Dagur - 02.11.1955, Qupperneq 1
12 SÍÐUR
Fylgist meö því, sem gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 9. nóvember.
XXXVIII.
árg.
Akureyri, miðvikudagnn 2. nóvember 1955
51. tbl.
íslenzkt NóMsverðlaimaskáld
var minnzt 25 ára afmælis Gagn-
HaUdór Kiljan Laxness hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels 1955, fyrst-
ur Islendinga. Sænska akademían tilkynnti þessa ákvörðun hinn 27.
október. Segir í viðurkenningunni. að Halldór fái verSIaunin fyrir að
hafa í skáldskap sínum hafið hina hetjulegu frásagnarlist íslendinga
hinna fornu til vegs í nútímanum. Þessum tíSindum hefur verið hjart-
anlega fagnað á Islandi — nær undantekningarlaust. Erlend hlaSaum-
mæli, sem til hefur frétzt, eru að kalla á eina 1 und, að viðurkenningin
sé verðskulduð, og hefði mátt koma fyrr. Verðlaunin nema 190 þús.
sænskum krónum, og hefur ríkisstjórn íslands tilkynnt, að hún muni
beita sér fyrir því að þau verði skattfrjáls hér heima. SkáldiS er vænt-
anlegt til íslands nú næstu daga, og verður hátíðlega fagnað hér. —
Ljósmynd af skáldinu heima á Gljúfrasteini eftir Jöran Forsslund.
50 lesía vélbálur bætist í skipa-
flota Akureyringa - kom hingað
frá Danmörk á sunnudaginn
Fimmliu lesta vélbdtur hefur
brrlzt í skipaflota Akureyringa, og
er langt siðan hefur fjölgað rí þeim
vettvangi, Hins vcgnr hafn nokkrir
brítar verið seldir héðan rí tiðnurn
ríru m.
Iíinn nýji bátur heitir „Gunnar,"
og er eign Júllusar I-Ialldórssonar
útgerðarmanns hér og sona hans.
Sóttu þeir bátinn lil Danmerkur og
sigldu honum heim. Skipstjóri í
þeirri för var Jón Sigurðsson frá
Svájbarði í Glerárþorpi.
M. b. Gunnar er bvggður í Kaup-
inannahöfn árið 1914, cr fallegur
bátur og vandaður, búinn öllum ný-
tízku siglinga- og öryggistækjum.
Vélin er 120—135 hestafla Alfa-
dísilvél. Ganghraði er 8.J4 míla.
Ferðin lrá Danraörk gekk vel
þrátt fyrir erfitt veður. Reyndist
báturinn vel í livívetna. Tók liöfn
hér eítir rösklega 7 sólarhringa úti-
vist, þar af lágu þeir 18 klst. við
Færeyjur vegna óveðurs.
Fer ií velrnrvertíð.
Júlítis Halldórsson segir blaðinu,
að báturinn verði gerður út héðan,
nú fyrst á vetrarvertíð syðra, ftá
sonar
Ingibjörg Steingríms-
dóttir syngur hér á veg-
um Tónlistarfélagsins
Tónlistarfélag Akureyrar heldur
4. og síðustu tónleika sína á Jressu
ári, fimmtudaginn 3. nóv. kl. 9 e. h.
1 Nýja Bíó. Mun ungfrú Ingibjörg
Steingrímsdóttir þá syngja fyrir
styrktarmeðlimi félagsins og gesti
þeirra. Dr. V. Urbancic aðstoðar.
Ingibjörg útskrifaðist frá Kon-
unglega tónlistarskólanum í Kaup-
mannahöfn fyrir nokkrum árum, og
hefur síðan verið fastráðinn söng-
kennari hjá Sambandi ísl. karla-
Grindavík. Verður Edvard sonur
hans skipstjóri á bátnum.
Akureyringar samfagna Júlíusi og
sonum hans með himi nýja bát og
óska þeim gæfu og gengis.
kóra. Að loknu námi hélt hún tón
leika í Reykjavík, á ísafirði og hér
á Akureyri, við mjög góða dóma.
Nti er Ingibjörg nýkomin frá
Stokkhólmi, jrar sem hún hefúr æft
hjá Jiekktri rússneskri söngkonu,
Madame Skilondz, og munu bæjar-
búar fagna því að fá að heyra til
hennar á ný.
Á söngskránni era lög m. a. cftir
Björgvin Guðmundsson, Þórarin
Jónsson, dr. Urbancic, Brahms,
Handel, Mozart o. fl.
Tónlistarfélagið væntir Jtess, að
styrktarmeðlimir greiði gjöld sín að
fullu við móttöku aðgöngumið-
anna, sem vcrið er að bera út til
þeirra, eða til gjaldkera félagsins,
Vegleg hátíðasamkoma að Hótel KEA
í gærkvöldi
t gær voru liðin 25 ár síðan
Gagnfræðaskóli Akureyrar var
setlur í fyrsta sinn og var af-
mælisins minnzt á veglegri há-
tíðasamkoinu sem haldin var að
Hótel KEA í gærkveldi. Jafn-
framt var þar minnzt 20 ára far-
sællar skólastjórnar Þorsteins M.
Jónssonar, sem lét af skólastjórn
nú á þessu hausti.
Jón Sigurgeirsson, sem gegnir
skólastjórastörfum um sinn í veik-
indaforföllum Jóhanns Frímanns
skólastjóra, ávarpaði Þorstein M.
Jónsson, Arni Jónsson kennari
flutti ágrip af sögu skólans og Þor-
steinn M. Jónsson, fyrrv. skólastj.,
flutti ræðu. Síðan voru frjáls
raeðuhöld. Söngkór eldri nemenda
söng undir stjórn Askels Jónsson-
ar. — Þetta hóf sátu fyrrverandi
nemendur, kennarar, eldri og
yngri, og ýmsir gestir.
I gærmorgun var afmælisins
minnzt með hátíðasamkomu í
skólahúsinu. Þar flutti Arni Jóns-
son kennari ágrip af sögu skólans
og sagði endurminningar frá fyrri
skólaárum, en Þorst. M. Jónsson,
fyrrv. skólastjóri, ávarpaði nem-
endur og kennara.
25 ára starf.
Gagnfræðaskóli Akureyrar var
stofnaður með lögum 19. maí
1930 og var settur í fyrsta sinn 1.
nóv. 1930 af Sigfúsi Halldórs frá
Höfnum, er þá hafði verið ráðinn
skólastjóri. Skólinn starfaði i húsi
Iðnaðarmannafélagsins við Lund-
argötu og var einn kennari, auk
skólastjórans, Jóhann Frímann,
núverandi skólastjóri. Skólinn út-
skrifaði fyrstu gagnfræðingana ár-
ið 1932 eftir tveggja vetra nám.
Fyrstu árin starfrækti skólinn
kvölddeild, og starfsmenn hans
sáu um skólahald Iðnskólans. Árið
1934 var 3. bekk bætt við og var
skólinn þriggja vetra skóli, unz
núverandi fræðslulög tóku gildi
en eftir það fjögurra vetra skóli
agsins til jóia - giæsileg verðlaun
Framsóluiarfélag Akureyrar er
nú að liefja vetrarstarfið. Er þeg-
ar ákveðið að efna til fjögurra
skemmtikvö'da að Kótel KEA til
jó!a. Verður þar spiluð Fram-
sóknarvist og keppt inn glæsileg
verðlaun.
Verða þrenn aðalverðlaun veitt
að lcknum öllum 4 spilakvöldun-
um og eru þau þýzk þvottavél,
Westinghouse-hrærivél og Heklu-
kuldaúlpa. — Aukaverðlaun verða
einnlg veitt eftir hvert kvöld. —
Stjórnandi spilamennskunnar verð
ur frú Helga Jónsdóttir.
Fyrsta spilakvöldið er næstk.
föstudagskvöld, en síðan 8. nóv.,
2. des. og 16. des., á sama stað.
Stjórn Framsóknarfél. ræðst í
að efna til þessarar keppni í því
trausti, að hún verð'i fjölsótt, enda
hér til mikils að vinna.
Þátttakendur geta skráð sig á
skrifstofu Framsóknarílokksins í
Hótel Goðafoss, kl. 10—12 og 5
—7 í dag og næstu daga eða í
síma 1443.
Skemmtikvöldin eru nánar aug-
lýst í blaðinu í dag.
Skólinn bjó við þröngan og óhent-
ugan húsakost unz núverandi
skólahús var tekið í notkun árið
1944. Voru nemendur þá orðnir
200 talsins. Árið 1947 var skólan-
um skipt í verknáms- og bóknáms-
deildir. I ár eru 350 nemendur í
skólanum, en alls munu um 2200
nemendur hafa stundað nám í
Gagnfræðaskóla Akureyrar frá
upphafi.
Farsæl skólastjórn Þorsteins M.
Jónssonar.
Þorsteinn M. Jónsson tók við
skólastjórn árið 1935 af Sigfúsi
Halldórs, en hafði áður verið for-
maður skólanefndar, frá stofnun
skólans. Er því nú einnig minnzt
20 ára skólastjórastarfs Þorsteins
og forustu hans í málefnum skól-
ans, allt frá upphafi. — Starf sitt
við skólann rækti hann af frábærri
alúð og mikilli röggsemi. Vann
Þorsteinn alla tíð af mikilli elju að
vexti og þroska skólans, og að efl-
ingu hans út á við og inn á við.
Þegar hann lætur af störfum er
Gagnfræðaskólinn fjölmennasti
framhaldsskóli bæjarins, býr við
vinsældir nemenda og foreldra, og
nýtur mikils álits út á við sem
ágæt mennta- og uppeldisstofnun.
Þótt margir hafi lagt skólamálinu
drengilegt lið á liðnum tíma, er
hlutur Þorsteins M. Jónssonar þar
langsamlega mestur. Mun skólinn
lengi búa að stjórn hans.
Þröngt um skólann á ný.
Á 25 ára afmælinu blasir sú
staðreynd við bæjarbúum, að
skólahúsið, sem reist var af mynd-
arskap á striðsárunum, er orðið of
lítið, og er mikil þörf úrbóta á
næstunni. Byrjað var á viðbótar-
byggingu fyrir nokkrum árum, en
aldrei lokið. Væri það viðeigandi
afmælisgjöf til þessarar merku
stofnunar af hendi bæjarfélagsins,
að þeirri byggingu verði að fullu
lokið á þessu ári.
Hús Gagnfræðaskóla Akureyrar, byggt 1942—1944.
Nú er húsið orðið of lítið og þörf úrbóta.