Dagur - 28.04.1948, Qupperneq 1
Sjcunda síðan:
Olafur Jónsson framk\ •stj.
ræðir fræðslukerfið og
nauðsyn endurbóta á því.
Forustugreinin:
Afgreiðsla Fjárhagsráðs
og ríkisstjórnar á tillögum
kaupstðaaráðstefnunnar. *
XXXI. órg.
Akureyri, miðvikudaginn 28. apríl 1948.
17. tbl.
Kostnaður við sjúkra-
hússbyggmguna orðinn
hátt á aðra milljón kr.
Á fundi bygginganefndar
sjiikrahússins, hinn 21. þ. in., gaf
framkvæmdastjóri nýbyggingar-
innar, Gunnar Jónsson, skýrslu
um fé þaö, sem komið cr í bygg-
inguna, ásamt geðveikrahælinu,
sem lokið er við.
Er það alls kr. 1.853.000.00. Þar
af hefir ríkið lagt fram kr.
1.110.000.00 en bærinn ásamt
söfnun Kvenfél. Framtíðin, hefir
lagt fram afgang'inn. Nú mun lít-
ið fé handbært annað en það, sem
Kvenfél. Framtíðin hefir í sínum
vörzfum, en það mun vera um
100 þús. kr. Þá er óútborgað
framlag bæjarins 1948 kr. 150.000
og ríkið á eftir að greiða um
500.000 kr., þar af eru 300 þús. kr.
á fjárlögum þessa árs. Ákveðið
var áð fela byggingameisturum
að láta hefja innanhússhúðun ný-
byggingarinnar hið fyrsta. Er svo
róð fyrir gert, að unnið verði að
innréttingu hússiíis í sumar.
„Kaldbakur66 fékk
hlaðafla á sex
sólarhringum
,,Kaldbakur“ kom hingað af
veiðum snemma á mánudags-
morgun og var þá liðin vika síðan
skipið lagði héðan á veiðar, en
alls var það tæpa sex sólarhringa
að veiðum. í skipinu munu hafa
verið tæp 300 tonn af fiski, um
120 tonn karfi, 100 tonn þorskur
og 70-80 tonn ufsi. Mestalla veið-
ina fékk skipið á Halamiðum.
Skipið fór héðan síðdegis á
mánudag til Þýzkalands. Verður
það fyrsta Þýzkalandssala þess.
Búast má við því, að fyrir fiskinn
fáist um 12000 sterlingspund.
Baniakór Akmeyrar
syngur á sunnudaginn
Björgvin Jörgenson kennari við
Barnaskólann hér hefur stofnað
barnakór, sem ætlar að láta til
sín heyra á sunnudaginn kemur.
í kórnum eru 39 börn og á sunnu-
daginn munu þrír einsöngvarar
úr hópi þeirra syngja með kórn-
um Björgvin Jörgenson hóf að
æfa þennan kór eftir'barnaskóla-
skemmtunina í vetur og syngur
kórinn nokkur þeirra laga er þar
voru flutt og mörg ný viðfangs-
efni að auki.
lagsráöi og
Frá Skíðamóti íslands 1948
Sigurvcgarar í bruni — A-fL — á Skíðamóti íslands. Talið frá
hægri: Ármann — afhendir verðl nunin — Magnús Brynjólfsson í.
B. A., Haraldur Pálsson í. B. S., Gísli Kristjánsson í. Íí. R.. Ás-
grímur Síefánsson í. B. S., Ásgeir Eyjólfsson f. B. R. Myndin er
tekin í Snæhólursi við Akureyri að aflokinni keppni.
KomsúnSstar vildu ekkl ganga
undsr kjörorðunum „Móti kúgun,
esnræði og ofbeldí'
Bandalag starfsmanna rikis og bæja ekki jiátt-
takandi í iiátíðahöldum 1. maí
Verulegur hluti alþýðusamtak-
anna í Iandinu hefur nú svarað
tilraunum komúnista til þess aö
gera 1. ma,í að haráttudegi fyrir
alþjóðaliommúnismann gegn Iýð-
ræðisöflunum í veröldinni. Á
fundi fulltrúaráðs vei-klýðsfélag-
anna í Reykjavík urðu snörp átök
í milli lýðræðissinna og komm-
únista um kjörorð þau, er verka-
menn skyldu skipa sér undir hinn
1. maí. Neituðu kommúnistar að
ganga undir kjörorðunum:
„Frelsi, jafnrétti og lýðræði!"
„Með hjálp til endui’reisnar Vest-
ur-Evrópu“ „Gegn ofbeldi, ein-
ræði og kúgun“. Hefur þeim lík-
lega fundizt höggvið nærri sér
og yfirboðurum sínum með því
að fylkja liði undir slikum merkj-
um! Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja, sem jafnan hefur verið
þátttakandi í hátíðahöldunum 1.
maí, hefur nú ákveðið, að taka
engan þátt í þeim. Er það svar
bandalagsins við áróðri komm-
únista og tilraunum þeirra til
þess að gera hátíðisdag verka-
lýðsins að áróðursdegi fyrir
kommúnistaflokkana *og utan-
ríkisstefnu Rússa. Hér á Akur-
eyri mun starfsmannafélag bæj-
arins engan þátt eig'a í hátíða-
höldunum, frekar en önnur fé-
lög innan Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja.
Alþýðusamband Suðurlands
mótmælir.
Nú um helgina samþykkti Al-
þýðusamband Suðurlands mót-
mæli gegn áróðursfyrirætlunum
kommúnista í sambandi við 1.
maí. Var jafnframt skorað á Ut-
varpsráð að koma í veg fyrir að
kommúnistar fái að flytja áróður
sinn í útvarpi í nafni verkalýðs-
samtakanna í sanibandi við 1.
maí hátíðahöldin. Bendir margt
til þess að þær fyrirætlanir
kommúnista, að gera 1. maí, að
lofgerðardegi fyrir yfirgangs-
stefnu Rússa í alþjóðamálum, eigi
mikilli og vaxandi andspyrnu að
mæta í verklýðsfélögunum og
samtökum launamanna, víðs veg-
ar um landið.
LISTAMANNASTYRKIR.
Nýlega er lokið úthlutun fjár
þess, er Alþingi ætlaði til lista-
mannalauna. Illutu þessir Akur-
eyringar styrk: Davíð Stefánsson,
Friðg. H. Berg, Heiðrekur Guð-
mundsson, Jón Norðfjörð, Kristín
Sigfúsdóttir, Kristján Einarsson
og Steindór Sigurðsson.
Fulltráar Framsóknarflokksins stóðu
eiiiir með réttlætiskröfum
dreifbýlisins
Nýjar úthlutmiarreglur taka gildi,
en fást ekki birtar
Það er nú kunnugt orðið, að fulltrúar Siálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins í ríkisstjórn og fjárhagsráði hafa fellt tillögur um ao
taka upp nýiar reglur um veitingu innflutnings- og gjaldeyrisleyfa
samkvæmt ályktunum kaupstaðaráðstefminnar, sem haldin vnr í
Reykjavík j febrúar. Frá þessu er skýrt í viðtali, sem Tíminn birti
fyrir nokkru við Hermann Jónasson, annan fulltrúa Framsóknar-
fíokksins í Fjárhagsráði.
í stað þess að verða við kröf-
um almennings úti á landi um
leiðréttingar á ríkjandi ófi’emd-
arástandi í verzlunarmálunum,
hafa fulltrúar þessara stjórnar-
flokka nú samþykkt nýjar út-
hlutunarreglur, sem þ ó hafa ekki
verið birtar en eru, að sögn
kunnugra, mjög loðnar og fjarri
því að vera fullnægjandi svar við
eindregnum óskum kaupstaða-
ráðstefnunnar um úrbætur.
Stuðningur
Framsóknarf lokksins
í viðtali þessu rekur Hermann
Jónasson þann stuðning, sem
fulltrúar Framsóknarflokksins
hafa veitt málefnum dreifbýlis-
ins í verzlunarmálunum. Mið-
stjórnarfundur Framsóknar-
flokksins var haldinn um líkt
leyti og kaupstaðaráðstefnan
starfaði og samþykkti miðstjórn-
in með samhljóða atkvæðum, að
leggja fyrir fulltrúa sína í Við-
skiptanefnd, Fjárhagsráði og rík-
isstjórn og Alþingi, að berjast
fyrir því, að tillögur kaupstaða-
ráðstefnunnar í verzlunarmál-
unum næðu fram að ganga. Hafa
fulltrúar flokksins eindregið
fylgt þessari stefnu. Hermann
Jónasson skýrir svo frá gangi
þessara mála í Fjárhagsráði:
„..Hinn 26. febrúar bárum við
Sigtr. Klemenzson fram tillögu
um svar við málaleitan fulltrú-
anna utan af landi.
„Fjárhagsráð samþykkir að út-
lilutun gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfa á árinu 1948,
skuli eftir því, sem við verður
komið, gerð í samræmi við
þær tillögur er samþykktar
hafa verið af hendi fulltrúanna
af Vcstur-, Norður- og Austur-
landi.“
Þessi tillaga var síðan rædd og
hinn 4. marz var samþykkt til-
laga í Fjárhagsráði um að fresta
afgreiðslu tillögunnar, unz til-
lögur Viðsltiptanefndar hafa bor-
izt Fjárhagsráði. Þessi tillaga var
samþykkt gegn atkvæðum okkar
Sigtr. Klemenzsonar.11
Réttlætiskröíurnar kistulagðar.
Enn segir svo í þessu viðtali
við Hei'mann Jónasson:
„. . . . Hinn 2. apríl voru lagðar
fram tillögur frá meirihluta Við-
skiptanefndarinnar um reglur um
skiptingu innflutningsins, en í
Viðskiptanefnd hafði Sigurjón
Guðmundsson (fulltr. Framsókn-
arflokksins) greitt atkvæði með
tillögu fulltrúanna af Vestur-
Norður- og Ausurlandi. Enn á ný
fluttum við Sigtr: Klemenzson
breytingartillögur við þessa til-
lögu meirihluta Viðskiptanefnd-
ar, þess efnis, að úthlutun inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfa yrði
gerð í samræmi við fyrrnefndar
tillögur kaupstaðaráðstefnunnar
og ennfremur bárum við fram til-
lögu um nánari útfærzlu þeirra.
Þessi tillaga var felld eins og aðr-
ar tillögur okkar, með 3 atkv.
gegn 2, og áfrýjuðum við Sigtr.
Klemenzson þeim ágreining til
r íkisst j órnarinnar.
(Framhald af bls. 5).
NoFskir járnbraut-
arteinar í clrátlar-
brautina hér
Áður hcfir verið greint frá því
hér í blaðinu, að tilboði Akureyr-
ar í dráttarbraut Slippfélagsins í
Reykjavík, cn það var 335 þús.
kr., var ekki tekið.
Mun di áttarbraut þessi þó \ era
óseld ennþá, en eigendur ófúsir
að ganga að þeim tilboðum, sem
bárust. Eftir þessi málalok, fól
hafnarnefnd Gísla Kristjánssvni
framkvæmdastjóra, að leita til-
boða á brautum erlendis frá. Á
fundi nefndarinnar'19. þ. m. var
ákveðið að taka tilbo.ði frá A/S
Mjölner í Bergen, þar sem firmað
býðuv 600 metra af járnbrautar-
teinum til afgreiðslu í Bergen. —
Mun vera von á efni þessu hing-
að í sumai'.