Dagur - 09.02.1955, Page 6
6
DAGUR
Miðvikudaginn 9. íebrúar 1955T
DAGUR
Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Datíðsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166.
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 60.00.
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
BB 1 •Sj jí§m|
Blaðaskrif í Bretlandi og hlutverk
brezka blaðaráðsins
í UMRÆÐUM, sem orðið hafa í Bretlandi vegna
skipstapa Breta úti fyrir Vestfjörðum í ofviðrinu
27. janúar, er tveir togarar þeirra fórust og með
þeim 42 sjþmenn, hefur skerfur nokkurra blaða
og a. m. k. eins togaraskipstjóra orðið sá, að bera
íslendinga rógi og illmælgi um leið og rangt er
skýrt frá atburðum hér við land þennan dag.
Ennfremur er mjög villandi skýrt frá reglum ís-
lendinga um verndun fiskimiða og stærð land-
helgi. Lundúnablaðið Daily Mail hefur fullyrt, að
íslendingar hljóti að bera nokkra ábyrgð á slys-
inu, því að togurum sé meinað að leita landvars
síðan nýju friðunarákvæðin gengu í gildi. Enn-
fremur var í því bláði skýrt alrangt frá afdrifum
íslenzka togarans Egils rauða og björgun manna
úr því skipi.
MEÐ ÞESSUM aðgerðum hafa brezk blöð enn
vegið í hinn sama knérunn og í fýrra, er sum
þeirra vildu kenna íslenzku friðunaiákvæðunum
um það að brezkur togari týndist á Grænlands-
miðum. Vakti 'þetta furðu hér á íslandi, svo
heimskudeg og ósönn sem þau skrif voru. En nú;
kastar tólfunum, enda er nú gengið feti framar,
þar sem að tilefnislausu er reynt að tengja saman
þessa hörmulegu skipstapa og friðúnarákvæðin
við fslandsstrendur, sem.ná jafnt til íslenzkra tog-
ara og brezkra. Enda voru margir brezkir togárár
í landvari í ofviðrinu, er grandaði togurunum
tveimur. -r— Hér er skákað í því skjóli, .að brezkur
almenningur er fáfróður um þessi málefni, og erf-
itt er um vik að bæta fyrir misgerð,' sem blöðin
hafa einu sinni framkvæmt.
ÍSLENZKA ÞJÓÐIN mótmælir öll þessum
ódrengilegu aðförum. Utanríkisráðherra íslands
hefur lýst undrun íslendinga í viðtali við brezka
sendiherrann hér, en hann mun hafa borið fram
leiðréttingar við brezka utanríkisráðuneytið. Mun
í þessu sambandi bent á, að vátryggjendur og eig-
endur brezku togaranna hafa sent íslendingum
þakkir fyrir aðstoð við leitina að hinum týndu,
skipum. Enda þótt mótmælum þessum og leiðrétt-
ingum sé komið á framfæri, er rétt að benda á, að
þau leiðrétta ekki þá misgerð gagnvart íslending-
um, sem orðin er. Brezku blöðin munu vissulega
ekki birta leiðréttingar með sama hætti og þau
birtu ásakanirnar. Mál þetta hlýtur því að hafa
hin verstu áhrif á sambúð íslendinga og Breta.
Mun fslendingum þykja ofsókn brezkra togaraút-
gerðarmanna á hendur sjálfsbjargarviðleitni og
þjóðarréttindum íslendinga keyra úr hófi fram,
þegar hafin eru svívirðileg rógsmál á hendur þeim,
til þess að réttlæta ofbeldisaðgerðir þær, sem
brezkir togaraeigendur hafa staðið fyrir gagnvart
islenzkum viðskiptum í Bretlandi.
ÞAÐ ER HART að sæta slíkri meðferð af hendi
blaðakosts, sem öðrum stundum telur sig mál-
svara réttlætis og frelsis og sanngimi í skiptum
þjóðanna. Brezku blöðin hafa sjálf komið upp
dómst'óli, sem þau fela að úrskurða, hvort þau
gæta siðmennilegra starfsaðferða og verji heiðurs-
skjöld Breta fyrir áföllum. íslenzk blaðamanna-
stétt ætti í þessu máli að snúa sér til hins brezka
Press Councií og óska þess, að
dómstóll sá taki til meðferðar
hvernig fréttaflutningurinn af
sjóslysum þessum samrýmist
þeim háu kröfum, sem brezk blöð
fullyrða að gerðar séu til þjón-
ustustarfs blaðanna þar í landi.
Úrslit þess máls í hendi þessarar
stofnunar væru vísbending um
það fyrir íslenzka blaðalesendur
a. m. k., hvort skrafið um heiður
og réttlæti er meira en orðin tóm.
Dáðríkt starf.
í. B. skrifar blaðinu 31. f. m.:
HINN 25. jan. sl. flutti útvarp-
ið'þá fregn, að tveir brezkir tog-
arar hefðu farizt í foráttuveðri á
Halamiðum með allri áhöfn, 42
mönnum, og togarinn Egill rauði
frá Neskaupstað hefði strandað
á eyðiströnd við Vestfirði, en á-
höfninni verið bjargað að undan-
skildum fimm mönnum. En
björgunarsveitir Slysavarnafé-
lags íslands og áhafnir nokkurra
skipa sýndu þar fórnfýsi, þrek og
dugnað við að bjarga meðbræðr-
um sínum úr dauðans greipum.
Atburðir sem þessir eru því mið-
ur ekki ótíðir við íslands strend-
ur, en ættu þó að fækka með
aukinni tækni og betri búnaði
skipa og báta og björgunarsveita
í landi, enda sýnir saga undan-
genginna ára að slysavarnasveit-
ir og dáðríkir drengir er þær
skipa hafa margan manninn hrif-
ið úr greipum dauðans. Líklegt
er, að án hins árangursríka starfs
björgunarsveita og annarra, hefði
öll skipshöfnin á Agli rauða far-
izt. Og víst má þjóðin og þeir,
sem næst standa, vera þakklát
fyrir slík störf Já, öll ættum við
að vera þakklát fyrir að svo
giftusamlega tókst að bjarga hin-
um störa hóp frá sökkvandi og
sundurliðuðu skipsflaki í foráttu
brimi og stórhríð. En við erum
líka harmi þrungin vegna hinna,
sem fórust. Við hugsum með
djúpri hluttekningu til ekkna og
föðurlausra barna, sem nú syrgja
þorfinn, , ás^vip, er hrifinn, var
burt frá þoim. í baráttunni fyrir
afkoinu . heimilisins. Við hugs-
um til ensku sjómannanna. er
skip þeirra voru 'að sökkva úti á
regin hafi, og engin von um
þjörgun, í stórhríð og hafróti.“
Misþyrming á sálmi.
Enn segir I. B.:
„ÞEGAR ÚTVARPH) fluttí
okkur þessar harmafregnir. hélt
ég að kvölddagskrá þess myndi
verða eitthvað í samræmi við
þessi tíðindi, bæði í tali og tón-
um. En það fór á annan veg, —
ekkert mátti breyta hinni fyrir-
fram ákveðnu dagskrá, sem svo
undir þessum kringumstæðum
varð harla ósmekkleg, og á ég
þar þó sérstaklega við hið nýja
lag (tónverk ætti kannske að
segja) Jóns Leifs við hinn al-
kunna sálm Hallgríms, „Allt eins
og blómstrið eina“, er þeir Magn-
úr Jónsson og Guðmundur Jóns-
son sungu. Já, ég varð alveg
hissa! —- Sálmurinn „Allt eins og
blómstrið eina“ er ein af þeim
perlum, sem við íslendingar eig-
um í bundnti máli, og lagið er
textanum svo samanslungið að
hvorugt er hægt að hugsa sér án
hins, enda sungið við hverja jarð-
arför um áraraðir. í það ljóð og
lag höfum við, feður okkar og
mæður, afar og ömmur, sótt
huggun og styrk, er horft var á
eftir dánum ástvin. En svo kemur
þetta svokallaða lag eitt kvöld,
þegar íslenzka þjóðin syrgir
nokkra af sonum sínum, er farizt
hafa í baráttunni við Ægi. Og
tveir af okkar ástsælustu söngv-
urum láta hafa sig í það að sóa
sinni dásamlegu rödd í óbljóð
með slíkum texta. Mér finnst það
raunar hart, að hafa ekki frið
t • S
VALD. V. SNÆVAllR:
með útfararsálm eins og „Allt
eins og blómstrið eina“ fyrir þeim
tónskáldum, sem endilega þurfa
að semja ósamræmt tónarugl.
Það er nóg til af rímum, sem slík
tónverk hæfa betur, en útfarar-
sálmar okkar mættu þá kannske
hafa frið. Já, ég er hissa á því að
nokkur skuli framleiða slíka
samsuðu. Eg er hissa á því, að
þjóðin skuli ekki afneita því, að
sálmar Hallgríms séu þannig for-
smáðir. Ég er hissa á því, þegar
ágætir söngvarar og dáður ur dir-
leikari fást til að fara með slíkt.
Ég er hissa á því, þegar útvarpið
fæst til þess að flytja útfarar-
sálminn okkar alkunna þannig
útleikinn til þeirra, er syrgja
horfna ástvini, sem Ægir hefir
hrifið frá þeim í fullu fjöri og í
blóma aldurs síns. Já, ég er al
veg hissa og svo mun um marga
fleiri.
Viðhorf forsætisráðherra.
í lok bréfs síns segir I. B.:
„EN Ég ATTI EFTIR að verða
meira hissa. 29. jan., daginn eftir
fregnina um skiptapana, flutti út-
varpið þá fregn, að forsætisráð-
herra Dana, Hans Hedtóft héfðí'
dáið þá um nóttina. Sjálfsagt var
það ágætis maður, sem vert er að
minnast. Enda kom forsætisráð-
herra ísiands, Ólafur Thors, í
kvölddagskrá og flutti þjóð sinni
þessa sorgarfregn iim kollega'
sinn. Þetta var auðvitað ágætt,
en þó var ég hissa á því að for-
sætisráðherra okkar skyldi ekki
finna hjá sér neina hvöt til að‘.
tala til þjóðar sinnar um þá
menn, er hún hafði rétt áður
misst úr sínúm fámenna hópi Og
nokkur huggunárörð til nánustu
syrgjenda. Mér finnst það snerta
okkur meira, þegar stór hópur
íslenzkra og erlendra sjómanna
ferst við strendur landsins og á
miðunum, á sama sólarhring en
þegar danskur ráðherra deyr í
svefni, jafnvel þótt forsætisráð-
herra sé og ágætis maður, — en
forsætisráðherra íslands hefir
þar líklega aðra skoðun.“
r
Utgjöld ýmissa landa til
félagsmála - ísland
f jórða í röðinni af Norð*
urlöndum
Alþjóðasamvinnumálaskrifstof-
an í Genf (ILO) hefur nýlega birt
skýrslu um fjárframlög ýmsra
þjóða til félagsmála, almennra
trygginga o. þ. h. — Samkvæmt
þessari skýrslu leggja Svíar fram
hæsta upphæð til félagsmála
meðal Norðurlandanna fimm, en
ísland er fjórða í röðinni. Útgjöld
eftirtaldra landa eru sem hér seg-
ir á hvern íbúa, og er upphæðin
reiknuð í dollurum:
Austurríki $52; Belgía 89; Dan-
mörk 61; Finnland 52; Frakkland
96; Vestur-Þýzkaland 78; fsland
50; írland 25; ítalía 25; Luxem-
bourg 100; Holland 37; Noregur
43; Saar 116; Svíþjóð 83; Sviss-
land 58; Tyrkland 30 og Stóra-
Bretland 70 dollara á hvern íbúa.
4
£3
I
Þegar jiysinn hljóðnar. |
Hvað mun það stoða manninn, þótt hann
eignist allan hciminn, en fyrÍTgjöri sálu
sinni? Eða hvaða endurgjald mundi mað-
ur gefa fyrir sálu sína? — Matth. 16, 26—5
„Hver maður hefur bæði líkama og sál.“ Líkam- ¥
inn er bústaður og verkfæri sálarinnar. Haim er ®
daiiðlegur, en sálin ódauðleg, — •eilíf. Hann cr 4
jarðnesks eðlis, en sálin himnesks eðlis. — Efnin
í líkamanum og efnahlutföllin þekkja vísfndin. Úr 4
járni, sem er í einum mannslíkama, mætti smiða S.
sex væna nagla og úr líkamsfitunni, steypa nokkur t
kerti. Auk þessara efna eru þar 125■. gr. af sykri,
nokkrar skeiðar af salti og fosfór, sem nægja $
myndi í 800,000 eldspýtuhausa. Sennilega munu 7.
öll efni líkamans ekki vera öllu vieira en nokkurra ?
krónutuga virði. Að því leytinu er því ekki af 4
miklu að státa. Hins vegar er það ein af dásévid- e
um lifsins, að úr jafnlitlu efni skuli til verða svo 4
dásamleg vél sem líkaminn er. — Sálina þekkja
vísindin ekki eins vel. Þeim gengur vist illa að ^
- finna hana með mælitækjum sínum, eins og von- j|
■ legt er. Það er ekki að vænta þess, að jarðnesk s
í mælitæki séu nothæf á andlega, himneska hluti. '£
Starf sálarinnar gegnum skynsemi, vilja og tilfmn- ®
! ingar rannsaka menn þó og hafa komizt að mörgu *
merkilegu. — Yms lögtnál gilda bæði fyrir líkama
og sál. Þannig þroskar hæfileg áreynsla og skyn-
■ samleg þjálfun bæði líkamann og sálina. Hvorugt
má ofþreyta, að skaðlausu. — Líkamann þroska
1 íþróttir, sevt stillt er vel í hóf, en sálina andlegar
'■ iðkanir, hreint samltf og listir, ekki sízt sönglistin.
s — Líkama og sál þarf að næra, lroort eftir sínú
■. eðli. Ekki er hyggilegt að svelta sálina, en ala
i líkamann. Eins vmn ekki tilgangshæft að kvelja
;. líkamann og ætla sálinni að þroskast á eymd hans
, og niðurlægingu. Sagan sannar, að það borgar sig
; ekki. En — þar scm mannssálin er eilíf og ódauð-
leg, en líkaminn dauðlegur eftir nokkra áratugi, cr
í sú heimska augljós, að láta sálina búa við verri
r hag en iíkamann. — Hér á landi- er! nú viiktl rækt
| lögð við iíkamann. Leikfimi og vtargskoiiar'íþróttir
e'ru kappsamlega stundaðar. Vinnutivff ér tákviark-' "f
aður í ýmsum starfsgreinum, o'g réýnv'er að 'sjá a
fyrir heilsusamlegum vinnuskilyrðum, nægri fæðu ?
'og gáðum húsakynnum. Með nokkurúi>l-pdirtA‘*rtfk,a*
"A'égja, að dekrað sé við likamann'. -A.pyriL þroskúii ®
og heilbrigði sálarinnar eiga heimili,\ skólar,. kirkja 4
pg félagssanitökin að sjá í skjólil þjáðfélagsins. %
Heimilin eru fámenvari mi én fyrnmeir. Það er 4
þití hætt við, að þau hafi upp A;mil0a aA.þÍ'áða en.. X
,-áéur. Skólarnir. eru vel sóttir, endit .að; sumu. deyti,'M
lögboðnir, ett sumum virðist, sem-'þeir-Aéggi pfsAb
i mikla áherzlu á þroskun skynsey/imyigr, eji tilfixiV-ávi
|i, ■* inga- og viljalífið sitji fremur á.,kák4?ivm,e>g -þnðé
valdi misræmi. Þeir séu iþannig. f.reniu?,fatfðski^~
.en uþpeldisstofnanir- og sé það illya.fþpð.Bnrp,frá
kirkjunni og siðgæðisfélagsskapniim liggja sttaum-
arnir sem stendur, að því er virðist. Verði svo til 4
lengdar, er hætt við að þjóðarsálin ko?(iist ,í sveltu. ^
Það vanrækir cnginn kirkjuna og félagsskap um ^
góð mál sjálfum sér að skaðlausu, þegar til lengdar i
lætur. — Engin þjóð, hversu traustir stofnar og ®
göfugir, sem að henni standa, lifir andlega talað 4
á því, sem glaumskálar og glæpabókmenntir hafa - S
upp á að bjóða. Villt líf og siðlaust er þjóðar- 4
háski. — Til munu vera menn vor á rneðal, sem ||
óttast vijög að einhver hluti þjóðarinnar piisbjóði t
sálunni, en ali líkamann. Þá er vá fyrir dyrum. I Ý
raun og sannleika er skylda hvers manns, að sjá X
sér fyrst og fremst andlega borgið. Verum minnug a.
orða Krists í textanum: „Hvað mun það stoða 5
manninn, þótt liann eignist allan heiminn, en fyrir- ¥
gjöri sálu sinni? Eða hvaða cndurgjald mundi ®
maður gefa fyrir sálu sína?“ — Vakni því hver, 4
sem sefur! Biðjum Drottin að varðveita þjó.ðina. §
Biðjum hann að vera með æskunni. — x
„Varðveit sál rnína og frelsa mig.“ ||
(Sálm. 25, 20) 4
4
I
4
Skúla Guðjónssonar minnst í
Danmörk
Dönsk blöð, sem hingað hafa borizt, bera með sér að
Dönum þykir mikill mannskaði að prófessor Skúla
Guðjónssyni, sem andaðist í Árósum í sl. mánuði.
Öll aðalblöðin í Kaupmannahöfn fluttu minninga-
greinar og var þar ralcinn merkur æviferill þessa
íslendings, sem vann það afrek að gerast mikils-
virtur forustumaður á sviði næringarfræðivísinda í
Danmörk, og verða fulltrúi danska ríkisins á fjöl-
mörgum erlendum ráðstefnum.