Dagur - 17.12.1949, Blaðsíða 12
12
Baguk
Laugardaginn 17. dcsember 1949
NORÐRl gefur úf fónverkasafn
Björgvins Guðmundssonar
Tvö lagasöín nýlega komin á bókamarkað-
inn — Sjörgvin vinnur að því að ganga frá
handritum sínum til prentunar og að skrifa
ævisögu sína
Nú nýlega eru komin út á for-
lagi Norðra tvö lagasöfn eftir
Björgvin Guðmundsson tónskáld.
Eru það „Hljömblik“, 105 stærri
og smærri lög fyrir píanó og org-
el, og „88 kórlög í alþýðlegum
búningi“, 64 karlakórslög og 24
lög fyrir blandaða kóra.
Dagur hefir átt samtal við
Björgvin Guðmundsson í tilefni
af útkomu þessara lagasafna. —
Ekkert af þeim lögum, sem í þess
um bókum eru, hafa áður verið
prentuð, segir Björgvin Guð-
mundsson. Þetta er hluti af hand-
ritasafni hans, sem er mikið að
vöxtum, og hefir aðeins lítið bi’ot
af því verið prentað enn sem
komið er. Þessi lagahefti bæði
eru prentuð í Bretlandi og er
frágangur og prentun eins og
bezt verður á kosið. Áður hefir
Norðri gefið út þessi lagasöfn eft-
ir Björgvin: Friður á jörðu, óra-
tóríó, 66 einsöngslög, 77 lög fyrir
barna- og kvennakóra, eftir ýmsa
höfunda, valin og raddsett af
Björgvin, og 55 lög fyrir bland-
aða kóra, eftir ýmsa höfunda,
einnig valin og raddsett af Björg-
vin.
Hvað er að segja um framhald
á útgáfu verka þinna?
— Um það get eg ekkert ákveð-
ið sagt, og vafalaust mun dragast
lengi að allt mitt handritasafn
verði prentað, segir Björgvin. En
síðan eg fékk meiri tíma til um-
ráða, eftir að eg lét af kennslu
við skólana hér, hefi eg einkum
unnið að því að búa handrit mín
til prentunar, auk þess sem eg
hafi unnið að því að rita ævi-
minningar mínar. Eg hefi þegar
gengið frá handriti „Örlagagát-
unnar“ og Alþingishátíðarkan-
tötunnar, sem enn er óprentuð,
og einnig frá stóru handriti, sem
geymir kirkjuleg verk mín, lög
fyrir kirkjukóra. En margt ann-
að bíður síns tíma.
Ertu langt kominn að rita
æviminningar þínar?
— Það er nokkuð langt síðan
eg hóf það verk og geri eg mér
von um að ljúka því fyrir sex-
tugsafmæli mitt, árið 1951. Eg
hefi þegar gengið frá handriti
fyrri hluta verksins, sem nær
fram til ársins 1930. Síðari hlut-
inn er nú í smíðum. En eg vil
engu lofa um það, hvenær verk-
inu verði lokið, frá mörgu er að
segja og víða lcomið við, en eg
hefi hug á að ljúka því eins fljótt
og auðið er.
Hvað finnst þér um íslenzkt
músíldíí um þessar mundir?
— Einhver spekingur, sem þó
þorir ekki að láta nafns síns get-
ið, segir í tímaritinu Musica, að
íslenzk tónlist sé nú stödd í öldu-
dal. Engan rökstuðning er að
finna fyrir þessari fullyrðingu í
grein hans, en hins vegar telur
hann sig þess umkominn að bera
íslenzkum tónskáldum það á
brýn, að þau stæli erlenda tónlist,
í stað þess að láta íslenzk þjóðlög
setja mark sitt á verkin. Mér
þykir þessi kenning furðuleg, en
hún ber það með sér, að til eru
menn, sem vilja láta listamennina
sækja listina inn í fjós. Lítið
muna þessir menn þau áhrif, sem
íslenzkur skáldskapur hefir orð-
ið fyrir frá erlendum meisturum.
Hver segir nú að ljóð Jónasar
Hallgrímssonar hafi spillzt fyrir
kynni hans af Heine? íslenzk tón
list, sem því nafni getur kallast,
verður vitaskuld aldrei nema ís-
lenzk, þótt tónskáldin þekki og
meti verk erlendra meistara. —
Áróður um hið gagnstæða er í
senn heimskulegur og skaðlegur.
Mun eg gera því máli betri skil
annars staðar og svara þessari
nýju kenningu um tónlist á við-
eigandi hátt. Ekki staður né
stund til þess að gera því fyllri
skil að sinni, enda þótt eg vilji
gjarnan nú þegar vekja athygli
almennings á þessum áróðri gegn
íslenzkri tónlist, því að annað er
þetta ekki. En eg vil að lokum
táka fram, að eg er þakklátur
Norðra fyrir að ráðast í það stór-
virki, að gefa út lagasöfn mín. —
Mér er það ljóst, að útgáfa ís-
lenzkra tónsmíða er ekki gróða-
vegur nú á tímum. Enda tilgang-
urinn ekki sá, að safna verald-
legum fjársjóðum með þessum
hætti. Hitt er augljóst, að með
útgáfunni eru íslenzkar tónbók-
menntar auðgaðar og þannig
lagður fram skerfur til aukinnar
tónmenningar í landinu, þótt það
sé ekki mitt hlutverk að dæma,
j hversu stór sá skerfur er.
Degi heTir þótt sérstök ástæða
til þess að vekja athygli almenn-
ings á hinum nýju lagasöfnum
Björgvins, sem nú eru komin á
bókamarkaðinn. Það má telja
merkilegan tónlistarviðburð, er
tvö stór, íslenzk lagasöfn koma
út- frá hendi sama höfundar. ís-
lenzka þjóðin kann þegar mikið
af lögum Björgvins. Þau hafa
verið á vörum alþýðu manna um
langan aldur. En fjársjóðir Björg
vins eru langt frá því að vera
tæmdir. f þessum nýju söfnum
eru margar gersemar, og margar
fleiri eru enn geymdar í handrit-
um og bíða síns tíma. — Norðri
rækir merkilegt menningarhlut-
verk með því að koma þeim fyrir
almenningss j ónir.
Féll í kosningum
í nýlegum kosningum til öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings, féll
John Foster Dulles, einn helzti
utanríkissérfræðingur banda-
ríska Repúblikanaflokksins,
(mynd að ofan), fyrir Herbert
Lehman, stuðningsmanni Tru-
mans. Sigur Lehmans er jafn-
framt talinn sigur fyrir Fair Deal
prógramm forsetans og ósigur
fyrir einangrunaröflin í Banda-
ríkjunum.
Tilvalin jólagjöf!
Þegar hafa nokkrir borgarar
fylgt ábendingu Dags í síðasta
tbl. um gagnlega jólagjöf. Það
er vandi að finna hentuga
jólagjöf nú, án þess að stórfé
kpmi í aðra hönd. Þetta mál
er þó hægt að leysa á auð-
veldan hátt, með því að senda
kunningjunum áskrift að
Degi í jólagjöf. Þessi gjöf
kostar aðeins 25 krónur, en
hún minnir á gefandann í
hverri viku ársins. Skrifið af-
greiðslunni í Hafnarstræti 87,
eða hringið í síma 166!
IJnnið að byggingum
og vegagerð í Bárðar-
dal til desember-
byrjunar
Úr Bárðardal er skrifað
30. nóvember.
Hér hefir verið einmuna tíð-
arfar, og er það mikil bót eftir
erfiðasta vor og slæmt sumar.
Fé gengur sjálfala og er í beztu
færum. Þess var líka mikil þörf,
því að ekki voru heyástæður góð-
ar hér um slóðir, en fóðurbætir
keyptur með meira móti og þó
skertur bústofninn til muna.
Samgöngur eru greiðar á með-
an tíðarfar helzt óbreytt, en
snöggt getur það breytzt, því að
ekki þola vegirnir teljandi snjó,
þá teppist öll umferð — sem nú
er köliuð. — Þetta góða haust
hefir einnig bætt upp það að
nokkru, sem fresta varð af ýmiss
konar framkvæmdum sökum
þess hve öllu seinkaði þá Unnið
hefir verið að byggingum að
j þessu og landbroti til ræktunar
j með dráttarvél með ýtu, meðan
frost ekki hamlaði, eða til 4. nóv.
I Einnig nokkuð að vegagerð.
Þióðm bíciir „pennastriksins44 ineð eftir-
vœntingii
Síðastl. miðvikudag bar Hermann Jónasson, formaður Framsókn-
arflokksins, fram þá fyrirspurn, utan dagskrár á Alþingi, hvort
vænta mætti tillagna ríkisstjórnarinnar í dýrtíðarmálunum innan
skamms, og þá einkum tillagna í þeim málum, er mest aðkallandi
væru, þ. e. útvegsmálunum.
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, núverandi for-
sætisráðherra, svaraði fyrir-
spurninni, og sagði m. a. að fundi
Landssambands ísl útvegsmanna
væri ekki lokið og því ekki kunn-
ugt, hvaða kröfur útvegsmenn
gerðu til ríkisins um styrki til
*
útgerðarinnar. Taldi ráðherrann
eðlilegt, að stjórnin biði þess, að
heyra kröfur útvegsmanna. Hins
vegar, sagði ráðherrann, myndi
stjórnin einbeita sér að því verk-
efni, að finna samræmi milli
krafna útvegsmanna, og þeirra
aðgerða, sem þingmeirihluti væri
fyrir. Mun landsmönnum flest-
um þykja þetta nýstárleg kenn-
ing um lausn dýrtíðarinnar og
athyglisverð upplýsing um
eðli ,,pennastriksins“.
Að loknum þessum upplýsing-
um ráðherrans, kvaddi Hermann
Jónasson sér hljóðs, og sagðist
skilja ummæli ráðherrans svo, að
vænta mætti tillagna ríkisstjórn-
arinnar á hverri stundu. Ólafur
Thors gerði samt athugasemd við
yfirlýsingu Hermanns,- og dró
mjög úr því, að bjargráðatillögur
Sjálfstæðisflokksins myndu sjá
dagsins ljós alveg næstu daga. —
Mun það og sannast mála, að
fæstir landsmenn hafa gert ráð
fyrir slílcum tíðindum úr stjórn-
arherbúðunum, enda þótt nú séu
ekki nema fáir dagar til jóla og
nauðsynin á almætti „penna-
striksins" augljós jafnt framleið-
endum sem neytendum. Þjóðin
bíður því enn „pennastriksins“
’nafntogaða. Hvenær hyggst ný-
sköpunarhöfðinginn, Ólafui'
7 dagar til jóla —
pennastrikið ókomið
f dag eru 7 dagar til jóla og
nærri hálfur mánuður síðan
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins settist á valdastólana með
miklu yfirlæti. Samt er „penna
strikið11 ókomið enn, enda þótt
dýrtíðin hafi aldrei verið
geigvænlegri cn nú og afkoma
útflutningsframleiðslunnar
aldrei erfiðari en síðustu vik-
urnar. — Þjóðin spyr því:
Hvar er „pennastrikið“, sem
öllu átíi að koma til betri veg-
ar, að sögn núverandi forsæt-
isráðherra, er hann var að
magna dýrtíðina með aðstoð
hins landlausa lýðs kommún-
istaflokksins á árunum 1944—
1947? Málgögn Sjálfstæðisfl.
hafa til þessa ekki sagt neitt
um undramátt þessa leyni-
vopns Ólafs Thors.
Thors, grípa til þess leynivopns
til bjargar efnahagsmálum þjóð-
arinnar? Eða þykir honum enn
engin þörf á slíkum aðgerðum?
Aðalfimdur Rækt-
unarfélagsins
Aðalfundur Ræktunaríélags
Norðurlands var haldinn á Ak-
ureyri 10. þ. m.
Auk venjulegra fundarstarfa
var rætt um að félagið beitti'sér
fyrir búnaðarfræðslu, meðal
annars í framhaldsskólum í
Norðlendingafjórðungi og var
áætluð nokkur fjárupphæð í
þeim tilgangi. Ennfremur var
samþykkt svohljóðandi ályktun
í einu hljóði:
„Aðalfundur Ræktunarfélags
Norðurlands, haldinn 10. des.
1949, lítur svo á, að fræðslumála-
kerfi landsins þurfi hið bráðasta
gagngerðrar endurskoðunar,
einkum með tilliti til þess, að
meiri áherzla verði lögð á upp-
fræoslu og virka kennslu í mál-
efnum og störfum landbúnaðar-
ins og öðru því, er snertir at-
vinnulíf þjóðarinnar.“
Úr stjórninni gekk Stefán
Stefánsson, Svalbarði, og var
hann endurkosinn.
Bæjarstjórnin hafnar
tillögum um frekari
rafmagnssölu
í síðasta tbl. var skýrt frá
samþykkt rafveitunefndar um
sölu á rafmagni til Aðaldals-
rafveitu, samkvæmt tillögu
raforkumálastjóra. Ætlazt var
til þess, að hvert heimili í Að-
aldal fengi 1 kvv. orku frá
Laxárvirkjun, og var slík sala
samþykkt á raforkunefndar-
fundi 21. f. m. gegn tillögu
Steindórs Steindórssonar um
að hafna tilmælunum með til-
vísun til raforkuskorts í bæn-
um. Á bæjarstjómarfundi
íyrra þriðjudag var samþykkt
að hafna málaleilan þessari
með lilvísun til þeirrar stað-
reyndar, að Laxárvirkjun
hefur enga afgangsorku til
sölu og verulegur skortur er
þegar á raforku í bænum. —
Þessi samþykkt mun merkja
| það, að bæjarstjórnin mun
! ekki samþykkja fleiri beiðnir
, um raforkusölu, fyrr en ný-
virkjunin er komin í fram-
kvæmd.