Dagur - 26.03.1952, Síða 11
Miðvikudaginn 26. marz 1952
D A G U R
11
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 6. síðu).
Hvað er rétt?
Franska filmstjarnan, sem er
rómuð fyrir fagurt hár, þvær það
4—6 sinnum oftar, heldur en
danski sérfræðingurinn vildi láta
okkur gera. Hvað er rétt? Eg veit
það ekki, en ætli geti ekki verið,
að hinn gullni meðalvegur verði
einna heppilgasta leiðin í þessu
efni eins og flestum öðrum? —
Sjálfsagt hentar ekki öllum það
sama, og nú getum við reynt hvor
aðferðin á bezt við okkar eigið
hár.
as.
- Fokdreifar
(Framhald af 6. síðu).
vori er hi'tin skemmdarstarfsemi.
Örfáir einstaklingar hafa ein-
hverjar smávægilegar tekjur af
þessu, en starfsemi þeirra sviptir
fjölda landeigenda tækifæri til
þess að uppskera miklu meira, og
hún rýrir auk þess auðlegð hér-
aðsins. •— Mjög oft er netaveiði
þessi lögbrot. En því miður taka
yfirvöldin alltof létt á þessum
brotum. Nokkur hreyfing er nú
uppi meðal landeigenda og áhuga
manna, að stöðva þessa þróun og
snúa henni við, efna hér til fiski-
ræktar en ekki fiskeyðingar. í
Bretlandi er veiðiþjófum stung-
ið í tugthúsið mánuðum saman
fyrir það eitt, að hafa borið net
ólöglega í veiðivatn. Fyrir þetta
viðhorf hefur Bretum tekizt að
varðveita ár sínar fyrir eyðilegg-
ingu og viðhalda auðlegð náttúr-
unnar. Betur horfði um okkar
náttúruvernd, ef viðhorf Breta
ætti að þessu leyti ríkari ítök í
hugum fólks. Vargar í véum ís-
lenzkrar náttúru ættu hvergi að
eiga friðland. Veiðiskapur verð-
ur ekki útilokaður, hvorki fisk-
veiði í vötnum og ám eða fugla-
veiðar. En allt slíkt þarf að vera
innan hóflegra og löglegra tak-
markana. Þá er slíkur veiðiskap-
ur eðlilegur og sjálfsagður. En
rányrkjan á engan rétt á sér. Við
þurfum að rækta það hugarfar,
sem fordæmir hana og tekur hart
á henni. Þegar það hugarfar er
útbreitt orðið meðal almennings,
hættir veiðiþjófnaðurinn að vera
„sport“ og fær þá skilgreiningu,
sem honum hæfir: hann er
ósamboðinn menningarþjóð og á
ekki að þolast.
ÁVEXTIR
Epli, þurrkuð
Apríkósur, þurrkaðar
Blandaðir ávextir, þurrk.
Rúsínur, steinl., í pk.
Rúsínur, steinl., í 1. vigt
Gráfíkjur
Döðiur, í pk. og lausri vigt
Appelsínur
Niðursoðnir ávextir, m. teg.
SÖLUTURNINN
við Hamarsstíg
Lítil íbúð
óskast til leigu fljótlega.
Afgr. vísar á.
Reiðhjól,
nýuppgert, til sölu í
IIafncuslxccl i 23. B.
Herra-frakkar
Höfum fengið nýja send-
ingu af herra gaberdine-
frökkum; — ljósir, með
belti.
AMARO-búðin
Estreila-skyrtur
Höfum fengið nýja send-
ingu af hinum margeftir-
spurðu Estrella-skyrtum
Verðið stórlækkað, — að-
eins kr. 105.00.
Fermingarskyrtur og
* slaufur konta næstu daga
AMARO-búðin
Plastic-efni
Plastic-efni
gardínur.
dúka
AMARO-búðin
Rarna-buxur
Brúnu barnabuxurnar
lcomnar aftur.
Nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6.
Sama lága verðið!
AMARO-búðin
Kulda-úlpur
Erum að fá aftur hinar
margeftirspurðu silkivatt
fóðruði! kuldaúlpur fyrir
dömur og börn.
AMARO-búðin
Skíðahúfur
Erum að fá skíðahúfur
og vettlinga.
Nýjasta tízka frá St. Mo-
ritz, Sviss.
AMARO-búðin
Prjónasilki
Fáum um næstu mánaða
mót kjóla-prjónasilki frá
Bandaríkjunum, í miklu
úrvali.
Sjónleikurinn
„T engdamamma44,
eftir Kristínu Sigfúsdóttur,
verður sýndur að Hrafna-
gili næstkomandi laugarda
og sunnudag, kl. 9 e. h.
Dans á eftir. — Veitnigar,
NEFNDIN.
Sængurveradamask
kr. 28.00 metrinn
Léreft, ldeikt og blátt, 16.25
Léreft, hvítt, 140 cm, 23.00
Handklæði, frá kr. E3.50
Borðdúkar, plast, frá 26.75
Ullargarn
Peysufatasilki, væntanlegt
ÁSBYRGI h.f .
- Erlendir ferðamenn
(Framhald af 5. síðu).
göngutækni og meiri ferðalögum
almennings úti í löndum, sem sí-
fellt sækist eftir að sjá eitthvað
nýtt.
Hvað á að gera?
Ferðamannamálunum í heild
verður ekki kippt í lag á skammri
stund, né heldur af Akureyring-
um fyrir allt landið. En bæjar-
menn hér geta og eiga að búa í
haginn í sínum eigin bæ. Við
stöndum nær því takmarki að
geta verið ferðamannabær en
aðrir staðir á landinu, og eigum
að nota okkur þá möguleika. Hér
gæti verið um að ræða mjög
drjúga tekjulind fyrir bæjarfé-
lagið í heild. En hvaðan á forust-
an að koma? Hér þyrfti að vera
starfandi einhver stofnun, er
hefði þessi mál sérstaklega með
höndum fyrir bæjarmenn. Ferða-
skrifstofa ríkisins nægir þar ekki,
hún starfar að nokkru leyti á
öðru sviði en hér er ætlast til.
Hér í bæ þyrfti að vera nefnd
manna, frá bæjarstjórn og öðrum
aðilum, er hefði forustu um að
þoka áleiðis þessum málefnum
og undirbúa framtíðaratvinnu-
veg. Fordæmi slíkrar starfsemi
þarf ekki langt að sækja.
Tilgangurinn með þessum orð-
um er að hrinda af stað umræð-
um um þetta stóra mál. Orðið er
frjálst hér í blaðinu um þessi
efni. Sjálft mun blaðið víkja að
málinu í heild og einstökum atr-
iðum síðar.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Hjartaásinn, heimilisrit Hjarta-
ásútgáfunnar, marzheftið, flytur
m. a. viðtal við Jón Norðfjörð
leikara í tilefni af 35 ára leikaf-
mæli han sá þessum vetri. Ann-
að efni er: Söngva Borga, kvæði
'eftir Hjört Gíslason, ennfremur
ljóðabrot og lausavísur eftir sama
höf., margar þýddir sögur og frá-
sagnir, framhaldssögur o. fl.
Akureyringar! Munið eftir að
gefa litlu fuglunum.
Aðalfundur Sveinafélags járn-
iðnaðarmanna. — Á aðalfundi
Sveinafélags járniðnaðarmanna
nú fyrir skömmu voru eftirtaldir
menn kosnir í stjórn: Jóhann
Indriðason, formaður. Hrafn
Sveinbjarnarson, varaformaður.
Lárus Haraldsson, ritari. Þórður
Björnsson, spjaldskrárritari. — í
trúnaðaráð, auk stjórnar, voru
kosnir: Árni Magnússon, Stefán
Snæbjörnsson, Jónas Bjarnason,
Björn Júlíusson.
» Huld 59523265 IV V H. S. M.
□ Rún 59523266Va — H. S. M.
I. O. O. F. — Rbst. 2 — 10032681/2.
I. O. O. F. = 1333288% — 1 =
Mersr.ð í skóiahúslnu í Gleár-
þorpi kl. 2 e. h. á sunnudaginn
kemur. r— P. S.
Messað í Akureyrarkirkju kl. 5
næstk. sunnudag. Boðunardagur
Maríu. — F. J. R.
Munið eftir skemmtisamkomu
Kantötukórs Akureyrar að Hótel
KEA á sunnudaginn kemur, 30.
marz. Fjölbreytt skemmtiatriði
bæði um eftirmiðdaginn og eins
að kvöldinu, svo sem: söngur,
spurningaþáttur, ýmsir gaman-
þættir, veitingar, dans o. fl. Nán
ar í götuauglýsingum,
Æskulýðs-
félag Akureyr-
arkirkju.—
— Almennur
æskulýðsfund-
• ur í Samkomu-
húsinu kl. 2 e. h. á sunnudaginn
kemur. —- Allt fólk er velkomið
fundinn méðan húsrúm leyfir.
— Húsið verður opnað hálf tíma
áður en fundurinn hefst.
. Stúkan „Brynja“. Systrakvöld
næstk. mánudag kl. 8,30 e. .h.
Orstuttur fundur og að því loknu
bjóða systurnar bræðrunum til
kaffidrykkju, ýmsra skemmti-
atriða og að síðustu verður dans-
að.
Skjaldborgarbío sýndi um síð-
ustu helgi efnismikla og skemmti
lega músíkmynd sem heitir
Trompetleikarinn og serri segir á
athyglisverðan hátt fgá gleði og
sorg, sigrum og ósigrum. Síðustu
sýningar á þessari mynd verða
sennilega um næstu helgi. —
,Elsku mamma mín“ heitir
myndin sem sýningar eru að
hefjast á, mynd, sem mun eiga
erindi til allra, sem þekkja hand-
leiðslu góðra mæðra.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar hefur árshátíð í Al-
þýðuhúsinu við Lundargötu n.k.
laugardagskvöld. Aðgöngumiðar
verða afhentir á skrifstofu verka-
lýðsfélaganna seinni part vik-
unnar.
Til Einarsstaðakirkju. Kr. 210
frá M. S. Á. — Mótt. á afgr. Dags.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50
frá N. N. — Kr. 25 frá B. G. — Kr.
50 frá N. N. — Mótt. afgr. Dags.
Gjafir til Hljóðfærasjóðs Barna-
skólans. Frú Rúnu Hrönn Krist-
jánsdóttur kr. 50.00, Sigríði Guð-
mundsdóttur kr. 100.00, Eiríki
Stefánssyni og frú (áheit) kr.
200.00, Stefaníu Jónsdóttur kr.
50.00. Kærar þakkir. H. J. M.
Til sölu
í Brekkugötu 29, uppi
norðurdyr, lallegur ferm
ingarkjóll, stður kjóll og
2 kápur, sem nýtt. — Tæki
færisverð.
Herbergi,
með eldunarplássi
nú
Skilvís arreiðsla
óskast
begar. Einhleyp kona.
Afax. vísar á.
Fegrunarfélag Akureyrar hélt
aðalfund sinn sl. sunnudag. Var
þá kjörin ný stjórn fyrir félagið
og skipa hana: Sigui'ður Pálsson
menntaskólakennari, formaður,
frú Dagmar Sigurjónsdóttir,
varaform. Aðrir í stjórn: Björn
Guðmundsson, lögregluþj., Kjart
an Ólafsson, póstur, Elísabet Ei-
ríksdóttir, bæjarfulltrúi, Helgi
Steinarr, sláturhússtj., frú Mar-
grét Sigurðardóttir. Varastjórn:
Anton Ásgrímsson, kaupm., frú
Gunnlaug Thorarensen, Jóhann
Þorkelsson, héraðslæknir, Araór
Karlssbn, deildarstj., frú Ásgerð-
ur Einarsdóttir. Kjörið var einnig
15 manna trúnaðarráð. :— Jónas
Rafnar, alþingism., var kjörinn
lögfræðilegur ráðunautur félags-
ítis!' ■ ' ' 1 ’ ‘ "" '■ r' ■
Föstuguðsþ.iónusta er í Akur-
eyrarkirkju í kvöld (miðviku-
dagskvöld) kl. 8.30. — Fólk er
vjnsamfega beðið um, að hafa
með sér Passíusálmana. — P. S.
Barnastúkan Sakleysið heldur
fund í Skjaldborg næstkomandi
sunnudag kl. 1 e. h. — Venjuleg
fundarstörf. Kosning embættis-
manna. Upplestur. Leiksýning.
Kvikmynd. Allir embættismenn
mæti. Mætið stundvíslega. Fjöl-
mennið.
Aðalfundur Rauða-Kross ís-
lands, Akureyrardeild, verður
haldinn annað kvöld (fimmtu-
dagskvöld) kl. 8.30 e. h. í Rotary-
salnum.
Sjónarhæð. Sunnudagaskólinn
kl. 1 á sunnudögum. Almenn
samkoma kl. 5. Arthur Gook tal-
ar. Allir velkomnir.
Biblíunámsskeiðið. Samkoma
næsta laugardagskvöld kl. 8.30.
Efni: Endurfæðingingin. Allir
velkomnir. Sæmundur G. Jó-
hannesson.
Barnastúkan „Sajnúð“ nr. 102
heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 30. marz næstk. kl. 10 f. h.
Kosning embættismanna. —
Skemmtiatriði auglýst í barna-
skólanum.
Mxmið minningarspjöld sjúkra-
hússins! Fást í Bókaverzl. Axels
og í Blómabúð KEA.
Fíladelfía. Almennar samkom-
ur eru í Lundargötu 12 sunnu-
daga og fimmtudaga kl. 8.30 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 1.30 e. h. Öll
börn velkomin. — Saumafundir
fyrir stúlkur á miðvikudögum kl.
5.30 e. h.
Zíon. Samkomur næstu viku.
Sunnud. kl. 10.30 f. h.: Sunnu-
dagaskóli. Kl. 8.30 e. h.: Almenn
samk. — Þriðjud. kl. 5.30 e. h.
Fundur fyrir telpur 7—13 ára. —
Miðvikudag kl. 8.30 e. h.: Föstu-
hugleiðing. (Takið Passíusálmana
með). — Fimmtudag kl. 8 e. h.:
Fundur fyrir ungar stúlkur.
K. F. U. M„ Akureyri, Fundur í
Zíon næstk- sunnudag. Y.D. kl. 1
e. h. — U.D. kl. 2 e. h.
í ferðasögu Gookshjónanna hér
í blaðinu í sl. viku var varpað
fram þeirri spurningu, hvort
nokkur hefði komið til Tasmaníu
frá íslandi síðan Jörundur hunda
dagakóngur lenti þar í fangavist
á fyrri öld. Frú í bænum hringdi
til blaðsins og sagðist hafa fengið
bréf frá skólabróður sínum í
fyrra, dagsett í höfuðborg Tas-
maníu (Burnie). Vilbergur Júlí-
usson kennari frá Hafnarfirði var
þar á ferð. Hann ferðaðist víða
um Ástralíu.
Til nýja spítalans. — Gjöf frá
Pálínu Jónasdóttur og Árna Jón-
assyni frá Steinkoti, til minning-
ar um foreldra þeirra Jónas Ól-
afsson og Guðrúnu Árnadóttur og
systursyni þeirra, Núma og
Kristján, kr. 1000. — Góðtempl-
arareglan á Akureyri kr. 7010. —
Ónefnd kona kr. 100. — Sveinn
Stefánsson kr. 1000. — Skólabörn
í Barnaskóla Akureyrar( ágóði af
skemmtun) kr. 2000. — Hulda
Ólafsdóttir og Höskuldur Steins-
son kr. 100. — Sigfríður Ragnars-
dóttir, Inga Ólafía Haraldsdóttir,
Margrét Skúladóttir (ágóði af
tombólu) kr. 22. — A. J., áheit,
kr. 500. — Búnaðarfélag Arnar-
neshrepps kr. 1000. — Hjón á Ak-
ureyri kr. 10000. — Kirkjukór
Svalbarðsstrandar, minningargjöf
um Sigríði Halldórsdóttur, kr.
1000. — Skipshöfnin á Kaldbak
kr. 3630. — Ónefndur kr. 500. —
Með þökkum móttekið. Guðm.
Karl Pétúrsson.