Dagur - 31.01.1951, Page 2
2
D A G U K
Miðvikudaginn 31. janúar 1951
Frétiaforéf úr ÞingeyjcErsýslu:
í STUTTU MÁLI
Dagskrármál landbúnaðarins:
Mill harðindi í
90 tonn af dilkakjöti
Góðvinur Dags í Þingeyjar-
sýslu skrifar blaðinu á þessa leið
nú á dögunum:
„Dagur minn. Það er með þig
eins og karlinn, sem sagði að
aldrei væri gagn af gestkomu,
nema þá heizt ef þeir segðu sitt-
hvað í fréttum, og ekki væri öðr-
um gestum bjóðandi inn nema
þeim, sem leystu vel ofan af
skjóðunni.
ERki veit eg vel hvað gestris-
inn þú ert, ef mann ber að garði,
en hitt veit eg, að alltaf vilt þú
fréttir,.- cr^-yerður líklega seint
leyst ofán áf þeirri skjóðu, sem
þér finnst ofmikið í. Nú er það
svo, að allt sem til frétta getur
talizt flýgur landshornanna á
milli þegar í stað. Verða þá þínar
fréttir eins og gömul vara, þeg-
ar þær koma út til lesendanna,
og vilja þá kannske fáir lesa og
enginn kaupa.
Nú gerast mörg og ill tíðindi.
Árferðið farið að minna á harð-
indin um og eftir 1850, þegar hver
ísaveturinn rak annan, og í kjöl-
farið sigldi heyleysi og fjárfellir,
saman ber veturinn 1859. En nú
virðist annað, meira og stærra,
ætla að bætast við stórhríðar og
stórfenni, og sem gerir allUoff nú
lævi blandið. Við sjóndeiláar-
hirng má sjá soralega hnoðra og
klakka. sem okki 'pari' nema rétt
að- fýsa-í, -og er þá skollinn• á a 1-
gleymings háskabylur, sem
grandar öllu sem fyrir verður.
Verður þá hinn mikli snjór, sem
fellur á jörðina á næstu árum,
allur litaður blóði, líkt og í Finn-
landi 1939, þegar finnski snjórinn
drakk blóðið úr tugum þúsunda
af þjóðinni, sem Rússar myrtu á
svívirðilegasta hátt.
Enginn veit hvenær birtir, eða
hvár staðar nemur, nema að
vera skyldi sá, sem mennirnir
eru almennt hættir að reikna
með. Nýlega mátti lesa það í einu
af tímaritum, sem gefin eru út
hér á landi, að innan fárra ára
yrði kominn fram sá maður, sem
einn væri fær um það, að skapa
frið, — varanlegan frið á jörðu.
Skyldu afkomendur okkar geta
sagt árið tvö þúsund: Blessuð var
koma haiis hér á jörðu.
Til frétta gæti talizt að 9. þ. m.
kom eitt af skipum Eimskipafé-
lags íslands til HiTsavíkur og tók
90 tonn af dilkakjöti og sigldi með
það til Ameríku. Aðeins á þrem-
ur höfnum mun skipið hafa tekið
kjöt, um 200 tonn.
Ekki verður um það deilt, að á
miklu veltur, hvernig með þessa
sendingu fer. Hér er um nýjan og
óþekktan markað að ræða fyrir
íslenzkt dilkakjöt. Náist þarna
góður og varanlegur markaður,
fyrir þessa framleiðsluvöru, get-
ur það orðið óútreiknanlegur
hagnaður fyrir íslenzkan land-
búnað á næstu árum.
En fari svo, að þetta yrði fyrsta
flutt út frá Húsavík
og síðasta sendingin til vestur-
álfu, væri verr farið en heima
setið, því að ástæöan væri sú, og
aðeins sú eina, að við hefðum
sent helzt til of mörg prósent af
ull og óhreinindum með kjötinu.
Svo er nú ástatt með innflutn-
ing okkar, að ómögulegt reynist
að fá nothæfar kjötumbúðir, það
sem viðf fáum, er í mörgum til-
fellurn verra en engar umbúðír.
Er greTfijulegt 'tiÞ'þess að' vita; að
við skulunr þurfa að senda kjöt
okkar til Ameríku í druslum. —
Enginn eftirlitsmaður eða yfir-
kjötmatsmáður vár méð skípinu
til að líta á kjötið í frystihúsinu
og fylgjast' með framskipun og
meðferðinni á- kjötinu í lest
skipsins.
Ef dómrur sá, ’,sem neytendur; í
Ameríku kveða bráðum upp urn
kjötið okkar, og hann verður á
þá lupd, sem jnig gi-unar, þá geta
þessii' menn sagt með góðri sam-
vizku. Guði sé lof, að við komum
þar hvergi nærri,
16. þ. m. kom varðskipið Ægir
til Húsavíkur, og náði m.b.
Smára á flot; en hann hefur
verið uppi í fjöru síðan hann
slitnáöi' frá légufærum sínum : í
aftakaveðrinu 10. des. sl., en þá
urðu hér ein^ og víðar ,um land,
’stÓrskaðár bæðí -á sjó’, bg Iándi.
Báturinn, sem er æði mikið bró-
tinn, ér nú kominn til Akureyrar
og, á að.gera þar við hann. Hætt
er við að hann verði ekki tilbúinn
á vertíð, og missir þá hópúr
j:. s .3
manna þav atviiinu.
í þeim .'horkú.stórhríðum, setn
gengu hér yfir fyrir jólin, urðu
Mýyetningar .hart úti með fé sitt
austur á Mývatnsfjöllum, vanta
af því fé allstóran hóp énn, sem
farizt hefur í fönn. Lentu þessir
fjárleitarmenn í brakningum og
mannraunum, og kom sér þá vel,
að þeir voru lítt vanir hlýjum
ofnkrókum né dúnmjúkum
værðarvoðum.
Nokkru fyrir jólin bái'ust hing-
að í sýslu mislingar, hafa þeir
lagst þungt á eldra fólk, og nú
dánir tveir úr afleiðingum þeirra,
gömul kon'a á Tjörnesi, Guðborg
Stefánsdóttir, 16. þ. m. dó Her-
mann Pálsson bóndi í Hlíðskóg-
um í Bárðardal, hann var rúm-
lega miðaldra maður og lætur
eftir sig konu og þrjú börn. 13. þ.
m. var jarðsungin hér í Húsavík
Sigríður Stefánsdóttir, fyrrum
húsfreyja á Hveravöllum í
Reykjahverfi, kona Baldvins
Friðlaugssonar oddvita þar. Sig-
ríður var greind kona og skáld-
ipælt. Rétt í þessa (21. jan.) berst
svo frétt um lát Jónasar Bald-
urssonar í Lundarbrekku, úr
mislingum.
Dag hvcrn og nótt, dunar hríð
á þaki, og frostið málar rósir á
rúðurnar. Inni allur búpeningur,
undir lás og loku, fóðraður a
skemmdum og ónýtum heyjum
LÝSINGAR frcttaritara á
eldgosinu í Lamingtonfjalli á
Nýju Guineu nú á dögunum,
sýna, að hér hefur verið um
ægilegan atburð að ræða. Gló-
andi aska féll yfir 20 fermílna
svæði og eyddi öllu lífi. Um
3000 innfæddir menn fórust í
eldgosi þessu og 34 Evrópu-
menn, þar á meðal nokkrir
trúboðar og fjölskyldur
þeirra.
*
DANSKA STJÓRNIN und-
irbýr nú víðtækar ráðstafan-
ir til þess að stöðva dýrtíðina,
sem hefur vaxið ört í Dan-
mörku síðustu mánuðina. —
Munu stjórnarflokkarnir hafa
samráð við stjórnarandstöð-
una um málið. Rætt er um
kaup- og verðbindingu.
-K
LÖGREGLAN í Nevv York
tók nýlcga ungan Austurrík-
ismann fastan á Idlevvild flug-
velli, er hann var að stíga út
úr flugvélinni. f nolum skó-
hæliuu mannsins.fann hún 700
karöt demanta. Verðmætið, er
talið a. m ,k. 4 millj. króna.
Þetta er stærsta demanta-
sinyglmál, sem komið hefur
upp í Nevv York.
-k
FYRSTA VORSÝNÍNG á
málverkum í Charlottenborg í
Danmörk, var opnuð sl. föstu-
dag. Meðal þáttíakenda í sýn-
ingunni er Jón Stefánsson
listmálari. Sl. miðvikudag
birti Berlingske Tidende
mynd af Jóni og einu mál-
verki hans.
-K
BALLETT-DANSARINX
Friðbjöm Björnsson, hjá Kgl.
'báílettinúm í Kaupmanna-
höfn, dansar um þessar mund-
ir aSalkarhnannshlutverkið í
ballettinum Coppelia eftir
Delibe og fær mjög lofsamlega
dóma.
-¥
f KJÖTSKORTINUM í
Bretlandi, sem enn stendur
hæst, er nú rætt um að flytja
til landsins hreindýrakjöt frá
Norður-Svíþjóð. Deila Breta
og Afgentímimanna um kjöt-
^erðið er enn óleyst. Ilinn
sáralitli kjötskammtur Breta
hefur enn verið minnkaður.
Fiskmarkaður helzt ágætur á
meðan þetta ástand varir, spá
erlend blöð.
-K
DÖNSKU blöðin segja frá
sjötugum manni, sem kom í
heimsókn til kunningja síns,
öldungs á sjötugsaldri, til þess
að rukka hann um 35 krónu
skuld. Kunninginn gat ekki
borgað. Sá sjötugi greip kaífi-
könnuna og lét hana vaða í
höfuð vinar síns og síðan
blómsturpotta. Ur heimsókn-
inni urðu málaferii og krafð-
ist kunninginn 1275 kr. skaða-
bóta fyrir ónýta kaffikönnu,
rifna skyrtu, brotna blómstur-
potta, tapaða vinnudaga, sárs-
auka og meiðsli. Sá sjötugi
„kraftakarl“, eins og blöðin
nefna liann, fékk auk þess 30
daga iugthúsdóin, skilorðs-
bundinn að vísu, með tilliti til
aldurs hans.
frá sumrinu, sem aldrei kom. En
úti flögra litlu vinirnir okkar,
svangir ’ og kaldir. Þar berjast
þeir upp á líf og dauða fyrir lífi
sínu og tilveru. Munum eftir
þeim, þeir þurfa líka að borða
eins og við, það endurgjalda þeir
margsinnis með sínum samstillta
söngkór þegar sólin skín og sum-
ai'ið kemur.“
Áburðarpantanir 1951
Áburðarsala ríkisins hefur nú
auglýst að áburðarpantanir skulu
gerðar fyrir 20. febr. Verða þá
allir, sem hafa túnvækt, garðrækt
eða ræktun annars nytjagróðurs,
að hafa pantað áburð fyrir næsta
uppskeru ár. í þessu tilefni ætla
ég að ræða nokkur atrið’i hér að
lútandi og þá sérstaklega í sam-
bandi við túnræktina. Garðrækt-
in verður að bíða þar til síðar, að
öðru leyti en því, að hér á eftir
verður tilgreint áburðarmagn,
sem heppilegt mun vera að nota
í 1002 garð.
Fyrst vil eg setja upp smá töflu,
er sýni þær áburðartegundir, sem
verða á boðstólum næsta vor,
ennfremur verð þeirra við skips-
hlið og auk þess innihald þeirra
af hreinum efnum.
Ammonsúlfatsaltpétur Hrein efni 26.0%
Kalksaltpétur 15.5%
Þrífosfat 45.0%
Súperfosfat 20.0%
Kalí, brennisteinssúrt 50.0%
Trfjllanijöi 20.5%
Kalkammonsaltpétur 20.5%
Reiknað með 15% hækkun á
saltpétri, 20% hækkun á kalí og
25% á foísfórsýruáburði. Er hér
vitanlega um áætlun að ræða, en
ætti ekki að vera langt frá þeirri
hækkun er vænta má, samkvæmt
auglýsingu áburðarsölunnnar.
Við þetta verð bætist smásölu-
álagning og annar óhjákvæmi-
legur kostnaður, svo sem upp-
skipun',' hafnargjöld o. fl. og tel
eg óvarlegt að reikna með minni
kostnaði en 20% á ofan tilgreint
verð og þa’i' að auki kemur svo
flutningskostnaður á áburðinum
beim til bænda. Er sá liður mjög
■breytilegur eftir því hvað býl-
ið er langt frá verzlunarstað. —-
Verður því hver og einn að gera
upp þann kostnað hjá sér.
Hvaða tegundir af áburði S nú
að panta? Munurinn á notagildi
næringarefnanna í köfnunarefn-
isáburðinum er mjög lítill, og því
nokkuð sama hver tegundin er
pöntuð. Ammonsúlfatið kom
Áburður
í ]00m- garð
Kalkammonsaltp.
Ammonsúlfasaltp. . . 6.5 kg
Þrífosfat ............ 5.0 —
Kalí ................. 5.0 —
Við þetta þætist svo 20%, svo
að áburðarkostnað á hvern ha.,
má þyí ætla um kr. 822,00, fyrir
utan flutnigskostnað.
Hér að ofan er gert ráð fyrir
heldur minni notkun af kalí og
fosfór en venja er að ráðleggja til
túnræktar, en það er skoðun mín,
að þessir skammtar dugi full-
komlega á flestum túnum, svo
framarlega að þau hafi ekki verið
svelt af öðru hvoru eða báðum
efnum um lengri tíma. Nú hafa e.
t. v. einhverjir bænduf þá
reynslu að þessir skammtar séu
of litlir eða of stórir og er þá
sjálfsagt fyrir þá, að haga áburð-
arpöntun sinni í samræmi við
sína eigin reynslu. En vegna þess
hversu áburðurinn er orðinn dýr
tel eg rétt að benda á hóflega
notkun hans, eða þá notkun, sem
líklegast er til .þess að gefa mest
í uppskeruauka fyrir hverjar 100
krónur, sem út eru lagð.ar fyrir
tilbúinn áburð. Þar sem hús-
dýraáburðunr er notaður á tún
má yfirleitt gera ráð fyrir, að
notkun kalí og fosfórsýruáburðar
sé ekki þörf og auk þess má
draga nokkuð úr notkun köfnun-
Verð '5,0
Þungi Verð poka lkg Áætl. verð
poka 1950 hr. efni 1951
75 — 83.00 4.25 95.00
100 - 63.00 4.04 73.00
50 - 64.00 2.80 80.00 :
45 - 26.00 2.89 33.00
100 - 100:00 2.09 120.00
50 - 54.00 5.27 62.00
100 kg 87.00 4.24 100.00
fyrst í fyrra og reyndist ágætlega.
‘Tel eg því, að þeir sem fjær búa
ættu að panta fremur ammon-
súlfatið og kalkammonsaltpétur,
til að spara flutningskostað. Um
fosfórsýruáburðinn má segja
sama og um köfnuna refnis-
áburðinn. Báðar þessar tegundir
hafa reynzt ágætlega og því aðal-
lega flutningsspursmál, sem ætti
að ráða, hver tegundin pöntuð
er. Verðmismunur á hreinum
næringarefnum er svo lítill, eins
og sjá má í töflunni að ofan, að
hann getúr ekki talist verulegur
og skiptir þyí ekki máli um val
áburður. Kalksáltpéturinn dr
ódýrastui' af ■■ ■• köfnunarefnis-
áburðinum, en óvíst hversu
mikið fæst af honum.
Þá kemur hér önnur tafla, um
ábui'ðarmegn í garða og tún, og
er þá miðað við að tilbiíinn
áburður sé notaður eingöngu,
auk þess reiknað v.erð áburðarins
miðað við 1 ha. éða 3 dagslátturi í
túni:
Hrein cfni Áburður V e r ð
kg/ha tún pr. híi tún" pri ha tún
75 N 365 kg k'r. 365.00
50 P2Oó 110-' - 176.00
60 K=0 120 - - 144.00
Alls pr. Im kr. 685.00
arefnis t. d. um 1/3 hluta.
Nú er rétt að rpyrja: Borgar
sig að kaupa tilbúinn áburð? Er
hann ekki orðinn það dýr að
bændur eigi að draga úr notkun
hans?
Hvoi;t tveggja vil eg svara á þá
leið, aS það borgar sig ekkert eins.
vel fyrir bændur og að kaupa
tilbúinn áburð.
Vandinn er bara sá að nota
hann í réttum hlutföllum og nota
hvorki meira eða minna, en
nauðsynlegt er, til þess að
tryggja góða uppskeru. Því að
vitanlega er hægt að misnota til-
búinn áburð á þann veg að
notkun hans gefi ekki eins mikið
í aðra hönd og vænta megi, en
í þetta sinn gefst ekki rúm til að
rökræða það nánar.
—o—
Til skýringar fyrrgreindum
spurningum vil eg setja fram
nokkrai’ tölur varðandi þann
uppskeruauka er vænta má við
notkun lilbúins áburðar í þeim
hlutföllum, sem að framan er
getið. Styðst eg í því samþandi
við tilraunir gerðai' hér í Gróðr-
arstöðinni:
Vaxtafauki pr. ha.
Eftir saltpétur (75 kg N) má vænta .............. 20—30 hesta hcys
— fosfórsýruáburð (50 kg J *-().) ............ 5—10 — —
— kalíáburö (60 kg K,0)....................... 2— 7 — —
Alls pr. helitnm 27—47 hesta hcys
(Framhald á 9. síðu).