Dagur - 19.05.1954, Page 8
8
D AGUR
Miðvikudaginn 19. maí 1954
Ferðaþáttur
Skemmtikliibburinn
„ALLÍR EITT“
oregs-pistlai*
Vigíús Einarsson, fyrrum bóndi
að Keldhólum á Fljótsdalshéraði,
nú til heimilis hér í bæ, leit inn á
skrifstofur blaðsins fyrir nokkr-
xun dögum. Var hann spurður
frétta, að gömlum og góðum sið.
Vigfús, sem er maður grandvar
í orðum, mun fljótt hafa skilið
hvar fiskur lá undir steini; sagð-
ist aldrei hafa verið gefinn fyrir
það að láta hafa mikið eftir sér,
og sízt af öllu ef mikið væri fært
í stílinn. Þó varð það úr, að hann
sagði stuttlega frá ferð sinni til
Suðurlands. Sagðist hann lengi
hafa haft hug á að sjá land og fólk
sunnanlands, og vegna aldurs
síns, en hann er nú orðinn 75 ára
gamall, hefði ekki verið skyn-
samlegt að fresta föi-inni öllu
lengur.
Snjólaust um allt land í
miðjum janúar.
Vigfús lagði af stað 16. janúar
sl. með bíl Norðurleiða. Föl var á
Öxnadalsheiði, annars alauð jörð
norðanlands. Á Blönduósi kom
H. J. Hólmjárn í bílinn og eftir
það skorti ekki tilsögn á því, sem
fyrir augu bar. Þessa leið hafði
Vigfús ekki farið áður, en langað
til þess langa ævi að sjá með eig-
in augum sveitir og býli, og forn-
fi'æga sögustaði. Fölvuð jörð var
sunnanlands og lítils háttar snjór
á Holtavörðuheiði. Færið var eins
og nærri má geta gott alla leið-
ina og gekk ferðin svo sem bezt
varð á kosið. Þótti Vigfúsi ekki
erfitt að ferðast á þeiinan hátt. —
Meira að segja væri bæði matur
og kaffi á réttum tíma eins og
maður væri heima hjá sér.
Þjóðleikhúsið.
Helga hjúkrunarkona, dóttir
Vigfúsar, og maður hennar, Frið-
geir Ingimundarson, tóku á móti
gamla manninum og hjá þeim
dvaldist hann meðan hann var í
höfuðborginni. Það er draumur
mát'gra, sem úti á landi búa, tað
sjá Þjóðleikhúsið. Sá draumur
Vigfúsar rættist. Hann sá „Pilt og
stúlku“, sem verið er að sýna um
þessar mundir. Varð hann hrifinn
bæði af sýningunni og þá ekki
síður af Þjóðleikhúsinu sjálfu.
Þjóðminjasafnið.
Vigfús fór þrisvar á Þjóðminja-
safnið, en fannst hann þó eiga
jafnmikið eftir að skoða eftir að
hafa farið þriðju ferðina. Konur
sátu í hverri deild safnsins og
voru með prjóna sína. Ekki fannst
Vigfúsi þær sérlega skrafhreifar,
að einni undanskilinni þó. Vax-
myndasafnið skoðaði hann líka,
en brá í brún og fór hjá sér þegar
hann sá ýmsa helztu menn þjóð-
arinnar á fundi. Útlénda þjóð-
höfðingja sá hann líka í annarri
deild, mótaða í vax. Meðal ann-
arra Hitler og Stalin.
Bændur heimsóttir.
Vigfús lagði nú leið sína aust-
ur á bóginn og fór fyrst til frænda
síns, Páls Björgvinssonar á Efra-
Hvoli. Á Efra-Hvoli eru 25 gripir
í fjósi og 16 hross á húsi. 27
gimbrar hafði Páll keypt í haust.
Voru þær flestar af Vestfjörðum
og voru vænar að sjá, en nokkrar
voru úr Öræfum og þótti Vigfúsi
þær smáar, svo og hrútskuddinn,
sem líka var þaðan fenginn. Þann
hrút væri skömm að sýna nokk-
urri á.
Þeir frændur fóru smáferðir um
nágrennið. Á Múlakoti í Fljóts-
hlíð hittu þeir mæðginin, Guð-
björgu og Ólaf málara, sem gjört
hafa garðinn frægan. Skógrækt-
ina að Tumastöðum skoðuðu þeir
líka. Þótti Vigfúsi gaman að sjá
þær þúsundir grænu trjáplantna,
sem þar er verið að ala upp og
eiga þær eftir að fegra landið í
framtíðinni.
Þá heimsóttu þeir verkstjórann
við Markarfljótsbrúna. Heitir
hann Eysteinn Einarsson og sér
um viðhald og hefur eftirlit með
varnargarðinum mikla, sem á að
vernda Fljótshlíð frá frekara
landbroti af völdum Þverár en
orðið er og er það ærið nóg. Veitti
Einar þeim hinn bezta beina, en
harmaði að hann ætti ekkert út í
kaffið.
Þá heimsóttu þeir Ólaf Berg-
steinsson á Árgilsstöðum. Hann
er bróðir Gizurar Bergsteinssonar
hæstaréttarlögmanns. Ólafur býr
þarna sjálfur hjá sér og „hefur
það huggulegt11. Bar hann gestun-
um súkkulaði, kaffi, ávexti og
vindla, og ekki má gleyma
pönnukökunum. Þrátt fyrir konu
leysið, sem erfitt er talið, og ekki
sízt í sveit, býr hann þarna
myndarbúi og er allt jafn mynd-
arlegt, bæði úti og inni.
Á Stóra-Hofi nutu þeir gest-
risni Ágústs bónda Guðmunds-
sonar og konu hans. Skoðaði
Vigfús bæði fjós og hesthús. í
fjósi voru um 20 kýr og í hest-
húsi 10 folöld. Geta má sér þess
til að þar leynist „hestefni". Vig-
fús undraðist hina miklu ræktun-
armöguleika er víða blöstu við
auga og aldrei sagðist hann hafa
séð fallegra land til ræktunar en
hjá frænda sínum á Éfra-Hvoli.
Heim kom Vigfús með Esju, en
hitti góðkunningja á Austurlandi
um leið, og var þai', eða nánar
tiltekið á Norðfirði, milli ferða.
Engin ævintýri, sem svo eru
kölluð, kvaðst Vigfús hafa komist
í, en í sjálfu sér væri það ævin-
týri að ferðast þvert yfir landið
og sjá með eigin augum byggðir
og bæi, forn höfuðból og sögu-
merka staði. Til dæmis gæti hann
nú gert sér glögga grein fyrir
staðháttum úr Njálssögu, sem ný-
lega var lesin í útvarpið.
12-14 ára telpu
vantar mig til að gæta
barna.
Lára Lárusdóttir
Lækjargötu 3
Barnavagn
til sölu í Brekkugötu 21
(að norðan)
Dansleikur í Alþýðuhúsinu
miðvikudaginn 26. þ. m.
kl.9 e. h. — Félagsskírteini
og borð fyrir þá, er hafa
haft föst skírteini síðastlið-
inn vetur, afgreidd þriðju-
daginn 25. þ. m., kl. 8.30—
10 e. h.
Gamla stjórnin.
Barnavagn
til sölu. — Uppl. í Norð-
urgötu 41 eða síma 1781
r
Lftlend dragt
stærð nr. 40 til sölu. — Til-
Selveiðar.
í fyrstu viku þ. m. voru flest
selveiðiskipin frá Álasundi og
Sunnmæri á heimleið, bæði úr
Vesturísnum (hér norður af) og
frá Nýfundnalandi. í Vesturísn-
um var „Vesleper" hæstur með
3200 seli um 5. maí og bjóst þá
innan skamms til heimferðar, og
hefur veiði hans eflaust orðið
nokkru meiri, þótt veiðiskilyrði
væru þá fremur óhagstæð vegna
austanáttar. Annars höfðu flest
skipin á þessum slóðum allmis-
munandi veiði, frá 1000—2000
dýr. Mun það hafa stafað bæði af
óhagstæðri veðráttu og styttri
veiðitíma að þessu sinni sökum
nýrra ákvæða um veiðileyfið.
legu veðráttu einnig þar, regni og
slyddu langt fram á vetur. Voru
refir ekki komnir í fullan vetr-
arham fyrr en um jólaleyti. —
Sjávarís var þar ekki öruggúr
fýrr en í janúar.
Norðán frá Mývogi fréttist, að
jarðleysi sökum klakastorku hafi
orðið sauðnautum mjög að tjóni
í vetur. Nautin eru grindhoruð,
og vetrungskálfar sjást hvergi.
Er talið, að þeir muni hafa fallið.
Hér er sama hættan og í Finn-
mörku ,segja Norðmenn, að eftir
miklar bleytur fram á vetur
hleypur allt í klakastorku svo
harða og þykka, að dýrin vinna
ekki á (sauðnaut og hreindýr).
Og síðan bætist fannkyngi ofan á.
Fisliveiðar við Vestur-Grænland
eru þegar hafnar frá Álasundi
og Sunnmæri. Skarbövík for-
stjóri félagsins „Útgerð" í Ála-
sundi skýrði nýskeð þannig frá í
viðtali við blaðamenn frá „Sunn-
mörsposten", að allt sé í góðu
lagi þar vestra í Færeyingahöfn,
þar sem Nörðmenn hafa einnig
aðsetur. Snjór er þar mikill enn,
en ís er horfinn. Fiskibátar flestir
komnii' vestur, og veiðar hafnar.
15 verkamenn við landstöðina eru
komnir vestur og 3 skip eru á leið
vestur með efnivið, beitusíld og
vistir.
Nú á að byggja ■ þarna annað
frystihús stærra én hitt, sem
byggt var í ■ fyrra: Frystimagn
þess á að vera 30 smálestir á dag.
Einnig á að byggja saltskemmu
fyrir 5000 smálestir salts og nýja
bryggju, 120 m langa. „Það verða
því talsverðar framkvæmdir
þarna vestra, einnig að þessu
sinni,“ segir Skarbövík að lokum.
En hvað um okkur, „landana“?
Höldum við áfram hinu furðu-
lega „framkværhdaleysi,“ sem
lagður var grundvöllur að 19Í8?
— Eða vakna menn loks við
vondan draum og sjá og segja:
„Mál er að vakna, drengir!"
Bæjarstjórn Álasunds
samþykkti nýlega 125.000
króna fjárveitingu á næstu fjár-
hagsáætlun til malbikunar gatna
bæjarins. Nægir þessi upphæð til
malbikunar á 15.000 fermetra
svæði. Hyggur bæjarstjórn á sam
vinnu við malbiksverksmiðju
eina og Vegagerð ríkisins að
stofnsetj a malbiksblöndunarstöð
við malartak bæjarins.
Úra-verkfall.
Þegar straumi var hleypt á
hina miklu alúmsverksmiðju á
Sunnudalseyri á Norðmæri í
Noregi (þ. e. Aura-virkjunin
rrtikla á landamærum Sunh-
mæra), gerðu öll armbandsúr
starfsmanna skyrtdilega vei'kfall.
Virtist sóttnæm veiki valda þessu
og náði einnig skjótt til vasaúr-
anna. — Við athugun kom upp
úr kafinu, að úrin urðu segul-
mögnuð og stöðvuðust, aðallega
í straumstillideild verksmiðjunn-
ar. Jafnvel úr sem verið hafa
and-segulmögnuð standast ekki
raun þessa fyllilega, og er talin
hætta á, að úrin geti algerlega
eyðilagzt.
Helgi Valtýssoh.
búnir kvenkjólar. — Einnig
seldir sniðnir kjólar.
Saumastofan
Gránufélagsgötu 11
Sími 1689
ATVINNA
Dugleg og þrifin stúlka
getur fengið atvinnu við
létt og hreinleg innistörf.
Uppl. í sima 1408.
Tilboð óskast
í afgreiðslitskúr okkar við
Skipagötu 16., til niðurrifs
eða flutnings."
Tilboðum sé skilað í af-
greiðslu okkar, í síðasta lagi
laugardaginn 22. maí.
Pétur h Valdimar h.f.
Frá Nýfundnalandi var þá
„Polarbjörn" lagður af stáð [
heimleiðis með mikla veiði og
fulla hleðslu, 9200 seli, og
skömmu áður var „Veslekari“
lögð af stað með fulla hleðslu.
Voru þá aðeins eftir „Polaris" og
„Jopeter“ af Sunnmæraskipum
þar vestra. Það eru aðeins
stærstu veiðiskipin, er sækja
veiði svona langt.
Refaveiðar.
Á Austur-Grænlandi hafa refa-
veiðar Norðmanna verið í meðal-
lagi í vetur. Hafa flestir veiði-
manna um hundrað refi hver. í
fyrra var refaveiði afar léleg, og
er nú búizt við stórveiði að ári.
Sumir veiðirrtenn þar vestra hafa
nú verið þar 3 ár í röð, og fara
sumir þeirra heim í sumar. Refa-
skinnin eru sögð óvenju léleg í
ár, og stafar' það af hinni óvenju-
„Sjáifstæði“ Austur-Þýzkalands
Herlock, hinn kunni skopteiknari blaðsins Washington Post birti
þessa mynd skömmu eftir að Sovétstjórnin hafði birt tilkynningu
um að Austur-Þýzkalandi hefði verið veitt fullt og óskorað sjálf-
stæði, enda þótt þess væri getið í tilkynningu Rússa um þetta, að
í landinu mundu verða framvegis 300.000 manna rússneskur her „af
öryggisástæðum“. Myndin sýnir fangann (Austur-Þýzkaland) er
hann móttekur tilkynninguna í fangaklefanum. Á tilkynninguna er
prentað: „Þú ert frjáls og fullvalda! Tak fagnandi við boðskapnum!“