafngóðu jarðnæði. Og trúað gæti eg því, að bændur mundu ekki verða fúsir til að flytja burtu af jörðum sinum. gFTIR ÞESSAR hugleiðingar ætla eg nú að benda á aðra leið til að virkja Laxá, og fá úr henni jafn mik- inn kraft, eins og fengist við að leiða vatnið yfir Laxárheiði. Leið, sem elcki mundi eyðileggja nokkra bújörð, varp eða engjablett. Það er að stífla ána um Kleifar- hólma, utan og ofan við Arnarvatn. Taka hana þar í pípur norðan við ána, sunnan í Hofstaðaheiðinni, og niður Laxárdal .Rafstöðin gæti verið utan og neðan við Hofstaði, eða neðar í dalnum, ef þurfa þykir. Á þessari leið fengist allt að því sami halli sem fengist við að leggja pípur frá Sand- vatni yfir heiðina, og mikið meira vatn. Ef vatnið væri hækkað, er hætt við að nokkuð af því tapaðist niður í Kráká, og Kráká mundi alveg tapast, því að hún kemur ekki í Laxá fyrr en ofan við Mýnesés, nokkuð neðan við Haganes. Þessi leið mun vera nokk- uð styttri en sú fyrmefnda ,og mikið auðveldari. Með þessu móti mundi öll Mý- vatnssveit og allur Laxárdaulr geta fengið nægilegt rafmagn, og máske fleiri sveitir, þó að Akureyri hefði nóg eftir ,og þeir staðir sem nú eiga að fá kraft frá Laxárfossum. Með því líka að sú stöð yrði að sjálfsögðu starf- rækt áfram. Jfl^LLIR VITA að Laxá er eitthvert bezta vatnsfall á landinu til virkjunar. Og líklega hvergi jafngóð og þar sem eg hefi nú bent á. Þar er svo stuttur aðdragandi fré upptökum, að tæplega mundi nokkurn tíma safn- ast svo krap í hana i stórhríðum, að Tað mundi setjast í ristar flóðgátt- (Framh. á 7. síðu). Samvinnan léttir störfin Fyrir rneira en ári síðan gerðu samvinnumenn hér myndarlegt átak til þess að leysa þau vand- ræði, sem verið höfðu um geymslu matvæla hér í bænum. Aðferðin, sem viðhöið var, er einmitt að ryðja sér til rúms víðs vegar um lönd um þessar mundir, t. d. í Ameríku. Gerð voru frystihólf í frystihúsi kaupfélagsins, sem voru leigð einstakl- ingum. Idafa þeir lykil að liólfum sínum og geta látið matvæli í þau og sótt þau þegar þeim hent- ar. Svo mikil eftirspurn varð eftir hólfunum, að nú hafa fyrir skömmu verið gerðar ráðstafanir til þess að auka þessa starfsemi verulega. Þetta lyrir- komulag er mikil bót fyrir lieimilin og léttir fyr- ir húsmóðurina, sem getur hagað fnatarkaupum sínum með hliðsjón af því, að geta geymt [xau óskemmd mánuðum saman, éf nauðsyn krefur. Vitaskuld óska allar húsmæður sér þess, að eign- ast ísskápa í eldhúsin sín, en nokkuð mun langt í land að þeir verði almennings eign, þótt að því reki vonandi. ísskáparnir í eldhúsun\ útrýma þó engan veginn þörfinni lyrir frystihólfin. Þeifra er engu að síður þörf til þess að geýma ýms mat- væli, sem ekki eru til daglegs brúks og ekki rúm- ast í ísskápnum. Það verður ekki fyrr en hin svo- kallaða heima-lrysting verður kómin á, að hægt verður að gera ráð fyrir að frystihólfin verði óþörf, ef þau þá nokkurn tíma verða það, því að ýmsir halda því fram, að sameiginlegúr rekstur frystihúss, með mörgum geymsluhólfum, verði alltal' svo miklu ódýrari, en heima-frystitæki í kjallaranum, svo að ekki komi til tnála að hólrin hverfi. ★ Þess má sjá merki í amerískum blöðum, að í ýmsum bæjum er verið að undirbúa byggingu stórra hólfa-frystihúsa, og er íbúunum gefinn kostur ;í að leigja hólfin með svipuðu sniði og hér tíðkast nú. í annan stað eru Ameríkumenn að koma sér upp frysti-matvælabúðum. Þessar búðir verzla einkum nteð hraðfrysta vöru, en sú verkunaraðferð fer nú mjög í vöxt. Al' nryndum að dæma eru þessar búðir eipkar snotrar og margt girnilegt þar á boðstólum. Allur varning- úrinn er geymdur í smáhólfum, svipuðum póst- hólfum. Viðskiptamaðurinn gengur um og velur það sem hann girnist og fær vöruna alhenta um leið og hann gengur út úr búðinni. Kannske eig- um við eftir -að sjá .svona verzlanir hér, ef hrað- frystingin okkar nær þeirri fullkomnun, sem ýmsa dreymir um, Og óneitanlegamundiþaðgera ýmsa matvælaverzlun hreinlegri og þokkalegri en nú er. ★ Það er sern sé ekki ofsögum sagt af því, að sam- vinnan létti störfin. í samvinnu er hægt að hrinda ýmsum menningarmálum í áfram, sem ekki væri hægt, ef menn stæðu sundraðir. Um þetta eru ótal dæmi, og það, sem eg nefndi, að- eins lítið sýnishorn. ★ Við blasir eitt nauðsynjamál þessa bæjar og héraðs, sem hægt er að hrinda í framkvæmd með samvinnu. Þar er verkéfni fyrir kaupfélagið og konur bæjar og héraðs. Það er bygging almenn- ingsþvottahús eða þvottahúsa. Þessi samvinnu- þvotlahús eru nú mjög útbreidd á Norðurlönd- unt og víðar. Ýmsar konur eru svo lánssamar að eiga þvottavélar, en þær eru þó ekki nema til tölulega fáar. Ennþá færri eiga strauvélar, raf- knúnar vindur og þurrkur. Lang flestar konur hér á landi verða enn að strita við þvottabalana upp á gamla mátann. Þessi þvottur er eitt erfið- asta verk heimilisins, eti jafnframt eitt hið nauð- synlegasta. Sérstaklega verður þetta erfiðleikum bundið á fjölmennum heimilum, sem ekki hafa húshjálp, en slíkt gerizt nú æ tíðara. Einfaldasta leiðin, og jafnframt ódýrasta, til þess að Ieysa þetta vandamál húsmæðrannia, er bygging al- mennings þvottahúsá, sem hafa á að skipa þvotta- vélum, strauvélum, rafþurrkum (til [ress að forða þvottinum undan óþurkunum), og fleiri, hand- hægum tækjum, sem ekki þarf kutmáttu til þess að handleika. Húsmóðirin fær síðan að koma með þvott sinn í þvottahúsið, þvo hann sjálf í vélunum og ganga frá honum, og greiðir fyrir sanngjarna þóknun. Á þennan hátt leysast þvottavandræðin auðveldlega. Einstök heimili ' - (Framh. á bls. 7).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.