Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 11

Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 11
JÓLABLAÐ DAGS U Fyrsti landneminn Grænar hlíðar, en blá f jöll í fjar- lægð. Hægur sunnanandvari leið yfir dalinn og gáraði ofurlítið flötinn á stóra stöðuvatninu. — Greinar trjánna bærðust eins og þ;er væru að kinka kolli til golunnar og bjóða hana velkomna. Jörð var orðin al- græn og ylur í lofti. Allt í einu sást einhver hreyfing í skógarhlíðinni. Nýtt líf færðist í landslagið. Þarna var maður ;i ferð. Hann var í selskinnskufli og með sítt hár niður á herðar. Maðurinn hélt inn hlíðina. Skógarþröstur flaug upp úr skógar- kjarrinu. Hann liafði orðið ótta- sleginn við koniu mannsins. En maður þessi hafði í hendi tágar- körfu nieð fjórmn silungum og nokkrum andareggjum. Hann var á bezta aldri, tæplega meðalmaður á hæð en þreklega vaxinn. Svipurinn var einbeittur og bar vott um vilja- festu. Hann bauð góðan þokka, þótt vart gæti hann talist fríður. Hvað hrærðist í huga þessa ein- mana manns? Á hvaða leið var liann? Hann var að leita heimili sínu bjargar og kom frá því að vitja um silunganet, sem lágu í vatninu. Nú var hann á leið heim til bæjar. En hugur hans flaug víða þenn- an fagra vordag. Hann hugsaði til æsku sinnar úti í Svíþjóð og leikja í hópi glaðra félaga. Þá hafði hon- uffl ekki komið í hug, að hann ætti eftir að búa í fámenni, sem land- nemi í ókunnu eylandi. En var hann þá óánægður með hlutskipti sitt? Nei, að vissu leyti ekki. Hann hafði valið sér þetta hlutskipti sjálfur, og í raun og veru leið honum í alla staði vel. f’að var liún, sem gerði hvern dag í einvfer- unni að hátíðisdegi. Svona er mannshjartað undarlegt. Að vísu greip hann stundum þrá til samskipta við fleira fólk. F.n hann var of hygginn til að láta hana ná valdi yfir sér. Hann vissi, að milli hans og annarra landa var breitt heimshaf. Hér í þessu mannlaust landi höfðu þau nú búið í tvö ár. Og hann hafði á vissan hátt tekið tryggð við landið. Hvort það var fyrir friðsæld þess og fegurð, eða vegna þess, að það hafði látið drauma hjarta hans rætast, gerði hann sér ekki ljóst. Maður þessi hét Náttfari. Hann kom hingað til lands með Garðari Svavarssyni Iiinum sænska. Hann minntist vetrarins, er hann var með Garðari og mönnum hans út við víkina, sem hann nefndi síð- an Húsavík eftir skála þeirra. Þeir ltöfðu siglt umhverfis landið sum- arið áður og haft vetursetu þarna í víkinni, af því að þeir treystu sér ekki að fara yfir hafið svo síðla sumars. Þegar hann réðst til þessarar far- ar með Garðari, hafði hann gert það eingöngu vegna jtess, að Korm- liið var með í ferðinni. Hún var að vísu ambátt, en fögur og dásamleg í hans augum fyrir því. Hún var írsk og bar nafn drottningarinnar. Og faðir hennar, sem einnig var ófrjáls, var með henni. Þeim hafði verið rænt 'af norrænum víkingum. En þá hafði Náttfara ekki grunað, að örlög hans mundu ráðast á þennan hátt. Þegar ferðin hófst, hafði hann ásett sér, að fá hana keypta, þegar heim kæmi. En eftir kynni hans af Garðari um veturinn, vissi hann, að Garðar mundi aldrei selja hana. Þá tók hann þessa djörfu ákvörðun. Hann hafði unnið hjarta Korni- iaðar til fulfs þennan vetur. Hún dró ekki lengur dul á það, að henni var fjúfara að vera rneð honum en öðrum mönnum. Faðir hennar lét það afskiptakmst. Svo var það eitt kvöld, að þau höfðu gengið út á höfðann. Þar O O sátu [)au um stund og sneru svo aft- ur heirn á leið til skálans. Þegar þau höfðu stutt farið mættu þau Garðari. Hann var æst- ur og sagði með taisverðum þjósti: „Hver hefur leyft þér að fara hingað, Kormlöð?" „Var ég ekki fráls að því, þegar ég hafði lokið verkum mínum?“ „Nei, þú ert ambátt mín og átt ekki að fara frá skálanum án míns leyfis." Þegar hér var komið samtalinu, gat Náttfari ekki verið idáirtians fengur. „Það er mxn sök, að hún gekk þetta með mér. Nú vil ég biðja þig að selja mér hana, og skal ég greiða andvirðið, þegar við komum heim,“ mælti hann. „Það skal aldrei verða, að ég selji þér ambáttir mínar og Kormlöðu sel ég ekki. Krefst ég þess eins, að þú látir hana í friði. Kormfiið, komdu með mér,“ svaraði hann snúðugt. „Ég fer heim með Náttfara, en ekki með þér,“ svaraði hún einarð- lega og bránu augun skutu gneist- um. Hún færði sig nær Náttfara. Þá sótroðnaði Garðar af reiði og hreytti út úr sér: „Æt'lar þú ekki að lilýða méi\ Það skal þér 'aldrei haldast uppi með.“ Hann stikaði til hennar og þreif í öxlina á henni. En hún gaf sig ekki, stóð kyrr og spyrnti á möti. Þá sneri Náttfari sér að honum og sagði með titrandi röddu: „Það er mér að mæta, ef þú ætlar að leggja liendur á Kormlöðu."

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.