Dagur - 17.12.1949, Side 8
8
D AGUR
Laugardaginn 17. desember 1949
ÍÞRÓTIIR OG ÚTILÍF
ÍÞRÓTTIR OG ÁFENGI.
. Eftirfarandi smáklausa var
þættinum send í fyrra:
Áfengi og íþróttir eiga aldrei
samleið.
Á íþróttasíðu danska blaðsins
..Berlingske Tidende“ er greint
frá því, að í borðtenniskeppni
milli Svía og Dana hafi það kom-
ið fyrir, að tveir keppendur Sví-
anna mættu mjög ölvaðir til leiks.
Að sjálfsögðu voru þessir dánu-
menn þegar í stað útilokaðir frá
keppninni og atburðurinn kærð-
ur til sænskra íþróttayfirvalda,
með þeim árangi-i, að þessir „í-
þróttamenn“ munu vart keppa
erlendis fyrst um sinn.“
í þessu sambandi má geta þess,
að í Svenska Idrotsbladet seint í
nóv. sl. er klausa á þessa leið:
„Hatten av — takið ofan fyrir
íþróttasambandi íslands, sem
ekki tekur lengur með silki-
hönzkum á svallaranum og ber-
serknum Gunnari Huseby og
hefur útilokað hann frá íþrótta-
keppni ævilangt.“
Þessa frétt höfum við ekki
annars staðar frá, en sennilega er
hún rétt. Gleðilegt er það, þegar
íþróttirnar megna að leiða menn
á betri veg, forða þeim frá
drykkjuslarki og afbrotum. Má
nokkuð til þess vinna, en þó ekki
hægt að ganga hve langt sem
helzt.
íþróttamenn eiga að vera öðr-
um til fyrirmyndar um lifnaðar-
hætti og framkomu. Og til þeirra
sem í nafni íslenzku þjóðarinnar
fá að keppa á erlendum vettvangi
verður að gera vissar lágmarks-
kröfur í þessu efni — hvort sem
þeir eru heima eða heiman.
Svallandi íþróttamenn á að
senda á hæli, til læknis, en ekki
á afreksmannamót.
Knattspyrnan.
Ungverjar hafa lengi getið sér
góðan orðstír sem knattspyrnu-
menn. Nú síðast unnu þeir Svía
(um 20. nóv.), sama lið, sem hafði
leikið írana svo grátt í Dublin 13.
nóv. Ymsir höfðu spáð jafntefli í
Budapest — en þó veikari von
hinna norrænu. En þegar til kom
varð munurinn geysimikill, leik-
ur Svíanna þótti mjög lélegur
(enski dómarinn taldi þetta aum-
asta leik Svía, er hann hefði séð).
En Ungverjarnir, svartir yfirlit-
um, smáir vexti, voru eldsnarir
og óútreiknanlegir, — léku sér
með þá hávöxnu, ljóshærðu. Ur-
slitin virtust vonum betri fyrir
Svíana, ósigur 5 : 0.
Foringi sigurvegaranna bað
sænsku blaðamennina að geta
þess í blöðum sínum „að hinn
ágæti árangur ungverskra knatt-
spyrnumanna bæri fyrst og
fremst að þakka stjórnarfyrir-
komulaginu og stjórninni í land-
inu“ (!) — Þjóðir sem búa við
„auðvaldsskipulag" virðist von-
lítið um, þegar um knattspyrnu
er að ræða! Kannske það verði
knattspyrnan, sem veldur næstu
„stjórnarbyltingu" hér!
Landsleikir Ungverja þetta ár:
10. apríl Ungverjaland Tékkó-
slóvakía í Prag 2 : 5.
8. maí. Ungverjaland Austur-
ríki í Búdapest 6:1.
12. júní. Ungverjaland ítalía
í Búdapest 1:1.
19. júní. Ungverjaland Svíþjóð
í Stokkhólmi 2 : 2.
10. júlí. Ungverjaland Pólland
í Debrecon 8 : 2.
16. okt. Ungverjaland Austur-
ríki í Vín 4 : 3.
30. okt. Ungverjaland Búlgaría
í Búdapest 5:0.
20. nóv. Ungverjaland Svíþjóð
í Búdapest 5 : 0.
' 'iiii-v' i ,,, .. .
Keþpni Svía í Brazilíu fór þó
enn hraklegar. Það var Ttnatt-
spymufélag Málmevjar, M.. F, F„
sem þangað flaug og ætlaði sér
meirá en varð. Þar byrjuðu þeir
með að tapa með 0:5- og síðan
með 0 : 6 mörkum. Ur því var
hætt að taka þá aívaríega, farið
að draga af sér og tefla ekki fram
beztu mönnum.' En Svíar' hugsa
sér að sýna þeim sterkara lið
næsta sumar — í Svíþjóð helzt.
Hvernig gengur með handknatt-
leikinn hér?
Samkv. mótaskrá í. B. Á. átti
að verða handknattleiksmót .inn-
anhúss hér 4.—11. des. og K: A.
að sjá um framkvæmd. Um mót-
ið hefir ekkert heyrzt enn — og
verður sennilega ekki hér eftir í
þessum mán.
Flandknattleiksráð í, B,. ,A.
segir ekkert.
Satt er það, sem þent er á af
sumum, að við höfum ekki svo
stóra sali til keppni, sem æskilegt
væri. En víða er þó keppt í ámóta
sölum. Hér verður bara að miða
leikaðferð og lið við salinn, þjálfa
menn í liprum samleik og hreyf-
ingu, en ekki áflogum og stöðum
flestra keppenda í röð uppi við
mörkin á víxl!
Handknattleiknum, sem fþrótt,
er að hraka hér og aðsóknin til
tímanna er á sömu leið. Meðan
við höfum ekki stærti sali ættu
þjálfarar okkar að gæta sín fyrir
því, sem ekki-.hæfir, hér . þótt
öðrum geti dugað.
íþróttafólík! ,
Mínnist þess næstu daga, að
enginn hlýtur raunverulega góð
og gleðileg jól, sem ekki lætúr
þess gæta, bæði í orði og verki
að þeir óski öðrum þessa líka. —
Reynið -að gleðja éinhvern um
þessi jól, hjólpa einhverjum
gömlum, snauðum eða sjúkum.
Gefið og fáið.
Gledileg júl!
Verzl. Eyjafjörður h.f.
$
LEiÐBEININGAR
tii kaupenda og lesenda NORÐRA-bóka
Norðra-bækur seljast nú sem óðast upp hjá forlaginu. I gær
I var „Hrakninaar og heiðavegir" uppseld, í dag er „Tvennir
| tímar" og „Göngur og réttir", 2. bindi, uppselt. Næstu daga
I gengur til þurrðar upplagið af „Alit heimsins yndi". „Á kon-
| unas náð", „Smiður Andrésson", „Máttur jarðar" og „Sveitin
| okkar". Vegna pappírsskorts eru upplög minni nú en áður.
I Það eru því vinsamleg tilmæli forlagsins til þeirra. er kaupa
w
<& l* ,
| og safna Norðra-bókum, að þeir dragi ekki bókakaupin, því
*v>
i að gersamlega ómögulegt getur reynzt að útvega þeim þær
| bækur, sem seljast upp hjá forlaginu nú fyrir jólin.
BOKAÚTGÁFAN NORÐRI
NÝJASTA - NÝTT
úrAMARO INTERLOCK
Vögguföt og yagnföt - Prjönasilkikjólar
fyrir 2ja og 3ja ára telpur, fallegir litir.
AMARO-B ÚÐIN