Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 15

Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 15
JÓLABLAÐ DAGS 15 ínundi skipstjóra Sæmundssyni. Fór svo fram um nokkurn tíma, að Þor- steinn var á fiskiskipum á sumrum, en reri að heiman á haustin til fiskj- ar ;i árabátum. En þá kom nýtt til sögunnar. Nýr þáttur hefst í útgerð- arsögunni. Haustið 1902 fengu þeir Árni Gíslason og Sophus J. Nielssen kaupmaður á ísafirð'i, olíuhreyfivél eða motor í árabát, sem þeir áttu í félagi og Árni fór með. Vél þessi var frá Mölierup í Esbjærg, liafði tveggja hesta afl og kostaði 900 kr. sett í bátinn. Tekið er fram í sam- tíma fréttum, að „vclin hreyfi bdt- inn jajnt aftur á bali sem áfram,“ eyði sem svarar einu kílói af olíu á klukkustund, gangi báturinn álíka og er 6 menn róa. — Þetta þóttu engin smáræðis tíðindi liér við Eyja- fjörð. Reynzla Isfirðinganna af vél- bátnum jók hug útgerðarmanna hér um slóðir til að komast yfir slíka báta. Norðlenzkir sjómenn, sem kynnzt höfðu vélbátaútgerðinni vestra, hvöttu og mjög eindregið til vélbátakaupa. Vera má, að það hafi ráðið úrslitum, að vorið 1904 kom Skúli Einarsson frá ísafirði tneð vél- bát til Eyjafjarðar fyrstur manna. Bátur þessi var 4—5 smálestir að stærð og gekk sem næst li/2 viku sjávar á klukkustund. „Teningnum var kastað.“ Um haustið 1904 fer Óli Björnsson frá Hrísey til Dan- merkur í þeim tilgangi að kynna sér reynzlu manna þar á vélbátum og kaupa bát með vél, ef sýnt þætti, að vélbátaútgerð gæti borið sig við Eyjafjörð. Upp úr áramótum kom liann svo með vélbát, sem hann hafði keypt. Báturinn var lítill, en þó nteð þilfari. Hann kostaði 3500 krónur. Ári síðar, eða 1906, kaupir þor- steinn Jónsson kaupmaður vélbát- inn „Friðþjóf“ hingað til Dalvíkur. Fleiri bátar munu luifa verið keypt- ir hingað um það leyti, og þar með var vélbátaöldin hafin. Mörgu var áfátt. Viðgerðarverkstæði var ekki til og lærða vélamenn vantaði. Eini maðurinn, sem nokkuð kunni með vélar að fara liér um slóðir, var Oli á Selklöpp í Hrísey. Undir þessum kringumstæðum þurfti mikið áræði til að hefja vélbátaútgerð liér, en „gcefa fylgir djörfum.“ Vorið 1907 kom hingað vélbátur- inn „Bdldur.“ Hann átti Baldvin Þorvaldsson bóndi á Böggversstöð- um o. fl. Nú víkur sögunni að Þor- steini Antonssyni. Þetta vor ræðst hann vélamaður — motoristi — á „Baldur". Ekki lætur hann mikið af vélfræðikunnáttu sinni, enda hafði hann ekki haft mörg tækifæri tii nátns eða æfingar. Eina tækifær- ið, sem honum gafst, notaði hann hinsvegar vel: Hann fór eina ferð tií Akureyrar á vélbát með Óla Björnssyni á Selklöpp. Má nærri geta, að þekking lians hefir ekki ver- ið mikil í fyrstu, en þrátt fyrir það, gekk vélgæzlan vel þá um sumarið og þær fjórar vertíðir, sem Þor- steinn var vélstjóri á ,,Baldri.“ Hann komst fljótlega í skilning um byggingu og gang vélarinnar. Þekk- ing hans og leikni fór vaxandi með æfingunni. Hann lærði af reynsl- unni. Sannast hér, að „hollur er heimareyttur baggi.“ Árið 1916 kaupa þeir Árni Antonsson, bróðir Þorsteins, og liann, nýjan vélbát, sjö smálesta, smíðaðan á Akuryri af Bjarna Þor- kelssyni skipasmið. Bátur þessi var með þilfari. Þeir nelndu hann ,,Bjarma“, Hann kostaði, veiðar- færalaus, 8000 kr. Þótti það mikið i þann tíma, en báturinn gaf góða raun. Þeir bræður áttu hann til árs- ins 1939. Svo að segja allan þann tíma var Þorsteinn Antonsson for- maður á honum. Allt gekk farsæl- lega. Aldrei urðu nein óhöpp. Þor- steinn var jafnan með aflahæstu for- mönnum hér, ef ekki aflahæstur. Sum árin aflaði hann um og yfir 500 skpd. af þorski á „Bjarma“, og mörg árin stundaði hann einnig síldar- veiði með reknetjum, á bátnum, með ágæturn árangri. Með núver- andi verðlagi hefði sú veiði gefið álitlegar upphæðir í lilut. Svo byrjuðu herpinótaveiðarnar. Þá keyptu þeir bræður, ásamt Þor- steini Jónssyni og Sigurði P. Jóns- syni kaupmanni á Dalvík, gamalt hákarlaskip, sem mótorvél hafði verið sett í. Það var „Voni.n“. „Von- inni“ og v. b. „Jóni Stefánssyni“ héldu jieir út á herpinótaveiðar, og voru bæði skipin um eina nót. Skipstjóri á „Voninni“ var Kristján jónsson í Nýjabæ, en Hannes Þor- steinsson var með „Jón Stefánsson“, en veiðiformaður (,,nótabassi“) var Þorsteins Antonsson. Skipstjórapröf tók Þorsteinn aíÖrei. „Eg málti aldrei vera að þvi,“ segir liann. En ekki virtist það koma að sök. Rat- vísi Þorsteins var framúrskarandi. Einn merkur og greinagóður háseti hans, sem lengi var með honum, seg-st ekki vita til að honum hafi skeikað eða að hann hali villzt, hvað dimmt sem var. Síldarútgerð þeirra félaganna gekk vel. Jafnan öfluðu Jaeir vel og stundum nteð ágætum. Eitt sumar- ið öfluðu þeir t. d. 10000 mál og tunnur. — „Vonina“ áttu þeir félag- ar 3 ár, en seldu hana þá eitthvað suður. Það er um Þorstein Antonsson, eins og marga sjómenn, að honum er illa við að „farið sé í blöðin“ með nokkuð, sem hann telur að reikna megi sér til sjálfhælni. Hann vill láta joess eins getið, að allan sinn góða afla og alla velgengni sina á sjónum eigi hann að þakka ágætum skipshöfnum sínum. Hann hafi alltaf haft úrvalsmenn með sér, bæði á sjó og á landi. Hann minnist j^eirra allra með hlýjum þökkum og sendir þeim, er lifa, liugheilar jólakveðjur sínar. Ekki skal því neitað, að mikil (Framhald á bls. 26.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.