Dagur - 30.11.1949, Blaðsíða 2

Dagur - 30.11.1949, Blaðsíða 2
2 D AGUR . Miðvikudaginn 30. nóvember 1949 Tómas Árnason, lögfræðingur: Stjórnlagaþing (Niðmlag). h>íh><h5iKHS<h>íKhKBKhKhS«<hKkKhKhKhkh«Síh«KbWCbkhKhíí«h: IA.lúðar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig ú 7? g ára afmœli múnt, með heimsóknum, gjöfum og skcyl- K um. — Lifið heil. g SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR | írd Litla-Hóli. § J-OÍHKHKHKHKHKHSÍHKHSÍHKHSÍHKHKHKHKHKHSÍHKHÍÍHKHKHJíHJÍHK | Tilkynning um greiðslur ellilífeyris til danskra, \ finnskra, norskra og sænskra ríkisborg- j ara, sem búsettir eru liér á landi. j Hinn 1. desember n.k. kemur til framkvæmda milli- | ríkjasamningur milli íslands, Danmerkur, Finnlands, \ Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæmar greiðslur ellilíf- i eyris. I Samkvæmt samningi þessum, eiga danskir, finnskir, i noiskir og sænskir ríkisborgarar, sem dvalist hafa sam- | íieytt að minnsta kosti 5 síðustu ár á íslandi og orðnir i eru fuUra 07 ára, rétt til ellilífeyris á sama hátt og ís- | lenzkir ríkisborgarar. Ennfremur eiga þeir rétt á lífeyri i nteð börnum sínum yngri en 16 ára, sem hjá þeim dvelja i og eru á þeirra framfæri, og koma til greina við ákvörð- i un uppbótar á lífeyrisgreiðslur til jafns við íslenzka rík- i isborgara. i Þeir erlendir ríkisborgarar, sem samningur þessi tek- i ur til og vilja njóta þessara réttinda eru hérmeð áminnt- í ir um að snúa sér til umboðsmanns Tryggingarstofnun- i arinnar, hver í sínu umdæmi, með umsóknir sínar, fvrir j 1. desember n.k. og leggja fram sönnunargögn fyrir því, i að þeir hafi dvalið hér á landi samfleytt síðustu 5 ár. = íslendingar, sem dvelja og dvalist liafa í einhyerju i hinna Norðurlandanna samfleytt síðustu-ö-ár og náð i liafa lífeyrisaldri, eiga rétt til ellilífeyris. .í -dvalarlandi i sínu' eltir sönju reglum ,og ríkísborgarar hlutaðeigandi i kmds. i Reykjavík, 11. nóvember 1949. Tryggingastofnim ríkisins. j iv~ IV. í sambandi við það, sem eg drap á áður, er það álit margra fræðimanna og stjórnmálamanna ásamt mikils hluta þjóðarinnar, að nauðsyn sé verulegra breyt- inga á stjórnaiskránni. Það var beinlínis ráð fyrir því gert 1944, að fljótlega færi fram gagnger endurskoðun á stjórnarskránni, sbr. það að ríkisstjórnin gaf þjóð- inni fyrirheit í þessu efni; Sumir vildu, að stjórnarskránni hefði verið breytt endanlega samhliða stofnun lýðveldisins, en nú munu hins vegai: flestir vera þeirrar skoðunar, að hefðu þá verið inn- leidd þau mörgu deiluatriði, sem því óhjákvæmilega voru samfara, myndi sú þjóðareining, sem þá náðist ekki, hafa komið fram og hefði það miður verið. Nú eru hins vegar liðin tæp 4 ár síðan og hlýtur því endurskoð- un stjórnarskrárinnar að vera eitt af v.iðfangsefnum náinnar framtíðar. Lýðveldisstjórnarskr. í núverandi mynd var einungis sett til bráðabirgða. íslenzka þjóðin vei'ður nú eiginlega í fyrsta sinn að ákveða á sitt ein- dæmi, hvernig hún vill haga sinni stjói'nskipan á næstu áratugum og öldum. Til setningar nýrra stjórnskip- unarlaga verður eflaust vandað eins og frekast er kostur. Undir- búningur allur sem ýtarlegastur og beztur, þannig ,að í stjórnar- skránni speglist lífsskoðun þjóð- arinnar og réttarmeðvitund. Lýð- veldisstjórnai'skráin á að mótast af vilja þjóðai'innar og því er nauðsynlegt að kjósendur fái að taka afstöðu til hennar í kosn- ingum, án þess að önnur málefni valdi þar meiri truflunum en nauðsyn ber til. Hin skýra afstaða kjósenda í málinu verður að koma fram. Ennfremur verður að vanda sérlega setningu nýrrar stjórnarskrár, vegna þess að henni er ætlað að standa um lang an aldur sem grundvöllur þess stjórnskipulags, sem hún túlkar. Þá vaknar sú spurning: Hvem- ig getur þjóðin tryggt bezt að svo megi verða? Það fyrsta, sem fyrir liggur er að ákveða hvaða aðferð á liafa við breytingu og setningu nýrrar stjórnarskrár. Hvaða aðferð í þessu efni tryggi bezt, að íslend- ingar fái haldgóða og réttláta stjóx-nskipan til að búa við í fram- tíðinni. Svo og að ákveða, hvern- ig stjórnarski'áin skuli verða að efni til. Þegar lýðveldisstjórnarskráin var sett var hin venjulega aðferð, sem eg lýsti hér áður, ekki höfð, sem sé samþykki tveggja Alþinga með almennum kosningum á milli. Að vísu samþykkti Alþingi hana, en það þing var ekki rofið og nýjar kosningar fóru ekki fram. Heldur var málið lagt undir þjóðaratkvæði. Þingið tók málið að vísu til meðferðar aftur eftir þjóðai'atkvæðagreiðsluna, en gerði aðeins ályktun um það, hvort stjórnai'skráin væri gild ,eða ekki. Stjórnarskráin var lögð undir þjóðaratkvæði, í stað þess að þing væri rofið og nýjar kosn- ingar látnar fara fram. Þjóðar- atkvæðagieiðslan tryggði það betur en nýjar kosningar, að vilji. kjósendanna kæmi í Ijós, því að hver og einn kjósandi gat þá tek- ið afstöðu til stjórnai'skrárinnar einnar. Afstaða hans til annarra þjóðmála var þar eigi til truflun- ar eins og verið hefði við Alþing- iskosningar, þar sem mörg önn- ur sjónaimið koma til, eins og t. d. pex'sónulegt traust kjósanda á þingmannsefni varðandi „póli- tísk" sjónarmið, ásamt möi-gum öðrum sundurleitum áhugamál- um. Til þess að hægt væri að víkjá frá ákvæðum stjórnai'skrárinnar um aði-a aðferð við bi-eytingu og viðauka við hana þurfti stjórn- skipulega heimild. Sú heimild vai', eins og eg gat um áður, veitt með stjórnskipunarlögunum nr. 97, 16. desember 1942, sem sam- þýkkt voi'u á tveimur þingum með.þingrofi og nýjum kosning- um á milli. Þar var stjórnskipu- lega heimilað að láfa þjóðarat- kvæðági-eiðslu -um stjórnarskrár- breytingarnar koma í stað þing- rofs' og"”hýfra kosninga. ' Með stjórnskipulegri heimild var þar með ákveðin aðferðin við setn- ingu lýðveldisstjói-narskrárinnar. Þegar' ákveða á nú, hvaða að- ferð skuli hafá um:þá stjórnljsga- bréytingu, sem væntanlega stend ur nú fyrir dyrum, verður þessi aðferð sjálfsagt eigf höfð, þótt vikið vei'ði frá þeirri venjulegu aðfeið, sem stjórnai-ski'áin býð- ur, þ'ví áð hin síðari' meðferð Al- þingis við setningu lýðveldis- stjórnarski'ái innar, sem fram fór við eina umræðu í sameinuðu þingi, var ekki sambærileg við þá meðferð, sem slíkum málum er venjulega ætluð við endanlegt samþykki þingsins, sem sé þrem umræðum í hvorri deild Aliþngis. Þetta réttlættist þá af hinum sér- stæðu atvikum, sem lágu til setn ingar lýðveldisstjórnarskrár- innar. V. Samkv. aðferð þeirri, sem stjórnarskráin býður uij* stjórn- lagðbreytingár,' er þáttúr Alþing- is lang þýðingarmestur. Það hefir frumkvæðið að slíkum bi'eyting- um, en ber hins vegar ábyrgð fyi'ir þjóðinni um að láta ekki hjá líða um bei.tingu valds síns í þessum efnum, gegn vilja hennar. Alþingi er sá aðili, sem vald hefir til þess að hrinda stjórnarskrár- málinu af stað. Það samþykkir upphaflega frumvai'p til stjórn- lagabi'eytingar. Síðan, eftir þing- rof og nýjar kosningar, samþykk- ir það aftur frumvarpið, áður én það tekur gildi sem ný stjórn- skipunai'lög. Eins og eg gat um áður felur þessi aðferð nokkuð öx-yggi í sér í þá átt, að stj.skr. verði ekki breytt án vilja þjóðar- innar, og á margan hátt tiyggir hún rækilega íhugun og vand- virkni og miðar að því að girða fyrir of tíðar stjórnlagabreyting- ar. Hún er því góð trygging til verndar stjórnarskránni eftir að endanleg setning hennar hefir farið fram. Hins vegar, þar sem ætla má, að stjóx-narskrárbreyt- ing sú, sem fyrr eða síðar verður framkvæmd hér, verði allítarleg og e. t ,v. ýmsu breytt, virðist augljóst, að aðferð þessi felur í sér nokkx-a galla, sem geta staðið ;í vegi fyr.ir því, að þjóðin fái rétt- látlega og ótrufluð að sýna hug sinn í málinu. Alþingi er skipað fulltrúum fyrir féiagsheildir — stjórnmála- j flokkanna, — sem skipast eftir i afstöðu þegnanna til ýmissa mál- : efna, svo sem afstöðu manna til i ýmissa málefna, verzlunar o. s. i frv. Skiptingn þjóðarinnar í þess- i ar félagsheildir er þess vegna ; ekki byggð á skoðanamun í i stjórnarskrármálinu. Margir, þótt þeir séu andstæðir í stjórnmál- um, munu eiga samleið, ef þeir fá tækifæri til að taka afstöðu til stjórnarskrárinnar einnar eins og berlega kom fram við lýðveldis- stofnunina, þótt fleira kæmi þar til. Fyrirfram virðist ógerningur að spá nokkru um það, hvernig pjóðin skiptist í málinu. En víst er, 'að hrein afstaða kjósenda kemur aldrei fram við Alþingis- kosningar, þótt að þar ráði tíðum önnur sjónarmið því,; hvernig' menn greiða atkvæði sitt, eins og eg gat um áður. Væri hins vegar hlutverk Alþingis eigi annað en að setja þjóðinni stjórnarskrá myndu kosningar til þess þings glögglega sýna hreina, réttláta afstöðu þjóðarinnar til fyrirætl- a,ra breytinga. Innan Alþingis hefir skapast viðskiptavenja með málefni. Er venja þessi afleiðing af því, hversu illa hefir gengið að fá meirihluta innan Alþingis í tilteknum málum, sem aftur staf- ar af veilu í stjórnarskránni. Ætti Alþingi að ákveða stjórnar- skrána eða i'áða langmestu þar um, er hætt við, að „hrossakaup- in“ svonefndu myndu láta til sín taka og brenglað yrði saman í þeim viðskiptum óskyldum mál- um við ákvæði stjórnarskrárinn- ar. Væri hins vegar stjómarskrá- in eina málið ,sem Aliþngi færi með, væru slík viðskipti alveg útilokuð. í stjórnarskránni eiga að vera reglur um skiptingu ríkisvalds- ins. En það skiptist í þrjá megin- þætti: Framkvæmdarvald, dóms- vald og löggjafarvald. Sjálfsagt verður Alþingi falið löggjafar- valdið og verður því eins og nú einn handhafi ríkisvaldsins. Væri nú Alþingi að langmestu leyti falið að semja stjórnarskrá, felst í því vald til að ákveða takmörk- in á valdi Alþingis sjálfs og ann- arra handhafa ríkisvaldsins. Hætt er því við, að erfið yrði hlutlaus afstaða þess i málinu. Samkv. þeirri sígildu reglu að enginn sé réttlátur dómari í eigin sök virð- ist Alþingi eiga að víkja sæti. — Væri hins vegar kosið alveg sér- stakt þing — stjórnlagaþing — sem liefði það hlutverk eitt með höndum að setja þjóðinni stjórn- arskrá hefði það sýnu betri að- stöðu í þessu efni, þó sérstaklega ef stjórnlagaþingsfulltrúar væru eigi kjörgengir til Alþingis. Þannig var málum háttað, þeg- ar franska stéttarþingið frá 1789 —1791 setti frönsku þjóðinni stjórnarskrá, sem að mörgu leyti ruddi nýjar brautir um stjórnar- háttu. En eins og vikið var frá ákvæðum stjórnarskrárinnar um aðferðina við setningu lýðveldis- stjórnarskrárinnar 1944 þyrfti, ef slíkt yrði aftur gert, stjórnskipu- lega heimild. Alþingi yrði að samþykkja frumvarp þess efnis, að sérstakt stjórnlagaþing setti þjóðinni stjórnarskrá. Síðan yrði þingrof og nýjar kosningar til að sannreyna vilja kjósenda. Svo eftir síðari samþykkt Alþingis yrði hin stjórnskipulega heimild til staðai'. Þá færu fram sérstakar kosn- ingar til stjórnlagaþingsins, sem setti þjóðinni stjórnarskrá, sem öðlaðist gildi endanlega eftir að meirihluti þjóðarinnar hefði greitt henni atkvæði. Alþingi yrði jafnframt að semja sérstök kosn- ingalög til stjórnlagaþingsins. — Þessi aðferð virðist nokkuð þung í vöfum miðað við þá venjulegu, en til hve mikils vill þjóðin vinna til þess að fá réttláta lýðveldis- stjórnarskrá — stjórnarháttu, sem líklegi rerú til þess að treysta varanlegt sjálfstæði og tryggja jafnrétti þegnanna. Öll þjóðin sér nú þá staðreynd, að þingræðisfyrirkomulagið er komið í sjálfheTdu. Eftir kosning- ar er ekki hægt að mynda ríkis- stjórn. Engin ástæða er til að ætla, að breytingar til samkomu- lags verði innan þingsins, því nær sem dregur næstu kosningum. Landið verður stjórnlaust til næstu kosninga. En þolum við . íslendingar að horfa upp á slíkt? Þolum við að sitja aðgerðarlausir og horfa á uppbætur til atvinnuveganna hækka. Af því leiðir hærri skatta, unz gjaldþol þegnanna er þrotið. Þá blasa við erlendar lántökur og íjárhagslegt ósjálfstæði. Nei, við vei'ðum að læra af reynsl- unni. Verðum að breyta um stjórnskipulag til þess að þegn- arnir fái aðstöðu til þess að skapa nægilega samstilltan meirihluta. Alþingi á nú að viðurkenna í verki sjálfheldu þingræðisins og samþykkja tillögu um, að sérstakt stjórnlagaþing skuli setja lýð- veldinu ísland nýja stjórnarskrá. TIL SÖLUs Býlið MELGERÐI í Gler- árþorpi, ásanit landi og fjósi yi'ir tvær kýr. Up.plýsingar gefur eigand- inn, Einar Jónsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.