Dagur - 10.03.1954, Blaðsíða 12
12
Baguk
Miðvikudaginn 10. marz 195«
Læknafélag Akureyrar telur rétt
að banna
opnum
Skorar á heilbrigðisnefncl bæjarins að nota
heimild, sem hím hefur til þess
Á fundi Læknafélags Akur-
eyrar, sem haldinn var s.l. mánu-
dag, var rætt um mjólkursölu-
málin í bænum, og þar var sam-
þykkt áskorun á heilbrigðisnefnd
að leyfa ekki mjólkursölu nema
á lokuðum flöskum. Ályktun fé-
lagsins, sem var samþykkt með
samhljóða atkvæðum, er á þessa
leið:
Fundur í Læknafélagi Ak-
ureyrar, haldinn 8. marz 1954,
skorar á heilbrigðisnefnd bæj-
arins að nota heimild þá, sem
Katalína-flugvél frá Flugfélagi
íslands kom hér í gærkveldi
þrátt fyrir hríð og dimmviðri og
settist á Oddeyrarál. Vélin flutti
farþega og póst og fer væntanl.
suður í dag.
Missti pósthestinn
niður um ís -
Það bar til á sunnudags-
morguninn s.l., er Stefán Stein-
þórsson póstur var að leggja
upp í póstferð héðan austur til
Einarsstaða, að hann ætlaði að
stytta sér leið og fara austur
yfir Leiru á ís undan Krókcyri.
En ísinn reyndist ótraustur og
brotnaði undan einum póst-
hestinum. Stefán póstur náði
að grípa pósttöskurnar af
klárnum áður en hann fór á
kaf, og segja sjónarvottar að
það hafi verið snör handtök.
Hesturinn synti í vökinni unz
mannhjálp barst og tókst að ná
honum upp á skörina. Virtist
honum ekki meint af volkinu,
og eftir að hann hafði verið
þurrkaður inni í fjósi í Litla-
Garði, gat Stefán haldið póst-
ferðinni áfram cins og ekkert
hefði í skorizt.
henni er veitt í reglugerð um
mjólk og mjólkurvörur frá 4.
sept. 1943, til að ákveða að ein-
ungis skuli afhent mjólk í lok-
uðum flöskum í mjólkurbúðum
bæjarins, og telur fundurinn
að hér sé um mikilvæga heil-
brigðisráðstöfun að ræða.
Gouda-ostur kominn á
markaðinn hér
Fyrir nokkru hófu mjólkur-
samlögin á Akureyri og Sauð-
árkróki framleiðslu á osti til
útflutnings og var gerður svo-
nefndur Gouda-ostur, sem er
talsvert frábrugðinn þeim
venjulega mjólkurosti, sem hér
hefur fengizt. Er þcssi ostur
feitari en eldri osturinn — eða
45% — og með öðru bragði og
sérstaklega ljúffengur. Þótt
ostur þessi sé einkum ætlaður
til útflutnings haía sýnishorn af
honum verið sett á innlendan
markað og fyrir helgina byrj-
aði Kjötbúð KEA að selja
Gouda-ost frá Mjólkursamlag-
inu liér.
Félagsmálaráduneytið úrskurðar
bæjarstjórnarkosningarnar gildar
En átótur galla á f ramkvæmd kosninganna
Rússar semja um smíði 20 togara
af sömu gerð og „Jörundur"
Skipasmíðastöðin á Lowestoft hlaut stærsta
togarasamning, sem Bretar hafa gert, fyrir
fyrir 6 milljón sterlingspund
Brezka blaðið Fishing News
segir frá því nú nýlega, að það
sé engum vafa undirorpið að hinn
mikli samningur brezku skipa-
smíðastöðvarinnar Brookc Mar-
ine Ltd. í Lowestoft um smíði
20 togara fyrir Rússa, byggist á
aðdáun og áhuga Rússa fyrir ís-
lenzka togaranum Jörundi, EA
335, sem smíðaður var af þessu
sama fyrirtæki fyrir Guðmund
Jörundsson útgerðarmann árið
1949.
Birtir blaðið síðan teikningar
þær af gerð skipsins, er hið heims
kunna blað Illustrated London
News birti skömmu eftir að skip-
ið var fullgert.
Rússar kynnst Jörundi á síidar-
miðunum.
Togarinn Jörundur hefur stund
að síldveiðar undanfarin sumur
og jafnan verið aflahæsta skip.
Rússneskur veiðifloti hefur verið
Félagsmálaráðuneytið hefur nú
staðfest úrskurð bæjarstjórnar
liér um að bæjarstjórnarkosning-
arnar 31. janúar s.l. skuli teljast
gildar. Hafði Alþýðuflokkurinn
kært kosninguna og krafðist
ógildingar.
í bréfi Félagsmálaráðuneytis-
ins um mál þetta, sem birt er í
Alþýðuflokksblaðinu hér í gær,
eru átaldir nokkrir ágallar á
framkvæmd kosninganna, en
„efni virðist hins vegar eigi til
þess að ógilda kosninguna" segir
í úrskurðinum og úrskurðar
ráðuneytið kosninguna gilda.
Ráðuneytið telur ósamræmi í töl-
um afhentra og upptalinna at-
kvæða bera vott um að ekki hafi
verið viðhöfð nægileg aðgæzla,
ennfremur þykir orka tvímælis,
hvort kosning megi standa yfir
eftir kl. 24 á kjördag, enda þótt
sá háttur hafi tíðkast hér og ann-
ars staðar á seinni árum. Enn-
fremur telur ráðuneytið að ekki
sé lögum samkvæmt að hefja
flokkun atkvæða áður en kjör-
fundi lýkur. En öll þessi atriði
eru ekki talin svo veigamikil, að
ástæða sé til að ógilda kosning-
una.
Snjóar loka fjallvegunum - sam-
gönguerfiðleikar innanhéraðs
Fjöidi manns viB framlelslusförí
að síldveiðum hér undan Norð-
austurlandi. Hefur sá floti veitt
Jörundi athygli og fylgzt með
ferðum skipsins og veiðum. Er
nú ljóst, að yfirmenn þessa flota
hafa verið svo skotnir í skipinu að
þeir hafa komið sögum af því á
framfæri við yfirboðara sína í
Moskvu og þær hafa síðan orðið
til þess að eigendur skipasmíða-
stöðvarinnar í Lowestoft voru
boðnir til samningaviðræðna
austur þar um s.l. áramót. Lauk
þeim með undirritun samninga
í s.l. mánuði um 20 togara af mjög
líkri gerð og Jörundur og eiga
skipin að afhendast á næstu 2 ár-
um. Eru þetta viðskipti fyrir 6
milljónir sterlingspunda, og sagði
forstjóri skipasmíðastöðvarinnar
er hann kom heim með samning-
inn, að þetta væri stærsti samn-
ingur sinnar tegundar, sem brezk
skipasmíðastöð hefði nokkru
sinni gert.
Koma þeir á íslandsmið?
Ekki er ljóst af þessum skrifum
í brezkum blöðum, hvernig Róss-
ar hyggjast einkum nota þessa
togara eða hvar, en ekki er ólík
legt, að þeim muni sjást bregða
fyrir hér a. m. k. á síldveiðum. á
næstu árum.
Allir togararnir salta níi aflann um borð
Um þessar mundir starfar f jöldi
manns við framleiðslustörf hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa li.f.,
enda berst að mikið af saltfiski
því að allir togarar félagsins salta
nú aflann um borð og hafa land-
að hér að undanförnu.
Þá er og danskt skip hér að
taka fisk og hefur verið unnið að
fiskpökkun að undanförnu. Var
um 4000 fiskpökkum skipað út í
gær.
Hafa á annað hundrað manns
starfað hér í landi hjá félaginu
nú um hríð við þessi framleiðslu-
störf.
Afli togaranna.
Tveir af togurum félagsins voru
hér í gær. Sléttbakur kom af veið-
um í gær með 150—160 lestir af
saltfiski, Harðbakur kom aðfara-
nótt mánudags og hafði um 160
lestir af saltfiski. Svalbakur land-
aði 175 lestum 5. þ. m„ og 25 f. m.
landaði Kaldbakur 150 lestum.
Mikil fannkoma hefur verið um
norður- og norðausturliluta
iandsins lengst af síðan hríðar-
kastið hófst í lok s.l. viku.
Mun mest hafa snjóað í Þing-
eyjarsýslum, og var þar hörku-
stórhríð um helgina. Hér í Eyja-
firði hefir sett niður allmikinn
snjó og hafa fjallvegir lokast
alveg og talsverðir samgöngu-
erfiðleikar verið á þjóðvegum
innanhéraðs og jafnvel hér í
bænum.
í gær var þó talið að mjólkur-
bílar mundu komast til bæjarins
úr öllum deildum mjólkursam-
lagsins nema úr Svarfaðardal,
Árskógsströnd og Höfðahverfi.
Snjóýtur hafa verið að starfi
sums staðar í héraðinu. Næg
mjólk barst til bæjarins í gær.
Munnhörputríó Ingþórs
Haraldssonar kemur
norður
Munnhörputríó Ingþórs Har-
aldssonar í Reykjavík, sem leikið
hefur þar við mikla hrifningu að
undanförnu, kemur hingað norð-
ur um næstu helgi qg leikur á
árshátíð KA á laugardagskvöldið
í Varðborg og á dansleik á sama
stað á sunnudagskvöldið.
Tanner-systur syngja í Nýja-Bíó hér í dag
Því er rauði hefillinn
ekki notaður meira?
Ýmsir bæjarmenn hafa hringt
til blaðsins og spurt, hvers
vegna rauði veghefill bæjarins
sé ekki notaður meira en raun
ber vitni. Telja þeir að auðvelt
sé að ryðja snjó af flestum göt-
um bæjarins með þessu ágæta
tæki. Til þessa hafa aðeins fáar
götur verið hreinsaðar. Blaðið
sendir fyrirspumina áfram til
bæjaryfirvaldanna.
Hinar kunnu ensku dægurlagasöngkonur, Tannersystur, sem
dvalið háfa í Reykjavík að undanförrru, komu hingað í gærkvöldi
flugleiðis og héldu söngskemmtun í Nýja-Bíó kl. 9, og voru allir
aðgöngumiðar seldir fyrirfram. Vegna þess hve seinl gaf norður
í gær, varð að aflýsa fyrri skemmtun þeirra. I kvöld syngja þær
í Nýja-Bíó kl. 7, og síðan verður dansleikur á Hótel KEA, og þar
munu þær koma fram. Það er hljómsveit Ki'istjáns Kristjánssonar
sem annast undirleik fyrir dægurlagasöngkonurnar. íþróttafélagið
Þór stendur að hingaðkomu þeirra.