Dagur - 17.10.1951, Side 10
10
D AGUR
Miðvikudaginn 17. október 1951
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Truitt Yenni
8. DAGUR.
(Framhald).
Stafford þurfti ekki framar að
skipta sér af samtalinu og hafði
því betra tækifæri en áður til að
grandskoða stúlkuna. Hampton
hafði ekki skjátlast. Hún var
jarðbundin að vísu, og enda þótt
honum mundi ekki hafa dottið
E1 Greco í hug varð því ekki
neitað, að yfir henni hvíldi ein-
hver fínleiki í byggingu og yfir-
bragði, sem lyfti henni upp fyrir
hið hversdagslega. Hann gat ekki
annað en dáðst að hinum reglu-
legu andlitsdráttum. Það var
eitthvað djarfmannlegt og þó
dularfullt við allt yfirbragð
hennar. Það mundi ekki nauð-
synlegt að geta persónunnar svo
mjög í bókarumgetningunum.
Auðvelt mundi að fá fyrsta flokks
ljósmynd, ef réttur maður væri
sendur á vettvang. Stafford
horfði á hana með augum fag-
mannsins og sá, að hún gaf hon-
um líka nánar gætur, og vitn-
eskjan um það skemmti honum.
Allt í einu stóð hann á fætur.
„Jæja, fröken Goodbind, eg verð
að vera kominn til New York
aftur í kvöld. En Hampton liggur
ekki eins mikið á. ... “
„Nei, en eg fer samt með þér,
drengur minn, ungfrú Goodbind
ætlar að borða með mér kvöld-
verð hjá Saddlers. Þú ættir því
að fresta burtförinni, svo að þú
getir borðað með okkur. Bókin
er... . “
„Nei, þakka þér kærlega fyrir
hugulsemina. En það er einmitt
vegna bókarinnar, sem eg þarf
að fara. Það er nefnilega bóksala-
fundur í fyrramálið." — Hann
sneri sér að Faith Goodbind og
horfði lengi og rannsakandi á
hana. Þetta var stúlkan, sem
hafði skrifað bókina góðu, —
bókina, sem innihélt hárfínt háð
og viðkvæmar og einlægar til-
finningar. Honum fannst hann
þekkja þessa stúlku af bókinni.
Eigi að síður mundu þau skilja
nú sem tveir ókunnir menn. —
Hann sagði allt í einu og yfir-
vegað: „Fröken Goodbind; það
tilheyrir bókaútgefendum að
vera svartsýnir. Við höfum það
álit að vera ákaflega varkár stétt
manna, rétt eins og læknirinn,
sem skrifar lyfseðil handa sjúkl-
ingnum. Hann gefur honum til
kynna, að hann vilji hjálpa hon-
um til heilsu aftur, ef maður vill
sjálfur reyna, en hann minnir
líka á, að ekki má búast við of
miklu eða of fljótt, heldur verð-
ur maður að bíða og sjá til.“
Hann þagnaði og brosti við og
hún brosti líka. Ókunnugleikinn
virtist fjarlægjast.
„Varkárnin er nauðsynleg,"
hélt hann áfram, „og sjálfsögð.
Enginn veit fyrirfram örlög bók-
ar. En persónulega held eg að
yðar bók....“ Hann þagnaði
aftur. Gprði sér. ljóst,,að ,þann gat,
ekki farið'að rökræða bókina. —
„Eg hef mikla trú á henni,“ sagði
hann, og yissi vel að orðin hljóm-
uðu' eins og. inniháldslaust kur-
teisishjál- ■ ‘ ■':
En hann sá, að hún skildi hvað
það var, sem hann var að reyna
að segja henni. Og aftur kom sú
tilfinning yfir hann, að þau værú
ekki ókunmig. '
Hann gekk út í áttina til bíls-
ins. „Jæja, Hampton," sagði hann
í spurnartón um leið.
Hann hélt bílhurðinni opinni
fyrir Hampton, settist síðan
sjálfur við . stýrið. Hampton
kvaddi ungfrúna mpð tilgerðar-
legum innileik, en , Stafford lét
sér nægja að kinka kolli í kveðju
skyni. Hann var þögull á leiðinni
til baka til veitingahússins. Lík-
legast var heppilegast, hugsaði
hann, að viðskipti útgefanda og
höfundar færu eingöngu fram
með bréfaskriftum. Ef maður
þekkti bók eins vel og hann
þekkti „Sumardaga", vissi maður
í rauninni þegar of mikið um
höfundinn.
Þetta hafði augsýnilega líka
verið skoðun Faith Goodbind. —
Hann hefði mátt sjá það í tíma í
stað þess að hjálpa Hampton að
reyna að veiða meira upp úr
henni. Ef bókin seldist eins vel
og hann hafði ástæðu til að ætla,
mundi krafan um aukna vitn-
eskju ufn höfundinn færast 'í
aukana og þá mundi hann senni-
lega reyna aftur að fá Faith
Goodbind til að ségja ævisögu
sína og sú tilraun mundi líka
mistakast.
Stafford andvarpaði. Við þessu
var ekkert að gera. Þannig var
það að vera útgefandi.
Faith lagði- aftur hurðina og
hélt af stað í áttina til þorpsins.
Mistur lá enn yfir ánni og teygði
sig upp til landsins. Hún gekk
hægt, og þegar hún kom að
gömlu múrsteinaverksmiðjunni
settist hún og horfði á mistrið og
hvernig sólargeislarnir léku sér
að dreifa því á flótta. Mjólkur-
bílarnir voru að koma til bæjar-
ins. Drunurnar í þeim heyrðust
löngu áður en þeir komu í aug-
sýn. Þarna kom George Hauer
akandi og hún veifaði til hans og
hann kinkaði kolli, og svo var
eins og hann 'myndi allt í einu
eftir einhúerju, því að hann
stöðvaði bílinn.
„Snemma á fótum í dag,“ sagði
Georg.
„Já,“ svaraði hún.
„Eg heyri að þú hafir fengið
heimsóknir þessa dagana. Eg ók
þessum náunga til gistihússins
sjálfur. Vissi samt ekki, að hann
væri hér til þess að heimsækja
þig.“
„Jæja,“ sagði hún. — (Frh.).
Frímerkjasafnarar!
•
Séndið mér 100 íslenzk frí-
merki, ég sendi 200 erlend
um liæl.
Jóhannes Árnason,
Patréksfirði.
H j ó n,
sem hægt er að treysta, geta
lengið létta vinnu í vetur
\ ið þjóðbraut. Gott, nýlegt
íbúðarhús.
Afgr. vísar á.
Menntaskólanemi,
sent les 5. bekk utanskóla,
óskar eftir atvinnu hálfan
daginn eða lengur. Margs
konar vinna kemur til
greina. — Þeir, sem þetta
vildu athuga, hringi vin-
samlegast í síma 1262.
Eldri-dansa-klúbbur
byrjar vetrarstarfsemi sína
með DANSLEIK að Lóni
laugardaginn 20. okt. n. k.
hefst kl. 10 e. h. — Félags-
skírteini verða afgreidd á
sama stað föstudagskvöld
frá kl. 8-10.
STJÓRNIN.
S k ú r,
; á Gleráreyrum, til sölu.
Afgr. vísar á.
Til sölu
með tækifærisverði: Ryk-
frakki og liettuúlpa á 12—
14 ára dreng, hvort tveggja
nýlegt.
Upplýsingar í síma 1174.
Nýborin kýr
til leigu.
Afgr. vísar á.
Lamb,
með marki: Gagnbitað h.,
sneitt aftan v., var mer
dregið. — Eigandi vitji þess
og borgi áfallinn kostnað.
Aðalsteinn Einarsson,
Helgamagrastr. 24,
Akureyri.
Til sölu:
Ný, vönduð gaberdine-föt,
dökkblá, meðalstærð.
Upplýsingar í síma 1408.
Vil selja
snemmbæra kú.
Afgr. vísar á.
Jarðarför
AÐALSTEINS SIGURÐSSONAR
fer fram laugardaginn 20. október og hefst kl. 1 með bæn á
heimili hins Iátna, Munkaþverárstræti 20.
Aðstandendur.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að
SOFFÍA JÓNSDÓTTIR, Hóli,
sem andaðist á heimili sínu 9. október síðastliðinn, verður
jarðsungin að Munkaþverá föstudaginn 19. okt kl. 1 e. h.
Móðir og systkini.
<3Bt
Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
GUÐJÓNS DANÍELSSONAR, Hreiðarsstöðum.
Anna Jónsdóttir og börn.
Alúðarþakkir öllum þeim, sem heiðruðu mig með
heimsóknum, gjöfum og skeytum á fimmtugsafmœli
minu.
ODDDUR KRISTJÁNSSON.
Vatnsrör
Vi 2”, fyrirliggjandi.
Einnig rör til miðstöðvarlagna.
Miðstöðvardeild KEA.
Nýtt!
Nýtt!
Sólar-sápuspænir
frá SJÖFN
Kr. 6.75 pakkinn
Reynið þessa nýju sápuspæni.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeifclin og útibú.
Hrossakjöt
Seljum í haust hrossakjöt í heilum og hálfum
skrokkum. Söltum fyrir þá, er þess óska. —
Höfum fyrirliggjandi tóm ílát, hálftunnur og
kúta. — Gjörið pantanir yðar sem fyrst. —
Sendum heim.
Kjötbúð KEA.
Sími 1714.