Dagur - 26.03.1952, Blaðsíða 8
DAGVR
Miðvikudaginn 26. marz 1952
- Öflugur miðflokkur er kjölfesfa þjóðfélagsins
(Framhald af 7. síðu).
sjón, verði leiðarsteinn lýðrasðis-
þjóðanna um næstu 100 ár.
Þriðji krafturinn!
Fyrir fimm árum var jafnaðar-
mannastjórn í Frakklandi að berj-
ast fyrir lífi sínu og tilveru, með
Gaullista til hægri við sig og
Thorez og kommúnista hans til
vinstri, og orrustugnýrinn var mik-
ill. Þá var það, að hinn aldni og
hugrakki jafnaðarmannaforingi Le-
on Brum, benti á hina tvöföldu
hættu, sem hverju lýðræðisríki
stafar frá kommúnisma og því
afturhaldi, sem starfsemi komm-
únista vekur í hverju þjóðfélagi.
Það sem við þörfnumst umfram
allt í Frakklandi, hrópaði hann, er
þriðji krafturinn, sem berst við —
hvort tveggja öfgarnar og einræðis-
öflin en fyrir jákvæðum stefnu-
skrám, fyrir pólitísku frelsi og
efnahagslegu öryggi. Þriðji kraft-
urinn! Hugmyndin hlaut mikinn
byr og fylgi milljóna óbreyttra
borgara, sem fannst þeir vera að
farast inniklemmdir í átökum öfga-
flokkanna til hægri og vinstri. —
Menn skildu það, að það er nauð-
synlegt að berjast fyrir lýðræðis-
hugsjónina af eldmóði, kommún-
istar og fasistar mega ekki vera
einir um baráttudug.
í Frakklandi var undirstaða
þessa þriðja krafts, hinir friðsömu
jafnaðarmannaflokkar. En þessi
pólitíska hreyfing var engan veg-
inn stofnuð á grundvelli sósíalískra
kennisetninga. Ognunin, sem kem-
ur frá einræðisöflunum í austri,
nær til miklu fleiri og stærri sviða,
en aðeins hihs fefnahagslega 'skip’u-
lags þjóðanna. I Frakklandi skildu
hinir lýðræðissinnuðU jafnaðar-
menn það, að bezti bandamaðurinn
gegn ofbeldi kommúnista var
frjálslynt fólk og lýðræðissinnar í
þeim borgaralegu flokkúm, sem
kallaðir hafa verið kapítalískir.
Þannig standa saman hægfara
vinstrimenn og lýðræðissinnaðir
hægrimenn, sem svo eru kallaðir,
gegn hinum öfgafullu vinstriöflum
— þ. e. kommúnistum, — og gegn
hinum öfgafullu hægriöflum, þ. e.
fasistum og flokkum, sem nálgast
þá, eins og Gaullistaflokkurinn í
Frakklandi. Þessi nýja skipting
sýnir okkur í einu vetfangi, hversu
blékkjandi það er að nota orðin
„vinstri" og „hægri“ og þykjast þar
með hafa skilgreint hið pólitíska
svið. Hin sameinuðu vinstriöfl,
sem stundum er talað um, er blekk
ing. Það er ekki hægt að sætta eða
sameina frelsið annars vegar og
einræðið og ofbeldið hins vegar.
Þegar við tölum um vinstriöflin,
eigum við annað tvéggja við
kommúnista eða ahdkommúnista
og það er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir því, að þar er ekkert
samband í milli og þessi vinstriöfl
svokölluðu eru ekki ein heild, held-
ur miklar andstæður. Við verðum
einnig að gera okkur ljóst, að hin
lýðræðislegu vinstriöfl og hin and-
fasistísku hægriöfl eiga sameigirt-
lega, trúna á frelsið, og frjálst
þjóðskipulag, og skoðanamismunur
um efnahagskerfi slíks þjóðskipu-
lags getur jafnast með frjálsum
umræðum og löglegum ákvörðun-
um. Þegar við höfum gert okkur
þetta ljóst, er kominn timi til þess
að hætta að tala um „vinstri" og
„hægri“, rétt eins og ekkert væri
þar í milli. Því að von framtíðar-
innar um frjálst og hamingjusamt
þjóðfélag liggur vissulega í miðj-
unni, í centrum, — í sigri þeirra
afla, sem eru einlægir fylgjendur
þegniegs frelsis, löglegra athafna
og lýðræðislegra ákvarðana í póli-
tískum jafnt sem efnahagslegum
greinum. Og það gefur því að
skilja, að báðjr öfgaflokkarnir til
hægri og vinstri, muni mjög beina
geiri sínum að þessari miðju, að
þeirri fylkingu, sem héldur þjóð-
félagsskipuninni saman, varnar því
að hun rifni í átökum öfgaflokk-
anna- Hvorki fasismi né kommún-
ismi geta sigrað, ef hægt er að
benda með rökum á lýðræðislegan
meðalveg, sem innibindur von um
frélsi ,-e:instaklmf>anna og eínahags-
legt öryggi þeirra. Eyðilegging þess
arar-1' TrriHileiðar "er - keppikefli
hvort tveggja öfganna, eins og
dæmin 'frá' Frakklándi sýna, þar
sem bæði Gaullistar og komm-
únistar standa saman i þinginu um
það að reyna að bregða fæti fyrir
ríkisstjórnir miðflokkanna frönsku.
Eldmóður hugans.
írska skáldið Yeats sagði spá-
mannleg orð fyrir lahgalöngu. Þau
eru eitthvað á þessa leið:
„The best lack all conviction,
while the
worst are-full of passionate
intensity.“
Eða íauslega útlágt: Ftina beztu
skortir alla sannfæringu, á meðan
hinir verstu; eru fuilir af eldmóði
hugans. •; -
I þessu er fólginn mikill sann-
leikur og sorglegur.
Ofgamennirnir éru fullir af eld-
móði hugans, en við, sem teljum
okkur til miðflokkanna, hinna frið-
sömu borgara, sem vilja réttlátt
þjóðfélag og lýðræðislega þróun
— skortir þann sannfæringarkraft,
sem hvetur ,til pólitískrar starfgemi
og pólitisks áhuga.
Og þá er eg aftur kominn að þvi,
sem eg sagði í upphafi um tizkuna
á Islandi. Það er tizka hér að tala
ill^um stjprnmái- .. En hafið þið
nokkru sinni heyrt kommúnista
segja sem svo: -,TEg hef andstyggð á
stjórnmálum og vil ekki koma ná-
lægt þéim og ekki déttur mér’ í hug
að kjósa við næstu kosningar.“ —
Nei, eg er viss um að þetta hafið
þið aldrei heyrt af rpunni komm-
únista. Þessi orð þekkjast ekki í
hópi þeirra, sem eru „fvtllir af eld-
móði hugans,“ þau finnast hins
vegar meðal okkar, sem fyllum
lýðræðisflokkana, af því að okkur
skortir sannfæringarkraftinn eins og
Yeats sagði. Þetta þarf að breytast.
Lýðræðishugsjónin og sóknin að
réttlátu þjóðfélagi, þarf að kveikja
eldmóð í hugum manna. Öfgaflokk-
arnir báðum megin við okkur, upp-
skera einnig úr þessum akri, því að
vegna þess að þennan eldmóð hug-
ans skortir, er stjórnarfarið slapp-
ara en það ætti að vera, gagnrýnin
á stjórnarathafnir tækifæriskennd
ari óg óstöðugri en hún ætti að
vera og framkvæmd lýðræðisins í
heild hvergi nærri eins góð og hún
gæti verið, ef mikill fjöldi þrosk-
aðra og ábyrgra kjósenda stæði
jafnan á verði uiíi heiður þings og
þjóðar og réttlætið í opinberu lífi.
Hlutverk Framsóknarflokksins.
Framsóknarflokkurinn er milli-
flokkur. Hann hefur á stefnuskrá
sinni hiná gullnu leið meðalhófs-
ms í andlegum og éfnaiegum sam-
skiptum þegnahna. Þetta meðalhóf
er samvinnustefnan, serh er leið
réttlætisins og lýðraeðisins í efna-
legum .samskiptum.
Framsóknafflokkúrinn' vill efla
og styrkja hið lýðræðisléga centr-
um þjóðfélagsins, hann telur það
kjölféstu þess og' tryggásta vörð
um frelsið. Það fer því að líkum,
að hann. eigi hendur sínar að verja
frá öfgunum til beggja handa.
Kommúnistar vilja flokkinn feigan,
þeir kalla hann „afturhaldsfiokk"
og reyna þannig að fæla frjáls-
iynda menn frá þátttöku í starfi
flokksins. En hverjir eru meiri aft-
urhaldsmenn en hinir glákom-
blindu kommúnistar, sem vilja
varpa fyrir bórð öjlu frelsi í þjóð-
félaginu og dýrka einræðisskurð-
goð? Þeir eru engir vinstrimenn,
þeir eru á sumum sviðum hinir
öfgafyllstu hægrimenn þessa þjóð-
félags. En Framsóknarflokkurinn
fær skeyti úr fleiri áttum. Það er
engin tilviljun, að sótt er fast að
samvinnufélögunum í landinu úr
hinni áttinni. Að þeirri sókn standa
ekki hinir rólyndu, friðsömu,
íhaldssömu borgarar, sem enn finn-
ast innan Sjálfstæðisflokksins.
Henni stýra þeir, sem nú eru
komnir þar til meiri áhrifa, einka-
hagsmunamennirnir með öfgaskoð-
anirnar, sem eru yzt til hægri í
flokknum. Þeir vilja, alveg eins og
kommúnistar, ryðja burt kjölfest-
unni, hinni lýðræðislegu samvinnu-
hreyfingu. Hér, eins og í Frakk-
landi, standa öfgamennirnir á bæði
borð saman í sókninni að traust-
asta og heilbrigðasta hluta þjóð-
félagsins. I þessari baráttu ættu
Framsóknarmenn og lýðræðissinn-
aðir jafnaðarmenn að standa sam-
an. En það eru sorgleg snnindi, að
svo er ekki. En það er saga út af
fyrir sig, sem ekti gefst tími til að
ræða nánar að sinni.
Aukning kjölfestunnar.
í því pólitíska ölduróti, sem nú
gengur yfir er það beinlínis
lífsnauðsyn, að centrum þjóð-
félagsins — hin rólegu,
íhyglu, frjálslyndu öfl — fái
staðist þau óveður, sem nú ganga
yfir. Þessari skyldu verður bezt
gegnt, ef lýðræðisfylgjendur end-
urvekja og skerpa grundvallar-
hugsjón lýðræðisins hið innra með
sjálfum sér, skilja það og finna, að
hún lifir ekki af sjálfri sér, heldur
þarfnast hún eldlegs áhuga og heil-
brigðrar, stjórnmálalegrar starf-
semi. Þroskaðir borgararvarpaekki
lýðræðishugsjóninni fyrir borðþótt
þeim mislíki stjórnarathtöfn eða
einstök framkvæmd kjörinna full-
trúa, og þeir láta ekki hrekja sig af
leið, þótt pólitísk gerningarveður
— sem kommúnistar standa stund-
um að — gangi yfir þjóðfélagið.
Þeir leggja fram krafta sína sem
þegnar lýðfrjáls þjóðfélags, til þess
að bæta stjórnarfarið og vísa því á
réttan veg. Framtíð lýðræðisins á
Islandi, sem annárs stáðar
stendur og fellur með centrum
hinni öruggu kjölfestu þjóðfélags-
ins og þeirri frjálslyndu umbóta
leið, sem henni er tengd. Þess
vegna ber okkur að leggja fram
krafta okkar til þess að styrkja
þessa kjölfestu, efla flokk þessarar
millileiðar og gera hann að öfl-
ugra tæki en nú er til þess að skipa
málunum réttlátlega í þessu þjóð-
félagi og styrkja þar með lýðræðið
og frelsið. Ef við hugleiðum þetta
eignumst við „eldmóð hugans“. E.
t. v. skortir lýðræðisflokkana
sem því nafni mega kallast með
réttu — ekkert fremur en einmitt
það.
Skemmtiklúbburinn
„ALLIR EITT“
Darisleikur að Hótel Norð
urlandi sunnudaginn 30.
rnarz kl. 9 e. h.
„ Þeir, sem hafa verið fastir
félagar í vetur, vitji að-
göngumiða föstudaginn 28.
þ. m., kl. 6—8 e. h.
STJÓRNIN.
Herbergi,
með innbyggðum skápum
til leigu , Strandgötu 37.
Snorri Kristjánsson,
Brauðgerð Kr. Jónsss. & Co
Sokkabandabelti
Verð frá kr. 28.00
Brjóstahaldarar
Vcfnaðarvörndeild.
•^r^si
Herraskyrtur
Herrabindi
Vefnaðarvórudeild.
Vinnufatnaður
Samfestingar, bláir, brúnir,' grá.ir, livítir
Vinnusloppar, hvítir, brúnir_y_ ;
Jakkar, bláir, brúnir
Strengbuxur, bláar, brúnar, hvítar
Smekkbuxur, blá'ar
Vinnustakkar, brúnir
Vinnuvettlingar
Ullarvettlingar
Leistar
V efnaðaruörudeild
Fasteignir til sölu
1. Meðalstór íbúð í nýlegu steinhúsi hér í bænunr,
miðsvæðis.
2. Þriggja berbergja íbúð í timburhúsi á sérstaklega
góðum stað í bænum.
3. Býli í bæjarlandinu.
Eignir þessar allar lausar í vor.
Þeir, sem hafa óskað að ég hefði þá í huga við útyegun
íbúða, eru beðnir að gefa þesSu gaum.
Björn Halldórsson.
TAKIÐ EFTIR!
Höfum flutt Trémíðavinnustofuna Skjöldur h.f. í
Gránufélagsgötu 45, Akureyri.
Eins og áður, önnumst við hvers konar húsa- og hús-
gagnasmíðar og bílayfirbyggingar.
Akureyri, 25. marz 1952.
Trésmíðavinnustofan Skjöldur li.f.
Gránufélagsgötu 45 — Sírni 1551.