Dagur - 10.01.1946, Blaðsíða 12
12
DAGUR
Fimijitudaginn 10. janúar 1946
i' 1 ...
Úr bæ og byggð
I. O. O. F. — 1271118V2 —•
Gjafir tíl nýja sjúkrahússins: Frá
N. N. kr. 40.00; G. G. kr. 10.00; sjúkl-
ingum á stofu II kr. 50.00; N. N. kr.
50.00. Með þökkum móttekið. —
G. Karl Pétursson.
. Áheit á Strandarkirkju: Frá H. G.
kr. 10.00.
Velkomin á samkomur fimmtudaga
og sunnudaga kl. 8.30 e. h. í Verzlun-
armannahúsipu (niðri). — Nils
Ramselius.
Dagur kemur næst út þriðjudaginn
15. janúar. — Auglýsingum sé skilað
á afgreiðsluna í síðasta á hádegi á
ménudag.
Aðallundur Skógræktarfélags Ey-
firðinga verður haldinn sunnudaginn
13. þ. m. kl. 2 e. h. að Hótel KEA.
Hjónaefni: Ungfrú Júlíana Hinriks-
dóttir, Akureyri, og Hjörleifur Haf-
liðason, starfsmaður á Gefjun.
Frá Skákfélagi Akureyrar. Guð-
mundur Arnlaugsson, menntaskóla-
kennari, mun tefla samtímaskák í
Verzlunarmannahúsinu, sunnud. 13.
jan. nkstk., kl. 13.30 e. h. — Þeir, sem
óska að taka þátt í skákkeppninni,
hafi töfl með sér. Ö.llum heimill að-
gangur.
Leiðréttiné- I minningargrein um
Benedikt Jónsson á Breiðabóli í síð-
asta blaði féllu úr í prentun nokkur
orð. Efst í 2. dálki greinarinnar, seg-
ir: Farminum skilaði hann í land og
fleyinu er nú lagt í höfn, út við sjón-
deildarhringinn. Rétt er: .... lagt i
höfn, en stjaman, sem lýsti Benedikt
blikar erm út við sjóndeildarhringinn.
Höf. er beðinn velvirðingar á þessum
mistökum.
Námskeiði því í hjálp í viðlögum,
sem auglýst hafði verið í þessum
mánuði, á vegum Rauðakrossins og
Slysavarnardeildanna, er frestað,
vegna utanfarar Jóns Oddgeirs Jóns-
sonar, erindreka Slysavarnafél. För
hans er farin til þess að kynnast ný-
ungum á þessu sviði. Námskeiðið
verður haldið hér strax eftir heim-
komu hans, sennilega í apríl. Verður
nánar auglýst síðar.
Merkur borgari hefir kvartað um
það við blaðið, að ekki skuli vera
birtur listi um það í bæjarblöðunum,
hverjir eru næturlæknar á hverjum
tíma og í hvaða lyfjabúð er nætur-
varzla. Nefndi hann dæmi um óþæg-
indi af þessum sökum. Rúm fyrir slík-
ar fréttir er heimilt hér í blaðinu. —
Dagur birti um eitt skeið slíkar frétt-
ir, en erfiðlega gekk að fá réttar upp-
lýsingar í hvert sinn, með nægilegum
fyrirvara. Féll þá þessi fréttaþjónusta
niður. Blaðið vill gjarnan taka hana
upp aftur. Væri æskilegt, að Lækna-
félagið sæi um, að blöðin fengju lista
með nöfnum næturlækna um hverja
helgi, og apotekin sendu blöðunum
sömuleiðis upplýsingar um nætur-
vörzlu fyrir hverja viku. Væri þá úr
þessu bætt til hagræðis fyrir bæjar-
búa.
Dahsleik heldur Kvenfél. Iðunn í
þinghúsi Hrafnagilshreps n.k. laugar-
dagskvöld kl. 10 e. h. Veitingar á
staðnum.
Barnastúkan Bernskan heldur fund
í Skjaldborg næstk. sunnudag kl. 1
e. h.
Barnastúkan Samúð heldur fund
næstk. sunnudag kl. 10 árd. í Skjald-
borg. Venjuleg fundarstörf. Inntaka
nýrra félaga. Skemmtiatriði. Börn!
Munið eftir að koma á fundinn!
Zíon. Sunnudaginn 13. jan: Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30 f. h. — Almenn
samkoma kl. 8.3 Oe. h. — Allir vel-
komnir.
Áheit á Akureyrarkirkju: Kr. 25.00
fró N. N.; kr. 10.00 frá Á. S. og kr.
20.00 frá S. Þakkir Á. R.
Karlakór Akureyrar heldur afmæl-
isfagnað 19. þ. m. — Styrktarfélög-
um, sem æskja þess er heimil þátt-
taka í hófinu, en verða þeir þá að
snúa sér til ginhvers af kórfélögunum
næstu daga.
Akureyrinéar! Takið vel stúlkun-
um, sem koma til ykkar á sunnudag-
inn, með happdrættismiða S. I. B. S.,
og kaupið af þeim.
Trúnaðarráð Dagsbrúnar
(Framhald a£ 1. síðu).
á nýja strengi og segir: „Trúnað-
arráðið álítur, að æskilegastar
væru ráðstafanir, er leiddu til
þess, að laun verkamanna, og þar
með ann'ara launþega og alþýðu-
fólks, nýttust betur og kaupmátt-
ur launanna yrði aukinn.“
Þannig lýsir trúnaðarráð
stærsta verkamannafélags lands-
ins, ástandinu meðal verkalýðs-
ins eftir að nýsköpunarstjórnin
hefir setið að völdum á annað ár
og Ólafur Thors hefir lýst því
yfir, að nýsköpunin gangi miklu
betur en nokkurn óraði fyrir. Þó
er ekki laust við, að hinar fyrir-
sjáanlegu kaupkröfur verka-
manna og allt það, sem af þeim
mundi leiða, hafi skotið Moijg-
unblaðsliðinu nokkurn skelk í
bringu, því að Morgunblaðið
segir sl. sunnudag, í tilefni af til-
lögu trúnaðarráðs Dagsbrúnar
um uppsögn samninga:
Lýsing Morgunblaðsins.
„. . . . I»ví að vafalaust er þess-
um flokkum ljóst (kommúnist-
um og Alþ.fl., sem ráða í Dags-
brún), að samtímis því, sem
þessar kröfur eru gerðar, er við-
horfið þannig hjá bát'aútvegi
landsmanna, að vafasamt er
livort nokkur íleyta fer á sjó á
vertíð þeirri, sem nú fer í hönd.
Vonandi tekst ríkisstjórninni að
gireiða þannig úr þessu máli til
bráðabirgða, að eigi komi til
stöðvunar. Þó er allt í óvissu um
hvort menn fást á bátann og full-
Víst er, að verði enn hert á kröf-
um landmanna, rekur að því, að
engin nmaður fáist á fiskibát-
ana.“ (Leturbreyting Dags).
Þannig er dýrtíðarstefna
stjórnarinnar búin að leika sjáv-
arútveginn, að dórni sjálfs Morg-
unblaðsins, og víst er það, að ef
þessi orð hefðu birzt í blöðum
Framsóknarmanna, og mörg
svipuð hafa verið birt í þeinr á
liðnu ári, þá.mundi það hafa
verið talinn vondur rógur um
„nýsköpunina“ og „framfaraöfl
þjóðfélagsins“, en svo er dýrtíð-
arpostulunum tamt að nefna
sjálfa sig.
Hvernig lízt þjóðinni nú á, er
slíkar yfirlýsingar um ástandið í
atvinnumálum þjóðarinnar eru
gefnar af þeim, sem hingað til
hafa daufheyrzt við öllum kröf-
um um niðurfærzlu verðbóle-
unnar? Þau tíðindi, sem nú eru
að gerast í afurðasölumálum
okkar, skuldasöfnun ríkisins, á-
standið í verzlunarmálunum,
husnæðismálunum og kaup-
gjaldsmálum landsmanna hljóta
að verða til þess, að dýrtíðarvím-
an renni nú loks af öllum hinum
gætnari mönnum, er fylgt hafa
stjórnarflokkunum og þeir sjái,
að bráður voði er framundan
fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og
framtíð, ef ekki verður spyrnt
við fótum nú þegair og sukkið,
óreiðan og æfintýramennskan í
stjórn ríkisins stöðvuð. F.f þjóðin
þekkir sinn vitjunartíma, gefur
hún stjórnarflokkunum eftir-
minnilega ráðningu í kosning-
um þeim, sem í nú fara hönd.
TIL SÖLU
ágætt, ódýrt steinhús. —
Lysthafendur tali við
HALLGRÍM járnsmið.
NÝJA-BÍÓ
1 Fimmtudag kl. 9: j
Mademoiselle Fifi {
= Föstudag kl. 9: »
Hneyksli í her-
skólanum
= Laugardag d. 6: i
Hneyksli í her-
skólanum
| Laugardag kl. 9:
Óður Bernadettu
Í Sunnudag kl. 3: |
Smámyndir
j Sunnudag kl. 5: j
Mademoiselle Fifi |
1 Sunnudag kl. 9:
Næturárás á
Frakklandsströnd
Dönsk og sænsk blöð:
Familie Journal
Femina »
Mönster Tidende
Skipper Ski-æk
Week-End
Bókaverzlunin EDDA
Stmi 334
Hjartans þakkir til allra, er á einn eða
annan hátt heiðruðu minningu
frú Ingibjargar Björnsson,
Akureyri,
við andlát hennar og jarðarför. Sömuleiðis
til þeirra, er við það tækifæri sýndu okkur
hluttekningu.
Börn hinnar framliðnu.
Hjartans þakkir til ykkar allra, nær og fjær, sem
sýnduð okkur samúð og kærleika, við andlát og
jarðarför eiginkonu, móðurogtengdamóðurokkar,
HELGU BJÖRNSDÓTTUR.
Akureyri, 8. janúar 1946.
Eiríkur Sigurðsson. Steinunn Eiríksdóttir.
Stefán Stefánsson.
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
liluttekningu við andlát og jarðarför
JÓNS JÓNSSONAR á Munkaþverá.
Vandamenn.
SMÁB ARN ASKÓLI
minn getur bætt við sig
fleiri börnum.
Elísabet Eiríksdóttir,
Þingvallastræti 14. Sínri 315.
VERZLUNIN HRÍSEY,
Gránufélagsgötu 18,
kaupir ullaisokka og vettlinga á
börn og fullorðna.
Nýkomnar vörur:
Sænskai* gaslugtir
líslenzkir jdnar
Lengdir: 85. 100.125,150. 175,
20Q, 225 cm.
Sendum gegn póstkröfu um land allt
Brauns Vcrzlun
Páll Sigurgeirsson.
<S><$><§><$><§><8><$><$><$>3><$><$><$><§><$><$><$><§>3><$><$>3><§><$><8><$><$><$><$><$><§>3><$><$><$>3><§><$><^<$><$><$><^
Blikkfötur
Vasalugtir
Vasalugtabátterí
Leirkrukkur og
Leirbrúsar ýmisk.
Smiðaáhöld,
fjölbreytt úrval
Aladin lampar
ásamt varahlutum
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Barnavagnar
Barnakerrur
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.
DUGLEGUR
og ábyggilegur piltur, 14—
16 ára, getur fengið atvinnu
nú þegar.
Balduin Ryel h.f.
! Atvinna
Lipur og dugleg stúlka, góð í reikningi, getur fengið at- %
f vinnu í vefnaðai'vörubúð, nú þegar, eða 1. febrú'ar. Skiriflegar f
% umsóknir ásamt kaupkröfu og upplýsingum um menntun og |>
f fyrra starf, óskast.
Balduin Ryel h.f.
T<S"5»$><t>4><S'<í>^<txS><?xí><5xSxS>$><Sx*xíxí«»x»>^^><S><5xt><»><í><®K^x^<í><S><S>^>^><í><$><$^xSx$><$^xSxíXtxíX®*
Bíll til sölu.
1,5 tonns vörubifreið, nr.
A 262 í góðu lagi og á ó-
slitnum hjólbörðum, er til
sölu hjá undirrituðum.
Asgrímur Halldórsson,
Hálsi, Öxnadal.
BÍLL TIL SÖLU
Chevrolet vörubíll (truck),
6 hjóla, með nýjum mótor
og vélsturtum, til sölu. —
Upplýs. í benzínafgr. KEA.
Barnaskór,
í öllum stærðum, nýkomnir.
Skóverzl. M. H. Lyngdal.
í grein Þorst. M. Jónsson-
ar, á 3. síðu, hafa þessi orð
fallið úr í 5. dálki, í nokkrum
hluta upplagsins:
Árið 1890 sendi Björn Jónsson
ritstjóri Isafoldar út boðsbréf að
Noregskonungasögum. Fyrsta
bindi þeirra kom út 1892, en á
kápu þess tilkynnir hann, að
hann geti ekki selt þær eins lágu
verði eins og talað sé um í boðs-
bréfinu, enda séu áskrifendur
ekki bundnir við kaup á því.
Margir keyptu samt bindi þetta
og II. bindi. Olafssaga Haralds-
sonar, kom út árið eftir, en síðan
hefir ekki komið meir út af
þeirri útgáfu. Mun upplagið fyr-
ir löngu uppselt, og síðan hafa
komið út útgáfur af Noregskon-
ungasögum.