Dagur - 24.10.1951, Page 8
8
D A G U R
Miðvikudaginn 24. október 1951
í allan viðkvæman þvott.
Sá
'1
MALTO-öIgerSarpakkar
fást í
Brauðgerð Kr. Jónssonar 8c Co.
'1
APRICOSUR
SVESKJUR
RÚSÍNUR
Blandaðir ávextir koma um mánaðamótin.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörucleildin og útibú.
Mslliskyrfur - Bindi
Kaupfélag Eyfirðinga
V efnaðarvörudeild
MÓÐÍR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 6. síðu).
framleiddir hér á Akureyri sokk-
ar og skór, sem eru sérstaklega
heppilegur og góður vetrarfóta-
búnaður. Nýju Iðunnar-skórnir
eru með þykkum sólum, vel fóðr-
aðir, mjúkir og þægilegir á fæti
og fara vel. Þeir eru í senn hinir
sterklegustu og smekklegustu. —
Ullarsportsokkarnir frá Fata-
verksmiðjunni Heklu, eru mjög
góðir vetrarsokkar til þess að
vera í utan yfir þunnum sokkum.
Sokkar þessir eru framleiddir í
ýmsum stærðum og litum, það er
teygja í þeim að ofan, svo að auð-
velt cr að smeygja þeim upp á
legginn og fara úr þeim aftur, ef
of heitt reynist inni fyrir ullina.
Þetta ér fótabúnaður, sem við
getum gert að okkar vetrartízku
og sem sómir sér vel í okkar
kalda landi.
A. S. S.
Verðið lækkar, Jiegar
austan-járntj'aldsvör-
urnar eru uppseldar
Nýlega er orðin mikil verð-
lækkun á hveiti — 20% — og
samsvarandi á brauðum. —
Ástæðan er sú, að ungverska
hveitið er nú loks búið og
komið er til landsins kanadískt
'hveiti. Er ekki nóg með að það
sé mun ódýrara, heldur er það
mun betri vara og þar að auki
í miklu þrifalegri og geðslegri
umbúðum en ungverska hveit-
ið. Ungverska hveitið — cins
og pólsku kolin — hafa sýnt
þjóðinni hversu hagkvæm eru
viðskipíin við Austur-Evrópu-
ríkin, en um þau viðskipti hafa
kommúnistar hér jarmað ár-
um saman. Víst má telja, að ef
kol væru flutt inn frá Ameríku
en ekkí Póllandi, mundi kola-
verðið lækka, þrátt fyrir það
að flutningsgjald írá USA hlýt-
ur að vera miklu hærra en frá
PóIIandi vegna fjarlægðarinn-
ar. — Þjóðin hefur lært af því
að hafa þurft að nota ung-
verskt hveiti nú um skeið eins
og hún lærir af því dag hvern
að brenna pólskum kolum, sem
pólska kommúnistastjórnin sel
ur okkur fyrir lireint okur-
verð, ef miðað er við kolaverð
á heimsmarkaðinum yfirlcitt.
Stúlka _
óskast á sveitaheimili í ná-
grenni bæjarins.
Afgr. vísar á.
Ráðskona
óskast á sveitaheimili.
Afgr. vísar á.
Silfurarmband
tapaðist nýlega yfir Eiðs-
völlinn, út Norðurgötu. —
Skilist á afgr. Dags.
Vetrarsjal,
tvíiitt, sem nýtt, til sölu.
Afgr. vísar á.
— Dagur Sameinuðu þjóðanna er í dag!
(Framhald af 7. síðu).
Þessi framlög hafa verið notuð til
hjálpar milljónum barna, bæði í
þeim löndum, sem orðið hafa fyr-
ir eyðileggingu af völdum styrj-
alda og í löndum, sem hafa búið
við fátækt, í Evrópu, Suður-
Ameríku og Asíu. Þessarar al-
þjóðlegu mannúðarstarfsemi mun
rækilega getið í sambandi við
dag Sameinuðu þjóðanna 1951.
Starf Sameinuðu þjóðanna fyrir
þjóðir, sem eklö búa við
sjálfstjórn.
Fleiri börn í Nýju Guineu læra
að lesa og skrifa en áður, fleiri
læknar berjast gegn hitabeltis-
sjúkdómum í Tanganyika en áð-
ur, íbúar Vestur Samoaeyju hafa
fengið meiri íhlutun um þjóðmál,
nýir vegir eru lagðir í Kamer-
oonlandi.
Það eru slíkar framfarir, sem
bandalag Sameinuðu þjóðanna
beitir sér fyrir, í baráttu sinni
fyrir bættum hag og betri lífs-
kjörum íbúanna í lendum þeim,
sem settar hafa verið undir
gæzluvernd. Gæzluverndarráð-
inu eru og sendar bænarskrár og
erindi svo hundruðum skiptir, og
það sendir rannsóknarnefndir til
gæzluverndarlendnanna. — Með
þessum hætti eru Sameinuðu
þjóðirnar á varðbergi um velferð
íbúa gæzluverndarlendnanna, og
flýta þannig fyrir því, að þeir fái
sjálfstjórn og sjálfstæði.
Sameinuðu þjóðirnar hafa og
með vissum millibilum fengið
skýrslur frá 64 lendum, sem ekki
búa við sjálfstjórn. Skýrslur þær
eru kannaðar og rannsakaðar
jafnvel í smáatriðum. Allsherj-
arþingið ræðir þessai- skýrslur og
taka þannig öll bandalagsríkin
nokkurn þátt í framsókn þessara
ósjálfstæðu landa.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
hjálpað til að skipuleggja framtíð
lendna, sem áður voru nýlendur.
Líbya mun undir leiðsögn crind-
reka Sameinuðu þjóðanna verða
sjálfstætt ríki 1. janúar 1952. Eri-
trea mun, eftir að erindreki Sam-
einuðu þjóðanna og-innlend yfir-
völd hafa gengið frá stjórnskipun
landsins og ríkisstjórn er sezt á
laggirnar, verða sambandsríki
Etiopíu, í september næsta ár.
Somaliland er undir gæzlu-
vernd þangað til 1960, en þá
mun það öðlast fullveldi. í öllum
þessum tilfellum eru Sameinuðu
þjóðirnar að hjálpa þeim ríkjum,
sem tekið hafa á sig ábyrgð af
stjórn þessara lendna til þess að
gera þau að fullgildum aðilum í
samfélagi þjóðanna.
Sameinuðu þjóðirnar og þróun
þjóðaréttar.
Alþjóðadómstóllinn, æðsti dóm-
stóll Sameinuðu þjóðanna, hefur
skorið úr lagaþrætum milli ríkja,
— Korfu-málinu á milli Albaníu
og Bretlands og deilu milli
Columbíu og Perú. Þrjú önnur
mál eru nú til meðferðar hjá
dómstólnum.
Þá hefur Alþjóðadómstóllinn
látið stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna í té sjö álitsgerðir um lög-
fræðileg atriði, m. a. varðandi
inntöku nýrra meðlima, um þjóð-
réttarlega stöðu Suð-vestur-
Afríku, um skýringu ýmissa frið-
arsamninga og um aðstöðu ríkja,
sem hafa staðfest alþjóðasamn-
inginn um hópmorð með vissum
fyrirvara.
Þjóðréttarnefndin hefur um
þrjú ár unnið að því að túlka og
bæta um viðurkenndar þjóðrétt-
arreglur. Hún hefur lokið við
skilgreiningu á þeim grundvall-
arreglum, sem viðurkenndar
voru af Niirnbergdómstólnum í
dómunum yfir stríðsglæpamönn-
um í Niirnberg. Eru þær reglur
nú til athugunar hjá ríkisstjórn-
um bandalagsríkjanna. Nefndin
er nú að ljúka við að semja frum-
varp að alþjóðasamþykkt um
brot, er stofna í hættu friði og ör-
yggi mannkynsins.
- AÐ NORÐAÍi
(Framhald af 5. síðu).
unum undan eðlilegri fjár-
magnsmyndun úti á landi. Það
fé, sem með eðlilegum hætti
ætti að' ganga til stofnunar at-
vinnufyrirtækja á vegum kaup
félaganna, til hagsbóta fyrir
heil byggðarlög, mundi í þess
stað sogað suður,-til enn meiri
umsvifa í liöfuðstaðnum en
þegar eru orðin.
Þetta er málefni, er varðar
kaupstaðina og framtíðarmögu-
leika þeirra. Sömuleiðis skipan
verzlunar- og innflutningsmála
og siglingamála, og staðsetning
fyrirtækja, sem stofnuð eru fyrir
ríkisfé. Um þessi mál öll hefði
verið eðlilegt að ræða, er forvíg-
ismenn kaupstaðanna komu sarti-
an á fund. En það mun þó hafa
láðst í þetta sinn og er engin und-
ur. Fólkið í landinu er ekki sam-
hent að endurheimta þann rétt,
sem höfuðborgarvaldið hefur af
því tekið í efnahagsmálunum.
Þeir, sem æltu að vinna saman,
standa sundraðir í pólitísku
flokkunum og þar þykir hverjum
sín flokksstjórn fegurst. Og eftir
höfðinu dansa limirnir. Þannig
mun líka dansinn hafa verið á
bæjarstjórafundinum og er ekki
líklegt að samþykktir hans verði
mörgum í minni, þegar kemur
frarn á jólaföstu, hvað þá lengur.
I
Um leið og við þökkum góð viðskipti að undanförnu,
tiikynnist það heiðruðum viðskiptavinum, að Þvotta-
liúsið „Þvottur“, Akureyri, liættir að taka á móti þvotti
frá og nreð 1. nóvember n. k. Afgreiðslunni verður lok-
að laugardaginn 10. nóv., kl. 4 e. h., og er nauðsynlegt,
að fólk sæki þvott sinn fyrir þann tíma.
Reikningum á þvottahúsið óskast framvísað á af-
greiðslunni fyrir 10. nóvember.
F. h. þvottahússins „Þvottur",
Eiríkur Brynjólfsson.