Dagur - 02.10.1980, Blaðsíða 10
Sumir landkrabbar hafa ein-
kennilegar hugmyndir um lif sjó-
manna. Þeir halda sem sé að það
sé „ástir og ævintýr" eins og segir
í danslaginu, en raunin er önnur.
Sjómaðurinn er að heiman lang-
tímum saman og verður oft að
vinna við ótrúlega erfið skilyrði,
samanber annan slagara sem
segir: „hafið býr yfir 100 hætt-
um“. í samningum togarasjó-
manna er ákvæði sem segir að
vinnutíminn um borð sé 6 stundir
vinna og 6 stundir hvíld. Þegar
mikið fiskast ákvarðast vinnu-
tíminn hins vegar af því sem
liggur fyrir og ekki er óalgengt að
skipsmenn þurfi að standa í tæpa
20 tíma og stundum lengur.
Myndirnar á þessari siðu voru
teknar um borð í Kaldbaki EA
301 fyrr í sumar. Það var Oddur
Arnason, háseti, sem tók þær í
tveimur túrum. í þeim seinni var
verið á skrapi á svæði vestur af
Reykjanesi sem kallast þýska
flugbrautin, en í fyrri túrnum
voru þeir á Vestfjarðamiðum.
„Það hefur bara gengið vel í
sumar, en það hefur verið hálf-
gert los á okkur. Við sigldum og
fórum í klössun úti, en á meðan
var gott fiskirí hér heima. Svo
koma öll þessi bönn til viðbótar",
sagði Þorsteinn Vilhelmsson,
skipstjóri í samtali við Dag. „Ég
hef allt til þessa verið alfarið á
móti kvóta á hvert skip, en er nú
farinn að komast á þá skoðun að
slíkt fyrirkomulag sé e.t.v. það
besta.“
Togarar Ú.A. eru þekktir fyrir
að koma með gott hráefni í land.
Þorsteinn var i fríi í síðasta túr, en
hann sagðist hafa heyrt karlana á
bryggjunni tala um að fiskurinn
sem Kaldbakur kom inn með
Síðast hefði verið fallegur.
Kaldbakur fór út í gærmorgun.
Karlarnir um. borð fá ekki fast
land undir fætur fyrr en eftir 10
daga eða svo.
Jón Hinriksson kokkur á sinum víg-
stöðvum.
Birgir Valdimarsson vélstjöri.
Þorsteinn Vilhclmsson, yngsti skipstjórinn hjá Ú.Á.
Þetta var hið sæmilegasta hal.
Oddur Árnason tók mvndirnar um
borð.
Bobbingarnir komnir inn á dekk og pokinn er á næsta leyti.
Tvcir hásctar slá stroffu á belginn.
..
..
Siginfiskframleiðsla er alltaf vinsæl
um borð í togurum.
to. DAGUR