Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 14

Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 14
14 JÓLABLAÐ DAGS „Sjómannslíf í HERRANS HENDI" Eins og undanfarin ár, langar mig til að fara með yður, kæru lesendur, í jólaheimsókn til aldurhnigins sjó- manns hér í byggðarlaginu. í þetta sinn hef ég ákveðið að sækja einn frænda minria heim: Þorstein Ant- onsson, fyrrum skipstjóra, nú bónda í Efstakoti á Upsaströnd. F.kki þarf að kvíða ógestrisni. Húsbóndinn kemur sjálfur til dyra og býður oss velkomin. — Þorsteinn Antonsson er meira en meðalmaður á hæð og öllu þreknari, enda nokkuð feitur, þó að iivorki sé það honum til lýta né þyngsla. Hann hefir vcrið ljós- brúnn á hár á yngri árum, rjóður í andliti og fullur að vöngum. Ennið er meðalstórt og yfirbragðið við- kunnanlegt. Hann er maður svip- góður og djarflegur og gefur góðan þokka. Af persónu hans stafar trausti og festu. — Þorsteinn var í æsku bráðgjör og byrjaði snemma sjósókn, eins og síðar verður frá sagt. Hann er vinsæll maður og vel iát- inn. Heimilisfaðir er hann góður, en hans hefur freinur lítið gætt út á við í almennum máfum, enda mun hann alla daga hafa hlédrægur verið og haft sig lít-t í frannni. Hann kvæntist 8. nóv. 1914 Kristrúnu Friðbjarnardóttur frá Efstakoti, merkri konu og ágætri. Jörð sína hafa þau ræktað og bætt, svo að ekki er lengur réttnefni að kenna hana vi(S „kot.“ Þau eignuðust alls 6 börn. Af þeim lifa 5 og eru öll upp komin og hin mannvænlegusLu. En nú skulutn vér líta aftur í tímann, áð- ur en vér förum að tala við hús- bcmdann um sjómennskuárin. Þorsteinn í Efstakoti, — en svo er hann oftast neíndur —, ér sonur hjónanna Vilhelms Antons Árna- sonar frá Hatnri (f. 30. ágúst, d. 13. nóv. 1934) og Freyju Þorsteinsdótt- ur frá Upsum (f. 15. febr. 1860, d. 25. febr. 1951) Hann fæddist að Skáldalæk 14 ágúst 1886. Ber hann sennilega nafn móðurafa síns, Þor- steins smiðs Þorsteinssonar á Ytri Másstöðum. — Þorsteinn Antonsson Þorsteinn Antonsson ólst upp með foreldrum sínum, fyrst að Skáldalæk (2—3 ár) og svo á Hamri í stórum systkina hóp For- eldrtun lians varð alls 14 barna auð- ið og af þeim komust 9 til l'ullorð- ins ára. Anton á Hamri (og síðar á Hrísum) var hinn mesti dugnaðar- maður og annálaður sjósóknari. Urn hann mætti skrifa merkilegan þátt. Líklega verður ekki með sönnu sagt, að Þorsteinn hafi „fæðst með árina í hendinni,“ en nærri lætur þó. Svo ungur var hann, er faðir hans tók að „sjóa“ hann. Innan tíu ára aldurs mun hann hafa verið, þegar faðir hans tók liann með sér í róðra við og við á sumrin, er hann skauzt á sjó til að afla „soðningar“ handa heimili sínu ogannarra. Þess- ir sumarróðrar frá ungum aldri og fram um íermingaraldur liafa verið Þorsteini allgóður undirbúningur undir ævistarfið. „Pabbi sagði mér þá frá mörgu og benti mér á margt,“ sagði Þorsteinn. Lesa má milli lín- anna, að gciður hefur kennarinn ver- ið og nemandinn námfús, — því að aðeins 16 ára gamall gjörðist Þor- steinn fullgildur háseti á Hamars- bátnum haust og vor. Trúlega hefur þó verið vandað til bátshafnar þar. — Eftir tvær vertíðir á Hamarsbátn- um réðzt Þorsteinn á hákarlaskip að vori til. Honum hefur ungum hlegið hugur í brjósti að kynnast ævintýrum hafsins, enda hefur hann sennilega strax á bernskualdri lieyrt sögur af hetjulegri sókn Eyfirðinga á haf út af vörum föður síns, sem þær veiðar hafði stundað. Hann hef- ur því svo sem vitað að vistin á há- karlaskipunum var i 11 og hörð. Hann hel’ur heyrt getið um vosbúð- ina og þrælavinnuna í aflahrotun- um og háskasamlega útivist í haf- ís og stórviðrum. En á hina hönd- ina var ævintýri sjómennskunnar og skjótfenginn gróði, þegar vel gelck. Það réði úrslitum. Þorsteinn stundaði liákarlaveiðar svo árum skipti, aðallega á „Henn- ing“ með skipstjórunum Jóhanni Magnússyni á Selárbakka, hinum kunna aflamanni, og Jóni Baldvins- syni, er lézt í haust á Akureyri. Eina vertíð var hann einnig á „Æskunni“ með Þorsteini Þorvaldssyni á Há- mundarstöðum. En upp úr því tóku útgerðarmenn skipanna að halda þeim fremur út á þórskveiðar en hákarla. Þá réði Þorsteinn sigá skip, er stundaði þorskveiðar með hand- færum. Meðal annars var hann eina vertíð á „Hjalteyrinni“ með Sæ-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.