Dagur - 26.03.1952, Side 5
Miðvikudaginn 26. marz 1952
D A G U R
3
áhugi feroamaíina
En hér skortir mjög margt til þess að geta
veitt ferðafólki móttöku og; Jipft af jivE ^
verulegar gjaldeyristekjur
. . . .«*• f » -9 \ ^ rr -rr*r £ * #•
þaö skjott." ISí Vi'Sunandi áoátaða
fyrir islandsferð i sumar
Raleigh-reiðhjól
væntanleg á næstunni.
Járn- og glervörudeild.
Reiðlijóladekk
Reiðhjólaslöngur
Járn- og glervörudeild
Glósubækur
Járn- og glervörudcildin
Járn- og glervörudeildin
Skíði
Stafir
Bindingar
”'' 1 iyril‘l}<>íú;,og fullorðna.
Skíðavax
Járn- og glervörudcildin
Tauklemmnr
Járn- og glervörudeildin
Svefnpokar
Bakpokar
með gririd, 3 stærðir.
Járn- og glervörudeild.
Trésleifar
Járti- og glervörudeilditi
Rjómaþeytarar
Járn- og glervörudeild
Eggjaskerar
Járn- og glervörudeildin
Kleinuhjól
Járn- 'og glervörudeild.
Pottasleikjur
Jám- og glervörudeild.
Olíubriisar
5 og 10 lítra.
Jám- og glervörudeild.
Jám- og glervörudeild.
Nýkomnir:
Kven-göfuskór
mjög smekklegir.
Skódeild KEA
Barna-lakkskór
Skódeild KEA.
Til leigu
frá 14. maí afgreiðslupláss
og geymsla í kjallara í
Strandgötu 35. — Einnig
minni geyrirslur.
Björn Halldórsson.
Barnakerra
(ensk), sem ný, til sölu.
Afgr. vísar á.
Skíðamót Norðurlands
Skíðamót Norðurlarids hefst á
Siglufirði laugardagfnri 2. marz.
Frá Akureyri fara sjö ménn tii
keppni.
í A-flokki: Magnús Brynjóífsson,
Bergur Eiríksson og Sigtrýggur Sig-
trvggsson. I B-flokki: Þráinn Þór-
hallsson og í C-flokki: Baldur Á-
gústsson, Vaígarður SigurSsson og
Páll Stefárisson.
Tveir hiriir sfðaStneíndu eru úr
Þór, en hinir allir úr K. A.
Til nýja sjúkrahússins. Ky. 200
frá Á. J. — Kr. 500 frá G. B. —
Kr. 30 frá B. G. — Kr. 25 frá
ónefndurn. — Kr. 100 frá K. G. —
Kr. 500 frá Birni Jónssyni, Skóla-
stíg 11. — Gjöf frá Bendikt Ein-
arssyni, Ytri-Bægisá II, Sigur-
línu Einarsdóttur, Sigríði Einars-
dóttur og Steingrími’ Hannessyni,
sama stað, samanl. kr. 500. —
Móttekið á afgr. Dags.
Á áririú 1951 var stærsti doll-
aratekjuliður margra Evrópu-
landa frá amerískum ferðamönn-
um. Þessi staðreynd sýnir betur
en langar orðaræður, hversu
geysilega þýðingarmikil atvinnu-
grein ferðamannamóttakan er
orðin.
I nágrannalöndum okkar, t. d.
Bretlandi, Danmörk, Noregi og
Svíþjóð, er líka mikið gert til
þess að örva ferðamannastraum.
Fyrir forgörigu ríkisvaldsins er
ýmislegt gert til þeás að auðvelda
ferðafólki komuna og dvölina. —
Víða eru starfandi ríkisskipuð ráð
sem fjalla um þessi mál og hafa
vítt staríssvið og nokkurt vald og
fjárráð. Einstakar borgir og hér-
uð leggja áherzlu á að laða til sín
ferðafólk, með auglýsingum og
með því að koma upp aðstöðu til
skemmtana og leika í nágrenni
fagurra staða. Algengt er að lesa í
erlendum blöðum og tímaritum
auglýsingar frá einstökum hér-
uðum eða borgum, þar sem ferða-
fólki er bent á kosti þess að dvelja
þar í sumarleyfi. Þessi lönd líta á
ferðamannamóttöku sem mikil-
væga atvinnugrein, er stendur
jafnfætis mikilsverðustu útflutn-
ingsframleiðslu. Gj aldeyristekj ur
af móttöku ferðamanna eru líka á
ýrrisan hátt notadrýgri fyrir þjóð-
arbúið en gjaldeyristekjur ýmiss
konar . útflutningsframleiðslu.
Aðstaða íslands og afstaða
fslendinga.
Hér á landi er mikið búið að
skrafa um möguleika þess að hafa
tekjur af ferðamannamóttöku, en
árarigurinn af skrafinu er sorg-
lega lítill. Staðreynd er, að nú á
þessu vori, þegar erlent ferðafólk
hefur stóraukna möguleika til
þess að heimsækja landið vegna
framfara í samgöngumálum,
stöndum við hörmulega illa að
vígi til þess að taka á móti því og
hafa tekjur af dvöl þess hér. Hót-
elkostur landsins er lítill og ófúll-
kominn. Og þó búið sé að koma
fólki fyrir á hótelum þeim, sem
fyrir eru, er sjaldnast hægt að
benda því á leiki og afþreyingu,
sem fylgir gististöðum erlendis, t.
d. í Noregi og Sviss, en þau lönd
hafa frá náttúrunnar hendi að
ýmsu leyti svipaða áðstöðu og við
til þess að halda erlent ferðafólk.
Hér er t. d. ekki önnur aðstaða til
skíðaiðkana en sú, er náttúran
sjálf býður. Eríitt er að komast í
skíðalandið um vor og fyrripart
sumars, þar eru ekki lyftur og
ekki skálar. Hér eru ekki golf-
vellir, sem gagn er að, ekki að-
staða til skemmtisiglinga á fjalla-
vötnum eða öðrum hentugum
stöðum, lítil aðstaða til þess að
stunda veiðiskap og svo mætti
lengi telja. Loks er skipulag það,
sem er á móttöku ferðamanna og
fyrirgreiðslu allri, harla ófull-
komið og lítið s^mræmt. Á öllum
þessum sviðum er þörf úrbóta og
væri fyrir hendi hér á- landi,
mundi mmtt; , hrelðá 1 þfngað
miklum fjöldá ferðamanna í sum-
af. Erlendu flugfélögin - hafa nú
tekið upþ svonefnda ,,Skytöúfist“
þjónustu, eða ódýrar ferðir með
flugvélúm í iriilli ’heimsálfanna.
Samkeppni flugfélaga dg skipa-
félaga fer harðnandi, fárgjöld
lækka og fleiri óhreyttir borgarar
en áður hafá'ráð á því að eyða
sumarleyfi erlendis. Geýsilegt
fjármagn fylgir öllu þessu fólki.
Þetta fjármagn flýtur fram hjá
okkar landi vegna þess að við
höfum vanrækt að byggja upp
það, sem nefna mætti ferðamanna
iðnað-.Ekki aðeins á sviði hótel-
og veitingamála, heldur og í sam-
bandi við flesta aðra fyrirgreiðslu
við erlent ferðafólk.
Áöstaðá Akureyrar.
Akureyri hefur mikla mögu-
leika til þess að verða fjölsóttur
ferðamannabær í frámtíðinni og
stendur. nær þyí marki að ,.geta
Forsíðumynd á. enskum íerða-
mannapésa, er skipafélag nokkurt
gaf út fyrir nokkrum árum er
það hugðist hefja skennntisigl-
ingar hingað. Úr þyí varð ekki,
en myndin sýnir, að þeir muna
vel Akureyri í slíkum áætlunum.
veitt ferðafólki góða fyrirgreiðslu
en aðrir staðir á landinu. Hér er
betri hótelkostur en annars stað-
ar, fyrir framtaksamvinnumanna,
og hér er auk þess í smíðum stór-
hýsi, sem hentar sérlega vel sem
sumargistihús, en það er heima-
vistarhús M. A. Hvað hótelkosti
við kemui' í næstu framtíðj er
Akureyri fyrirsjáanlega mjög vel
sett. En hvað hefur bærinn upp á
að bjóða á öðrum sviðum? Því
miður allt óf lftiði Skal vikið nán-
ar að því.
Akureyri er vel í sveit sett.
Hingað eru greiðar samgöngur á
landi og í lofti á sumrin. Hér er
sumarfagúrt og þar að auki stutt
og. greiðfært.-til fagurra og sér-
kennilegra staða, svo sem Mý-
vatns, Dettifoss og Jökulsár-
gljúfra,—í Hei'ðubreiðarlindir, o.
s. frv. Héðan má ganga á fjöll og
njóta fagui's útsýnis yfir landið
og héðan má líka sækja á skíða-
brekkur þótt um sumarlag sé, á
Vindheimajökli. í héraðinu eru
góðar silungsár, fjörðurinn er oft
fisksæll Og Pollurinn oftast til-
valinn leikvangur fyrir skemmti-
báta. Fleira mætti telja af því,
sem náttúran býður upp á. En
þetta eitt og möguleikinn til þess
að hýsa fólkið og selja því veit-
ingar, er ekki nægilegt til þess að
erlendir ferðamenn sæki hingað i
stórum stíl.
Um hvað spyrja þeir?
f þessu efni er fróðlegt að at-
huga, um hvao er spurt í sam-
bandi við ferðalög hingað. Það er
fyrirfram.vitað, að hér muni nátt-
úrufagurt og fremur góðviðra-
sarnt, og hér muni hægt að fá
gistingu og mat. En hvað fleira?
Er hægt að leika golf? Því verð-
ur að svara neitandi. Golfvöllur-
inn mun naumast svara kröfum
erlendra golfleikara. En hægt
mundi að koma hér upp 1. flokks
golfvelli. Sli'mir bæir erlendis
eiga vinsældir sínar ekki síza að
þakka góðum golfvelli, þ. á. m.
sumir skozkir bæir. Er hægt aff
fara á skíði til fjalla? Jú, víst ev
það hægt, Vindheimajökull er
ekki langt undan. En enginn veg-
ur liggur að fjallsrótunum, þar er
heldur enginn skáli eða viðlegu-
aðstaða. í Noregi ei'u gistiskálar
jafnvel enn hæi'ra til fjálla-en
væri á fjöllunúm héi' umhverfis
okkur. Er hægt að stunda
skennntisiglingar? Víst væri það
hægt. Pollurinn, já og gjörvállur
Eyjafjörður, er ágætlega til slíks
fallinn. En til þess að Sigla, þarf
skip. Engar snekkjur til siglinga
eru hér til, ekki heldur hraðbát-
ar né aðrir bátar, sem ferðamenn
gætu fengið leigða gegn hóflegu
gjaldi til þess að leika sér á Poll-
inum, við siglingar, við fiskidrátt
o. s. frv. Er hægt að fá íslenzka
hesta til ferðalags um nágrcnnið?
Víst ætti það að vera hægt, en ér
þó téepást eins og stendur. Þetta
atriði ætti þó að vera létt vérk að
leysa. Er hægt að fá að veiða sil-
ung eða lax? Þessu verður oftast
að svara neitandi. Silungsár hér-
aðsins eru ýmist eyðilagðar af
rányrkju eða lokaðar ferðamönn-
um af ýtnsúrn ástæðum. Eiúnig
þessu mundi hægt að breyta á
nokkrum árum, ef hafizt væri.
haridá um það. Þannig mætti
lerigur halda áfram að telja upp
ýmislegt, sem ferðamenn spyrja
um Qg sækjast eftir. Þeir láta sér
ekki nægja að sitja hér auðutti
höndum og horfa á sólarlagið. —■
Þeir viljá aðstöðu til þess að sjá
meira en hægt er úr sæti sínu, og
þeir vilja aðstöðu til leika og'
skemmtana. Allt þetta er líka.
hægt að veita þeim og láta þá
greiða það hátt gjald fyrir, í er-
lendum peningum, til þjóðarbús-
ins, að slík starfsemi beri sig, og
veiti jafnframt fjármagni og at-
vinnu til heimamanna. Á þessum
vettvangi eru stórfelldir mögu-
leikar vanræktir, möguleikar,
setti fara stækkandi nú meS
hverju ári, með aukinni sam-
(Framhald á 11. síðu).