Dagur - 17.12.1949, Side 1
12 SÍÐUR
Forustugreinin:
Hvers er að sakna úr
verzlunar-„skipu-
laginu?“
AGUE
Sjöunda síðan:
Getið nýrra bóka á bóka
markaðinum.
AXXn. árg.
Akureyrið, laugardaginn 17. desember 1949
53. tbl.
Ekki cr svefnsamt í b]arnarhíðmu
Þannig lýsir erlendur skopteikna ri (Schloss í France-Amerique) viðsKipium 'iuuismaiia og
konimúnismans. Rússneski björn'nn getur ekki sofið í híði sínu, sem er varið af kommúnista-
flokkum allra landa,, vegna ásækinna stungna títóismans. Réttarhöldunum yfir Kostov hinum
búígarska sýna og, að það eru fleiri en Tító, sem eru einvaldanum í Moskva óþægilegir.
Ríkið veitir 250 milljónir króna til sýningar-
innar - brezka stjórnin bvst við mill jónuin
Kesta sumarið 1951
Xj
Rretar eru nú að undirbúa og
skipuleggja stórkostlega sýningu,
sem ákveðið er að halda í London
árið 1951. Sýningin heitir „The
Festival of Britain 1951“, og er
Gerald Barry, ritstjóri stórblaðs-
ins „News Chronicle“, ráðinn'
framkvæmdastjóri hennar, enda
átti hann hugmyndina að sýn-
ingunni, kom henni á framfæri
og vann henni fylgi.
Allir stjórnmálaflokkar lands-
ins styðja hugmyndina og þing-
ið hefur þegar samþykkt nær þyí
250 milljón króna fjárveitingu til
þessa fvrirtækis. Þykir það mik-
il fjárhæð og nær einsdæmi, að
somkomulag skuli hafa orðið um
svo mikil fjárútlát til slíks fyrir-
tækis. .
Morrison hafði forustuna.
Hinn glæsilegi og skeleggi for-
ustumaður Verkamannaflokks-
ins, Herbert Morrison, hafði for-
ustu fyrir málefnið á þingi. Var
því þar með borgið. í viðtölum,
sem hann og Barry hafa veitt
Lundúnablöðunum að undan-
förnu, kemur í ljós, að brezka
stjómin og brezka þjóðin vænta
þess, að öll lötid veraldar sendi
fulltrúa á sýninguna og að millj-
ónir gesta muni sækja Breta
heim árið 1951. Þessi sýning
verður alls ekki vörusýning ein-
vörðungu, heldur og menningar-
legs eðlis. Áherzla verður lögð á
að kynna brezka list og þátt
hennar í brezk.ri menningu og
brezkri framleiðslu, en að sjálf-
sögðu mun útflutningsvarningur
Breta skipa veglegan sess á sýn-
ingunni.
100 ára afmæli Crystal Palacc.
Eins og fýrr segir ,var það rit-
stjóri News Chronicle í London,
sem átti hugmyndina að sýning-
unni, og tilefni hennar er 100 ára
afmæli heimssýningarinnar í
Hyde Park í London, en þá var
hið fræga Crystal Palace byggt,
sem stóð til ársins 1940, er sú
glæsilega höll var eyðilögð í
sprengjuárás Þjóðverja. Þessi
sýning á að standa í London frá
því í maí til septemberloka og
hún á að sýna það, fyrst og
fremst, hvernig brezka þjóðin
hefur sigrazt á efnahagsvandræð-
um sínum með samheldni, þraut-
seigju og gamalli og rótgróinni
menningu. Sýningin sjálf verður
á auðum svæðum, sem sköpuð-
ust meðfram Themsfljóti í stríð-
inu, er sprengjuásásir Þjóðverja
voru magnaðastar. Sérstök deild
sýningai’innar verður í Battersea
Park, og verða þar einkum
skemmtiatriði. Ollum þjóðum
heims verður boðið að taka þátt
í sýningunni, og verður þetta því
nokkurs konar heimssýning, enda
þótt áætlað sé, að hlutur Breta og
brezka heimsveldisins verði lang
samlega stærstur.
Fljótandi og akandi sýningar.
Jafnframt aðalsýningunni verð-
ur sérstökum sýningardeildum
komið upp í járnbrautarlest, sem
Grein frá rctíveitu-
stiórninni kemur í
næsta blaöi
Rafveitustjóm Akureyrar
hefir nú ákveðið að verða við
tilmælum Dags um að birta
! _ |
j bæjarmönnum greinargerð
i um ástand og liorfur í raf-1
j magnsmálum bæjarins og
1
mun greinin væntanlega birt-
ast í næsta tbl., sem kemur út
á miðvikudaginn kemur.
Ný barnabók
eftir Hannes Magnússon
skólastjóra
Nýlega er komin á bókamark-
aðinn ný barnabók eftir Hannes
J. Magnússon, skólastjóra. Nefn-
ist hún „Bókin okkar“ og er safn
af smásögum. Þórdís Tryggva-
dóttir hefur teiknað myndir með
sögunum. Hannes Magnússon
hefur áður gefið út þrjár barna-
bækur, sem alltar hafa hlotið
góða dóma og miklarr vin-
sældir.
á að fara milli allra helztu borga
landsins og kynna þeim, sem ekki
geta komið til London, aðalefni
sýningarinnar. Jafnframt hefur
verið ákveðið að breyta einu
flugvélamóðurskipi flotans
fljótandi sýningarsali, og á sú
sýning að fara á milli allra hafn-
arborga landsins, og e. t. v. til
erlendra borga, og gefa fólki kost
á að kynnast sýningunni með
þeim hætti. Dagur birtir hér að
ofan teikningu af þessu sýning-
arskipi Breta 1951.
jan
á 500 kw. disselsamsiæðu
Raíveitusijórnin heíir ekki einu sinni spurzt
íyrir um möguleika á samvinnu verksmiöj-
unnar og bæjarins í raímaqnsmálum
Fyrir nokkrum árum var bent á þá staðreynd hér í blaðinu, að
Hjalteyrarvcrksmiðjan hefði yfir að ráða allstórri diesel-samstæðu,
sem notuð væri til rafmagnsframleiðslu fyrir verksm. á sumrin og
líkur leiddar að því, að samstarf gæti tekizt með bænum og verk-
smiðjunni í rafmagnsmálum að vetrinum, þegar þessar vélar verk-
smiðjunnar eru ekki í notkun, en bærinn í sárri þörf fyrir aukna
raforku. Á þessu ári komst þessi tillaga í framkvæmd.
Myndin er af teikningu, sem gerð hefir vcrið af hinni fljótandi
sýningu Breta 1951. Flugvélamóðurskip flolans verðiir sent í
milli liafnarborganna.
Var lögð háspennulína til
Hjalteyrar og fær bærinn 350 kw.
þaðan að vetrinum, er á þarf að
halda, en það er ærið oft, gegn
því að rafveitan hér selji verk-
smiðjunni rafmagn að sumrinu.
Háspennulínan rétt ofan við
Dagverðareyri.
Þessi Hjalteyrarlína, sem lögð
var í sumar, og er hluti af vænt-
anlegri rafmagnsveitu út-Eyja-
fjarðar, var lögð skammt ofan við
síldarbræðsluverksmiðjuna á
Dagverðareyri, en ekki um stað-
inn. Þessi verksmiðja á tvær
Dieselvélasamstæður, sem geta
framleitt 500 kw., eða ásamt
Hjalteyri stórlega bætt úr versta
rafmagnsskortinum hér að vetr-
inum, ef samningar tækjust við
verksmiðjuna um afnot þessara
véla þegar verst gegnir í raf-
magnsmálunum hér.
Engra samninga leitað.
Blaðið hefur aflað sér upplýs-
inga um það, að rafveitustjórnin
hér hefur engra samninga leitað
um þetta efni og ekkert gert til
þess, að bæta þannig að nokkru
úr orskuskortinum á tiltölulega
auðveldan hátt. Mun bæjarmönn-
um þykja þetta furðu gegna eins
og ástatt er í rafmagnsmálunum
hér. Eðlilegt hefði mátt telja að
leita slíkra samninga við Dag-
verðareyri á sama tíma og samið
var við Hjalteyri og jafnframt
stuðla að því að háspennulína hér
út ströndina yrði lögð um Dag-
verðareyri, sem ekki getur kall-
azt mikið úr vegi.'
Hcfja bcr samningaumleitanir
sírax.
Enda þótt ekki hafi verið að
þessum málum unnið í vor og
sumar, virðist einsætt að hefja
beri samningaumleitanir við
Dagverðareyri nú þegar og jafn-
framt að vinna að því að koma
upp línu frá aðallínunni til
Iijalteyrar og niður að Dagverð-
areyri, sem er aðeins skammur
spölur. Takist samningar við
verksmiðjuna — en um það er að
sjálfsögðu ekki hægt að fullyrða
neitt að svo stöddu — og sé hægt
að koma upp línunni á skömm-
um tíma, virðast þarna vera
möguleikar til þess að rétta við
að einhverju leyti hið hvimleiða
og kostnaðarsama spennufall
Rafveitunnar hér og nota þessar
vélar, ásamt Hjalteyrarvélunum,
sem nokkurskonar toppstöð fyr-
ir bæinn, þegar álagið er mest.
Stj órnmálanámskeið
ungra Framsóknar-
manna
Féla gungra Frainsóknarmanna
á Akureyri gekkst nýlega fyrir
stjómmálanámskeiði.
Námkeiðinu var þannig hag-
að, að hverju sinni voru flutt
fræðandi erindi um ákveðin efni,
sem sérstaklega varða stjórnmál.
Erindi þessi fluttu: Þorsteinn
M. Jónsson, skólastj., Haukur
Snorrason, ritstj., og Tómas
Árnason, lögfr. — Þá fluttu flest-
ir þátttakendur, sem voru 24
talsins, stuttar ræður um ákveð-
in efni. Aðrir svöruðu svo þeim
ræðum síðar. — Samhliða voru
veittar leiðbeiningar um ræðu-
mennsku eftir þörfum.
Þá var alltaf settur fundur og
stjórnuðu þátttakendur fundun-
um til skiptis. Var rætt um eitt-
hver tefni, sem hafði verið flutt
áður. Umræðutími var þá tak-
markaður. Voru umræður jafnan
fjörugar og mæltu margir. Gætt
var réttra fundarskapa og leið-
beint um fundarstjórn.
Stjórnandi námskeiðsins og
leiðbeinandi var Tómas Árnason
lögfræðingur.
Námskeiðinu lauk á sunnudag
með kaffihófi að Hótel KEA. —
Ríkti mikill áhugi meðal þátt-
takenda. Þótti námskeiðið hafa
tekizt með ágætum. — Vaxandi
þróttur er í starfi F. U. F. hér á
Akureyri og bætast alltaf fleiri