Dagur - 10.03.1954, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 3. marz 1954
D A G U R
5
Tvær vísmdastofnanir - önnur í Reykjavík, ^il félítgO. Iðiiaðai-
hin í Kaupmannaíiöfn mannafélags Akur»
Tillögur þessar vekia vonbrigði hér á landi
Samkvæmt útvarpsfregnum flutti danska blaðið Politiken stór-
letraðar fregnir á fimmtudag þess efnis, að danska stjórnin hafi
lagt fyrir íslenzku stjórnina drög að tiliögum, er verði samkomu-
lagsgrundvöllur í handritamálinu. Er þar gert ráð fyrir, að eignar-
jétturinn yfir handritunum verði sameiginlegur.
Þá segir ennfremur, að lagt
sé til að komið verði upp tveim
vísindastofnunum til rannsókna
á handritunum, annarri í Reykja-
vík og hinni í Kaupmannahöfn,
og séu þær opnar vísindamönn-
um allra þjóða. veiði Dani for-
stöðumaður stofnunarinnar á fs-
landi en íslendingur í Kaup-
mannahöfn.
Handritunum skipt.
Þá er lagt íil, að nefnd vís-
mdamanna skipti handritunum
miili þjóðanna og Ijósmyndir
gerðar af öllu safninu, svo að
textar þeirra séu til á báðum stöð
um. Þá segir ennfremur, að mál
þessi hafi vcrið rædd við' Bjarna
Benedilctsson, menntamálaráð-
herra, er hann var staddur í
Kaupmannaliöfn nýlega. Blaðið
segist hafa spurt Hans Hedtoft
forsætisráðherra um sanngildi
þessarar fregnar, en hann hafi
hvorki játað henni né neitað.
Fregn Norsk Tclegrambyraa.
í fréttaskeyti frá Norsk Tele-
grambyraa um þetta mál á föstud.
s.l. segir orðrétt: Danska stjórnin
hefir lagt fyrir íslenzku stjórnina
tillögu um lausn deilumálsins um
eignaréttinn yfir handritum, sem
nú eru geymd í Danmörku. Aðal-
efni tillögunnar er, að hinn laga-
legi eignarréttur, sem nú er að-
eins danskiu-, verði sameign
beggja landanna. Samkvæmt til-
lögunni skal setja á stofn tvær
stofnanir til ransóknar á liand-
ritunum, aðra í Reykjavík en
hina í Kaupmannahöfn. Stofnan-
ir þessar skulu vera opnar vís-
indamönnum allra landa. Stofn-
uninni í Reykjavík skal danskur
maður stjórna en stofnuninni í
Kaupmannahöfn fslendingur.
í sambandi við þessa fregn er
ekki getið um Politiken sem
heimild.
Lokaður fundur á Alþingi.
Á Alþingi gerði Ilannibal
Valdemarsson fyrirspurn utan
dagskrár um það, hvernig á því
stæði, að fregn kæmi um þetta
fyrst hér frá dönsku blaði. Bjarni
Benediktsson, menntamálaráð-
herra, svaraði því til, að hann
vildi engan dóm á það leggja,
hvort afsakanlegt væri af hinu
danska blaði að birta fregnir
þessar. Hann kvaðst hins vegar
hafa fengið staðfestingu á því, að
þær væru ekki eftir forsætisráð-
herra Dana. Óskaði hann síðan
eftir lokuðum fundi og var hann
haldinn á föstudag.
Enginn samkomulags-
grundvöliur.
Meðal íslendinga munu þessar
tillögur, ef þær eru tillögur
dönsku stjórnarinnar, ekki vekja
neinn fögnuð, heldur vonbrigði,
og varla mun þess að vænta, að
þær geti orðið grundvöllur að
nokkurri lausn þessa máls, svo að
íslendingar uni vel við.
Undirtektir hér og í Danmörk.
Undirtektir þær, sem þessar
tillögur Dana — svo óljósar sem
þær eru ennþá — hafa fengið
hér á landi eru yfirleitt á eina
lund: íslendingar telja ekki koma
til mála neina slíka samninga um
handritin. Er þetta yfirleitt álit
blaða, sem um málið hafa skrifað,
og í sama dúr er ályktun frá Rit-
höfundafélagi Islands.
f Danmörk virðast skoðanir og
skiptar. Ýmsir stjómmálamenn
virðast telia tilboð þetta aðgengi-
legt og líklegt til úrlausnar, en
prófessorar við Hafnarháskóla
lýsa sig andvíga því sumir hvei'j-
ir, segja of langt gengið. En það
voru þessir aðilar sem mest lögðu
sig fram um að spilla málstað
íslendinga í sambandi vio hand-
ritamálið á s.I. ári.
Jónas Tliordarsoe
ráðimi gjaldkeri
s j úkrasamlagsnís
Sjúkrasamlagsstjórnin hefur
ráðið Jónas Thordarson skrif-
stofumann hjá KEA til að taka
við gjaldkerastarfi Samlagsins
frá næstu mánaðamótum. Jónas
hefur lengi starfað á skrifstofum
KEA og reynst þar hinn ti-aust-
asti og hæfasti starfsmaður.
ýkomnar
Nýjar tegundir af
SKAUTA- og
SKÍÐASKÓM.
FLÓKA-INNISKÓR
í miklu úrvali.
Skódeild KEA.
eyrar
Kæru félagar:
Á þessu ári verður Iðnaðar-
mannafélag Akureyrar 50 ára.
Tel ég því viðeigandi að minna
ykkur á að sækja að þessu sinni
vel aðalíund félagsins, sem hald-
inn verður í Gagnfræðaskóla-
húsinu sunnudaginn 14. þ. ni. kl.
4 síðdegis. Á slíkum tímamótum
ber fremur en nokkru sinni ella
að minnast liðins tírna og bera
merkið hátt fram til starfs og
dáða. — Hættið nú ao dotta á
verðinum! Sækið fundi félagsins,
og þá fyrst og fremst aðalíund-
inn, því rnargt þarf að ræða. —
Og mér er spurn: Er hægt að
ætlast til mikilla afreka af fé-
lagi, ef félagar mæta ekki á fund-
um þess? Og getið þið, félagar
góoir, sætt ykkur við, að 12—13
menn ráði lögum og lofum í fé-
lagi, sem telur um eða yfir 100
félaga? Nei, félagar góðir. Við
svo búið má ekki standa. Og
munið að fjölmenna á næsta
fund!
Ennfremur vil ég minna ykkur1
á, að 16. íðuþing íslands verður
háð hér á Akureyri að þessu
sinni, sennilega í júní í sumar.
Er það ákveðið í tilefni af því,
að Iðnaðarmannafélag Akureyr-
ar og Trésmiðafélag Akureyrar
verða bæði 50 ára á þessu ári,
1954.
Akureyri 8. marz, 1954.
Með félagskveðju,
Karl Einarsson.
Opinberí uppboð
Samkvæmt kröfu Björns
Halldórssonar hdl., f. h. bæj-
arsjóðs Akureyrar og að und-
angengnu lögtaki 19. nóv.
1952, verður krafa H.f. Afls,
Akureyri, á hendur Dalvíkur-
hreppi, að upphæð. krónur
18,000.00, boðin upp og seld
ef viðunanlegt boð fæst, til
lúkningar ógreiddum gjöld-
um til bæjarsjóðs ásamt kosn-
aði upphæð kr. 13.421.60 auk
kostnaðar við uppboðið, á op-
inberu uppboði, sem haldið
verður í skrifstofu minni,
Hafnarstræti 102, Akureyri,
miðvikudaginn 24. marz n. k.
kl. 11 f. h
Bæjarfógetinn á Alcurcyri,
9. marz 1954.
Friðján Skarphéðinsson.
Auglýsið í Ðegi
íKhkhkhs-jkhkhkhkhkhkhkhkh
I STUTTU MALI
Frumvarpið um heimild til
þess að flytja Húsmæðrakenn-
araskóla íslands í brott frá
Reykjavík, þ. e. hingað til Ak-
ureyrar, er nú komið í gegn-
um Neðrideild Alþingis og til
Efrideildar. Eru nokkrar horfur
á að frv. nái fram að ganga á
þessu þingi og möguleikar opn-
ist til þess að gera liagkvæma
samninga við ríkið um afnot
af skólaliúsi Húsmæðraskóla
Akureyrar.
*
Ríkisstjórnin hefur Iag fram
á Alþingi frv. um heimild til
að ábyrgjast lán allt að 50
millj. króna fyrir Samband ísl.
samvinnufélaga til að kaupa
olíuflutningaskip, og sömu
upphæð fyrir Eimskipafélagið
og Shell og BF.
-K
Almennur fundur bindindis-
manna í Reykjavík hefur sam-
þyltkt mótmæli gcgn áfengis-
lagafrv. í núverandi mynd,
eins og það kom frá Efrideild
Alþingis, og telur fundurinn
gildandi áfengislög betri cn
frv. eins og það er nú. Þá hefur
Stórstúka íslands mótmælt
frumvarpinu.
Áframhald er á ágætum afla-
brögðum sunnanlands og fá
bátar, cr róa með línu, ágætan
afla hvenær sem gefur. Neta-
bátar afla aftur á móti lítið enn
sem komið er.
Fiskibátar hér fyrir norðan
búast nú á togveiðar og eru
sjómenn bjartsýnir að afli verði
góður.
*
Stefán Steinþórsson póstur,
sem kom úr póstferð austan
frá Einarsstöðum í gær, segir
mjög mikinn snjó í Þingeyjar-
sýslu og þó einkum á Vaðla-
heiði. Er komið þar mikið
fannfergi.
-K
SÍS hefur tekið upp þá ný-
breytni að bjóða stúdentum úr
viðsldptadeild Háskóla íslands
að skoða verksmiðjur og ömi-
ur fyrirtæki Sambandsins.
M. a. er ráðgert að um 40 há-
skólanemar komi fluglciðis
hingað norður næsta góðviðr-
isdag til þess að skoða hér
verksmiðjur Sambandsins.
Hefur forstjóri SÍS boðið þeim
í þessa för f. h. Sambandsins.
Sveitarstjórnarkosii-
ingarnar í Danmörk
Hið frjálslynda danska blað,
Politiken, birtir eftirfarandi
ritstjórnargrein um sveitar-
stjórnarkosnhigarnar í Dan-
mörk sl. miðvikudag:
Fernar kosningar á 12.mánuð-
urn var meira en kjósendur í
Kaupmannahöfn þoldu. Útkom-
an varS bví sú, að bæjarstjórnar-
kosningarnar, sem voru síðastar
öessara kosninga, urðu Svarti-
pótur; kosningabátttakan var
minni en dæmi eru til áður á
jessari öld. Þetta er Kaupmanna-
hafna-fyrirbæri. Úti á landi urðu
kosningarnar með öðrum hætti.
Stærsta fréttin var sigur
Umanack-Larsens borgarstjóra í
Árósum, þar sem jafnaðarmenn
bættu við sig fjórum sætum og
fengu þar með hreinan meiri-
hluta. Svipuð er myndin af úr-
slitunum í Odense, þar sem
Werner borgarstjóri fékk hrein-
an meirihluta fyrir jafnaðarmenn.
Áður varð hann að styðja sig við
kommúnista.
Það, sem hér réði mestu, var að
sjálfsögðu hinn gífurlegi ósigur
Réttarsambandsins. í hverju
einasta kjördæmi er atkvæðatala
flokksins frá síðustu bæjar-
stjórnarkosningum orðin að litlu
broti. — Kosningin í Kaup-
mannahöfn hefur ekki í för með
sér afgerandi breytingu. Borgar-
stjórnin sjálf breytist ekki í meg-
indi-áttum, en jafnaðarmenn hafa
jó, þrátt fyrir lægri atkvæðatölu,
sem stafar af minni kosningaþátt-
töku í heild, haft nokkui-n byr,
sem þýðir fjórum sætum meira í
borgarráðinu og hafa þeir nú 32
af 55 fulltrúum þar. Radíkalir
missa fulltrúa og Réttarsam-
bandið missir 5 fulltrúa. f Kaup-
mannahöfn unnu jafnaðarmenn á
í borginni sjálfri og á Friðriks-
bergi, en ekki eins í úthverfun-
um....
Við fyrstu sýn breytir kosn-
ingin því engu verulega um
stjórn höfuðborgarinnar, þótt
hún auki spennuna í milli ein-
stakra borgarhluta innan borgar-
innar allrar. í borgarstjórninni
sjálfri verður þó breyting. Hinn
kommúnistíski borgarstjóri Jó-
hannes Hansen, sem hefur stjórn-
að 4. hverfi síðustu 8 árin, flytzt
nú niður í borgarfulltrúasæti, en
íhaldsmenn fá einum borgar-
stjóra fleira....
Eftir er eitt stórt og óútkljátt
mál: Hver verður nú yfirborgar-
stjóri í Kaupmannahöfn. Jafnað-
armenn hafa engin fyrirheit gefið
um ]jað í kosningabardaganum.
En einhvern tíma á sl. hausti til-
kynnti H. P. Sörensen yfirborg-
arstjóri að hann mundi ekki gefa
kost á sér eftir 1. apr. Síðan hefur
málið legið í þagnargildi.... Þó
eru tveir menn mest umtalaðir:
Júlíus Hansen borgai-stjóri í 2.
hverfi, sem hefur séð um sjúkra-
hússreksturinn, og S. Munk
borgarstjóri, sem hefur stjórnað
framfærzlumálunum....