Dagur - 17.12.1949, Side 7
Laugardaginn 17. desember 1949
D A G U R
7
ARKAÐINU
Ely Culbertson: MINN7
INGAR I—II.
Þó að Ely Culbertson hafi ná-
lega hlotið ' heimsfrægð fyrir
kenningar sínar og skarpskyggn-
ar rannsóknir í þágu bridge-ins
og einróma lof og þakklæti allra,
er þá íþrótt stunda, mætti ekki
síður krýna hann lárviðarsveig
„honoris causa“ fyrir byltingar-
sinnuð sjónarmið hans og at-
burðaríkt líf hans í þágu mann-
úðar, andlegra verðmæta og
mannlegra tilfinninga.
„Á þessum síðustu og verstu
tímum“, þegar efnishyggjan
(,,materialismusinn“) sogar fólk
ofan í eins konar andlega kola-
þoku, þar sem örðugt er um and-
ardráttinn, er hressandi að lesa
jafn-róttæka og lífræna bók
eins og „Minningar“ Culbertsons.
Brynjólfur Sveinsson, mennta-
skólakennari á Akureyri, hefir
íslenzkað bókina og honum far
izt þýðingin vel úr hendi, einkum
á fyrra bindinu. Málið er ramm-
íslenzkt — eða öllu heldur ís-
lenzk íslenzka, en ekki sú mol-
búa-láglendings-múga-málleysa,
sem nú er tekin að tíðkast hér í
ræðu og riti. Þessar endurminn-
ingar Culbertsons eru hvorki
þurr og leiðinleg vangaveltuspeki
um útspil, sagnir og kastþröng í
„þridge“ (fáir menn þykja leið-
inlegri af þeim, sem ekki spila,
en bridge-spilarar) né innantóm-
ur fimbulfambs-„reyfari“ í ætt
við framhaldssögur í „Vikunni“
og mörgum öðrum heimilisritum
af sama tæi — eins og sumir
kynnu að ætla af villandi auglýs-
ingum um bókina. Þegar bók er
auglýst hér „spennandi", bendir
það yfirleitt ekki til þess, að hún
hafi bókmenntalegt gildi, en öllu
verra er þó hitt, ef góðir lesend-
ur sniðganga góða bók eingöngu ei 1 bókinni lýsing allra kaup-
mennska. Háleitar og göfgar
hugsanir taka á sig nýjar og nýj-
ar myndir — sálin er eins og
krystall, sem dregur að sér geisla
og varpar þeim svo frá sér í
margs kyns litbrigðum.
Aðalsmerki bókarinnar er ein-
lægnin.
Steingrímur Sigurðsson.
Steindór Steindórsson
frá Hlöðum: LÝSING
EYJAFJARÐAR. Fyrri
hluti.. — Bókaútgáfan
Norðri, Akureyri.
Félög manna í vmsum sýslum
og landshlutum hafa nú um all-
margra ára skeið unnið að því að
gefa út álitleg ritsöfn um ýmiss
konar fróðleik varðandi byggð-
arlög sín og héraðssögu.
Hafa Eyfirðingar orðið heldur
síðbúnir til þess að gera hreint
fyrir sínum dyrum í þessu efni.
En nú hefir hinn stórvirki og
athafnasami náttúrufræðingur,
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um, hafizt handa um að rita Lýs
ing Eyjafjarðar, og er fyrri hluti
hennar nýlega kominn út hjá
Norðra á Akureyri. Þetta er
mikið rit og vandað, 250 bls. á
stærð, prentað á ágætan pappír
og prýtt fjöldamörgum fallegum
myndum.
Er það ætlunin, að ri.t þetta sé
inngangur að miklu ritverki um
héraðssögu Eyjafjarðar, sem.Ey-
firðingafélögin í Reykjavík og
heima í héraði hafa hugsað sér
að koma út með tíð og tíma.
Þetta bindi hefst með almennri
lýsingu héraðsins, en síðan koma
byggðalýsingar, þar sem farið er
sveit úr sveit og lýst öllu því
helzta, sem fyrir augu ber, nátt-
úrufyrirbrigðum, sögustöðum
samgöngum o. s. frv. Jafnframt
menningu og félagslífi.
Þess er að vænta, að Eyfirðing-
■ taki fegins hendi þessari
vönduðu og ýtarlegu héraðslýs-
ingu, því að enginn okkar mun
vera svo fróður um heimasveit
sína, að ekki sé Steindór fróðari.
Á hann miklar þakkir skilið
fyrir að hafa riðið á vaðið með
samningu Eyfirðingarita og er nú
vonandi að fleiri komi í kjölfarið.
Útgáfufélaginu ber að þakka fyr-
ir það hversu myndarlega það
hefir gert ritið úr garði að öðru
leyti.
Benjamín Kristjánsson.
„íslenzk nútímalýrikk“.
Ljóðskáldin virðast ekki eiga
miklu gengi að fagna hjá þjóðinni
síðustu tímum, ef marka má
eftirspurn eftir verkum þeirra á
jví, hversu fáar ljóðabækur
koma nú og að undanförnu á
af því, að þeir hyggja, að hún sé
það, sem kallað ér „spennandi“.
Þó að bókin sé bráðskemmtileg
og spennandi — eins og fyrr get-
ur (einhver ritdómari sagði, að
hún væri skemmtilegasta bók,
sem hann hefði lesið) ætti það
ekki að forða alvörugefnum og |
hugsandi mönnum frá því að
lesa hana ,því að hún sameinar
djúpa alvöru og fjör, skapandi og
bragðmiklar athuganir á mann-
lífinu og skemmtilega frásögn af
minnisstæðum atburðum. Blað
er gefið út í Reykjavík með þeim
fögru fyrirheitum, að það sé
„blað fyrir alla“, þó að það loforð
hafi verið fyrir löngu brotið —
eins og alkunna er. Minningum
Culbertsons má hins vegar með
góðri samvizku gefa þau með-
mæli, að þar sé „bók fyrir alla“,
og mun hver og einn, er bókina
les, sannfærast um það. Bókin er
víðfeðm, fer inn á flest þau svið,
er varða mannlega hugsun. Við
fylgjumst með uppvexti höfund-
arins, margvíslegum þroskastig-
um hans og ýmsum breytingum á
sálarlífi hans og lífsviðhorfi. Líf
hans er samfelldur stormur, stöð
ug dramatísk átök — aldrei
kyrkingur, ládeyða eða meðal-
staða innan hinna fornu sýslu
marka, svo og lýsing Grímseyjar.
í viðbæti er Háplöntuflóra hér-
aðanna umhverfis Eyjafjörð, eft-
ir Ingimar Oskarsson, grasafræð-
ing‘ og eru þar taldar 336 tegund
ir innlendra plantna, sem fundizt
hafa við Eyjafjörð, og getið fund-
arstaða þeirra. Er þessi skrá hin
fróðlegasta fyrir þá, sem við
grasasöfnun fást og góður leiðar-
vísir.
Þessi Lýsing Eyjafjarðar er
ekki aðeins langsamlega ýtarleg
ust lýsing af héraðinu, sem enn
hefir komið út, heldur verður
hún fullkomnasta verk sinnar teg
undar, sem prentað hefir verið
hér á landi. Er ekki að efa, að
höfundurinn er þaulkunnugur
hér á æskuslóðu.m sínum um
staðhætti alla, enda mun hann
eiga mörg spor um byggðir og
óbyggðir þessa héraðs. Kemur
hann og víða við í bók sinni og er
frásögn hans öll fjörlega rituð og
hin skilmerkilegasta.
f síðara hluta ritsins er svo til
ætlazt, að gerð verði nánari grein
fyrir jarðmyndunarsögu héraðs
ins, náttúrufari og gróðurríki,
svo og dýrafræði þess og lofslagi,
Ennfremur lýst atvinnuháttum
mikla og Ijóðræna skáldriti hins
útgefandans, Kristins meistara
Andréssonar ,um „íslenzkar nú-
tímabókmenntir“. En auðvitað er
okkur forðað frá því að heyra
nokltra ljóðlínu eftir jafnóljóð-
ræna menn eins og Fornólf, Gest,
Sigurjón og Guðmund Friðjóns-
syni, hvað þá heldur Guðmund
Inga, Guðmund Frímann og Guð
mund Daníelsson, svo að nokkur
nöfn séu nefnd af handahófi úr
hópi vesalings busanna, sem ekki
standast þeim, köppunum í innsta
búri máls og menningar, minnsta
snúning á sviði íslenzkrar ljóð
listar og fagurra bókmennta!
Borgarastéttin á landi hér, er
vissulega hefir látið bókmennta-
menn, sem þeir Kristinn og
Snorri eru gildir fulltrúar fyrir,
ráða öllu bókmenntamati óg bók
menntasmekk sínum á síðari ár-
um — þótt hún hafi kannske
markaðinn, borið saman við bæk I e^ki alltaf gert sér ljósa grein
fyrir því í hvaða haugi flugan,
sem hún gein yfir, var klalcin, —
mun vissulega ekki láta þessa
fallegu bók vanta á hið andlega
né veraldlega nægtaborð sitt nú
um þessi jól, enda er hún, eius og
áður er sagt, .í sérlega fallegu
bandi, og, því tilvalin gjáfabók,
því að naumast getur það' talizt
neinn höfuðgali, þótt ýmis ágæt
kvæði fljóti með fállegu spjöld
unum og gyllta kilinum.
ur annarra tegunda. Þetta er
raunar harla eðlilegt, þótt ekki
gefist hér tóm til að ræða orsakir
aessa fyrirbrigðis nánar að sinni.
En geta má um það lauslega í
jessu sambandi, að vissri klíku
bókmenntamanna“ í Reykjavík
hefir að undanförnu tekizt
furðulega vel að einoka þessa
listgrein og segja fyrir um það,
hverjir skuli hlutgengnir teljast
á því sviði og hverjir ekki, enda
hefir þessari klíku haldizt uppi,
viðnámslaust að kalla, hvers kon-
ar hlutdrægni og einsýni á þessu
sviði, þannig, að hún hefh’ öðrum
mæði skapað forgyllt skurðgoð
úr litlum leiruxum, en að hinu
leytinu synjað öðrum allrar rétt-
mætrar viðurkenningar. En nóg
um það að sinni. —
„íslenzk nútímalýrikk, úrvals-
kvæði eftir þrjátíu skáld“, nefn-
ist falleg, lítil bók, sem Þorleifur
Gunnarsson hefir gefið út, en
Kristinn E. Andrésson og Snorri
Hjartarson hafa valið kvæðin.
Nafn útgefandans er næg trygg-
ing fyrir því, að ytri frágangur
bókarinnar er sérlega vandaður
og smekklegur og bandið fór-
láta gott, og segja má, að nöfn
hinna séu raunar jafngóð trygg
ing fyrir því að sínu leyti, að
hvergi er hvikað um val kvæð
anna frá þrengstu og vilhöllustu
sjónarmiðum klíku þeirrar, er eg
nefndi áðan, enda fáum við nú
að sjá þarna — innan um kvæði
annarra góðskálda — ljóð eftir
Jón Óskar, Hannes Sigfússon,
Jón úr Vör og aðra slíka, að
, # i
ógleymdum Snorra Hjartarsyni
sjálfum, er skenkir sjálfum sér 6
síður í þessu litla kveri, og mun
það raunar bróðurpartur af öll-
um prentuðum ljóðum þessa höf-
undar, sem segja má um öllum
ljóðskáldum fremur að hlotið
hafi viðurkenningu, skáldasyrk
og hvers konar umbun fyrir
væntanleg bókmenntaafrek sín,
meðan hann lá ennþá í sigurkufli
sínum í móðurkviði skáldagyðj-
unnar .Vantar þá raunar ekkert,
er prýtt gæti þetta ,,úrval“ nema
Þjóðleg fræði.
Svo sem eg drap á í síðasta tbl.
verð eg því miður að gera þeim
bókunum tiltölulega lélegust
skil að sinni, er ég vildi þó raun-
ai’ gera hæst undir höfði. Ef til
vill gefst mér betra tóm til þess
síðar að geta þeirra nokkru
rækilegar en nú getur orðið
meðan mér hefir enn ekki unnizt
tími til að lesa þær til nokkurrar
hlítar, en aðeins blaðað í þeim að
kalla. En eg vildi þó ékki láta
undir höfuð leggjast að geta þeg
ar að nokkru jafn girnilegra og
ágætra bóka og Brim og boðar.
frásagna af sjóhrakningum og
svaðilförum, sem Siguvður Helga
son, rithöfundur, hefir samið og
safnað, en Iðunarútgáfan gefið
út í vandaðri útgáfu með miklum
fjölda ágætra mynda. Mun þetta
að líkindum vera álíka merk bók
á sínu sviði og Hrakningar og
heiðavegir eru, að sínu leyti, en
þeirrar ágætu bókar var nánar
getið í síðasta blaði. Þá hefir Ið
unnarútgáfan einnig nýskeð gef
ið út bókina Ævikjör og aldarfar
eftir Oscar Clausen, rithöfund
og virðist hún einnig girnileg til
fróðleiks og skemmtunar öllum
þeim, er söguegum og þjóðlegum
fræðum unna. Síðast — en ekki
sízt — nefni eg sagnaþætti
Benedikts Gíslasonar frá Hof-
teigi, er hann nefnir Smiður
Andrésson og þættir, en Norðri
gefur verk hans veglega út. Er
sú bók rituð af miklu fjöri, hug
kvæmni, dirfsku og — mér ligg
ur við að segja — kappi. Sagn
fræðilegur áróður getur að vísu
PÁLMI JÚLÍUSSON
frá Hvassafelli.
— MINNIN GARORÐ. —
Föstudaginn 9. des. sl. var til
moldar borinn Pálmi Júlíusson
á Hvassafelli. Hann var fædd-
ur 24. marz 1907 að Hvassafelli,
sonur hinna góðkunnu merkis-
hjóna Hólmfríðar Árnadóttur og
Júlíusar Gunnlaugssonar bónda
)ar. Þar í hinum friðsæla og
fagra Djúpadal ólst Pálmi upp
við hin algengu sveitastörf á
mannmörgu heimili í glöðum
systkinahópi. Bar snemma á því
að hann var duglegur og fylginn
sér sem hann átti kyn til og var
sem öll verk léki í höndum hans.
leikjum var hann kappsfullurog
áræðinn, en drenglyndur og rétt-
sýnn ef í odda skarst, sem oft
vildi verða milli ungmenna og
vildi þá úr öllu gott gera og var
manna sáttfúsastur. Pálmi var
hvers manns hugljúfi, alltaf hress
og glaður á hverju sem gekk og
lét lítt á sér sjá þótt stundum
blési kalt, enda fór lífið um hann
hörðum höndum. Konu sína
missti hann í blóma lífsins eftir
skamma sambúð frá tveimur
ungum börnum. En hann lét ekki
heiminn harm sinn sjá og ótrauð-
ur hélt hann baráttunni áfram,
án þess að leysa heimili sitt upp,
sótt oft væri erfitt um hjálp.
Börnum sínum var hann upp frá
)ví bæði faðir og móðir. En nú
pegar mestu örðugleikarnir voru
að baki og bjart virtist framund-
an kom hinn mikli sláttumaður
og greiddi hið stóra högg.
Þegar Pálmi Júlíusson er horf-
inn af sviðinú rifjast upp fyrir
mér hinar fjölmörgu og minnis-
stæðu ánægjustundir frá því við
vorumb litlir drengir, þær minn-
ingar eru margar og yfir þeim
öllum hvílir hin bjarta heiðríkja
eins og hún getur fegurt orðið.
Það er sagt, að þeir deyi ungir,
sem guðirnir elska, en þá rún
mun eg eigi leitast við að ráða, en
fáa hefi eg þekkt, sem hafa verið
jafn vinsælir frá fyrstu kynn-
um til hinztu stundar, sem Pálmi
heitinn var.
Vertu sæll, vinur, og þakkir
fyrir ótal yndisstundir. Megi
heimkoman verða þér hamingju-
söm og eg bið þann, sem öllu
ræður að vera börnum þínum
huggun og líkn. S. S.
þá helzt úrvalskafla úr hinu verið viðsjái-verður, þegar svo
ber undir, og naumast er kapp-
samlegur málfylgjustíll til þess
fallinn að vekja óskorað traust á
fræðilegum niðurstöðum, en
skemmtilegur getur hann verið
og persónulegm-, og hvort
tveggja virðist mér — við laus-
lega yfirsýn — geta átt við um
þessa nýstárlegu og spretthörðu
bók Benedikts frá Hofteigi, sem
ber skýrt vitni um fróðleik, sjálf-
stæða athugunargáfu, rithöfund-
ar-hæfileika og skaphita hans. Á
fræðilegar ályktanir höfundar og
rökfærslu legg eg hins vegar eng-
an dóm, því að eg kenni mig ekki
mann til þess. En vissulega er
bók hans um Smið hirðstjóra og
önnur efni sérlega girnileg til
fróðleiks og skemmtunar.
J. Fr.