Dagur - 02.11.1955, Blaðsíða 12

Dagur - 02.11.1955, Blaðsíða 12
12 Baguk Miðvikudaginn 2. nóvember 1955 Hinn nýji 500 lesta vatnsgeymir í Rangárvallalandi. 500 lesta vatnsgeymír tengdur vatnsveitukerfi kaupstaðarins Aukning vatnsrennslis úr Hlíðarf jalli nauðsyn- leg að ári, m. a. vegna hraðfrystihússins Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum Þrír fóru niður um ís á r Olafsfjarðarvatni - björguðust allir, en farartæki er á vatns- botninúm Ólafsfirði 31. október. Vatnið er nú allt ísi lagt og spegilsléttur skautaís freistar skautamanna, ungra og gamalla. Þó eru tveir staðir hættulegir. Komu þar vakir, sem lagðar eru skæni. A laugardaginn fóru barna- skólabörnin ásamt kennurum sín- um út á vatnið. Var börnunum bannað að fara á undan. En þrátt fyrir það stóðust nokkur þeirra ekki mátið og brutu boðorðið með þeim afleiðingum að tvö þeirra duttu í aðra vökina en var bjargað. Mátti þó litlu muna. Piltur fór þar einnig um á mótorhjóli og renndi í vökina. Komst hann upp úi, en farartækið liggur enn á vatns- botninum. Þar er 8 metra dýpi. Hinir hættulegu staðir hafa verið merktir rækilega. — Til skamms tíma var talið að allir Ólafsfirð- ingar væru skautamenn og margir ágætir. Vonandi viðhalda þeir þessari fögru og hollu íþrótt. Um síðustu helgi var Lágheiði mokuð og hefur verið bílfært j'fir hana síðan, að minnsta kosti á jeppum og vörubílum. Góður afli hefur verið á línu- báta, en minna á handfærabátana. Stærri bátarnir hafa fengið upp í. 5 þús. pund. Þeir hafa sótt á Siglu- fjarðarmið. Kominn er ofurlítill snjór, en ágæt beitijörð fyrir sauðfé. Hæsta meðalvigt dilka hjá K. Þ. 20 kg Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Þingeyinga 19. sept. og var lokið 11. okt. Slátrað var á þrem stöð- um: Húsavík, Ófeigsstöðum og Flatey. Álls var slátrað 20298 dilkum og 1629 fullorðnum kind- Á föstudaginn var opnuðu rak- arameistararnir, Jón Kristinsson og Sigtryggur Júlíusson, nýja rak- arastofu að Ráðhústorgi 3, þar sem áður var Eókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f. Buðu þeir blaðamönnum að sjá hin nýju húsakynni. Þau eru sér- lega vistleg og útbúin fullkomnum um. Kjötmagn af þessu fé reyndist vera 325,5 tonn. Mestu meðalvigt hjá einstaklingi var hjá Vilborgu Jónatansdóttur, Nípá í Kinn, 20 kg. — 12 dilkar Friðbjarnai Jóna- tansdóttur bónda á Nípá höfðu 18,20 kg. meðalvigt. — 56 dilkar Stefáns Sigurðsosnar bónda á Geirastöðum höfðu 18 kg. meðal- vigt. — 54 dilkar, 3 dilkskr. voru með 25,5 kg. skrokkþunga, og voru eigendur þeirra bændurnir Halldór Árnason, Garði, Karl Jónatansson, Nípá, og Baldur Finnsson, Skriðu- seli. — Félagsheimilið í Reynihlíð lagði inn í éinu 170 dilka, og voru 20 einlembingar af því, reyndist meðalvigt þeirra um 16,6 kg. Búið er að taka niður gömlu raflínuna í milli Fnjóskár og Laxár Fosshóll 31. október. I sumar var gamla raflínan milli Fnjóskár og Laxár, rifin upp. Er í dag verið að flytja síðustu staur- ana burtu. Fara þeir til Grenivíkur í nýja raflínu þar. Snjólaust er ennþá og veður góð en fremur kalt. Féð gengur enn úti, en er fremur ókyrrt í haga vegna þess hve snjólaust er. Sums staðar er búið að taka lömbin. Lítið er af rjúpu og koma rjúpnaskytturnar með um 20 á dag og minna. Rafmagnsframkvæmd- um í Höfðahverfi seinkar Lómatjörn 31. oktber. Afli er góður á Gfenivíkurbát- ana. Er hann jafnóðum fluttur til Akureyrar og seldur þar nýr. •—- Unnið er við flutning raflínu- staura frá Garðsvík að Nolli. Er jarðýta að verki og dregur staur- ana á ákvörðunarstað. Óttast bændur að fá eigi rafmagnið eins fljótt og ráðgert var. Heyflutningar til Suðurlands falla að mestu niður. Verður að- tækjum. Rakararnir hafa sjálfir að mestu endsrbætt og útbúið stof- una og gert það af smekkvísi og hag’eik. Rakarameistararnir hafa i 20 ár starfað hér á Ak., og notið vinsælda, sem eflaust fylgir þeim í hin vel búnu húsakynni við Ráð- hústorg. — Hefur aðsóknin verið mikil undanfarna daga. eins flutt hey frá einum bæ, en bú- ið var að panta um 400 hesta í hreppnum. Hjónamót var í samkomuhúsinu í Grenivík á laugardaginn. Var það fjölsótt og fjörugt. Meðal skemmtiatriða var einsöngur Jó- hanns Konráðssonar með undirleik Áskels Jónssonar. Rafmagnsframkvæmd- ir í Svarfaðardal Svarfaðardal 31. október. Búið er að leggja raflínustaura fram að Þverá að vestan og Hofs- árkoti að austan. Er verið þessa dagana að strengja línuna að vest- an og síðan verður hin linan sett upp. Tveir vinnuflokkar frá KEA vinna að innlagningu. Er þess fast- lega vænst að allt verði gert, sem hægt er, til að flýta þeirri vinnu. Góð afiabrögð á Þórshöfn Þórshöfn 31. október. Fiskafli er góður á 2 allstóra mótorbáta, sem róa. Hafa þeir fengið frá 6—9 skippund í róðri. Veður eru stillt og enginn snjór. Flugvél lendir í Flatey Flatey 1. nóvember. Á sunnudaginn var lenti fyrsta flugvélin á nýja flugvellinum í Flatey. Vélin var frá flugmála- stjórn og flaug flugmálastjórinn, Agnar Kofoed-Hansen, henni sjálf- ur til eyjarinnar. Lendingin tókst ágætlega. Völlurinn er grasvöllur, sem sáð var i í sumar. — Vegna þurrkanna greri hann ekki vel í sumar, en búizt er við að á næsta sumri verði hann góður. Fólk safn- aðist saman og fagnaði komu flug- málastjóra. (Framhald á 11. síðu). Akureyringar þreyttu skák við Pilnik Argentíski skákmeistarinn Her- mann Pilnik hefur dvalið hér i bæ undanfarna daga og þreytt skák við skákmenn hér. Á sunnudaginn tefldi hann fjöl- skák við 37 skákmenn og fóru leikar svo, að hann vann 28 skák- ir, gerði 5 jafntefli og tapaði 4. Þessir sigruðu Pilnik: Björn Sig- ursson, Albert Sigurðsson, Róbert Þórðarson og Júlíus Bogason. Jafntefli gerðu: Margeir Stein- grismson, Jón Aspar, Halldór Helgason, Þorgils Sigurðsson (Dal- vík) og Sveinn Jóhannsson (Dal- vík). Á mánudagskvöldið þrej'tti Pilnik kapp við 10 meistaraflokks- menn hér og var teflt eftir klukku. Pilnik vann 8 skákir, tapaði 2, fyr- ir þeim Jóhanni Snorrasyni og Júliusi Bogasyni. -—■ I gær hafði Skákfélag Akureyrar kveðjusam- sæti fyrir stórmeistarann, en hsnn heldur til Reykjavíkur i dag. Bæjarstjórn vill byggja heimavist við hús- mæðraskólann Samþykkt var á siðasta bæjar- stjórnarfundi að sækja um til Al- þingis að veitt verði á fjárlöýgum næsta árs 300 þúsr kr. til bygging- ar heimavistar við Húsamæðra- skóla Akureyrar. Senmma í sl. mánuði var 500 lesta vatnsgeymir tengdur vatns- veitukerfi bæjarins. Stendur þessi geymir eins og aðrir safn- geymar vatnsveitunnar, í landi Rangárvalla, handan Glerár. Er þarna fyrir 520 lesta geym- ir, sem settur var upp 1930, og minni geymir, eldri. Voru fyrri geymar orðnir allt of litlir og geymdu hvergi nærri nógu mikið vatnsmagn fyrir bæinn, enda fer vatnsnotkun ört vaxandi. — Bygg- ingameistari við framkvæmdirnar var Bjarni Rósantsson. Geymirinn var teiknaður á skrifstofu bæjar- verkfræðings, en Sigurður Svan- bergsson vatnsveitustjóri stjórnaði framkvæmdunum. Vatnsveitustjóri skýrði blaðinu svo frá, að veruleg bót hafi orðið að þessari framkvæmd. Þarf ekki lengur að óttast vatnsskort í efstu húsunum í bænum. Lindirnar í Hlíðarfjalli. Hins vegar er þetta enginn loka- áfangi, sagði Sigurður. Fyrir hönd- um er mikið verk, að auka vatns- rennsli til geymanna úr Hliðar- fjalli.Nærtækustu lindirnar eru nú þrotnar að kalla, og ekki um ann- að að ræða en sækja vatn lengra suður í dalinn. Þar hefur vatns- veitan augastað á lindum. Er nú verið að mæla þær og rannsaka. Með þvi að leiða þær í vatnsveitu- kerfið, má forða því enn um mörg ár, að taka þurfi vatn úr Glerá, og koma upp dýru hreinsikerfi. Vatnsnotkun i bænum eykst sí- fellt, með auknum byggingum og atvinnurekstri. Þótt ekki væri ann- að, væri þegar þörf átaks til að auka vatnið vegna hraðfrýstihúss- rekstursins, sem þarf mjög mikið vatn. Bærinn hefur nú tryggt sér 1 millj. króna lánsfé til vatnsveítu- framkvæmda, frá Erunabótafélagi Islands, og má vænta þess, að haf- izt verði handa strax og fið leyfir i vor.. Aðrar fiamkvæmdir. Af öðrum framkýæmdum, sem á döfinni eru, má nefna vatns- leiðslu til býlanna hér sunnan og ofan við bæinn. Hefur verið ákveðið að leiða vatn til þeirra, enda hin mesta nauðsyh. Verður það vatn tekið úr aðalleiðslunni íil bæjarins skammt frá Páímholti. Efni til þessara framkvæmda er þegar pantað. Þessi leiðsla suður á bóginn frá Pálmholti, mun og koma að góðu gagni fyrir Bvggða- hverfið, þvi að hún mun auka vatntsrennsli til þess og í Eyrar- landsholtið. Þá er nýlega búið að leggja leiðslu frá aðalkerfi bæjarins í Glerárþorp, og tengja við vatns- veituna þar. Er nú fullnægjandi vatn í þorpinu og hafa öll hús fengið nægilegt vatn. Vatnsskort- ur var verulegur þar áður. Þá er nýlega lokið vatnslögn í Krossanes, um 1100 metra leið. Liggur hún norður i gegnum Gler- árþorp. Þessi æð dugar verksmiðj- unni fyrir neyzluvatn, en vatn til vinnslunnar fær verksmiðjan eftir sem áður úr Lónslæk. Þá skýrði Sigiirður vatnsveitu- stjóri svo frá, að i sumar hefði verið lagðar leiðslur til endurbóta á vatnsveitukerfinu hér innan bæj- ar, svo sem neðarlega á Oddeyri, í slippstöðina og að fískverkunar- húsum Utgerðarfélagsins, í Eyrar- veg og víðar. Eru þær leiðslur m. a. gerðar með tilliti til þarfa hins væntanlega hraðfrystihúss. Vatnsveitan hefur nú geymslu- hús í smíðum á Gleráreyrum, verður þar efnisgeymsla, 9,30x 11,40 metrar að flatarmáli, og bætir úr brýnni þörf. Starf feðga. Sigurður Svanbergsson, hinn ungi og ötuli vatnsveitustjóri Ak- ureyringa, tók við starfi 1. júní 1954. Fyrirrennari hans í starfinu- var faðir hans, Svanberg Sigur- geirsson, sem stjórnaði hér öllum vatnsveituframkvæmdum af mikl- um dugnaði og fágætri trú- mennsku i 25 ár. Á hans herðum hvildi að skapa það vatnsveitu- kerfi, sem v;ð búum við i dag í höfuðatriðum, og hefur það reynst vel. Hinn nýi vatnsveitustj. ætlar að reynast vandanumvaxinn.Hefur framkvæmdamálum vatnsveitunn- ar skilað vel áfram á þeim stutt.a 'tima, sem hann hefur gegnt starf- inu. Bændaklúbbsfimtlur á Bændaklúbburinn heldur fund næstk. þriðjudagskvöld að Hótel KEA, á venjulegum tíma. — Um- ræðufni á fundinum verður bú- fjárrækt. Rakarastofa Sigtryggs og Jóns í nýjum húsakynnum Blaðam. fá rakstur og klippingu í nýju rakarastofunni sl. laugardag.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.