Dagur - 10.01.1946, Síða 9
Fimmtudaginn 10. janúar 1946
9
DAGUR
Hvert stefnir í atvinnumálum
Akureyringa?
Bæjarstjórnarkosningar eru fram-
undan. Einstaklingar bæjarfélagsins,
sem kosningarétt hafa, líta þá yfir
liðið kjörtímabil, sl. 4 ár, vega og
meta það sem gert hefir verið og gera
sér jafnframt grein fyrir því, sem
framundan er. Styrjöldininni er nú
lokið, en eins og allir vita, hefir styrj-
öldin haft mikil áhrif á þjóðlíf vort
eins og raunar þjóðlíf allra landa ver-
aldarinnar, en þó á nokkuð breytileg-
an hátt. Atvinnulíf hefir verið blóm-
legt hjá oss öll styrjaldarárin, og má
segja, að hinn gamli vágestur, at-
vinnuleysið, hafi svo til horfið þessi
árin. — Allur almenningur, eðá þjóð-
in öll, hefir haft meiri peningaráð en
dæmi eru til í sögu þjóðarinnar og
má segja, að á yfirborðinu sé það að
minnsta kosti svo enn. — Styrjöld-
inni er nú lokið, og má líklegt telja
að margur einstaklingur velti þeirri
spumingu fyrir sér, hvað bíður okkar
í atvinnulegu tilliti á næstu árum. —
Það mun vera hygginna manna hátt-
ur, þegar ráða á í ókomna tíma, að
hafa fulla hliðsjón af því, sem á und-
an er gengið. Verður þá, hvað Akur-
eyrarbæ viðkemur, eigi komizt hjá að
glöggva sig nokkm nánar á þeim
meginstoðum, sem hafa staðið undir
atvinnulífi bæjarbúa. Styrjaldarárin
veitti setuliðið, sem dvaldi hér, mikla
atvinnu við skálabyggingar og fleiri
störf, en sú stoð undir atvinnulífið er
nú horfið fyrir fullt og allt, og mun
engan bæjarbúa brauðfæða á kom-
andi ámm. — Utgerð var hér nokkur
fyrir stríð, en mörg skipanna hafa
verið seld í gróðaskyni og hefir út-
gerðin því gengið saman, meir en
æskilegt hefði verið, öllu bæjarfélag-
inu til óhagræðis. Iðnaður, sem telja
má eina sterkustu stoðina undir at-
vinnulífi bæjarbúa, hefir hins vegar
verið blómlegur öll undangengin ár
og svo er enn. Verzlun hefir einnig
verið mjög lífleg öll undangengin ár.
og hafa margar nýjar verzlanir risið
hér upp á sl. ámm.
En fljótt á litiö virðist mega telja
útgerð, iðnað og verzlun þær megin-
stoðir, sem standa undir atvinnulífi
bæjarbúa. — Hvernig em þá horfum-
ar um afkomu þessara megin atvinnu-
vega bæjarbúa á komandi árum. Við
skulum fyrst líta á útgerðina, og
glöggva okkur á framtíðarmöguleik-
um hennar. Eins og áður segir, hefir
skipunum fækkað. Það er talað um
að fá hingað einn togara, 1947, og tvo
80—100 tonna báta, mun eiga að
kaupa fyrir einstaklinga og bæjarfe-
lagið sameiginlega. Eftir því sdm
bezt er vitað, er þetta viðbótin, sem
koma á í skörð þeirra skipa, sem horf-
ið hafa úr flotanum á liðnum árum.
Mun því mega segja, að varla sé
skipakosturinn jafn því sem hann að-
ur var, hvað þá að um aukningu sé að
ræða. Virðist því þessi stoð atvinnu-
lífsins öll veikari en hún áður var, en
hún hefði vissulega þurft að styrkjast
og vaxa með auknum íbúaf jölda bæj-
arfélagsins. En það er vert að veita
því athygli hverjir leggja fram skerf-
inn til þess að útgerð bæjarfélagsins
sé haldið í horfinu. Það eru forystu-
menn samvinnufélagsskaparins sem
þar Ieggja drýgsta hönd á plóginn,
eins og í flest öllum öðrum hags-
munamálum þessa bæjarfélags. Oll-
um hugsandi mönnum mun koma
saman um, að á komandi árum verði
gjörbreyting á afurðaverði okkar,
þannig, að þær lækki verulega frá því
sem nú er, þó svo kunni að fara, að
enn um stund verði verðið líkt, vegna
eftirstríðserfiðleika þjóðanna, meðan
verið er að koma atvinnuháttum
þeirra í fyrra horf. Lækkandi afurða-
verð mun skapa minnkandi kaupgetu
einstaklingsins og minnkandi kaup-
geta einstaklingsins mun hafa í för
með sér minnkandi verzlun. Það virð-
ist því eðlilegt að ætla að á komandi
árum dragist verzlunin frekar saman
en aukist.
Iðnaðurinn er óefað stærsta grein
atviimulífsins hér. Það veltur því á
miklu fyrir allt bæjarfélagið, hvemig
tekst til um iðnaðinn á komandi ár-
um. í því sambandi er rétt að gera sér
fulla grein fyrir því, að eftir því sem
framleiðslugeta stórþjóðanna vex og
innflutningur iðnaðarvara frá þeim
eykst til landsins, má telja líklegt að
óbreyttum ástæðum, að það hafi lam-
andi áhrif á þann iðnað, sem hér er
rekinn. — Þessa hefir þó eigi gætt
enn og má vera að þess gæti lítið eitt
eða tvö næstu ár. Eigi að síður má
ekki loka augunum fyrir þessari
hættu og því fyrr, sem byrjað er á að
mæta þessari utanaðkomandi hættu,
því betra. Það mun eigi fjarri sanni
að um helmingur allra bæjarbúa hafi
lífsafkomu sína af þeim iðnaði, sem
hér er rekinn. Ýmsar stoðir renna
undir þær skoðanir margra, að á kom-
andi tímum verði það fyrst og fremst
iðnaðurinn, sem verður hið skapandi
afl, í atvinnulegu tilliti, þessa bæjar-
félags. Með Laxárvirkjuninni hefir
bæjarbúum verið séð fyrir rafmagni
til margs konar þarfa, og er það eigi
hvað sizt hagfellt fyrir iðnaðinn. Þó
þessi virkjun hafi bætt mikið úr
þeirri vöntun, sem var á rafmagni,
mun flestum nú þegar ljóst, að ráðast
verður í frekari aukningu á þessu
sviði hið allra fyrsta. — Framtíðar-
vonir bæjarbúa um blómlegt atvinnu-
líf hér, hljóta því fyrst og fremst að
vera tengdar við iðnaðinn. í því sam-
bandi er vert að geta þess, að sam-
vinnufélagsskapurinn hefir lagt þar
fram drýgsta skerfinn, og allar líkur
benda til, að á komandi tímum verði
það sömu aðilar, sem standi fremstir
í fylkingu um eflingu iðnaðarins frá
því sem nú er.
Atvinnumálin snerta hvem ein-
stakling þessa bæjarfélags, það er
því í alla staði eðlilegt, að um þau sé
ritað og rætt Afkoma heimilanna
byggist fyrst og fremst á því að næg
atyinna sé fyrir hendi. Atvinnuleysi
er hið mesta böl sem ber að fyrir-
byggja. Þeir, sem berjast fyrir auknu
og bættu atvinnulífi bæjarbúa, berj-
ast fyrir þeirri hugsjón, að öllum
megi líða vel, og að hverjum ein-
staklingi megi takast að skapa sér og
sínum bjart og fagurt líf.
Samvinnumaður.
Allctr útborganir
fyrir vinnu og annað vegna Bygg-
ingarvöruverzl. Akureyrar ii.f.
fara fram á skrifstofu minni
Spítalaveg 8 alla virka daga kl.
5—7 e.h.
Helgi Pálsson
Byggiiigarefni
Nýkomið timbur, flestar tegundir, unnið og óunnið.
Masonite, olíusoðið, 8 og 9 íeta
Asbestplötur, innanhúss
Rúðugler
Vætanlegt á næstunni:
Krossviður, Þilplötur, Linoleum
Saumur, Veggfóður - o. m. fl.
pr. pr. Byggingarvöruverzlun Akureyrar h.f.
Helgi Pálsson
SS$S$SS~iSS$SSSSSSSS«*«$SS$$SSS$$SSSSSSSSSSSSSSSS$S$$SS$SS$$SS$$:fe
«
Pliotostat
Tökum að okkur að ljósprenta
fagteikningar, vinnuteikningar,
jakturur o. s. frv.
Upplýsingar á Skólastíg 1, neðri hæð,
eftir kl. 7 á kvöldin.
.111111111111111111IIIII lllll IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIII lllllllllll 111111111111111111111111III111111111111111111111111111II limlMIIIIMIIIIIlM*
i Fáum rnefí einhverri af ncestu ferðum
I Enskar bamakerrur og þríhjól
Kerrurnar kosta frá kr. 100-180 og þríhjólin kr. 80-100
í Þar sem mjög takmarkað fæst af þessu,
i verður tekið á móti pöntunum.
Verzl. „VÍSIR"
Skipagötu 12. Sími 431.
• Illllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll.MIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIHIIIIfllllMIIIIII.II.. ll
MOTORBATUR TIL SOLU
Mb. Jökull, GK. 334, 8 tonn, er til sölu af sérstökum
ástæðum. Veiðarfæri geta fylgt. Bátur og vél í góðu
ásigkomulagi. Báturinn er í Dráttarbraut Keflavíkur.
Upplýsingar gefur
Hróbjartur Lútersson,
Kristneshæli.
Höfum fyrirtiggjandi:
Handlaugar,
m. öllu tilheyrandi
Salerni,
lágskolandi
Salernakassa,
háskolandi
Kaupfélag Eyfirðinga
Miðstöðvardeild
«HW><HKHKHKHKH«HKH«H3<HKKKHKHKH«H«HafKHXHKmíHKmm>r5ÍHKHSH0
Höfum fengið
rúÖui
ler
3 mrn., kr. 360.oo kistan (300 ferfét)
4 mm., kr. 500.oo kistan
Einnig 5 mm. gler
Hamrað gler fyrirliggjandi
Kaupjélag Eyfirðinga
Byggingarvörudeild.
IVVmVVVVVVVwWVVVVVmVVWVMVVVVWVVVVVVVVVVVVVVVVmVVVWVVWI
L
Gefið konunni yðar eða
unnustu
fallegan pels
Ekkert mun gleðja þær eins.
Nýkomnar margar gerðir á
margskonar verði í
VERZLUNINA LONDON
EYÞÓR H. TÓMASSON.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
...........................IIIIIIIMI......IIMIIIMM........MIIIIIMM
IMMMMMMMMMMMMMMMMMMIIi^
JÖRÐ TIL SÖLU
Jörðin Hraunshöfði i Öxnadal er til sölu og laus til ábúð- |
ar í næstk. fardögum. Túnið gefur af sér ca. 200 hesta töðu. I
Útiheyskapur ca. 100 hestar. Tún og engi girt. — Nánari I
upplýsingar gefur eigandi og ábúandi jarðarinnar,
STEINDÓR PÉTURSSON. \
• llllllllllllllllllllllltlllllllHMIIIIMIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIMIIIMHMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMI
III111111111,